Morgunblaðið - 06.12.1990, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 1990
63
Morgunblaðið/Albert Kemp
Biskup yfir íslandi hr. Ólafur Skúlason og sóknarprestur Fáskrúðs-
fjaðar sr. Þorleifur Kjartan Kristmundsson ásamt sóknarbörnum við
barnaguðsþj ónustu.
Fáskrúðsfjarð-
arkirkja 7 5 ára
Fáskrúðsfirði.
Hátíðarmessa var í Fáskrúðs-
fjarðarkirkju laugardaginn 1.
desember þar sem minnst var 75
ára afmælis kirkjunnar en hún
var vígð á uppstigningardag
1915 af Haraldi Jónssyni sem þá
var sóknarprestur hér. En aðeins
hann og Þorleifur Kjartan Krist-
mundsson hafa þjónað við kirkj-
una.
Hátíðarræðu flutti biskupinn yfir
íslandi herra Ólafur Skúlason. Kór
Stöðvarfjarðar og Heiðdalakirkju
sungu ásamt kór kirkjunnar. Böm
úr sunnudagaskóla kirkjunnar
sungu undir stjórn Ingigerðar Jóns-
dóttur og Láru Hjartardóttur.
Barnaguðsþjónusta var um morg-
uninn þar sem biskupinn var meðal
gesta og ræddi hann við börnin.
Kaffisamsæti var í Skrúð að lokinni
messu.
Elsti borgari staðarins, Þórarinn
Bjarnason, færði kirkjunni peninga-
gjöf til minningar um konu sína
Dagbjörtu Sveinsdóttur sem lést
fyrir ári.
Kirkjan var endurbyggð öll að
innan á sl. sumri, m.a. var sett
nýtt parketgólf á hana og allir bekk-
ir endurnýjaðir, gluggar settir nýir
og kirkjan öll máluð og er nú hin
vistlegasta.
- Albert
„ Tær og skýr skáldskapur og hefur yfir sér
heiðríkju heilbrigðrar iífssýnar".
Ólafur Haukur Árnasson
Góð gjöf handa þeim sem unna Ijóðum
^ .^og hollri visku.
V'- ÆSKAN
Hótel Saga:
Tískusýning fyrir „stórar stelpur“
TÍSKUSÝNING fyrir frjálslega
vaxnar konur verður haldin í
Skrúð á Hótel Sögu í kvöld
fimmtudag kl. 21. Á sýningunni
verða föt í stærðum frá 48 úr
átta verslunum í Reykjavík.
„Ég fékk þessa hugmynd eftir
að hafa dvalið í Hveragerði um
skeið og áttaði mig þá á að fijáls-
lega vaxnar konur eins og ég vita
fæstar hvar hægt er að fá föt í
stærri stærðum,“ sagði Elíza Guð-
mundsdóttir, sem stendur að sýn-
ingunni. Elíza fór sjálf í verslanirn-
ar og kannaði hvort þær vildu vera
með í sýningunni. „A tískusýning-
um sýna mjóar konur föt fyrir
grannar konur en nú sýna níu fijáls-
lega vaxnar konur föt fyrir stórar
stelpur og jafnvel stuttar. Með
þessu viljum við sýna að það er
hægt að líta vel út þó svo við séum
stórar."
Fyrir sýninguna verður boðið upp
á holla sérrétti fyrir þá sem vilja.
Kynnir verður Þórunn Gestsdóttir
ritstjóri.
Verslunarskóli Islands
Öldungadeild
Innritun á vorönn öldungadeildar Verzlunarskóla íslands fer fram
á skrifstofu skólans dagana 3.-6. desember kl. 08.30-18.00.
Eftirtaldar námsgreinar eru í boði á vorönn:
Bókfærsla
Enska
Hagræn landafræði
Líffræði
Ritun Ritvinnsla
Tölvubókhald
Þjóðhagfræði
Bókmenntir
Farseðlaútgáfa
Islenska
Mannkynssaga
Stofnun og rekstur fyrirtækja
Tölvufræði
Þýska
Danska
Franska
Landafræði og saga íslands
Reksturshagfræði
Stærðfræði
Vélritun
Áfongum ofangreindra námsgreina er hægt að safna saman
og láta mynda:
Próf af bókhaldsbraut Próf af ferðamálabraut
Próf af skrifstofubraut Verslunarpróf
Stúdentspróf
Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð fást á
skrifstofu skólans, Ofanleiti 1.
JÓLASTJÖRNUR
15% AFSLÁTTUR
Nu er tækifærið,
góð kaup.
jólastjömur
15% afslætti
birgðir endast.
Opið alla daga frá kl. 9-22.