Morgunblaðið - 06.12.1990, Blaðsíða 74

Morgunblaðið - 06.12.1990, Blaðsíða 74
74 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 1990 HANDKNATTLEIKUR / V-ÞYSKALAND „Verðum komnir með ' öflugt landslið fyrir ÓL í Barcelona 1992“ - segir Horst Bredemeier, landsliðsþjálfari Þýskalands. Hann hefur kallað á níu leikmenn frá austurhluta landsins í landsliðshóp sinn „VIÐ verðum komnir með öflugt landslið eftir eitt ár og þá hefst lokaundirbúningurinn fyrir Ólympíuleikana í Barce- lona 1992 á fullum krafti hjá okkur,“ segir Horst Bredemei- er, landsliðsþjálfari Þýska- lands, en hann hefur mjög starkan leikmannahóp fram að tefla eftir sameiningu þýsku ríkjanna. „Það er mikill styrkur að fá marga unga og stórefni- lega leikmenn frá austurhluta landsins." 'Horst Bredemeier. sterkustu leikmenn til Barcelona. Sumir eldri leikmenn eru ekki inni í myndinni núna, en þeir eiga góða möguleika,“ sagði Bredemeier, sem á þar við Jochen Fraatz, sem leikur með Essen, en hann hefur ekki leik- ið með landsliðinu að undanförnu. Reiknað er með að Fraatz verði aftur kominn í landsliðshópinn í janúar. Nú eru A-Þjóðveijarnir Schneider og Seidel í stöðu Fraatz. Þá er gamla kempan Ríidiger Borc- hardt, A-Þýskalandi, -sem leikur með Dankersen, undir smásjánni. Markvörðurinn snjalli hjá Gum- Bretemeier segir að hann þurfi að fá fimmtán til tuttugu leiki fyrir landsliðið til að ná því saman sem sterkri liðsheild. „Leikkerfin sem landsliðin léku voru ekki þau sömu og því þarf að lagfæra ýmis- legt og laða fram það besta frá hvorum landshluta." Bredemeier hefur valið níu leik- menn frá A-Þýskalandi í landslið sitt. Fimm sem leika með félagslið- um í austurhlutanum og fjóra sem leika með liðum í V-Þýskalandi. „Við munum fara með alla okkar Þjóðveijar ekki til íslands? Fyrirhugað var að landslið Þýskalands kæmi til íslands fyrir jól og léki hér tvo landsleiki. íslenska landsliðið átti síðan að fara út með því þýska og ieika í Þýskalandi. Svo getur verið að ekkert verði úr þessum leikjum, þar sem Bredemeier er ekki tilbúinn að koma til íslands með lið sitt - segir það ekki nægilega vel undirbúið fyrir ís- landsferð. Holger Winselmartn, fyrrum fyrirliði A-Þýskalands. er í iandsliðshópi Brede- meier. mersbach, Andreas Thiel, er einnig inni í myndinni, þó svo að hann hafi sagt að hann væri hættur. Þeir leikmenn sem eru nú í lands- liðshópi Bredemeier, eru þessir: ■Leikmenn í A-Þýskalandi Jens Kurbins, Leipzig Stephan Hauck, Berlín Andreas Seidel, Frankfurt Holger Winselmann, Magdeburg Thomas Michel, Magdeburg ■A-Þjóðveijar, sem leika með lið- um í V-Þýskalandi: Jurgen Querengásser, Essen Matthias Hahn, Hameln Holger Schneider, Bad Schwartau Andreas Wigrin, Húttenberg ■Landsliðsmenn V-Þýskalands: Stefan Hacker, Essen Michael Krieter, Kiel Volker Zerbe, Lemgo Michael Klemm, Dormagen Richard Ratka, Dússeldorf Martin Schwalb, W.