Morgunblaðið - 06.12.1990, Blaðsíða 45
M9BPWMBMP.WI FimMiTWPAfiVjtifa PfiaWBjWiWW)
15
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Stefnt er að því að auka íþróttakennslu meðal barna á grunn- og framhaldsskólastigi.
Menntamálaráðuneytið:
Áhersla lögð á aukna íþróttakennslu
Fyrirhugað er að efla íþróttakennslu á grunn- og framhalds-
skólastigi og minnka að sama skapi hlutfall bóknámsgreina frá
því sem verið hefur, að sögn Svavars Gestssonar menntamálaráð-
herra.
Aukin áhersla var lögð á Iist-
og verkgreinar, þar með taldar
íþróttir, í námskrá sem gefin var
út síðastliðið vor og fyrirhugað
er að auka hana enn frekar.
„íþrottir hafa í gegnum tíðina
verið mjög lítill hluti af heildar-
viðveru í grunn- og framhalds-
skólum og hefur niðurskurður á
tímum á undanförnum árum yfir-
leitt komið niður á íþrótta-
kennslu" sagði Svavar Gestsson
á blaðamannafundi um íþróttir
og íþróttakennslu.
Hann sagði að fyrirhugað væri
af hálfu menntamálaráðuneytis-
ins að breyta þessu með því að
stækka hlut íþrótta og annarra
verk- og listgreina og minnka
hlutfall bóknámsgreina frá því
sem verið hefur.
Minnkað hlutfall bóknáms-
greina á einkum við um eldri
bekki, þar sem ekki er hægt að
auka við tímasókn, en meðal
yngri bama hefur skóladagurinn
verið lengdur í þessum tilgangi
og verður lengdur ennfrekar
næsta haust.
Að sögn Janusar Guðlaugsson-
ar námsstjóra í íþróttum hjá
menntamálaráðuneytinu hafa
rannsóknir á skyn- og hreyfi-
þroska barna verið efldar mjög
undanfarið og stendur til að ef!a
þær enn frekar.
„Tenging milli almenns náms
og bóklegs er orðin mikið meiri.
Kennarar eru m.a. famir að nýta
sér hreyfiþroskapróf við upphaf
skólagöngu barna til að greina
ástand þeirra og gefa þeim verk-
efni í samræmi við þær niðurstöð-
ur. Með þessu móti verður hægt
að skoða ástand barnanna nánar
á næstu árum heldur en hingað
til hefur verið gert,“ sagði Janus.
Hamrahlíðakórinn:
Hlj ómdiskurinn
Kveðið í Bjargið
ÍSLENSK tónverkamiðstöð hef-
ur nú endurútgefið hljómdiskinn
Kveðið í Bjargið sem fyrst var
gefinn út árið 1988. A diskinum
er íslensk tónlist flutt af Hamra-
hlíðarkórnum undir stjórn Þor-
gerðar Ingólfsdóttur. Höfundur
tónlistar eru Jón Nordal, Jón
Leifs, Þorkell Sigurbjörnsson,
Hjálmar R. Ragnarsson og Atli
Ileimir Sveinsson. Sjóvá-
Almennar styrktu endurútgáfu
disksins, og Ríkisútvarpið sá um
allar upptökur á tónlistinni.
Árið 1989 var þessi hljómdiskur
valinn einn af 12 eftirtektarverð-
ustu diskum frá Norðurlöndunum
í Japan af tímaritinu The Record
Geijutsu sem er virtasta tímarit þar
í landi á sviði klassískrar tónlistar
og gefið út í 150.000 eintökum í
hverjum mánuði. Nú í september
sá þetta sama tímarit ástæðu til
að fjalla um diskinn öðru sinni og
sagðir þar m.a: „hljómur Hamra-
hlíðarkórsins er einstaklega tær og
góður ... tónlistin sem kórinn flyt-
ur, sýnir vel þá miklu grósku sem
einkennir íslenska kórtónlist."
Gagnrýnendur í löndum okkur
nær hafa einnig farið mjög lofsam-
Hljómdiskur Hamrahlíðarkórs-
ins.
legum orðum um diskinn og hefur
honum m.a. verið lýst sem mjög
áhrifamiklum, bæði í flutningi og
tónlist.
Bjarni Rúnar Bjarnason tón-
meistari og Erlingur Páll Ingvars-
son myndlistarmaður hafa unnið
við þessa sem og aðrar útgáfur
tónverkamiðstöðvarinnar.
Bæklingur á þrem tungumálum
fylgir diskinum, þar sem fjallað er
um kórinn og tónlistina. Áuk þess
eru allir ljóðatextar birtir á íslensku
og í enskri og þýskri þýðingu.
(Fréttatilkynning)
I^HVERF IHUGIifl
Innhverf íhugun er huglæg þroskaaðferð sem
allir geta lært. Iðkun hennar vinnur gegn
streitu og stuðlar að heilbrigði og ánægju í
daglegu lífi.
Almenn kynning í kvöld, fimmtudag, á Lauga-
vegi 24, kl. 20.30. Aðgangur er ókeypis.
Nánari upplýsingar í síma 16662.
íslenska fhugunarfélagið.
Dr. Anna Agnarsdóttir
Félag íslenskra
fræða:
Fundur um
rannsóknir
• •
Onnu Agn-
arsdóttur
FÉLAG íslenskra fræða heldur
opinn fund í Skólabæ á horni
Suðurgötu og Kirkjugarðsstígs,
fimmtudaginn 6. desember kl.
20.30.
Dr. Anna Agnarsdóttir lektor í
sagnfræði við Háskóla íslands
ræðir á þessum fundi um rann-
sóknarvandamál sem tengjast
doktorsritgerð hennar og kemur
Jörundur hundadagakonungur við
sögu. Anna lauk doktorsprófi á
síðastliðnu ári frá London School
of Economics. í ritgerð sinni fjallar
hún um samskipti Bretlands og
íslands á árunum 1800-1820.
RAYMOND WEIL
GENEVE
LE TEMPS CRÉATEUR
FIDELI0
Sígild hönnun, handunnið,
með 18 K. gullhúð, vatnsþétt.
Einnig til í dömustærð með
cða án steina.
Verð frá kr. 69.000,-.
T
GILBERTÚRSMIÐUR
Laugavegi 62, sími: 14100
Þú smlar lestrarþörf dagsins
ásúJum Moggans!
MARTROÐ
Á MIÐNÆTTI
eftir Sidney Sheidon
Sidney Sheldon, sem er mest lesni
skáldsagnahöfundur í Bandaríkjun-
um, sendir nú frá sér nýja skáld-
sögu og tekur upp þráðinn um
Katrinu Dougias úr bókinni „Fram
yfir miðnætti”.
Það er griskur auðjöfur, Demiris,
sem hefur örlög hennar i hendi sér,
en hann þarf einnig að afmá Sþor
sem ekki mega sjást. Atburðarásin
er hröð og spenna mikil, því öll
meðul eru notuð til að koma fram
viljasinum.
Bókin kom út í Bandarfkjunum í
Siilney Sltcldo"
Sidney Shddon \
kannþ*,,*,f®
koma lesandanum
r'
MttlWW"”" /
und»nl»rin *' '
lÖKHFORLAGSBJEKI