Morgunblaðið - 29.11.1991, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1991
Tveir af aðalleikurum myndarinnar Thelma og Louise þær Susan
Sarandon og Geena Davis.
Sambíóin:
Frumsýna 6 kvik-
myndir í dag vegna
opnunar Saga-Bíós
SAMBÍÓIN opna í dag nýtt kvikmyndahús að Áifabakka 8. Ber
húsið heitið Saga-Bíó. Eigendur Sambíóanna er Árni Samúlesson
og fjölskylda hans. í tilefni -af opnun hins nýja kvikmyndahúss
hefja Sambíóin sýningar á 6 nýjum myndum í dag.
í Saga-Bíó: „Thelma og Louise”.
Með aðalhlutverk fara Susan Sar-
andon og Geena Davis. Leikstjóri
er Ridley Scott. Myndin fjallar um
þær stöllur Thelmu og Louis. Þær
hafa ákveðið að fara í tveggja
daga frí upp í ijöll og slaka veru-
lega á. Þær eru ekki komnar langt
þegar þorstinn sækir að Thelmu
og stoppa þær á krá þar sem þær
ætla að hafa skamma viðdvöl. En
glösin verða fleiri en áætlað var
og er Thelma komin á dansgólfið
með manni að nafni Harlan. Eitt-
hvað verður henni ómótt og stígur
út fyrir og hann á eftir og vill
koma vilja sínum fram við hana.
En áður en það gerist birtist Lou-
ise og skipar hún Harlan að láta
Thelmu vera sem hann og gerir
því hún beinir að honum byssu sem
hún hafði tekið meðferðis. Þessi
sena endar með að Louise skýtur
Harlan til bana eftir að hann hafði
sent þeim tóninn og hefst þá
spennandi eltingaleikur á milli
þeirra stalla og lögreglunnar.
Einnig er frumsýnd myndin
„Góða löggan” með þeim Michael
Keaton og René Russo í aðlhlut-
verkum. Leikstjóri er Haywood
Gould.
í Bíóhöllinni: „Hollywood lækn-
irinn”. Með aðalhlutverk fara Mic-
hael J. Fox og Julie Wamer. Leik-
stjóri er Michael Caton-Jones.
Myndin fjallar um Ben Stone sem
er ungur og efnilegur skurðlæknir
sem vill gjarnah fara að græða
pening og liggur leið hans til Holly-
wood til að stunda fegrunarlækn-
ingar. En áður en hann kemst á
leiðarenda lendir hann í árekstri
og er dæmdur til að starfa í þágu
bæjarbúa í smábæ sem telur 2.300
íbúa í tiltekinn fjölda klukkustunda
sem læknir. Reyndar er læknir í
bænum en aldurinn er farinn að
segja til sín. Upp koma vandamál
sem Ben tekst að leysa vel út og
hlýtur viðurkenningu allra
bæjabúa og ástin hefur bankað
uppá hjá honum.
„Úlfhundurinn” heitir önnur
myndin sem frumsýnd er. í aðal-
hlutverk eru Eathan Hawke og
Klaus Maria Brandauer. Leikstjóri
er Randal Kleiser.
Þriðja myndin sem frumsýnd er
í Bíóhöllinni er myndin „Blikur á
lofti”. Með aðalhlutverk fara John
Malkovich og Debra Winger. Leik-
stjóri er Bemardo Bertolucci. Þessi
mynd er í hópi svokalláðara„Gull-
molar Sambíóanna” en undir það
heiti kallast sérstakar úrvalsmynd-
ir og verður einn sýningarsalur
tekin frá fyrir þær myndir.
í Bíóborginni: „Harley Davidson
og Marlboro maðurinn”. í aðalhlut-
verkum er Mickey Rourke og Don
Johnson. Leikstjóri er Simon Winc-
er. Þeir Harley og Marlboro-mað-
urinn sem svo er nefndur eru vinir
frá fornu fari þar sem þeir eru
kóngsins lausamenn og ber fund-
um þeirra örsjaldan saman. En
þegar það gerist verður það úr að
þeir verða samferða til Burbank
við L.A. Þar halda þeir til fundar
við fornvin sinn Jiles sem er mun
eldri en þeir og hefur rekið veit-
ingahús áratugum saman. En eitt-
hvað hefur staðurinn breyst því
þarna era jakkaklæddir menn í
stað manna af sama sauðahúsi og
þeir. Þegar þeir inna Jiles hvað
valdi útskýrir hann fyrir þeim að
þensla bæjarins hafi stóraukis
vegna aukinnar flugumferðar til
bæjarins. Þar af leiðandi hefur
leigan sem hann hefur greitt fyrir
veitingastað sinn sem á að fara
að endumýjast hefur hundraðfald-
ast og sér hann fram úr því að
geta greitt hana. Harley er aldrei
úrræðalaus og leggur strax á ráð
um aðferð til að bjarga þessu fyrir
Jiles. En hann tekur fram að ekki
geti hann þetta eins síns lið og
verður það úr að fjórir menn slást
í för með þeim Malboro og leggja
þeir upp í ránsferð en komast í
kast við glæpahring.
