Morgunblaðið - 19.11.1991, Page 12
12
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. NOVEMBER 1991
„Evrópa hefur eign-
ast nýjan Hitler”
Króatar krefjast sjálfstæðis á fundi í Zagreb.
eftir Hrafn Jökulsson
„OLL stríð, frá upphafi vega,
hafa snúist um peninga. Persafló-
astríðið snerist um peninga, já,
og þorskastríð íslendinga og
Breta snerust um peninga. Sama
máli gegnir um stríðið hér í Króa-
tíu,” sagði ungur Serbi sem ég
talaði við í króatísku borginni
Osijek. Hann fengi líklega seint
vinnu sem blaðafulltrúi forseta
síns, því hann bætti við: „Sljórn-
ina í Belgrad dreymir um Stór-
Serbíu og stjórnin veit að þessi
draumur verður að rætast ef hún
á að halda velli: þó það kosti ára-
langa martröð á öllum Balk-
anskaganum. Slobodan Milosevic,
forseti Serbíu, er í nákvæmlega
sömu sporum og Hitler í upphafi
þriðja áratugarins og Milosevic
notar sömu aðferðir, sama áróð-
ur. Evrópa hefur eignast nýjan
Hitler.”
Þessi ungi Serbi bað um að nafni
hans yrði haldið leyndu, en til hægð-
arauka er ekki úr vegi að kalla
hann einfaldlega Slobodan.
Slobodan tók fram að hann væri
andvígur stríðinu en færði ótal köld
rök að því að stríðið á Balkanskaga
gæti staðið árum saman í einhverri
mynd.
Slobodan er trúlega einhver víð-
lesnasti maður sem ég hef hitt,
raunar væri nær lagi að kalla hann
alfræðiorðabók af holdi og blóði.
Þannig hafði hann á hraðbergi
helstu atriði úr íslandssögunni,
þekkti staðhætti, náttúrufræði og
veðurfar og gerði prýðilegan upp-
drátt af Islandi á servíettu; og
merkti legu Reykjavíkur, Akureyrar
og Keflavíkur hárrétt á kortið: og
drap fingri á Vestfjarðakjálkann og
sagði: „Þarna er ansi harðbýlt, er
það ekki?” (Seinna frétti ég að ald-
ursforseti Alþingis hefði haldið því
blákalt fram að aðgerðir íslenskra
stjórnvalda í málum Vestfirðinga
væru sama eðlis og stríð Serba á
hendur Króötum. Annaðhvort veit
hæstvirtur þingmaður alls ekkert
um ástandið í Króatíu, þar sem
þúsundir hafa fallið — eða ég hef
ekki fengið fréttir að heiman ný-
lega.)
En þrátt fyrir að Slobodan vissi
harla margt um ísland var það ekki
vegna þess að hann hefði sérstakan
áhuga á landinu. Slobodan er, eins
og fyrr sagði, lifandi alfræðiorða-
bók. Hann hafði þrauthugsað stöð-
una á Balkanskaga, eins og ástríðu-
fullur skákmaður, og komist að
þeirri niðurstöðu að engin lausn
fyndist á þessu skákdæmi.
„Sjáðu til, það erekki til frambúð-
arlausn sem allir geta sætt sig við.
Það þýðir aðeins eitt: Stríð og meira
stríð. Hugsanlega geta erlend sam-
tök á borð við EB eða Sameinuðu
þjóðirnar skakkað leikinn um tíma
— en aðeins um tíma.”
Líklega hafa flestir tapað áttum
þegar stríðið í Króatíu er annarsveg-
ar. Mánuðum saman hafa borist
fréttir af bardögum, vopnahléum og
meiri bardögum. Borgarastríð er
þetta einatt kallað í fjölmiðlum en
það er ekki réttnefni. Stríðið á
Balkanskaga er á milli gerólíkra
þjóða sem í nokkra áratugi voru
innan sama ríkis: Júgóslavíu.
„Júgóslavía á sér engar sögulegar
rætur eða forsendur,” segir Slobod-
an. „Landið var búið til í kjölfar
tveggja heimsstytjalda. Gerólíkum
þjóðum var hrúgað saman innan
eins ríkis; þjóðum með ólíka menn-
ingu, sögu, tungu og hugsunarhátt.
