Morgunblaðið - 06.12.1990, Blaðsíða 64
0661 H38M323Q .3 3UDAQUTMMI'i QIQAI8VIUD5ÍOM
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 1990
Minning:
Unnur Thoroddsen
lyfjafræðingur
Fædd lffebrúar 1922
Dáin 27. nóvember 1990
Látin er hér í borg Unnur Thor-
oddsen lyfjafræðingur. Hún fæddist
í Reykjavík 1. febrúar 1922, dóttir
hjónanna Reginu Benediktsdóttur
Thoroddsen og Guðmundar Thor-
oddsen prófessors. Unnur ólst upp
á góðu heimili við ástríki foreldra
.og margra systkina. En skyndilega
dimmdi þegar móðirin var hrifin á
braut. Móðurmissirinn markaði
djúp spor í líf Unnar, spor sem aldr-
ei fennti yfir. Unnur fór í langskóla-
nám og varð stúdent árið 1944.
Háskólanámið sem hún valdi sér
var lyíjafræði.
Unnur giftist ung að árum Karli
Jóhannssyni. Böm þeirra urðu tvö:
Ragna og Guðmundur. Karl Jó-
hannsson og Unnur slitu samvistir.
Seinni maður Unnar var Karl Jóns-
son. Hann lést árið 1968.
Fyrir meira en þremur áratugum
komu tvær skólastúlkur til dvalar
á heimili Unnar. Hún bjó þá í húsi
við Eiríksgötuna ásamt tveimur
öðrum fjölskyldum. Var það gott
sambýli. Unnur tók á móti okkur
hýr á svip og glaðleg. Hún var þá
í blóma lífsins, rúmlega þrítug að
aldri, lágvaxin og fremur þétt, létt
á fæti og kvik í hreyfingum, ljós-
hærð og gráeygð með skýran augn-
svip og lágu augun innarlega, bros-
mild og hlý í framkomu. Frá fyrsta
degi reyndist Unnur okkur vel. Allt
sem hún átti var okkur velkomið
og innan skamms vorum við sem
heimilismenn, nutum þó fremur
hlunninda en skyldur væru á okkur
lagðar. Á heimili Unnar bjuggum
við síðan næstu þijá veturna við
góðan hag.
Þegar fréttin um veikindi og
andlát Unnar barst okkur var sem
syrti að. Fregnin seiddi úr hugar-
fylgsnum löngu iiðnar stundir og
atvik. Þar ber hæst minninguna um
Unni, hreinan svip hennar, fas og
hlýju. Þar fór kona sem aldrei lét
illt orð falla í garð annarra, kona
sem í viðmóti og alúð var sú sama
við fólk hvar sem það var statt í
veraldarstiganum, gjafmild og sam-
úðarfull.
Nú er Unnur horfin. Við hörmum
lát hennar. Að leiðarlokum þökkum
við henni samfylgdina og dreng-
skapinn.
Ragnhildur Helgadóttir,
Herdís Sveinsdóttir.
Við viljum segja nokkur orð um
hana Unni, ömmu okkar.
Við kynntumst henni fyrst fyrir
t
Hjartkær faðir okkar,
JÓN GUÐMUNDSSON
frá Stóra-Laugardal,
Tálknafirði,
andaðist á Hrafnistu aðfaranótt 5. desember.
Fyrir hönd aðstandenda,
Sigurrós Jónsdóttir,
Erna Jónsdóttir,
Gerða Jónsdóttir,
Leifur Jónsson.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
HALLDÓR JÓHANNSSON
bifreiðastjóri,
Sólvallagötu 36,
Keflavík,
lést aðfaranótt 5. desember.
Auður Þórðardóttir,
Guðrún Þóra Halldórsdóttir, Þorsteinn Þorsteinsson,
Halldór Már Sverrisson,
Þorsteinn Jóhann Þorsteinsson.
t
Útför móður okkar,
GUÐNÝJAR INGIBJARGAR BJÖRNSDÓTTUR,
Eskihlíð 12A,
Reykjavík,
fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 7. desember kl. 10.30.
Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeim, sem vildu minnast henn-
ar, er bent á líknarstofnanir.
Auður Aðalsteinsdóttir,
Ragnheiður Aðalsteinsdóttír,
Bessi Aðalsteinsson.
t
Faðir okkar, ten§dafaðir og afi,
GUNNAR ÁGÚSTSSON
símvirki,
Barmahlið 17,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 7. desember
kl. 13.30.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim, sem vilja
minnast hans, er bent á Hjartavernd.
íris Gunnarsdóttir,
Sindri Gunnarsson, Sólveig Þórarinsdóttir,
ívar Gunnarsson, l'na Björg Ágústsdóttir
og barnabörn.
Unnur Thoroddsen lyfjafræðing-
ur lést 27. nóvember sl. Hún fædd-
ist 1. febrúar 1922 í Reykjavík.
