Morgunblaðið - 25.05.1993, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. MAÍ 1993
Fyrstu
laxarnir
áland
FYRSTU laxarnir eru komnir á
land, en þeir flæktu sig í hrogn-
kelsanetum skammt frá ósum
Laxár í Aðaldal í lok síðustu viku.
„Þetta voru gullfallegar 12 punda
hrygnur og gott að fá svona vísbend-
ingu,“ sagði Orri Vigfússon formað-
ur Laxárfélagsins. Reikna má með
því að lax sé farinn að ganga í Hvítá
í Borgarfirði, Norðurá og Þverá.
Fyrstu laxveiðiárnar verða opnað-
ar 1. júní og eru það Norðurá, Þverá
og Laxá á Ásum. Mikið vatn hefur
verið í ánum að undanfömu. Norð-
urá hefur mtt burtu kláf við svokall-
aðan Stokkhyl og er nú lögð nótt
við dag að koma upp nýjum kláf
fyrir þriðjudaginn.
Sérfræðingar telja horfur með
veiði í sumar vera afburða góðar,
en júnímánuður geti orðið veiði-
mönnum erfiður þar sem mikill snjór
er enn á hálendinu og hætt við að
árnar verði venju fremur kaldar og
skolaðar framan af veiðitíma.
MARÍA Rún og Heiðrún Anna.
Maríaí 11.
sæti - Heið-
rún vann
MARÍA Rún Hafliðadóttir,
fegurðardrottning Islands
1992, komst ekki í úrslit í
keppninni Miss Universe í
Mexíkóborg á föstudag. Heið-
rún Anna Björnsdóttir varð
hlutskörpust í keppninni Miss
International Tourism á Kýp-
ur fyrir nokkru.
Að sögn Estherar Finnboga-
dóttur, framkvæmdastjóra Feg-
urðarsamkeppni íslands tóku 79
stúlkur þátt í keppninni í Mex-
íkó. Stúlka frá Puerto Rico varð
hlutskörpust, en María Rún varð
í 11. sæti miðað við stigafjölda.
Heiðrún Anna Bjömsdóttir
varð hlutskörpust í keppninni
Miss International Tourism á
Kýpur fyrir nokkra. Esther
sagði að Heiðrún hefði keppt
við stúlkur frá 19 öðram þjóð-
um. Heiðrún Anna varð í 2.
sæti í Fegurðarsamkeppni ís-
lands í fyrra.
í dag
Áhríf kjarasamninga____________
Skiptar skoðanir um forsendur fyr-
ir vaxtalækkun vegna kjarasamn-
inga og viðtal við fjármálaráð-
herra26-27
Nautakjöt lækkar_______________
Nautgripabændur bjóða nautakjöt
á allt að 30% lægra verði25
Smyglmál á Siglufirði__________
Sýslumaðurinn á Siglufírði er grun-
aður um aðild að tollalagabroti sem
kom upp vegna innflutnings á
hestakerru 4
Leiðarí________________________
Togstreita um vexti30
Humarvinnsla hófst í frystihúsum í Eyjum í gær
13tonn
af hölum
Vcstmannaeyjum.
HUMARVINNSLA hófst í frysti-
húsunum í Eyjum í gær; en veið-
ar hófust á föstudag. I gær og
á sunnudag lönduðu bátarnir
fyrsta aflanum og bárust 11 tonn
af hölurn í Vinnslustöðina og 2
tonn í Isfélagið.
9 bátar leggja upp hjá Vinnslu-
stöðinni og er kvóti þeirra 100 tonn
af hölum. Viðar Elíasson fram-
leiðslustjóri segir, að þeir muni
vinna bæði heilan humar og hala,
en talsverð verðlækkun hefur orðið
á heila humrinum. 140 unglingar
fá vinnu við humarinn í Vinnslu-
stöðinni í sumar og verður unnið á
tvískiptum vöktum, klukkan 6-12
og frá 12-18.
