Morgunblaðið - 25.05.1993, Page 58
.58
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. MAÍ 1993
F eðgar börðust um sigurinn
_ Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
Feðgarnir í Teppaflokknum, þeir Óskar Einarsson og Einar Gísla-
son, náðu fyrsta og öðru sæti eftir mikla keppni.
Akstursíþróttir
Gunnlaugur Rögnvaldsson
ÞAÐ VAR mikill slagur á ís-
landsmótinu í rally cross á
sunnudaginn og ekki hvað
minnst var hörð baráttan milli
feðga, sem hafa marga hildi
háð á keppnisbrautinni. Þeir
feðgar Óskar Einarsson og Ein-
ar Gíslason háðu harða rimmu
í Teppaflokkinum svonefnda og
sonurinn hafði betur, en faðir
hans varð íslandsmeistari í
flokknum í fyrra. Keppt var í
þremur flokkum, en til Islands-
meistara gilda fimm mót, en
fjögur þeirra telja til lokastiga
þjá keppendum, sem mega fella
slakasta árangurinn út.
Tæplega fimmtíu keppendur
mættu á rally cross-brautina,
flestir að venju í flokk krónubfla,
þar sem pústrar og árekstarar eru
tíðir. Þar hafði Ólafur Baldursson
á Lödu talsverða yfirburði í úrslit-
um, en Garðar Þ. Hilmarsson á
Mitsubishi og Garðar Guðlaugs-
son á Toyota komu honum næst-
ir. í Teppaflokknum var atgang-
urinn mikill, en í honum aka stór-
ir, yfirleitt amerískir átta strokka
Arnar Theodórsson vann rally
cross-flokkinn á tæplega 200
hestafla Volkswagen-bjöllu.
drekar og komast oft færri bílar
en pláss er fyrir í beygjunum og
ökumennirnir slá sjaldnast af, þó
plássið vanti. Feðgarnir Óskar og
Einar eru vanir að bítast um efsta
sætið og háðu marga hildi á síð-
asta ári, þegar Einar tryggði sér
meistaratitilinn. Nú ók sonurinn
af yfirvegun og ógnaði honum
enginn að loknum fyrstu hringj-
unum, þó faðurinn gerði allt sem
hann gat til að vinna upp forskot
hans.
í flokki dýrustu og best útbúnu
bílanna, rally cross-flokknum,
fjölgar vel útbúnum bílum stöð-
ugt. í keppnina mætti nú að nýju
Arnar Theodórsson á sérútbúinni
tæplega 200 hestafla Volkswag-
en-bjöllu, sem sýndi góð tilþrif í
fyrra. Keppinautar hans í úrslitar-
iðlinum voru m.a. íslandsmeistar-
inn Kristín Bima Garðarsdóttir á
Porsche sem átti í basli með bílinn
í undanriðlum og Elías Pétursson
á Skoda með Saab turbo-vél, en
sá bfll vann fyrstu keppni ársins.
En bjallan stóð fyrir sínu og náði
aksturstímanum 3,12 mínútum á
braut sem er nú orðin malbikuð
að verulegu leyti.
„Það var mjög erfitt að stýra
bílnum, aflið er mikið og gripið
það gott á köflum að það þarf
hörku við stýrið á bíl sem er með
vélina yfir drifhjólunum. Ég er
enn að venjast bílnum að nýju
eftir vetrarhlé, en vélin skilar
miklu afli og við félagarnir höfum
lagt mikla vinnu í bflinn. Hann
er búinn rúmlega 2.100 cc
Volkswagen-vél, en samskonar
vélar eru mikið notaðar i Baja-
eyðimerkuraksturinn í Bandaríkj-
unum. Með ýmiss konar útbúnaði
er búið að auka afl vélarinnar í
tæp tvö hundruð hestöfl og við
mætum í öll íslandsmót, svo fremi
að vélin hangi í lagi, en í bílnum
er einnig sérstakur keppnisgír-
kassi, sem Jón Hólm fyrrum ís-
landsmeistari notaði. Þessir hlutir
virka mjög vel saman og það skil-
aði sér í keppninni,“ sagði sigur-
vegarinn Amar Theódórsson.
