Morgunblaðið - 06.12.1990, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 06.12.1990, Blaðsíða 30
m MORðOHBLAÐIÐ 'KIMMTUDAGUR 6,‘DESEMBER 1900 Rými á sjúkrahúsum eftir Ólaf Ólafsson í heilbrigðisskýrslum má lesa um að lengi hafa íslendingar búið vel hvað varðar fjölda sjúkrarúma mið- að við hin Norðurlöndin. Á síðustu áratugum hafa orðið miklar breytingar á vistunarmálum meðal nágrannaþjóða. Sérhæfðum deildum hefur fjölgað og heima- hjúkrun hefur eflst_ mjög vegna samfélagsbreytinga. í þessari grein verður fjallað um hvernig við ís- lendingar höfum staðið okkur í þessari þróun. í töflu 10 má lesa um fjölda og skiptingu rúma eftir sjúkrahús- deildum á Norðurlöndum. Almenn sjúkrahús Mun fleiri sjúkrarúm eru á heil- sugæslusjúkrahúsum og á almenn- um sjúkrahúsum á íslandi og Finn- landi en í hinum löndunum, en um og yfir 90% rúmanna eru rekin sem elli- og hjúkrunarrými. Skýringin er sú að í Noregi, Svíþjóð og Dan- mörku hefur almennum sjúkrahús- um úti á landsbyggðinni verið breytt í elli- og hjúkrunardeildir. íslendingar eru þó í nokkrum sér- flokki því að skurðstofustarfsemi, með vel búinni aðstöðu, er rekin víða á almennum sjúkrahúsum úti á landsbyggðinni enda er þess víða þörf. Þar er þó nær eingöngu rekin minni háttar skurðstofustarfsemi, t.d. eru gall-, maga-, þarma- og nýrnaaðgerðir sjaldan gerðar þar. Gerð hefur verið tilraun til þess að draga úr áðumefndri skurðstofu- uppbyggingu og sérhæfðri mönnun þeirra, en þær hafa flestar mætt harðri mótstöðu heimamanna og áhrifamanna. Lífí og heilsu er þó ekki stefnt í voða þótt skurðstofuað- staða væri lögð niður á nokkrum stöðum í dreifbýli. Samfara þessari breytingu þyrfti að bæta verulega samgöngur. Slík breyting mun því taka nokkurn tíma. Deildarskipt sjúkrahús Hlutfall deildaskiptra sjúkrahúsa af heildarsjúkrarými er svipað á Norðurlöndum. Með tilkomu „læknahúsa" hefur mikið af minni Tafla 10. Skipting rúma eftir deildum á Norðurlöndum á 100.000 íb. 1987. í D F N S l)Lyflæknis-, skurð- og geðdeildir og aðrar sérdeildir 630 585 865 540 640 2)Almenn sjúkrahús1 3502 26 3552 21 29 3) Endurhæfingar-,1 hjúkrunardeildir, elliheimili 1007 1023 661 1276 1235 Alls: 1986 16523 1861 1836 1907 Fjöldi rúma (2+3) á 100.00 íb. 1356 1043 996 1297 1264 1) Umönnunarstofnanir. 2) Mestur fjöldi þessara rúma er í reynd hjúkrunarrými, sbr. athugasemd í texta. 3)Allmörg rúm eru færð undir félagsmálaráðuneyti og um fjölda þeirra er ekki vitað. (Yearbook of Nordic Statistics 1988-’90) háttar aðgerðum verið fiutt frá þessum sjúkrahúsum. Sem dæmi má nefna að á árinu 1984 voru framkvæmdar um 500 aðgerðir (æxlis-, æðahnúta- og kviðslitsað- gerðir) á einni læknastöð í Reykjavík en 1987 hafði þessum aðgerðum fjölgað um 65%. En vegna mikilla framfara í skurð- og svæfingartækni hefur vandasömum og viðameiri aðgerðum fjölgað verulega svo að „sjúklingaþ}mgdin“ hefur aukist mikið og sérhæfðum deildum hefur því fjölgað. Eftirfarandi sérhæfðar deildir, einar sinnar tegundar, eru