Hjá ísfélaginu leggja tveir bátar
upp í sumar og er kvóti þeirra um
30 tonn. 20 tiT 30 unglingar fá
vinnu við humarinn hjá ísfélaginu
og sagði Sigurður Einarsson fram-
kvæmdastjóri, að þeir myndu ein-
ungis vinna hala þar sem sæmilegt
verð fengist fyrir þá. Grímur
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Humartíminn hafinn
ÞÓRDÍS Sigurðardóttir og Matthildur Halldórsdóttir voru glað-
beittar þegar þær voru við humarvinnsluna í gær.
Léklistir
á 5. hæð
MAÐUR sem talinn er hafa verið
undir áhrifum fíkniefna braust
út um glugga á 5. hæð húss
skemmtistaðarins Tunglsins við
Lækjargötu aðfaranótt sl. sunnu-
dag og hafði í frammi jafnvægis-
þrautir og stökk á milli húsþaka
á flótta undan Iögreglu.
Lögregla og íjöldi fólks fylgdist
með manninum þar sem hann lék
jafnvægislistir á svalahandriði en
féll niður af því og 4-5 metra þar
til hann staðnæmdist ómeiddur á
vinnupalii. Að sögn lögreglu mátti
afar litlu muna að maðurinn félli til
jarðar en þá er talið líklegt að hann
hefði hlotið örkuml eða beðið bana.
Lögreglumenn fóra út á þak á
eftir manninum út um glugga á
skrifstofuhúsnæði sem hann hafði
brotist inn í og síðan út um glugga
á til að komast á þakið.
Þegar maðurinn sá að lögregla
vildi ræða við hann lagði hann á
flótta og fór þak af þaki. Lögregla
náði manninum, barðist við hann
og yfirvann mikinn mótþróa hans
og færði hann í handjám.
EB staðfestir tolla-
lækkanir á saltfiski
Ovíst hvað töf á afgreiðslu málsins hefur kostað íslenska saltfiskútflyij endur
Brussel, frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaösins.
INNFLUTNINGSTOLLAR á saltfíski sem fluttur er til
Evrópubandalagsins lækka úr 13 í 4% um næstu helgi,
samkvæmt ákvörðun ráðherrafundar aðildarríkja EB sem
haldinn var í Brussel í gær. Magnús Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Sölusambands íslenskra fiskframleiðenda,
segir að þetta séu mjög ánægjuleg tíðindi en hins vegar
valdi það vonbrigðum að tollalækkunin er ekki afturvirk
til 1. apríl.
magn. Frakkar ákváðu hins vegar
að tefja málið ekki frekar þar sem
Útflytjendur saltfisks hafa beðið
þessarar ákvörðunar í tvo mánuði
og sagði Magnús að nú þegar
væri búið að flytja út talsvert
magn af saltfiski sem búið væri
að tollafgreiða en hluti væri enn í
tollvörugeymslu og því ætti eftir
að koma endanlega í ljós hvað
þessi töf kostaði framleiðendur.
Samkvæmt venju hefðu tolla-
ívilnanirnar átt að taka gildi 1.
apríl sl. en ágreiningur um heimild-
ir fyrir ferskan og frosinn fisk
hefur valdið tveggja mánaða töf.
Franski landbúnaðarráðherrann
sat hjá við afgreiðsluna á fundinum
vegna andstöðu Frakka við tolla-
lækkanir' á ferskum og frystum
þorski og ufsa. í yfirlýsingum sem
franska stjórnin birti segir að þarf-
ir fiskvinnslunnar innan EB rétt-
læti engan veginn þetta mikla
framkvæmdastjómin hefur heitið
því að nákvæmlega verði fylgst
með þessum innflutningi og lagðar
fram tillögur um breytta skipan
um leið og tilefni gefst til.
Til framkvæmda eftir tvær
vikur
Tollalækkunin á saltfiski og sölt-
uðum flökum tekur gildi þremur
dögum eftir að samþykktin hefur
birst í stjórnartíðindum EB, aðrir
kvótar bíða til 1. júlí. Breytingin
kemur ekki til framkvæmda fyrr
en búið er að birta hana á tungu-
máli hvers lands fyrir sig. Því geta
liðið tvær vikur þar til hægt verður
að tollafgreiða fiskinn inn í hvert
land fyrir sig, samkvæmt upplýs-
ingum Magnúsar Gunnarssonar,
framkvæmdastjóra Sölusambands
íslenskra fiskframleiðenda.