I úrslitariðlinum í rally cross
varð það óhapp að Guðmundur
Pálsson á Toyota supra skall á
steinvegg og brotnaði framhjól
undan bílnum. Gekk hluti yfir-
byggingarinnar inn að kúpl-
ingspedala við fætur ökumanns-
ins, en hann slapp með mar á
fæti, en óttast var í fyrstu að
hann hefði meiðst meira við högg-
ið.
Greifatorfæran á Akureyri
Heimamaður vann
BROT OG bilarnir settu svip
sinn á sérútbúna flokkinn á Is-
landsmótinu í torfæru á Akur-
eyri á laugardaginn, þegar
Greifatorfæran fór fram, en
keppnin er sú fyrsta af sex sem
gefa stig í meistarakeppninni.
Gildir besti árangur úr fjórum
þeirra til lokastiga, en í fyrra
urðu meistarar Magnús Bergs-
son í sérútbúna flokknum og
Ragnar Skúlason í flokki götu-
jeppa. I keppninni á Akueyri
vann heimamaðurinn Einar
Gunnlaugsson á Bleika pard-
usnum í sérútbúna flokknum,
en Þorsteinn Einarsson í flokki
götujeppa eftir harða keppni
við Islandsmeistarann.
„Þetta var góð keppni ogþraut-
imar voru skemmtilegar. Eg hef
sterkan jeppa til keppni og hef
undirbúið hann vel í vetur. Vélin
er öflugri og allir slithlutir hafa
verið yfirfarnir af kostgæfni. Eft-
ir þennan sigur er ekkert annað
sem kemst að nema sigur,“ sagði
Einar Gunnlaugsson í samtali við
Morgunblaðið.
Sex þrautir voru í báðum flokk-
um, en þær vom að venju erfiðari
í sérútbúna flokknum. Nokkuð
bar á því að keppendur væru ekki
í mikilli akstursæfingu og ófáir
sópuðu niður dekkjum, sem af-
mörkuðu brautina, en það þýðir
færri stig í stigagjöf dómara, sem
fylgjast með því hve langt kepp-
endur komast í þrautunum. Að-
eins tveir efstu keppendurnir virt-
ust gæta sín á dekkjunum, en
margar þrautirnar reyndu
skemmtilega á lipurð ökumanna,
frekar en kraft vélanna og þung-
stígan bensínfót. Hinsvegar vant-
aði á köflum meiri tilþrif öku-
manná og margir töpuðu stigum
vegna bilana og brota í drifbúnaði.
Ógnarafl í Jaxli Þóris Schiöths
skilaði honum litlu, því ýmiskonar
bilanir hijáðu jeppann og sömu-
leiðis Bylgju Sigþórs Halldórsson-
ar, sem var í eldlínunni á Islands-
mótinu í fyrra. Hann komst hins
vegar ekki í verðlaunasæti í þess-
ari keppni og lenti í bilunum fyrir
allt sumarið að sögn viðgerðarliðs-
ins. Akureyringurinn Finnur Að-
albjörnsson var í öðru sæti um
tíma eftir að hafa sýnt laglegan
akstur, en varð að hætta þegar
allir öxlar brotnuðu. Baráttan um
sigur var því milli Einars Gunn-
laugssonar og Gísla G. Jónssonar,
sem var í toppslagnum í fyrra og
vann bikarmót Jeppaklúbbsins
fyrir skömmu, en sá fyrrnefndi
sýndi mikla yfirvegun eftir að
hafa náð forystu og lét hana ekki
af hendi, þó Gísli sækti á. I fyrstu
þraut mótsins kom fyrir atvik sem
hugsanlega setti strik í reikning-
inn, en mokað var í för eftir sum
keppnistæki en ekki önnur, þann-
ig að keppendur högnuðust sumir
hveijir á því að hafa meira grip
upp erfiðan stall. Kærði Gísli þetta
atriði en dómnefd ákvað að taka
kæruna ekki til greina.