-Massenheim Andreas Dörhöfer, Gummersbach Hendrik Ochel, Milbertshofen Peter Quarti, Essen Bernd Roos, Grosswallstadt Ánægðir og stoltir Haukar. Ritnefnd bókarinnarar um sögu Hauka í 60 ár, ásamt formanni Hauka. Bjarni Haf- steinn Geirsson, Guðmundur Aðalsteinsson, Hermann Guðmundsson, Steinþór Einarsson, formaður, Albert Már Stein- grímsson og Lúðvík Geirsson, sem skráði söguna. A myndina vantar Jón Egilsson. Haukar í 60 ár ■ AC Mílan og Olympía Asunci- on frá Paraguay leika til úrslita um heimsbikarinn í knattspyrnu í Tokýó á sunnudaginn. Luis Cu- billa, þjálfari Olympía, er mjög bjartsýnn á að lið hans nái að leggja Evrópumeistarana frá Míílanó. „Við horfum á ítölsku knattspyrnuna í beinni útsendingu á hveijum sunnu- degi í heimalandi okkar og höfum skoðað vel leikskipulag ítölsku lið- anna“ sagði Cubilla. Lið hans, sem kom til Tokýó í gær, hefur undir- búið sig sérstaklega fyrir þennan leik frá því í október er þeir urðu suður-ameríku meistarar annað árið í röð. Leikmenn AC Mílan eru væntanlegir til Tokýó í dag. Alber- igo Evani og Carlo Anelotte leika ekki með AC Mílan á sunnudag vegna meiðsla. Evani skoraði sigur- mark Mílanóliðsins 1989 er liðið vann Nacional frá Kolombíu í úr- slitaleik um heimsbikarinn. ■ ROMARIO, brasilíski knatt- spyrnumaðurinn hjá PSV Eindho- ven í Hollandi, þarf ekki að gang- ast undir uppskurð á hné. Þetta var haft eftir Kees Ploegsma, aðstoð- arþjálfara PSV, í gær. Romario hefur verið frá vegna hnémeiðsla í nokkrar vikur. Ekki er reiknað með að hann geti farið að leika með lið- inu fyrr en í janúar. Hann hefur verið mjög óheppinn með meiðsli því hann fótbrotnaði í mars og meiddist síðan á hné í opnunarleik hollensku knattspyrnunnar fyrir þetta tímabii. I 25 rúmenskir áhorfendur, sem fylgdu rúmenska blakliðinu, Uni- versitatea Craiovea, til Noregs til að sjá Evrópuleik liðsins gegn Sandnes, urðu eftir þar í landi á sunnudag. 13 þeirra höfðu beðið um hæii sem pólitískir flóttamenn í gær. Alls komu um 80 stuðnings- menn liðsins með til Noregs. KNATTSPYRNUFÉLAGIÐ Haukar í Hafnarfirði verður 60 ára 12. apríl á nk. vori. Haukar tóku forskot á sæluna í gær en þá glöddust þeir þegar fyrstu eintökin af sögu félags- ins; Haukar í 60 ár, komu út úr prentsmiðju. Bókin, sem er 402 bls. í stóru broti, er afar glæsileg og vönduð. Það er á ekkert félag hallað þegar sagt er að saga Hauka sé vegleg- asta bók sem nokkuð íþróttafé- lag í landinu heftur gefið út. Við erum afar stoltir að þessari bók, sem segir á skemmtilegan og fróðlegan hátt frá sögu félagsins í máli og myndum,“ sagði Steinþór Einarsson, formaður Knattspyrnufé- lagsins Haukar, en hann sagði að Lúðvík Geirsson, sem skráði söguna og ritnefnd undir forsæti Hermanns Guðmundsson, fyrrum formaður fé- lagsins, hafi unnið frábært starf í sam- bandi við vinnslu bókarinnar. „Þegar ákveðið var að gefa út þessa bók leit- uðum við strax til Lúðvíks vegna I reynslu hans við ritstörf og kunnug- leika hans í Hafnarfirði. Hann vann miklu meira starf en að skrifa bókina, sem er ómetanleg heimild fyrir Hafn- arfjörð, Hauka og gott innlegg í íþróttasögu landsins,“ sagði Hermann Guðmundsson. Lúðvík hóf að vinna við bókina í mars 1989. „Ég vissi vel að til að skrifa viðburðarríka sögu félagsins, þannig að hún yrði ítarleg, fróðleg og skemmtileg, þýddi ekki að vinna sög- una að hlaupum. Það hefur verið gam- an að vinna að þessari bók, enda hef ég unnið með mörgum góðum mönn- um við leit að myndum og öðru. Það