Morgunblaðið - 01.10.1991, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 1991
Málstefna og
kennaramenntun
eftir Indriða
Gíslason
Hverjir bera ábyrgðina?
Undanfarið hefur nokkuð verið
ritað í blöð um íslenskt mál og at-
hygli þá einkum beinst að fákunn-
áttu þeirra sem hefja nám við Há-
skóla íslands. Nokkuð hefur verið
deilt um skýringar á kunnáttuleysi
háskólastúdenta í móðurmáli og ekki
reyndar allir sammála því að um
vankunnáttu sé að ræða. Segja má
að skrif manna hafí raunar beint eða
óbeint snúist um stöðu íslenskrar
tungu í nútímanum eins og sumir
greinarhöfundar hafa bent á og í
því efni eru ekki til neinar einfaldar
skýringar og vandséð hveija á að
draga til ábyrgðar. I þessari grein
verður leitast við að benda á nokkur
PHILjPS Whirlpool
FRYSTIKISTUR
Góð tæki. Gott verð
• AFG015
138 lítra. h:88 b:60 d:66 cm
kr.stgr. 29.830.*
• AFG 033
327 lítra. h:88 b:112 d:66 cm
kr.stgr. 42.655.-
• AFG 041
408 lítra. h:88 b:135 d:66 cm
kr.stgr. 45.505.-
Heimilistæki hf
SÆTÚNI8 SIMI6915 15 ■ KftlNGLUNNI SÍMI6915 20
!/tii Mtm8vmtiaiéeg& i sanounyujK,
atriði sem gætu skipt máli þegar
staðan er metin. Verður í því skyni
drepið á máluppeldi og móðurmáls-
kennslu og vert er að taka strax
fram að túlkað er sjónarmið ís-
lenskukennara við Kennaraháskóla
íslands en sú stofnun ber ábyrgð á
menntun grunnskólakennara eins og
kunnugt er.
Hverjir hafa áhrif á
máluppeldi?
Erfitt er að gera þessu efni ljós
skil í stuttri blaðagrein en fyrst verð-
ur að huga að því hvaða aðilar hafa
mest áhrif á málmótun. Þar er hægt
að byija á foreldrunum. Þeir eru
fyrstu móðurmálskennarar barn-
anna. Nú á tímum er h'tið gert úr
þeirra hlut og líklega minna en efni
standa til. Áreiðanlega reyna flestir
foreldrar að hafa gþð áhrif á mál-
þroska bama sinna. Hitt er annað
mál að þáttur foreldra í máluppeldi
hlýtur að mótast af þeirri menntun
sem þeir hlutu í fræðslukerfmu og
er þá komið að „opinberum" móður-
málskennurum, þeim sem annast um
börn á dagvistum og kennurum í
skólum. Þegar hér er talað um kenn-
ara í skólum er ekki eingöngu átt
við íslenskukennara heldur alla
kennara jafnt því allir eru þeir með
nokkru móti móðurmálskennarar,
hafa sín áhrif á málfar nemenda
sinna til góðs eða ills. Svo má segja
að þeir aðilar sem nú voru taldir
hafí bein áhrif á máluppeldi, að það
sé beinlínis hlutverk þeirra að stuðla
að málþroska, skapa góða málnot-
endur.
Þess ber svo að gæta að nú á tím-
um hafa önnur öfl óbein áhrif á
málfar og alls ekki lítil. Er þar fyrst
að nefna fjölmiðlana, bæði dagblöð
og ljósvakamiðla þá sem alstaðar
eru inni á gafli. Hefur oft verið bent
á að t.d. sjónvarpsdagskrá, sem er
að meiri hluta með ensku tali, hafí
ekki heppileg áhrif á íslensku bama
og unglinga, þeirra hópa sem næm-
astir eru fyrir áhrifum. Enn má
nefna jafningjahópinn svokallaða:
böm og unglinga læra málið hvert
af öðru, jafnöldrum sínum. Okkur
gleymist oft að sá tími er löngu lið-
inn að móðurmálið gekk milliliða-
laust frá einni kynslóð bændasamfé-
lagsins til annarrar. Við búum í
nýju samfélagi, flest undir þéttum
skógi sjónvarpsloftneta - og það
þýtur heldur óheillavænlega í þeim
skógi.
íslensk málstefna
Næst er rétt að hyggja að spum-
ingum á borð við þessar: Hvað á að
hafa að leiðarljósi í máluppeldi?
Hvemig viljum við hafa íslenskt
mál? Höfum við ekki einhveija
stefnu í þessu efni? Því er til að
svara að víst höfum við leiðarljós.
Við eigum að vísu ekki málstefnu
bundna í lögum en enginn hörgull
er á skjölum þar sem orðum er far-
ið um þessa stefnu. Þar mætti m.a.
nefna Aðalnámskrá grunnskóla sem
er ígildi reglugerðar (þ.e. mennta-
málaráðherra hefur staðfest hana).
