Morgunblaðið - 25.05.1993, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. MAÍ 1993
25
Patrick Wogan lætur af starfi sendiherra Breta hér á landi í júní
Höfum eignast fleiri vini hér
en í mörgum öðrum löndum
BRESKI sendiherrann á íslandi, Patrick
Wogan, lætur af störfum hér á landi 20.
júní næstkomandi, en hann mun taka við
starfi sendiherra Bretlands í Quatar í byrjun
október. Patrick Wogan hefur verið sendi-
herra hér á landi síðan í september 1991,
en hingað kom hann frá Karachi í Pakistan
þar sem hann var aðalræðismaður Breta í
þrjú ár. Sá sem tekur við sendiherrastöð-
unni af Wogan heitir Michael Hone, en hann
hefur átt sæti í óopinberri heimastjórn St.
Helenu.
Patrick Wogan sagði í samtali við Morgun-
blaðið að tímanum frá því í júní þegar hann
heldur héðan og þar til í október myndi hann
veija í London til þess að læra arabísku. Wogan
er mikill tungumálamaður og meðan á dvöl
hans hér á landi hefur staðið hefur hann lagt
stund á íslenskunám við Háskóla'íslands.
„Ég tala persnesku ágætlega, og því ætti það
ekki að reynast mér mjög erfitt að læra arab-
ísku, þó það reynist manni reyndar alltaf erfið-
ara að læra tungumál að einhveiju gagni eftir
því sem maður eldist. Við Háskóla Islands hef
ég lokið fyrsta ári af þremur í íslensku fyrir
erlenda stúdenta og síðastliðið haust hóf ég nám
þar á öðru ári. Frá því í lok nóvember þurfti
ég hins vegar að ferðast reglulega til London
og taka þátt í viðræðum þar, og þess vegna
hafði ég ekki tök á að fylgjast nægjanlega vel
með í náminu. Hugur minn stóð síðan til að
halda náminu áfram næsta haust, en yfirboðar-
ar mínir hafa hins vegar ákveðið að ég taki
mér annað fyrir hendur," sagði Wogan.
Flutninginn bar brátt að
Hann sagði fyrirhugaðan flutning til Quatar
hafa borið nokkuð brátt að, en venjan væri sú
Frá íslandi til Quatar
PATRICK Wogan sendiherra Breta á ís-
landi lætur af störfum hér í júní, en næsta
haust tekur hann við starfi sendiherra
Bretlands i Quatar.
að sendiherrar væru að minnsta kosti þijú ár
á hveijum stað. Þetta væri því alls ekki það sem
hann hefði átt von á, og því síður væri það eitt-
hvað sem hann tæki fagnandi.
„Mér hefur fundist dvölin hér á íslandi mjög
heillandi, og ég er mjög feginn því að hafa
haft vit á að byija snemma að læra tungumál-
ið. Jafnvel þó ég geti ekki talað íslensku vegna
æfíngarskorts þá get ég þó lesið mér til gagns,
og þá ekki síst Morgunblaðið. Þess vegna hef
ég getað fylgst með gangt mála hér á landi,
að minnsta kosti að hluta, en það geta útlending-
ar í fæstum tilfellum gert,“ sagði hann.
Wogan sagði að það þyrfti tíma til að kynn-
ast íslendingum því þeir væru varkárir og jafn-
vel feimnir að eðlisfari, en þau hjónin hefðu
sennilega eignast fleiri vini hérna en í mörgum
öðrum löndum þar sem þau hefðu dvalist.
„Þegar maður kemst framhjá þessari hlé-
drægni er mögulegt að stofna til persónulegra
tengsla á þann hátt sem kannski er ekki mögu-
legt í öðrum menningarsamfélögum. Ég hef
lært mikið hér á landi um ýmislegt sem mig
óraði aldrei fyrir að ég myndi læra um, eins og
til dæmis varðandi fískveiðarnar. Eitt það at-
hyglisverðasta hérna hefur einmitt verið að
kynnast öllu viðkomandi sjávarútvegi, ekki að-
eins stefnu stjómvalda heldur um hafíð, auðlind-
ina og uppbyggingu fiskvinnslunnar.“
Pólitískt jarðskjálftasvæði
Wogan sagðist eiga von á að starf sitt í
Quatar yrði með nokkuð ólíkum hætti en starf
hans hér á landi, þar sem hagsmunir Bretlands
i þeim heimshluta væru gjörólíkir því sem þeir
væru hér. Þá væri fjöldi breskra þegna starf-
andi í Quatar, eða rúmlega fjögur þúsund
manns.
„Þama er helsti iðnaðurinn á sviði olíuvinnslu,
en ég þekki allvel til þeirra mála síðan ég var
við störf í Persíu. Það verður svo að hafa í huga
að Quatar er við Persaflóann, og þess vegna á
nokkurskonar pólitísku jarðskjálftasvæði, og því
aldrei að vita hvað getur farið í háaloft næst.
Þetta er því gjörólíkt því sem við höfum átt að
venjast á íslandi," sagði Patrick Wogan.
Nautgripabændur bjóða upp á nautakjöt á sérstöku tilboðsverði
Kiötið lækkar um allt að 30%
NAUTGRIPABÆNDUR munu til
loka júlímánaðar bjóða nautakjöt
í sex kílóa pakkningum á sérstöku
tilboðsverði sem er allt að 30%
lægra en verð fyrir sambærilegt
kjöt á markaðnum. Vörunýjung
þessa kalla nautgripabændur
„nautaveislu" og er fyrirhugað að
selja um 15 þús. slíka pakka á
markað.