Faðir hennar var Guðmundur Thor-
oddsen prófessor og yfirlæknir við
Landspítalann, sem lést 1968, og
móðir hennar var Regína Magdal-
ena Benediktsdóttir, sem lést langt
um aldur fram, 1929. Guðmundur
og Regína áttu 7 börn, þau eru
Dóra, Asta, Skúli,'lést 1973, Unn-
ur, Hrafnhildur Gríma, Regína
Benedikta og Katrín, en hún dó
1926 tæplega mánaðargömul.
Seinni kona Guðmundar var Sigurl-
ín Guðmundsdóttir, og sonur þeirra
er' Þrándur, og kjördóttir Ásta
Björt.
Að loknu barnaskólanámi fór
Unnur í Menntaskólann í Reykjavík
og lauk stúdentsprófi 1941 og hefði
því orðið 50 ára stúdent að vori.
Er nú enn stórt skarð höggvið í
hópinn, sem taldi 60 manns.
Fyrstu kynni okkar Unnu voru
þegar við hófum báðar nám í stærð-
fræðideild Menntaskólans í Reykja-
vík haustið 1938. Við settumst við
sama púlt, og var það upphafið að
ótjúfanlegri vináttu. Unna var
gædd flestum þeim kostum, sem
einkenna góða og göfuga sál. Hún
var einstaklega hlý og góð mann-
eskja og sagði aldrei styggðaryrði
við nokkurn mann. Hún var góðum
gáfum gædd og virtist læra allt vel
án mikillar fýrirhafnar, hún var
mjög skemmtileg og hafði frábæra
kímnigáfu og frásagnarhæfiieika,
enda átti hún ekki langt að sækja
það.
Það var 10. maí 1940 að breski
herinn steig á land og hemam ís-
t
Móðir okkar, tengdamóðir og amma, _
UMNURTHORODDSEN
lyfjafræðingur,
verður jarðsungin frá Bústaðakirkju í dag, fimmtudaginn 6. desem-
ber, kl. 13.30.
Ragna Karlsdóttir, Hjálmar Eysteinsson,
Guðmundur Karlsson, Sigrún Ólafsdóttir
og barnabörn.
t
Faðir okkar, tengdafaðir og afi,
STEINGRÍMUR JÓHANNESSON
bifreiðastjóri,
Hrafnhólum 6,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 7. desember
kl. 15.00.
Guðrún Helga Steingrímsdóttir, Snorri Ágústsson,
Anni Steingrímsdóttir,
Stígur Steingrímsson, Nfna Hrólfsdóttir,
Jóhannes Helgi Steingrímsson
og barnabörn.
t
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
RÖGNVALDUR SIGURÐSSON
trésmíðameistari,
Iðufelli 4,
sem lést 28. nóvember, verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu
mánudaginn 10. desember kl. 13.30.
Auður Magnúsdóttir,
Þórunn Rögnvaldsdóttir,
Fjóla Rögnvaldsdóttir, Sígurður Örn Brynjólfsson,
Ásta Rögnvaldsdóttir, Arnór Árnason,
Arnaldur Rögnvaldsson, Patrína Rögnvaldsson
og barnabörn.
t
Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
HJÁLMAR BÖÐVARSSON
frá Bólstað,
Bakkabraut 1,
Vík í Mýrdal,
sem lést á Sjúkrahúsi Suðurlands, Selfossi, þann 27. nóvember
sl., verður jarðsunginn frá Víkurkirkju laugardaginn 8. desember
kl. 14.00.
*
Þóra Þorbergsdóttir,
Þorbergur Þorsteinn Reynisson, Gunnhildur Haraldsdóttir,
Sigurður Karl Hjálmarsson, Áslaug Einarsdóttir,
Vilborg Hjálmarsdóttir, Kristján Benediktsson,
Anna Matthildur Hjálmarsdóttir, Einar Hjörleifur Ólafsson,
Jón Hjálmarsson, Sigrún Guðmundsdóttir
og barnabörn.
sautján árum, þessari litlu, kátu
konu. Hún tók á móti okkur með
útbreiddan faðminn og hefur haldið
okkur þar síðan. Við höfðum aldrei
átt neina föðurömmu áður og þegar
maður sem lítiil krakki fékk að
heyra hana segja: „Þetta eru nýju
ömmubörnin mín“ gleymir maður
því aldrei.
Hún var amma okkar þá og kem-
ur alltaf til með að verða það. Það
er leitt að þurfa að skilja við hana
núna, en hún kemur alltaf til með
að verða í huga okkar og hjarta.
Far þú í friði,
friður guðs þig blessi,
hafðu þðkk fyrir allt og allt.
