Morgunblaðið - 25.05.1993, Page 36
36
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. MAÍ 1993
Mývatnssveit
Freysteinn í
Vagnbrekku
níræður
Björk, Mývatnssveit.
FREYSTEINN Jónsson Vagn-
brekku í Mývatnssveit átti 90 ára
afmæli 17. maí síðastliðinn. Frey-
steinn er fæddur 17. maí 1903.
Foreldrar hans voru Jón Krist-
jánsson og Guðrún Stefánsdóttir,
en bróðir hennar var Jón Stef-
ánsson, Þorgils gjallandi. Jón og
Guðrún bjuggu síðast á Geira-
stöðum.
Eiginkona Freysteins er Helga
Hjálmarsdóttir. Börn þeirra eru
Áslaug, Hjálmar, Guðrún og Egill.
Tengdafaðir Freysteins, Hjálmar
Stefánsson, fiðlusnillingur, fékk
árið 1922 leyfi eigenda Geirastaða
til að byggja yfir sig og fjölskyldu
sína austast í landi þeirrar jarðar,
þar sem heitir Vagnbrekka.
Árið 1939 keyptu þau Helga og
. Freysteinn nokkurt land umhverfis
bæinn og var þá Vagnbrekka lög-
býli, þar sem þau hafa búið fram
á síðustu ár. Nú hefur sonur þeirra,
Egill, tekið við jörðinni. Auk Frey-
steins og Helgu bjuggu einnig í
Vagnbrekku frá 1938 til 1982,
Arinbjöm Hjálmarsson og Halldóra
Þórarinsdóttir.
Freysteinn bauð sveitungum sin-
um, svo og öðrum, frændum og
vinum til veglegs afmælisfagnaðar
á heimili sínu síðastliðinn sunnudag.
Veitt var af rausn og myndarskap.
Fjölmenni 'var þar saman komið og
áttu viðstaddir ánægjulega sam-
verustund. Freysteinn er vel ern,
margfróður og kann frá ýmsu að
segja. Mývetningar senda þessum
aldna heiðursmanni bestu árnaðar-
óskir.
-----» ♦ ♦-----
Garðurinn
og grillið
„GARÐURINN og grillið“ er
heiti á átaki sem Kaupfélaga
Eyfirðinga stendur nú fyrir í
verslunum sínum, en það hófst
fimmtudaginn 19. maí og stendur
til 29. maí.
Fjölmargar kynningar verða frá
framleiðendum í verslunum félags-
ins í tilefni átaksins og verða þar
kynntar vörur sem tengjast sumar-
komunni, s.S. garð- og sólhúsgögn,
hleðslusteinar og ýmsar gerðir af
hellusteinum, blóm, plöntur og
margt fleira. Þá verður grillað og
grillkjötið kynnt, en á lokadegi
átaksins verður tekin í notkun ný
útiaðstaða við byggingavörudeild
KEA á Lónsbakka, þar sem verða
til sýnis garðhúsgögn, garðverkfæri
sólpallar og hellur.
(Fréttatilkynning.)
Áfanga náð
ÞAÐ voru margir sem náðu langþráðum áfanga í lífi sínu við skólaslit VMA, þessi hópur rafvirkja stillti sér upp í Stefánslundi
ásamt Bernharð Haraldssyni skólameistara.
Verkmenntaskólanum á Akureyri slitið í níunda sinn á laugardag
Hamingjan er verðmæt-
ari en öll veraldleg gæði
sagði Bernharð Haraldsson skólameistari við þá sem brautskráðust
•• Morgunblaðið/Rúnar Þór
Oldungarnir
STÚDENTAR voru brautskráðir frá Verkmenntaskólanum á
Akureyri á laugardag, þar á meðal þessir glaðbeittu „öldungar“.
VERKMENNTASKÓLANUM á
Akureyri var slitið síðastliðinn
laugardag, brautskráðir voru
frá skólanum 111 stúdentar, 14
sjúkraliðar, 11 húsasmiðir, 18
rafvirkjar, 6 kjötiðnaðarmenn,
2 blikksmiðir, 1 múrari, 1 vél-
virki, 1 prentari og 1 rafsuðu-
maður.
Alls voru við upphaf haustannar
innritaðir til náms í skólanum 992
nemendur í dagskóla auk 170
nemenda í öldungadeild, en þeir
voru heldur færri á vorönn, 922 í
dagskóla og 108 í öldungadeild.
Þá sóttu um 200 manns ýmis nám-
skeið á vegum stéttarfélaga.
Kenndar voru 1.800 stundir á viku
í dagskólanum eða um 360 stund-
ir dag hvern, en að honum loknum
kl. 18 á daginn tók við kennsla í
öldungadeild og fullorðinsfræðsla.