Og það sem skiptir mestu máli:
Þessar þjóðir voru — og eru — mis-
auðugar. Króatía er eitt af sárafáum
löndum í Evrópu sem hefur næga
olíu til eigin nota og auk þess iðnað-
arsvæði og mikla strandlengju.
Serbía hefur ekkert af þessu. Án
Króatíu er Serbía dæmd til fátækt-
ar. Þess vegna blés Belgrad-stjórnin
í herlúðra þegar Króatar vildu sigla
sinn sjó. Serbar réðust til atlögu
undir því yfirskini að þeir væru að
vernda landa sína innan Króatíu,”
segir Slobodan og hlær háðslega.
„Það var einfaldlega þyrlað upp
moldviðri þjóðernisrembings — það
er alltaf gert þegar stjórnmálamenn
þurfa að réttiæta stríð. En eins og
ég sagði: Serbía getur ekki lifað án
auðlinda Króatíu. Áratugum saman
flæddu peningar frá Slóveníu og
Króatíu til stjórnarinnar í Belgrad.
Þessir peningar voru ekki síst notað-
ir til að byggja upp her í Júgóslav-
íu, einn öflugasta her í Evrópu.
Milli 80 og 90% yfirmanna í hernum
voru Serbar. Þessir menn lifðu í
vellystingum og þeir eiga nú á hættu
að glata forréttindum sínum. Og
hernum er nú beitt gegn Króötum
— þetta heitir að borga böðlinum
sínum.
Ég skal nefna þér annað dæmi
um vanda Serbíu. Það eru 200.000
ríkisstarfsmenn í Belgrad sem unnu
á vegum ríkjasambands Júgóslavíu.
Auðvitað voru þeir, flestir hveijir,
alveg ónauðsynlegir en það var þó
hægt að borga þeim laun. Það getur
Belgrad-stjórnin ekki. Hagkerfinu
er haldið uppi með taumlausri seðla-
prentun; og það er herinn sem
stjórnar á peningalagernum. Eins
og þú veist öðlast peningar ekki
innstæðu fyrr en bankar hafa
ábyrgst þá en engu slíku er til að
dreifa í Serbíu núna. Verðbólgan
er gífurleg enda dælir herinn út
innstæðulausum peningum. Ég veit
ekki hvað þetta getur gengið svona
lengi.”
Ég spurði Slobodan hvort hann
teldi einhveijar forsendur fyrir efna-
hagsbandalagi milli júgóslavnesku
lýðveldanna eins og samningamenn
ÉB hafa gert tillögu um.
„Það er algerlega óhugsandi að
hnýta þessi Iönd sem fullvalda ríki
í efnahagsbandalag af einhveiju
tagi. Auðvitað var það hægt meðan
sósíalisminn var við lýði, en sósíal-
íska hagkerfið var spilaborg sem
hrundi. Króatía getur ekki verið
fullvalda ríki í efnahagsbandalagi
með Serbíu. Það væri sambærilegt
því að ísland færi í bandalag með
Póllandi, Sýrlandi eða Chile. A milli
þessara landa er óbrúanleg gjá í
öllum skilningi, efnahagslegum og
menningarlegum. Króatía hefur alla
burði til að verða auðugt land. Kró-
atía hefur langa strandlengju að
Adríahafinu og getur hagnast gríð-
arlega á ferðamönnum. Og í Króa-
tíu er allt til alls, olía, iðnaður, land-
búnaður. Þetta stríð snýst um pen-
inga, það snýst um þessar auðlindir
— en stríðið er rekið í nafni einhverr-
ar kynlegrar skepnu sem köluð er
„sögulegur réttur Serbíu”. Meinið
er, að þessi sögulegi réttur er ekki
fyrir hendi.”
Á ferð minni um 'Króatíu talaði
ég við mikinn ijölda fólks, einkum
Króata auðvitað. Viðkvæðið var hið
sama hjá öllum: Engar málamiðlan-
ir.
Króatíska þjóðin er ákveðin að
beijast fyrir algeru frelsi, þótt sú
barátta kosti ennþá meiri fórnir.
Þúsundir hafa fallið og það er
óhugsandi að leggja mat á eyðilegg-
inguna.