(V. Briem)
Inga og Kalli.
land. Þeir komu í skólann samdæg-
urs og leituðu um allt hús að þýsku-
kennaranum okkar, en fundu ekki
í það skiptið, en tóku hann til fanga
síðar, og vakti það bæði gremju og
kvíða meðal nemendanna. Þetta var
síðasti skóladagurinn fyrir próf
þetta vor. Prófín hófust á réttum
tíma, en áður en þeim lauk kom
herinn aftur og tók af okkur Mennt-
askólahúsið. Varð þá að hætta við
að prófa í sumum greinum, en þeir,
sem fóru í stúdentspróf og gagn-
fræðapróf voru prófaðir í Alþingis-
húsinu. Um haustið var efri bekkj-
unum komið fyrir í kjallara Há-
skóla íslands, sem var í byggingu.
Húsnæðið var ekki tilbúið fyrr en
5. nóvember það haust, og þá var
skólinn settur. Þetta hafði ýmsar
breytingar í för með sér og kom
róti á skólalífið. En stúdentsprófí
lukum við um vorið, og var skólan-
um slitið 16. júní 1941 í hátíðarsal
Háskólans.
Unnur hóf nám við Lyfjafræðing-
askóla íslands haustið 1941 og var
við verknám í Ingólfs Apóteki frá
1941-44. í október 1944 lauk hún
exam. pharm. prófí frá skólanum
og fékk þá stgðu sem aðstoðarlyfja-
fræðingur í Ingólfs Apóteki og vann
þar til 1946. Þann 23. júní 1945
giftist hún Karli Jóhannssyni, deild-
arstjóra hjá útlendingaeftirlitinu.
Hann var sonur Jóhanns P. Jons-
sonar og Rögnu Pétursdóttur, gull-
smiðs á Akureyri og síðar í Reykja-
vík. Böm þeirra eru Ragna, verk-
fræðingur, vinnur við jarðeðlisfræði
hjá Orkustofnun, og Guðmundur,
kerfisfræðingur, sem nú er í tölvun-
arfræði í Háskóla íslands. Ragna
er gift dr. Phd. Hjálmari Eysteins-
syni jarðeðlisfræðingi, og eiga þau
þrjú börn, tvíburana Unni og Ára,
átta ára, og Eystein, tveggja ára.
Kona Guðmundar er Sigrún Ólafs-
dóttir, og eiga þau tvo syni, Skúla,
fimmtán ára og Þorbjöm, sjö ára,
en Guðmundur átti áður dóttur og
Sigrún tvö börn.
Unnur og Karl skildu eftir fímm
ára sambúð, og fór þá Unna aftur
að starfa við sitt fag. Starfaði með-
al annars hjá Lyfjaverslun ríkisins
um tíma og einnig í Laugavegs
Apóteki, en lengst af í Garðs Apó-
teki.
Nokkrum áram eftir að Unna
skildi við mann sinn kynntist hún
öðrum manni, Karli Jónssyni frá
Ey í Landeyjum, bifreiðarstjóra.
Þau hófu sambúð og bjuggu fyrst
á Eiríksgötu 21, en síðar keyptu
þau íbúð á Langholtsvegi 19. Þessi
maður reyndist Unni og börnum
hennar frábærlega vel, og tel ég
að það hafí verið mikil hamingjuár.
En sambúð þeirra varð ekki löng,
því að 1968 veiktist Karl alvarlega
og lést nokkru síðar. Þetta var mik-
ið áfall fyrir Unni, og má líklegt
telja að þau sár hafí aldrei gróið
að fullu. Eftir að Unna hætti störf-
um hélgaði hún sig að mestu upp-
eldi dótturbarna sinna, sem hún
gætti á daginn þegar foreldrar
þeirra voru að vinna. Nú era eldri
börnin farin að ganga í skóla, en
Eysteinn litli hefur verið augasteinn
ömmu sinnar frá því hann fæddist,
en hún hefur annast hann daglega
sl. tvö ár. Mikill er missir barna-
barnanna allra að amma þeirra er
horfin héðan.
Þegar litið er til baka er margs
að minnast frá góðum og skemmti-
legum samverastundum, en ef til
vill ber hæst þegar Unna tók mig
með sér að heimsækja ömmu sína
Theódóru, en það var siður fjöl-
skyldunnar að mæta í tedrykkju
hjá Theódóra á sunnudagsmorgn-
um. Theódóra, sem var þá um átt-
rætt, var bráðhress og skemmtileg
og hrókur alls fagnaðar. En mest
þótti mér gaman þegar hún las fyr-
ir okkur úr Þulum sínum. Hún las
með slíkri fegurð og glaðlegri innlif-
un, sem skáldum einum er lagið.
Með þessum fátæklegu orðum
og hrygg í húga kveð ég elskulega
vinkonu mína, sem gaf mér svo
mikið. Ég mun geyma fagrar minn-
ingar um hana ókomin ár.
Ég votta bömum hennar, barna-
börnum, systkinum og öðrum ætt-
ingjum innilegustu samúð mína og
ijölskyldu minnar.
Þorbjörg Magnúsdóttir