í nautaveislunni eru sex kíló af
nautakjöti sem pakkað hefur verið í
handhægar neytendapakkningar
sem kosta 4.194 kr. Um er að ræða
fjóra bakka af nautahakki, eða um
2,5 kg, tvo bakka af gúllasi, 1,1 kg,
og þijá bakka af hamborgurum, sam-
tals 30 stykki, eða 2,4 kg. í hveijum
kassa eru því um 30 máltíðir og
kostar hver.þeirra 139,80 kr.
Hagræðing á öllum stigum
Það sem einkum gerir nautgripa-
bændum kleift að bjóða kjötið á þessu
verði er hagræðing á öllum stigum
framleiðslunnar. Þannig hafa tiltekin
sláturhús lækkað sláturkostnað,
samningar hafa náðst við kjöt-
vinnsluaðila vegna kostnaðar við úr-
beiningu, pökkun og dreifíngu, smá-
söluálagningu er stillt í hóf og naut-
gripabændur leggja sjálfir fram fjár-
muni í sérstakan kynningarafslátt.
Á höfuðborgarsvæðinu annast
Kjötbankinn í Hafnarfírði dreifíngu
nautaveislunnar. Á landsbyggðinni
verður vinnsla og dreifíng í höndum
KEA á Akureyri og KB í Borgarnesi.
Bílamarkaöurinn
BMW 318i 86, hvítur, 5 g., ek. 120 þ.
Fallegur bíll. V. 690 þ.
Buick Electra Park Avenue ’85, sjálfsk.,
m/öllu, ek. 160 þ. Óvenju gott eintak. V.
950 þ.
Nissan Patrol háþekja diesei '86, hvítur,
5 g., ek. 170. þ. 6T spil o.fl. Gott eintak.
V. 1.550 þ.
Suzuki Sidekick JX 4 dyra ’91, steingrár,
5 g., ek. 10 mílur, sem nýr. V. 1.630 þ. stgr.
Toyota Hilux Douple Cap diesel ’91, vsk-
bíll, blásans, 5 g., ek. 39 þ., álfelgur o.fl.
V. 1750 þús., sk. á ód.
Toyota Corolla XL station ’88, steingrár,
5 g., ek 79 þ. V. 650 þús.
Fjörug bflaviðskipti
Fjöldi bifreiða af ölium árgerðum
á skrá og á sýningarsvæðinu.
Verð og kjör við allra hæfi.
Nissan Sunny 2000 GTI '92, 5 g., ek. 16
þ. V. 1.250 þús.
VW Vento GL '93, sjálfsk., ek. 4 þ. V.
1.420 þ. Sk. ód.
Toyota Corolla Touring XL 4x4 '89, 5 g.,
ek. 90 þ. V. 950 þ.
MMC Colt GLXI '91,5 g., ek. 34 þ. álfelg-
ur o.fl. V. 980 þ.
Toyota Cellica GTi 2000 '86, 5 g., ek. 100
þ., álfelgur, spoiler o.fl. V. 680 þ. Sk. öd.
Toyota Carina II DX '88, 5 dyra, grásans,
5 g., ek. 88 þ., rafm. i rúðum o.fl. Fallegur
bíll. V. 650 þús.
BMW 3 LINAN
Sportlegur fjölskyldubíll
TEKUR
ÖÐRUM FRAM
Á ÖLLUM
SVIÐUM
r
j '-f: ' P'
1" ll'
11)
~ I. ,
Verö á BMW-3 línunni er frá kr. 1.969.000,- (Bíll á mynd er búinn ýmsum aukabúnaði sem fáanlegur er í 3-línunni).
BMW ráðleggur: Akið varlega.
Miklar vinsældir BMW bíla má meðal annars rekja til þess að þeir hafa
skapað ímynd fyrir lífsstíl sem gefur sérstöðu og margir sækjast eftir.
Fólk skapar sér ímynd með vali á því sem er í þess nánasta umhverfi, svo sem
húsgögnum, fötum eða bílum. Bílar í BMW 3-línunni höfða lil nútímafólks sem gerir
miklar kröfur til gæöa, fullkominnar tækni og fallegrar hönnunar. í BMW-3 línunni er
að finna sportlega, stílhreina og glæsilega fjölskyldubíla sem bjóða upp mikið rými,
þægileg sæti, góða hljóðeinangrun og frábæra aksturseiginleika við allar aðstæður.
Bílar í BMW-3 línunni eru meðal annars búnir glæsilegri innréttingu, kraftmiklum
vélum, samlæsingu með þjófavörn, lituðu gleri, rafdrifnum útispeglum, þjónustutölvu,
hraðatengdu aflstýri, hæðarstillanlegum framljósum, 6 hátalara BMW
hljómkerfi og Blaupunkt útvarpstæki með þjófavörn. Hægt er að velja
um mikiö úrval af öðrum búnaði.
Söludeildin er opin alla virka daga Bílaumboðið hf.
kl. 8-18 og á laugardögum kl. 13-17. Krókhálsi 1, Reykjavík, slmi 686633
Engum
likur