Tilraunir eigenda til skuldbreytinga gengu ekki upp
Veðhafar leysa til sín
hús Borgarlmngluimar
Iþróttir
► Geir Sveinsson og Júlíus Jón-
asson báðir á leið til spænska
félagsins Avidesa. Skagamenn
hófu titilvömina með glæsibrag
á knattspyrnuvellinum
HELSTU lánveitendur Borgarkringlunnar hf. munu að öllum lík-
indum leysa húseignina til sín á nauðungaruppboði í dag. Víglund-
ur Þorsteinsson, stjórnarformaður Borgarkringlunnar hf., sagði
í gær að ekki hefði tekist að mæta að fullu þeim skilyrðum sem
sett voru fyrir því að skuldbreytingar gætu gengið fram. Margrét
Rögnvaldsdóttir, formaður markaðsnefndar Borgarkringlunnar,
segir að eigendaskipti á húseigninni breyti engu um áframhald-
andi starfsemi fyrirtækja í húsinu.
Víglundur Þorsteinsson sagði
að stjórn Borgarkringlunnar hf.
hefði komist að þeirri niðurstöðu,
eftir viðræður við helstu lánveit-
endur fyrirtækisins, að uppboðinu
kl. 14 í dag yrði ekki frestað.
„Niðurstaðan verður því sú að
helstu lánveitendur Borgarkringl-
unnar hf., sem eiga samtals 95%
af veðkröfum, munu væntanlega
leysa eignina til sín á nauðungar-
uppboðinu og um leið taka við
forræði hússins og sjá um rekstur
þess,“ sagði Víglundur.
Einn milljarður
Heildarskuldir Borgarkringl-
unnar hf. nema um einum millj-
arði króna. Veðskuldir eru 960
milljónir, þar af eru kröfur helstu
veðhafanna, sem að öllum líkind-
um leysa húsið til sín í dag, um
930 milljónir króna. Brunabóta-
mat hússins er 1.600 milljónir
króna. Stærstu veðhafar eru Bún-
Knattspyrna
► Liðin tíu í 1. deild karla í knatt-
spyrnu vegin og metin eftir
fyrstu umferð deildarkeppninnar
á sunnudaginn. Listi yfír alla Ieiki
sumarsins í 1. deildinni.
aðarbankinn, Landsbankinn, Iðn-
lánasjóður, Iðnþróunarsjóður,
Fjárfestingarfélagið, Kaupþing og
lífeyrissjóðir.
Víglundur sagði að aðrar eignir
Borgarkringlunnar hf. væru úti-
standandi leigukröfur, bygginga-
réttur að 8.-9. hæð í Kringlunni
6 og eitt verslunarrými á 1. hæð
í Kringlunni 6. Úr þessum eignum
yrði reynt að vinna til að ljúka
skuldaskilum í fyrirtækinu án þess
að til gjaldþrots þurfi að koma.
„Það er ljóst að allt hlutafé hlut-
hafa, samtals um 440 milljónir
króna, er tapað,“ sagði Víglundur.
„Skuldaskilin að öðru leyti ráðast
af þvi hvernig til tekst með sölu
annarra eigna fyrirtækisins, sem
ekki verða seldar á uppboðinu.11
Óbreytt starfsemi
Margrét Rögnvaldsdóttir, for-
maður markaðsnefndar Borgar-
kringlunnar, sagði að verslunar-
eigendur og aðrir rekstraraðilar >
húsinu hefðu orðið varir við að
viðskiptavinir rugluðu saman erf-
iðri stöðu eigenda hússins og starf-
seminni sjálfri. „Rekstur í húsinu
á framtíðina fyrir sér, enda hefur
hann gengið að óskum,“ sagð'
hún.