Enginn sem ég talaði við hafði
nokkra trú á' samningatilraunum
Evrópubandalagsins og stuðningur
við forseta Króatíu, Franjo Tudj-
man, fer ört dvínandi. Hann þykir
sýna alltof mikla linkind gagnvart
samningamönnum EB og Serbum.
Króatar vilja að erlent herlið verði
sent til landsins — og það komi sér
fyrir á landamærunum. Nú loksins
hafa Serbar fallist á það; en þeir
vilja að herliðið verði á nýju landa-
mærunum. Landamærunum sem
Serbar hafa skapað í krafti hernað-
aryfirburða.
En það er ekki til nein lausn sem
er öllum að skapi og ýmsir eru ugg-
andi um að stríðið breiðist út. Bosn-
ia-Herzegovina, sem liggur milli
Króatíu og Serbíu, gæti orðið næsti
vettvangur stríðs á Balkanskaga.
Bosnina er búin að lýsa yfir sjálf-
stæði en innan lýðveldisins eru
múslimar, Serbar og Króatar. Serb-
arnir vilja halda tengslum við
Belgrad-stjórnina og hafa stofnað
eigið þing: það þarf ekki nema örlít-
inn neista til að ófriðarbálið blossi
upp.
Ef króatískir ráðamenn ganga til
samninga af einhveiju tagi sem fela
í sér afsal á landi eða réttindum
verður það í aigerri óþökk króatísku
þjóðarinnar. Efnahagsbandalag í
einu eða öðru formi nýtur einskis
stuðnings. Þetta verður varla orðað
betur en af miðaldra manni sem ég
talaði við í Zagreb. Hann steytti
hnefann og hrópaði. „Engin sam-
vinna við Serbíu kemur lengur til
greina! Þú hlýtur að skilja það. Ef
ég drep fjölskyldu þína og kem svo
til þín og segi: Nú skulum við vera
vinir og vinna saman — hvað mynd-
ir þú þá gera?”
Króatar búa sig undir langt stríð.
Þeir eru ofurliði bornir á vígvöllum
landsins af hernaðarvél Serba. En
Króatar hafa fengið nasaþef af
frelsinu — og þeir eru komnir á
bragðið.
Hversu langt verður þetta stríð?
Það veit enginn. En á fréttamanna-
fundi sem ég sótti hjá Franjo Tudj-
man forseta lét hann þau orð falla
að ef ekki yrði bráðlega tekið í taum-
ana gæti þriðja heimsstyijöldin átt
upptök sín á Balkanskaga.
Þeim sem finnst þetta fjarstæðu-
kennd orð geta flett því upp hvar
fyrsta heimsstyrjöldin hófst.
BOSCH DAGAR TIL JÓLA
VIÐ ERUM KOMNIR í JÓLASKAP OG AF ÞVÍ TILEFNIBJÓÐUM VIÐ
10% AFSLÁTT AF ÖLLUM HEIMILISTÆKJUM OKKAR — STÓRUM SEM
SMÁUM, í VERSLUN OKKAR AÐ SUNDABORG 13, FRAM TIL JÓLA.
EIGINMENN, UNNUSTAR'.
GLEÐJIÐ AUGASTEININN
MEÐ GJÖF FRÁ OKKUR OG
JÓLIN VERÐADANSÁ
RÓSUM.
MUNIÐ OKKAR FRÁBÆRU
GREIÐSLUKJÖR.
RADGREIÐ8LUR K R E D I T MUNALÁN
VIÐ GERUM ENN
BETUR VIÐ ÞÁ
SEM GREIÐA
MEÐ PENINGUM,
EN ÞEIR FÁ
15% AFSLÁTT.
Aðrir útsölustaðin Metró, Reykjavík; Parma, Hafnarfirði; Neisti,
Vestmannaeyjum; SÚN, Neskaupstað; Rafmagnsverkstæði L.
Haraldssonar, Seyðisfirði; Hákon Gunnarsson, Höfn í
Hornafirði; Straumur, ísafirði.
w w Jóhann Ólafsson & Co
Sl NDABORí; M • 104 KKYKJAVÍK • SÍ.MI 6KK 5HS