í flokki götujeppa voru Þor-
steinn og Ragnar öruggastir, en
Guðmundur Sigvaldason fylgdi
þeim fast á eftir. Mistök Ragnars
í einni þraut kostuðu hann mörg
stig , en Þorsteinn fékk 1.678
stig á móti 1.635 stigum Ragn-
Einar Gunnlaugsson vann í sér-
útbúna flokknum í Greifator-
færunni á Bleika pardusnum.
ars. Er nokkuð ljóst að þessir
kappar munu beijast um meist-
aratitilinn í ár eins og á liðnu
keppnistímabili, en næsta keppni
er stórmót Bílanausts og Flug-
björgunarsveitarinnar á Hellu
þann 5. júní. Síðustu ár hefur
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
Gísli G. Jónsson sýndi skemmti-
leg tilþrif á öflugum jeppa sín-
um, en hann vann fyrsta mót
ársins og var meðal fjórmenn-
inganna sem slógust um meist-
aratitilinn á síðasta ári.
keppendafjöldinn verið þar mestur
og munu allir helstu torfæruöku-
menn landsins mæta þar, einnig
Islandsmeistarinn í sérútbúna
flokknum, Magnús Bergsson, en
hann keppti ekki á Akureyri.
Sölutjöld 17. júní 1993
í Reykjavík
Þeir, sem óska eftir leyfi til sölu úr tjöldum á þjóðhátíðardag-
inn 17. júní 1993, vinsamlegast vitjið umsóknareyðublaða á
Fríkirkjuvegi 11, opið kl. 08.20-16.15.
Athygli söluhafa er vakin á því, að þeir þurfa að afla viður-
kenningar Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkursvæðis á sölutjöld-
um og leyfis þess til sölu á viðkvæmum neysluvörum.
Umsóknum sé skilað í síðasta lagi
föstudaginn 4. júní kl. 12.00.
Vakin er athygli á því, að öll lausasala
frá tjöldum og á hátíðarsvæðinu er
stranglega bönnuð.
V
/
J
Heilsuviku IF A í
Kringlunni að ljúka
Á HEILSUVIKU samtakanna
íþróttir fyrir alia hefur mikið
verið um að vera fyrir alla þá sem
áhuga hafa á því að kynna sér
og taka þátt í íþróttum fyrir al-
menning. Mikið hefur verið um
að vera í Kringlunni af þessu til-
efni en í dag verður dagskrá
heilsuvikunnar haldið áfram í
Kringlúnni. Dagskránni lýkur svo
á morgun, miðvikudag.
Kringlan hefur verið þátttakandi
í heilsuviku íþrótta fyrir alla sem
staðið hefur yfir frá 20. maí sl. og
stendur til 26. maí. Fjölmargar
uppákomur, kynningar og sýningar
hafa verið af þessu tilefni og skal
þeim haldið áfram í dag og á morg-
un sem er lokadagur heilsuvikunnar.
í dag verða eftirfarandi atriði á
dagskrá: Þolfimisýning á vegum
Hress kl. 16, sýning á hressingar-
leikfimi á vegum Ástbjargar Gunn-
arsdóttur kl. 17.20 og danssýning á
vegum dansskólanna í Reykjavík kl.
18. Á morgun, síðasta dag heilsuvi-
kunnar, verður sýndur blindrabolti
kl. 17, Dansskóli Auðar Haralds
sýnir dans kl. 17.30 og Þjóðdansafé-
lagið sýnir þjóðdansa kl. 18.
Kynningar verða á starfsemi
sjúkraþjálfara, hjúkrunarfræðinga,
íþróttafélaga o.fl. en m.a. geta
áhugasamir spreytt sig í veggtennis.
Fyrirtæki í Kringlunni leggja áherslu
á íþrótta- og heilsumál og má þar
nefna að í Heilsuhúsinu er tilboð á
heilsupakka og í Hagkaup verða
heilsu- og matvörukynningar alla
daga heilsuvikunnar.
Verslanir Kringlunnar eru opnar
frá kl. 10-18.30 alla virka daga
nema föstudag þegar opið er til kl.
19. Laugardaga er opið frá kl.
10-16.
(Fréttatilkynning)