Kennarar voru 82 síðasta vetur,
flestir í fullu starfi, en auk þeirra
unnu um 30 manns við umsjón
og viðhald eigna, á skrifstofu og
við ræstingu.
Vaxið af verkum ykkar
„Líf okkar er vegferð, löng eða
stutt, hún hefst með einu skrefi,
hvert hún ber okkur vitum við
ekki fyrir. Setjið því markið hátt,
forðist flatneskju meðalmennsk-
unnar, dróma einlyndisins, leitið æ
hærra og hærra og vitið að leiðin
á tindinn er þeim einum löng sem
latur er. Gefist ekki upp þó þyng-
ist fyrir fæti, vaxið af verkum
ykkar, veriðið auðug af áreynsl-
unni,“ sagði Bernharð Haraldsson
skólameistari í kveðjuorðúm sín-
um til némenda.
„Líf ykkar er dýrt og það ber
ykkur að vernda og virða. Því eig-
ið þið að lifa sjálfum ykkur og
öðrum til góðs, lifa í leit að verð-
mætum sem máli skipta, verðmæt-
um sem eru góð í eðli sínu, en
ekki bara ásýnd. Hlúið að fegurð-
inni, en forðist ljótleikann í hvað
mynd sem hann birtist.
Leitið hamingjunnar
Leitið hamingjunnar, hún er
dýrmætari en öll veraldleg gæði,
gefið öðrum hlutdeild í henni og
gjörið þá gott. Látið þess vegna
hinn góða vilja móta orð ykkar
og athafnir, af breytninni vex þá
hamingja ykkar. Temjið ykkur
gagnrýna hugsum og leysið ykkar
eigin vandamál sjálf. Látið ekki
lýðskrumara og leppa spillingar-
innar hrekja ykkur af leið. Verið
hófsöm og siglið grunnt hið gyllta
haf freistinganna,“ sagði Bern-
harð ennfremur.
Iþróttafélagið Eik 15 ára
ÍÞRÓTTAFÉLAGIÐ Eik, fyrsta félagið sinnar tegundar sem stofnað
var hér á landi fyrir þroskahefta, átti 15 ára afmæli 16. maí síðast-
liðinn og af því tilefni var efnt til afmælishófs. Félaginu bárust
margar kveðjur og gjafir á þessum tímamótum og fjöldi ávarpa
var fluttur.
Margrét Rögnvaldsdóttir for-
maður Eikar gerði grein fyrir starf-
semi félagsins og rakti sögu þess.
Félagsmenn hafa árlega farið í
íþrótta- og æfingabúðir, þeir hafa
tekið þátt í íþróttamótum víðs veg-
ar, en í máli Margrétar kom fram
að félagsmenn hafi sótt öll þau
mót innanlands sem hægt var og
einnig farið á þau mót erlendis sem
staðið hafí til boða, en síðast tóku
nokkrir Eikarfélagar þátt í Ólymp-
íuleikum þroskaheftra á Spáni.
Lánsöm
„Eikin hefur verið lánsöm með
fólk til þjálfunar- og stjómunar-
starfa," sagði Margrét, „en hvað
er annað hægt en reyna að gera
vel í störfum fyrir ykkur, þið
íþróttafólkið í Eikinni eruð frábær
og gefíð mikið af ykkur sjálfum,
þannig að allir hrífast með og gera
sitt besta.“
Við athöfnina sæmdi Ólafur
Jensson formaður Íþróttasambands
fatlaðra þau Stefán Pálmason og
Helgu Gunnarsdóttur silfurmerki
sambandsins fyrir ötulan stuðning
við málefni þroskaheftra.
Félagsmenn í Eik eru rúmlega
100 talsins og leggja þeir stund á
körfubolta, boccia, frjálsar íþróttir
og sund, þá er efnt til gönguferða
og dansleikja öðru hvoru.
Sparisjóður Akureyrar og Arnameshrepps
Hagnaður tæp-
ar 14 milljónir
HAGNAÐUR af rekstri Spansjóðs Akureyrar og Amarneshrepps
nam 13,9 milljónum króna á liðnu ári samanborið við 13,3 milljóna
króna hagnað árið áður. Þetta kom fram á aðalfundi sparisjóðsins
nýlega.
Eigið fé nam í árslok 99,9 millj-
ónum króna eða 27,7% af niður-
stöðutölu efnahagsreiknings og er
það 18,1% hækkun frá fyrra ári.
Eiginfjárhlutfall Sparisjóðsins sam-
kvæmt gildandi lögum um banka
og sparisjóði er 45,4% en lágmarkið
er 8%.
Innlán jukust um 6,4% og námu
257,7 milljónum króna í árslok.
Útlán jukust um 11,4% og námu í
árslok 295,2 milljónum króna.