Morgunblaðið - 21.12.1991, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 1991
9
Nytsamar jólagjaf ir
TEG. STRESA TEG. MEGARA TEG. PARMA
Kr. 4.850,- stgr. Kr. 6.980,-stgr. Kr. 11.300,-stgr.
10 tegundir af úrvals skrifborðsstólum
Mikið úrval af Dico járnrúmum
Visa - Euro-raðgreiðslur
Opið í dag til kl. 22.00
Sunnudag kl. 14.00-17.00
l□a[3H□la
HÚSGAGNAVERSLUN
REYKJAVÍKURVEGI 66 HAFMARFIRÐI SÍMI 54100
Teg. 596. 80 - 90 -140 og 160 cm breið. Verð frá kr. 24.700,-
I BoroivitVÍJÍ
| Meirn en þú geturímyndað þér!
Vaxandi einangrunar-
hyggja í Bandaríkjun-
um?
Hrun kommúnismans í Austur-Evrópu
og það nána samstarf sem aðildarríki
Evrópubandalagsins (EB) hafa ákveðið
að taka upp á flest öllum sviðum mun
að margra mati verða til þess að ýta
undir einangrunarhyggju í Bandaríkjun-
um. Fimmtíu ár eru nú liðin frá árás Jap-
ana á Pearl Harbour en sá atburður varð
til þess að stefnu einangrunar og af-
skiptaleysis var hafnað og mótuð voru
þau viðhorf er einkennt hafa utanríkis-
stefnu Bandaríkjanna allt fram á þennan
dag. Það er mat þreska dagblaðsins The
Daily Telegraph að breytinga sé að
vænta á þessum vettvangi og kveðst
þlaðið sjá þess merki bæði meðal demó-
krata og repúblíkana í Bandaríkjunum.
Viðhorfs-
breyting' í
Washington
The Daily Telegraph
segir í forystugrein í síð-
ustu viku að á sama tima
og leiðtogar Evrópuríkja
reyni að komast að niður-
stöðu um hver hlutur
Bandaríkjamanna eigi að
vera í vörnum Evrópu
fari áhuginn á viðgangi
Atlantshafsbandalagsins
dvínandi í Bandaríkjun-
um. „Bush Bandaríkja-
forseti sem er skilgetið
afkvæmi þess lífsstíls og
viðhorfa er einkenna
hefðbundna valdastétt á
austurströnd Bandai’íkj-
anna, er nú sem áður
öldungis sannfærður um
að viðhalda beri því
skipulagi á alþjóðavett-
vangi sem tryggt hefur
friðinn í tæpa hálfa öld.
En hrun kommúnismans
og sú staðreynd að lifs-
háttum Bandaríkja-
manna er ekki lengur
ógnað á hugmyndafræði-
legum forsendum hefur
getið af sér viðhorfs-
breytingu í Washington.“
I grein breska blaðsins
segir að einangrunar-
hyggja hafl um nokkurt
skeið farið vaxandi í röð-
um demókrata, sem flest-
ir hveijir hafi verið mót-
fallnir því að hervaldi
væri beitt til að frelsa
Kúveit úr klóm Saddams
Husseins. Nú séu íhald-
sömustu öflin innan
Repúblíkanaflokksins
tekin að boða þessa sömu
stefnu. Telur blaðið þá
ákvörðun Patricks Buch-
anan að bjóða sig fram
gegn George Bush for-
seta í forkosningum
Repúblíkanaflokksins til
marks um þetta. Pat
Buchanan var í eina tíð
yfirmaður upplýsinga-
skrifstofu Ronalds Reag-
ans og er að mati The
Daily Telegraph áhrifa-
mesti einangrunar-
sinninn í Bandaríkjunum.
í forystugreininni seg-
ir: „Buchanan boðar að
kalla beri heim allt herlið
Bandaríkjamanna i Evr-
ópu og Suður-Kóreu.