var dýrmætta að hafa hauka í horni sem Hermann og Jón Egilsson, sem þekkja sögu Hauka manna best og þá á Guðsveinn Þorbjömsson ekki minnstan þátt í að saga félagsins hef- ur varðveist. Hann vann ómetanlegt starf á fyrstu árum félagsins er hann skráði úrslit leikja, hveijir léku og annan fróðleik - þegar hann var á næturvöktum í lögreglunni. Það hefði verið erfiðara og tímafrekara að vinna bókina ef hans handbrögð hafi ekki verið til,“ sagði Lúðvík Geirsson, for- maður Blaðamannafélags íslands. Margir lögðu hönd á plóginn við myndasöfnun i bókina, en í henni eru á sjötta hundrað mynda. Hátt í 1000 Hafnfírðingar koma við sögu í bók- inni, en henni fylgir ítarleg nafnaskrá. Elstu myndimar eru frá 1920. I bókinni er ekki einvörðungu rakin saga og félagsstarf Hauka, heldur er komið mun víða við í íþróttasögu Hafnarfjarðar. Viðtöl eru við nokkra af helstu forystumönnum Hauka í gegnum tíðina, sagt frá Haukum í keppni, ferðalögum, skemmtunar- haldi, skrautlegri búningasögu, út- gáfumálum og ýmsu öðru fróðlegu. Haukar í 60 á, er vandað og veglegt rit. Bókin kostar 4000 kr. og gefa Haukar bókina út sjálfir með stuðn- ingi frá Hafnaríjarðarbæ, Sparisjóði Hafnarfjarðar og ýmsum öðrum fyr- tækjum og stofnunum í bænum. Þeir sem hafa hug á að tryggja sér eintak geta haft samband við Haukahúsið, en þar er séð um póstþjónustu um allt land, eða Bókabúð Olivers Steins, Bókabúð Böðvars og Bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar, sem sjá um sölu bókarinnar. ■ ÁKVEÐIÐ hefur verið að halda heimsmeistaramót í golfi með rúm- lega milljón pund í verðlaun. Mótið verður haldið í lok næsta árs á Jamaíka og whisky-fyrirtækið Jonny Walker er styrktaraðili móts- ins og gert er ráð fyrir að sigurveg- arinn fái um 40 milljónir ÍSK í sinn hlut. Gert er ráð fyrir 30 keppend- um, aðeins_ þeim allra bestu. ■ BRASÍLSKA knattspyrnusam- bandið hefur ákveðið að gefa þjálf- ara landsliðsins kost á að velja Brasilíumenn búsetta erlendis í landsliðið. Roberto Falcao, þjálfari landsliðsins, hefur hingað til aðeins fengið að velja „heimamenn" en frá og með áramótum má hann velja hvern sem er. Alemao, -sem Ieikur með Napólí, má þó ekki leika með liðinu vegna ummæla í garð lands- liðsþjálfarans fyrr á árinu. ÚRSLIT Knattspyrna Evrópukeppni landsliða, 2. riðill: Búkarest Rúmenía—San Marínó.............6:0 Ovidiu Sabau (2.), Dorin Mateut (18.), Flor- in Raducoiu (41.), Ionut Lupescu (57.), Pavel Badea (78.), Dan Petrescu (85.) Áhorfendur: 24.000 Staðan: Skotland............3 2 1 0 5: 3 5 Sviss...............3 2 0 1 7: 2 4 Búlgaría............3 1 1 1 4: 3 3 Rúmenía.............3 1 0 2 7: 6 2 SanMarínó...........2 0 0 2 0:10 0 Körfuknattleikur NBA-deildin Cleveland —DenverNuggets......121:117 Portland Trail Blazers — Miami Heat. 98:95 New Jersey Nets — Seattle.....106:102 Orlando Magic — New York Knicks 113:102 Philadelphia — Milwaukee......109:108 (Eftir framlengingu) Chicago Bulls — Phoenix Suns..155:127 Minnesota — Indianapolis Pacers.83:81 Atlanta Hawks — Houston Rockets 113:110 Sacramento — Dallas Mavericks..103:83 LA Lakers — Detroit Pistons....114:90
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.