reknar á sjúkrahúsum í Reykjavík. Landspítalinn: hjartaskurðdeild, háþrýstingsdeild (göngud.), lungna- deild, gigtardeild, krabbameins- deild, taugadeild, taugalífeðlis- fræðideild (rannsóknad.), kvensjúk- dómadeild, fæðingardeild'), vöku- deild nýbura, húðdeild, bamageð- deild, barnaskurðdeild, blóðskilun- ardeild, sykursýkisdeild (göngu- deild), lýtalækningadeild, blóð- banki, isotopastofa, sýklarann- sóknadeild, veirurannsóknadeild, deild fyrir þroskahefta, áfengismeð- ferðardeild, meinafræðideild, ónæmisfræðideild, öldrunarlækn- ingadeild2 Borgarspítali: slysadeild, tauga- skurðdeild, HNE-deild (alnæmis- deild). Landakot: augndeild. Morgunblaðið/Emilía Guðbjörg Lind Jónsdóttir við eitt verka siiina. Guðbjörg Lind sýnir málverk í Slunkaríki GUÐBJÖRG Lind Jónsdóttir opnar málverkasýningu laugardag- inn 8. desember kl. 16.00 i Slunkaríki á ísafirði. Á sýningunni eru verk unnin á síðastliðnu ári. Guðbjörg Lind er fædd á ísafirði árið 1961. Hún stundaði nám í Myndlista- og handíðaskóla íslands og útskrifaðist frá málun- ardeild vorið 1985. Þetta er fímmta einkasýning Guðbjargar en hún hefur einnig tekið þátt í samsýningum bæði hér heima og erlendis. Slunkaríki er opið frá fimmtu- degi til sunnudags frá kl. 16-18. Sýningin stendurtil'30. desember. 1) Nokkur fæðingarrúm eru á Fæðíngarheímilinu. 2) Á Borgarspítala er öldrunar- lækningadeild hluti lyflækninga- deildar. Alls 29 sérdeildir eru því reknar í dag og þess vegna er starfsemi þessara þriggja sjúkrahúsa að mörgu leyti ólík. Á tveimur spítölum eru reknar barna-, geð-, endurhæfingar- og öldrunardeildir og á öllum spítölum eru reknar bæklunar-, bijósthols- skurð-, þvagfæraskurð-, svæfing- ar-, gjörgæslu-, röntgen-, blóð- meinafræði- og meinefnafræði- deildir. Á almennum lyflækninga- og handlækningadeildum á þremur spítölum eru starfandi sérfræðingar á ýmsum sérsviðum, sem yfirleitt er talin nauðsyn til þess að slíkar deildir standi undir nafni. Má þar nefna sérfræðinga í blóð-, lungna-, nýma-, meltingarfæra-, hjarta-, æða-, innkirtla-, smit- og öldrunar- sjúkdómum. Umönnunarstofnanir Ef litið er á heildarsjúkrarými á almennum sjúkrahúsum, endurhæf- ingar-, elli- og hjúkrunardeildum, m.a. geðhjúkrunardeildum, kemur í ljós að rúmafjöldi er mestur á ís- landi borið saman við hin Norður- löndin. Þetta er þversögn því að mun færrí 65 ára og eldrí búa á íslandi en þar. Ef að er gáð vistast nú um 10% 65 ára og eldri á elli- og hjúkrunarheimilum áíslandi en 3-7% á öðrum Norðurlöndum. Séu þjónustuíbúðir meðtaldar vistast 13% 65 ára og eldri á stofnunum á íslandi, en 7-9% á öðrum Norður- löndum. Önnur þversögn er að stofnunum fyrir rólfært fólk fjölgar en hjúkrunarheimili sitja á hakan- um. Heimahjúkrun Um hlutfallslegan fjölda sjúkl- inga sem sinnt er með heimahjúkr- un má lesa um í töflu 11. Ólafur Ólafsson „Landlæknisembættið þekkir fleiri dæmi þess að sjúklingar hafa orðið fyrir verulegu heilsu- tjóni vegna langrar bið- ar.