í þessari námskrá er margt sagt um
þetta efni. Um meginstefnu er þar
stuðst við álitsgerð sem samin var
á vegum menntamálaráðherra og
birtist haustið 1986. Upphaf þeirrar
álitsgerðar er á þessa leið:
„Islendingar hafa sett sér það
mark að varðveita tungu sína og
efla hana. Með varðveislu íslenskrar
tungu er átt við að halda órofnu
samhengi í máli frá kynslóð til kyn-
slóðar, einkum að gæta þess að ekki
fari forgörðum þau tengsl sem verið
hafa og eru enn milli lifandi máls
og bókmennta allt frá upphafí ritald-
ar.
Með eflingu tungunnar er einkum
átt við að auðga orðaforða svo að
ávallt verði unnt að tala og skrifa á
íslensku um hvað sem er, enn frem-
ur að treysta kunnáttu í meðferð
tungunnar og styrkja trú á gildi
hennar.
Varðveisla og efling eru ekki and-
stæður. Eðli málsins, formgerð þess
og sérkenni eiga að haldast. En
málið á að vaxa líkt og tré sem
heldur áfram að vera sama tré þótt
það þroskist og dafni.
Málfarslegt uppeldi í skólum má
aldrei missa sjónar á þessu tvíþætta
markmiði. Kennarar verða að skilja
hvað í húfí er og geta útskýrt það
fyrir nemendum.“
Með þessum orðum er íslenskri
málstefnu lýst og rétt er að taka
fram að í álitsgerðinni er hún skýrð
nokkuð rækilega þótt hér verði ekki
rakið. Vafalaust geta flestir verið
sammála ofanskráðum orðum, þeir
sem á annað borð hugsa eitthvað
um íslenska tungu. Og reynslan hef-
ur sýnt að þeir íslendingar eru marg-
ir sem láta sig varða framgang
móðurmálsins.
Rétt er að taka fram að álitsgerð-
in, sem hér var vitnað til, er hvorki
ígildi laga eða reglugerðar. Hún er
viljayfírlýsing af pólitískum toga
spunnin. Það er alkunna að slík skjöl
fá oft að mygla í skúffum ráðuneyta
eftir að þeim hefur verið hampað í
nokkra daga. Meginhluti marg-
nefndrar álitsgerðar Jiefur þó verið
prentaður í bók (Mal og samfélag
1989) - að vísu ekki að frumkvæði
menntamálaráðuneytisins.
Hvaða kröfur þarf að gera til
móðurmálskennara?
Flestum mun koma saman um að
til (móðurmáls)kennara, allt frá dag-
vistum til háskóla, þarf að gera mikl-
ar kröfur:
1. Kennari þarf að vera vel máli
farinn í ræðu og riti. Framburður
hans verður að vera skýr og lýta-
laus, flutningur áheyrilegur, hvort
sem hann talar eða les. Hann verður
að hafa góð tök á rituðu máli, vera
rökvís og nákvæmur í orðavali.
2. Hann þarf að kunna sem best
skil á íslenskri tungu: á hljóðkerfi
hennar, beygingum og setningagerð.
Hann þarf einnig að vera vel að sér
í sögu tungunnar og bókmenntum
þeim sem eru kjölfesta hennar.
3. Kennari þarf að vita hvernig
böm tileinka sér móðurmálið og
kunna skil á því hvað hefur áhrif á
máltöku og málþroska.
4. Kennari þarf að vera vel að sér
um notkun tungunnar í samfélaginu,
átta sig á því að mál fer eftir aðstæð-
um og tilgangi þess sem málið notar.
Málnotkun i samfélaginu er næst-
um óendanlega fjölbreytt og þar
hljóta að verða til ýmiskonar sérhóp-
amál (unglingamál, (starfs)stétta-
mál, stofnanamál o.s.frv.). Kennari
verður að vita þetta en hann verður
líka að vera klár á því að eitt mál
er öðru ofar, íslensk tunga sem
menningarmál, ríkismálið sjálft.
Hann verður að vera vel heima í
þeirri stefnu sem fylgt er í ræktun
íslenskrar tungu. Hann þarf að vera
gagnkunnugur íslenskri málstefnu,
þekkja forsendur hennar og rök-
semdir.
Hér lýkur kröfugerð og mætti þó
vera ítarlegri. í rauninni eru þetta
ekkert strangari kröfur en gerðar
eru víða í skólum til nemenda og
annarra þeirra sem málið nota. Sé
Indriði Gislason
„Á það ber að líta að ekki
er nóg að setja saman
failegar stefnuræður eða
viljayfirlýsingar um ís-
lenskt mál. Það þarf að
skilgreina markmið ná-
kvæmlega og tilgreina
námskröfur fyrir öll skól-
astig þar sem litið er á
þau sem heild.“
t.d. litið í Aðalnámskrá grunnskóla
má sjá að þar er stefnt að því að
uppfylla kröfur af svipuðu tagi.