Hafnarfjörður:
Basar Hringsins
haldinn á morgnn
KVENFÉLAGIÐ Hringurinn í Hafnarfirði heldur sinn árlega jólabasar
í Góðtemplarahúsinu við Suðurgötu, laugardaginn 30. nóvember, kl.
14.00 nk.
Vetrarstarf Hringsins hófst með
fundi 26. september sl. og voru um-
hverfismálin tekin til umræðu, en
framkvæmdastjóri Landverndar var
gestur fundarins. Síðan hafa verið
vinnufundir á fimmtudagskvöldum.
Tilgangur félagsins er að vinna
að almennum líknarmálum, þó eink-
um velferð bama.
Á basarnum á laugardaginn verða
á boðstólum margir fallegir munir,
kökur og ýmislegt fleira, einnig verð-
ur flóamarkaðshorn. Þá verður vin-
sæla laufabrauðið til sölu. Tekið
verður á móti kökum milli 9-11 á
laugardaginn.
Hringskonur vonast til að sjá sem
flesta Hafnfirðinga og aðra gesti á
basamum á laugardaginn 30. nóv-
ember. Kvenfélagið Hringurinn
þakkar öllum þeim sem hafa gert
það mögulegt, með stuðningi sínum
áð veita félaginu brautargengi.
(Fréttatilkynning)
Skattur á skrifstofu- og verslunarhúsnæði:
Ingi Björn greiddi atkvæði
gegn stj órnarfrum varpinu
INGI Björn Albertsson, alþing-
ismaður Sjálfstæðisflokksins,
greiddi atkvæði gegn sljórnar-
frumvarpi um skatt á verslunar-
og skrifstofuhúsnæði við af-
greiðslu þess til þriðju umræðu
á Alþingi á miðvikudag. 31 þing-
maður stjórnarflokkanna
greiddu atkvæði með frumvarp-
inu, sex þingmenn voru fjarver-
andi en þingmenn sljórnarand-
stöðunnar sátu hjá við atkvæða-
greiðsluna.
Ingi Björn gerði grein fyrir at-
kvæði sínu og sagðist ekki geta
stutt skattlagningu sem væri bæði
ranglát og mismunandi. Hann hef-
ur flutt breytingatillögu við frum-
varpið sem kemur til atkvæði við
þriðju umræðu um skattinn. Geir
H. Haarde, fonnaður þingflokks
Sjálfstæðisflokksins, sagði við
Morgunblaðið að Sjálfstæðisflokk-
urinn væri ’á móti skattinum. „Við
höfum hins vegar talið nauðsyn-
legt að framlengja hann á næsta
ári vegna þess að það er við stærri
vandamál að glíma. Þessi skattur
hefur verið lagður á í tólf ár og
við teljum að hann sé í grundvall-
aratriðum mjög óeðlilegur. Miðað
við þann vanda sem við er að fást
verður hins vegar einfaldlega að
bíða með að fella hanri niður og
því ákváðum við að styðja hann,”
sagði Geir.
■ SÝNING á íslenskum barna-
bókum og myndum úr bókunum
verður opnuð laugardaginn 30. nóv-
ember í Hafnarborg í Hafnar-
firði. Einnig verða sýnd myndverk
eftir böm. Sýningin er á vegum
Félags íslenskra bókaútgefenda.
Sýningin hefst með bókkþingi en
yfirskrift þess er: Vilja börnin bæk-
ur? Sýningin verður opin frá kl.
12-18 alla daga nema þriðjudaga
fram til 22. desember.
■ I kaffistofu Hafnarborgar
sýnir hópur hafnfirskra listamanna
úr ýmsum greinum myndlistar,
höggmyndalist, textil, grafík, mál-
un og leirlist. Sýningin verður opin
kl. 12-18 alla daga nema þriðju-
daga.
Kjuregej sýnir
í MIR-salnum
KJUREGEJ Alexandra Arg-
unova heldur myndlistarsýningu
í MIR-salnum daganna 30. nóv-
ember til 22. desember n.k. Á
sýningunni verða myndir unnar
í efni (application) á árunum
1984-1991 og jakútískir munir
úr sýningasafni.
Kjuregej Argunova fluttist til
íslands frá Jakútíu í Síberíu fyrir
25 árum síðan. Hún hefur fengist
við ýmis myndlistarform en hin síð-
ari ár einkum unnið með tækni sem
nefnist „application” og er braut-
ryðjandi á því sviði hérlendis. Hún
hefur áður haldið myndlistarsýning-
ar í Norræna húsinu 1984, á Akur-
eyri 1985 og í Ásmundarsal 1988
en það var jafnframt miningarsýn-
ing um mann hennar Magnús Jóns-
son.
Eitt af verkum Argunovu.
flf
NÝRILMUR FYRIR KARLMENN
6
NINO CERRUTI
PARIS