“ þungt í kostnaði við heilbrigðis- og tryggingaþjónustuna. Hugsanlegar breytingar í Reykjavík Lengi hafa verið uppi hugmyndir um að breyta Landakotsspítala í hjúkrunardeild. Þar eð 25-30% af rúmum deildaskiptra sjúkrahúsa hafa verið tekin úr notkun um þriggja til fjögurra mánaða skeið á undanförnum 2 árum, telja margir að • þesi breyting eigi rétt á sér. Sjálfsagt mætti flytja verulegan hluta af skurð- og lyflækningaað- stöðu frá Landakoti yfir í B-álmu Borgarspítala. Áætláðar hjúkrunar- deildir sem ætlað er pláss í B-álmu fengju þá inni á Landakoti. Þessar breytingar gætu þó valdið meiri þrengingum á sérdeildum sjúkrahúsa í Reykjavík en nú er, en biðlistar bæklunar-, þvagfæra-, æða-, háls-, nef- og eyrnadeilda tala slnu máli. Trúlega er besti kosturinn að sameina rekstur Borg- arspítala og Landakotsspítala. Borgarspítalinn er eini spítalinn sem hefur verulega stækkunar- möguleika með tilliti til landrýmis. Samantekt 1. Hlutfallslegur fjöldi rúma í sérdeildum er svipaður á íslandi og öðrum Norðurlöndum. Tæp 4.000 þúsund manns bíða eftir meðferð á bæklunar-, þvagfæra-, æða-, háls-, nef- og eyrnadeildum og lýtalækn- Tafla 11. Fjöldi sjúklinga í heimahjúkrun á 1000 íb., 65 ára og eldri. ísland 89,8 Finnland 174,7 Danmörk 273,0 Noregur 160,7 (Health Stat. Nordic Countries 1988.) Tafla 12. Hvar býr fólk 65 ára og eldra á Norðurlöndum í heimahúsum í þjónustuíbúð Á elli-/hjúkrunarheim. I D F N S 87,2 93,4% 92,7% 92,6% 91,3% 3,1% 1,4% 1,0% 0,4% 5,7% 9,7% 5,2% 6,3% 7,0% 3,0% 100% 100% 100% 100% 100% (Yearbook Nord. Stat. 1989/90) Mun fleira eldra fólk býr á stofn- unum hér á landi en í nágrannaiönd- unum. Heimahjúkrun og heimahjálp hefur ekki verið sinnt nægilega vel og veldur því að hlutfallslega vist- ast fleiri á umönnunarstofnunum hér á landi en í nágrannalöndunum. Stefna okkar I elliheimilismálum hefur verið röng. Fólk er gert óvirkt um aldur fram. Kostnaður sem af þessu hlýst er verulegur og vegur ingardeildum, svo ekki er veijanlegt frá mannúðar- og líknarsjónarmiði að draga meir úr fjárstreymi til þessara deilda en orðið er. Landlæknisembættið þekkir fleiri dæmi þess að sjúklingar hafa orðið fyrir verulegu heilsutjóni vegna langrar biðar. En vissulega er borð fyrir báru fyrir nokkra hægræðingu á þessum deildum. Nú eru reknar 29 sérhæfðar deildir, einar sinnar tegundar, á sjúkrahúsum í Reykjavík, svo að hagsýni og hagræðingar hefur gætt í skipulagsmálum þeirra. Staðhæf- ing um að starfsemi þriggja sjúkra- húsa hér í borg sé svipuð er því röng. Til eru þeir sem eru talsmenn samkeppni og telja að barátta „frumeindanna" sé forsenda hag- sýni. Staðreynd er þó að heilbrigðis- þjónustan líkt og samfélagið blómg- ast best með samvinnu og samhjálp eins og best hefur komið fram á íslandi. Með samvinnu þeirra er reka og starfa á sjúkrahúsum mætti ná frekari hagræðingu en nú er með því að: — sameina (eða reka í samvinnu) Borgarspítalann og Landakotsspít- ala (betri nýting) án þess að dregið verði úr starfsemi sérhæfðra deilda. — fækka