Hann vill að samningnum
um samstarf Bandaríkj-
anna og Japan á vett-
vangi öryggismála verði
sagt upp enda hefur
hann hann líkt Japönum
við rándýr er kalli at-
vinnuleysi yfir banda-
ríska verkamenn með því
að sölsa undir sig mark-
aði Bandaríkjamanna.
Hér er í raun um
óánægjuframboð að
ræða og Buchanan á
enga von um að verða
útnefndur forsetafram-
bjóðandi flokksins. Hann
hefur hins vegar einstakt
lag á þvi að höfða til
milljóna óánægðra
Bandaríkjamanna. Um-
fjöllun fjölmiðla í for-
kosningunum, sem taka
marga mánuði, mun gefa
Buchanan tækifæri til að
vekja upp harðar deilur
um ágæti þess að halda
úti bandarískum liðsafla
erlendis. Þótt ólíklegt
megi telja að honum tak-
ist að þvinga fram breyt-
ingar á stefnu þeirri er
Bush forseti fylgir, og
felur í sér upplýsta þátt-
töku í þróun mála um
heim allan, þá kunna
áhrif Buchanans að
verða til þess að valda-
hlutföll breytist á þingi
og staða einangrunar-
sinna styrkist. Líkt og
Reagan komst að er hann
neitaði að falla frá beiðni
sinni um fjárstuðning við
Contra-skæruliða getur
enginn forseti Bandaríkj-
anna rekið skilvirka ut-
anríkisstefnu án þess að
njóta stuðnings þing-
heims.“
Minnkandi
vægi utanrík-
ismála
Þýska dagblaðið
Frankfurter Allgemcine
Zeitung segir í forystu-
grein 14. þessa mánaðar:
„Bandarikjamenn hafa
lýst yfir því að þeir vilji
koma á „nýrri skipan
heimsmála" en sú leit
þeirra mun ekki verða til
þess að slegið verði á
frest þvi hreinsunar- og
uppbyggingarstarfi sem
aðkallandi er á vettvangi
innanrikismála. Þótt ekki
blasi við auðunnir sigrar
á því sviði munu innan-
landsmál á næstunni
verða til þess að skyggja
á utanríkismálin. Hið
nýja hlutverk síðasta
risaveldisins er sýnilega
meira krefjandi en það
sem Bandaríkjamenn
léku er tvö andstæð öfl
tókust á um völdin."
Meö hlutabréfí í Almenna hlutabréfasjóðnum hf.
eignast þú hlut í 17 stórfyrirtækjum
- og lækkar skattana þína um leiö
=. ■.= Opið íKringlunni í dag milli kl.10 og 16. . ■.=
Guðmundur Þór Þórhallsson
viðskiptafræðingur veitir upplýsingar
um meðferð hlutabréfa og skattafslátt
vegna þeirra. Verið velkomin!
Hlutabréfaeign Millj.
Almenna hlutabréfasjóðsins_________kr. %>
Skagstrendi ngur.............:... 32.6 17.2%
Flugleiðir.........................25,2 13,3%
Eimskip............................24,4 12,9%
Skeljungur....................... 21,1 11,1%
Grandi........................ 18,8 9,9%
Olíufélagið....................... 12.8 6.7%
Útgerðarlolag Akm-eyringa......... 10,8 8,8%
Elif. Aiþýöubanka................. 10,7 5,7%
Ehf. Verslunarbanka............... 9,5 5,0%
Ehf. lðnaðarbanka.................. 8,6 4,6%
Olís............................... 5,2 2,m
Sæplast............................ 3,4 1,8%
íslandslianki...................... 2,3 1,2%
Hampiðjnn....................... 1,8 1,0%
Öntmr.............................. 1,8 1,0%
VERÐBRÉFAMARKAÐUR
FJÁRFESTINGARFÉLAGSINS HF.
KRINGLUNNl, 103 REYKJAVÍK S. (91) 689700