íslenska í kennaramenntun
Hér á landi hefur lengi loðað við
sú skoðun að kennslu geti nú flestir
stundað og áður fyrr völdust stund-
um til þess starfs menn sem gátu
ekki haft ofanaf fyrir sér með góðu
móti. Afstaða til kennaramenntunar
er þó óðum að breytast enda er
mála sannast að hún hlýtur að vera
sá homsteinn sem velferð þjóðarinn-
ar, jafnt andleg sem verkleg, hvílir á.
Þetta á ekki hvað síst við þegar
talað er um að varðveita og efla ís-
lenska tungu. Hér á undan voru tíun-
daðar kröfur sem gera þarf til kenn-
ara á því sviði og áréttað skal að
átt er við alla kennara, ekki bara
íslenskukennara, þótt til slíkra beri
reyndar að gera enn meiri kröfur
en til annarra. í íslenskum skólum
hlýtur að vera höfuðvígi íslenskrar
tungu. Skólamir - og þá fyrst og
JC-Reykjavík - hvað veist
þú um þann félagsskap?
eftir Vigdísi
Hauksdóttur
JC-Reykjavík er elsta, öflugasta
og stærsta, starfandi JC-félag á
íslandi. Það var stofnað 10. október
1967. JC er alþjóðlegur félags-
skapur ungs fólks á aldrinum
18-40 ára, og starfar í 87 þjóðlönd-
um. Á íslandi em starfrækt 18
JC-félög. JC-Reykjavík er því einn
hlekkur í þessari stóm alþjóðak-
eðju. JC er félagsmálaskóli fyrst
og síðast. Hann byggir upp og
þroskar einstaklinginn og gerir
honum kleift að vaxa í leik og
starfi. JC-Reykjavík stendur fyrir
mjög öflugu námskeiðahaldi, og
heldur íjölmörg námskeið, sem
era JC-félögum yfirleitt að kostn-
aðarlausu. Þetta era samskonar
námskeið eins og verið er að selja
dýrum dómum út í þjóðfélaginu.
Við leggjum aðaláherslu á stjórn-
unamámskeið, ræðunámskeið,
námskeið í mannlegum samskipt-
um, ásamt fleiri námskeiðum, þar
má nefna fundarsköp og fundar-
stjórn, fundargerðaritun, og fl. og
fl.
En við gerum meira í JC en að
sitja námskeið. Síðastliðið haust
stóð JC-Reykjavík fyrir vímuefna-
átaki í 8. bekk í grunnskólum
Reykjavíkur, undir yfírskriftinni
„Vímuefni ekkert vit, hvað ert þú
með í kollinum". Vakti þetta verk-
efni gífurlega athygli. 17. ágúst á
þessu ári héldum við fjölskyldudag,
í samvinnu við Snarfara, félag smá-
bátaeigenda. Tókst hann í alla staði
mjög vel. Við í JC-Reykjavík gleym-
um nefnilega ekki fjölskyldunni,
eins og oft vill vera hjá félagasam-
tökum. Við höfum starfandi sér-
staka barnanefnd, sem sér um upp-
Vigdís Hauksdóttir
ákomur fyrir böm JC-félaga. JC-
Reykjavík stofnaði á síðasta ári
JC-ísafjörð. Þá var ekkert starfandi
JC-félag á Vesturlandi. Það er ein-
mitt einn þátturinn í JC-starfí, að
fá nýja meðlimi í hreyfínguna, til
að geta miðlað þeirri reynslu og
þekkingu sem við höfum yfír að
búa, til sem flestra. Til þeirra sem
vilja og hafa metnað til að verða
hæfari einstaklingar.
Ágæti lesandi, 4. október höldum
við í JC-Reykjavík kynningarfund
á félaginu okkar í Ármúla 36 og
eru allir þar velkomnir.
Höfundur er forseti
JC-Reykjavíkur.
Söngnámskeið
Ný og spennandi söngnámskeið að hefjast í Tónskóla
Eddu Borg, þar sem nemendum gefst m.a. kostur á
að fá þjálfun í:
Raddbeitingu Túlkun
Öndun Framkomu á sviði
Tónheyrn Syngja með hljómsveit
Tónfræði Leiklist
Tónleikar í lok námskeiðs.
Námskeiðin eru sniðin fyrir þá, sem áhuga hafa á dægurtónlist, poppi, rokki, jass og blús.
Leiðbeinendur eru: Jóhanna Linnet, Egill Ólafsson, Edda Borg o.fl.
Innritun og upplýsingar í síma 73452 virka daga frá kl. 13.00-18.00.
Tónskóli Eddu Borg,
Hólmaseli 4—6, sími 73452.