þráðavaktarsjúkrahús- um í tvö í stað þriggja. — fækka og sameina bakvaktir lækna. — fjölga fimm-daga deildum. — fjölga hjúkrunarrúmum svo að hjúkrunarsjúklingar „teppi“ ekki rúm á sérhæfðum deildum. Reykjavíkurborg virðist seint um síðir hafa tekið við sér í þessu efni. — frekari tilraunir verði gerðar með sérhæfðar aðgerðir, svo sem þvagfæra- og bæklunarskurðað- gerðir, verði framkvæmdar á vel búnum sjúkrahúsum á landsbyggð- inni. Landlæknisembættið vinnur að þessu í samvinnu við sérfræð- ingafélögin. 2. Þó að fjöldi 65 ára og eldri sé hlutfallslega minni á Islandi en í nágrannalöndunum, vistast fleiri á umönnunarstofnunum (almenn sjúkrahús, endurhæfíngar-* 1, hjúkr- unardeildir og elliheimili)) en í ná- grannalöndunum. Þessi stefna hef- ur í för með sér verulegan umfram- kostnað. Ástæðurnar eru aðallega tvíþættar: a) ónóg heimaþjónusta og b) að vistunarmat vantar fyrir sjúklinga er leggjast inn á umönn- unarstofnanir. Ofaglært fólk ræður um of innlögnum. Það er óskiljan- legt með öllu að Alþingi hefur hvað eftír annað komið í veg fyrir að innlagnir á vistheimili skuli háðar sömu skilyrðum og innlagnir á aðr- ar sjúkrastofnanir. 1 Sumar endurhæfíngardeildir, s.s. á Reykjalundi, Grensásdeild, Landspítala og víða á Norður- löndum, falla undir sérhæfðar deildir, en margar eru reknar í nánum tengslum við öldrunar- deildir svo að erfitt er að flokka þær sundur. Endurhæfingardeild- ir á öllum Norðurlöndunum eru settar í flokk umönnunarstofnana til þess að fá nákvæmari saman- burð. 3. Heimahjúkrun og heimahjálp hefur ekki verið sinnt í takt við þróunina. Þess vegna verður að efla heimahjúkrun og heimahjálp og draga úr elliheimilisbyggingum. Ótímabær elliheimilisvistun dregur úr virkni fólks. Útgjöld heilbrigðis- þjónustunnar eru vegna hinna óvirku þegna en ekki þeirra virku. 4. Reisa hverfisbundin hjúk- runarheimili þar sem eldra fólkið á rætur. Margar niðurstöður benda eindregið til þess að stóru hjúk- runarheimilin hafi lifað sína daga. Heppilegasta rekstrareiningin er 50-60 rúma hjúkrunarheimili en ekki risastofnanir eins og sumir stjórnmálamenn álíta. Þetta fyrir- komulag dregur úr meðal annars „stjómunarkostnaði" stofnana sem nú fer ört vaxandi. Stofnanir af þeirri stærð standa undir heimilis- nafninu. Samskipti vistmanna og starfsfólks verða mannlegri og vist- unin heimilislegri. Aðstandendum falla betur minni stofnanir en þær stærri. Veigamikill liður I að draga úr kostnaði við hjúkrunarþjónustu er að aðstandendur taki vaxandi þátt í umönnun vistmanná og slík þátt- taka er mun auðveldari ef heimilið er reist í hverfinu. 5. Efla til muna heilsugæsluna. Sem dæmi má nefna að Finnar, er búa við svipaða velferð og við, veija um 43% af heildargreiðslum vegna heilbrigðisþjónustunnar til heilsu- gæslu en við mun minna. Hlutfall Finna til heilbrigðisþjónustunnar af vergri þjóðarframleiðslu er nú um 6,5 en á Islandi 8,4 (OECD 1990). Höfundur er landlæknir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.