Morgunblaðið - 29.03.1994, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. MARZ 1994
5
Sameining Lífeyrissjóðs byggingamanna og málm- og skipasmiða
Hrein eign um 400 millj.
umfram skuldbindingar
Á AÐALFUNDI Sameinaða lífeyr-
issjóðsins sem haldinn var laugar-
daginn 26. mars sl. voru reikning-
ar sjóðsins samþykktir og trygg-
ingafræðileg úttekt á honum
kynnt, og markar fundurinn end-
anlega sameiningu Lífeyrissjóðs
byggingamanna og Lífeyrissjóðs
Höfuðkúpu-
brotinn
eftir árás
27 ÁRA gamall maður er höfuð-
kúpubrotinn eftir árás sem hann
varð fyrir utan við veitingahúsið
Glaumbar í Tryggvagötu um
klukkan hálfníu á sunnudags-
kvöld. Árásarmaðurinn var hand-
tekinn á staðnum.
Mennirnir höfðu setið inni á veit-
ingahúsinu og þar hafði komið til
ryskinga milli þeirra og var öðrum
vísað út. Mennirnir voru báðir undir
áhrifum áfengis.
Eftir nokkurn tíma yfirgaf hinn
staðinn og skömu síðar var komið
að þar sem hann lá í götunni og hinn
stóð yfir honum. Ekki var vitað í gær
hvað mönnunum hafði farið á milli
eða hvernig sá sem slasaðist hlaut
meiðsli.
Sá slasaði var fluttur með sjúkra-
bíl á slysadeild Borgarspítalans og
var talinn höfuðkúpubrotinn. Hann
var fluttur af gjörgæsludeild á al-
menna deild í gær.
Árásarmaðurinn var færður í
fangageymslur og var í gær yfir-
heyrður hjá RLR, sem tók við rann-
sókn málsins.
málm- og skipasmiða. Sameinaði
lífeyrissjóðurinn tók til starfa 1.
júní 1992 og var stofnaður 27.
maí sama ár, frá þeim tíma hefur
hann starfað í þremur deildum. I
ársreikningum Sameinaða lífeyr-
issjóðsins kom fram að hrein eign
til greiðslu lífeyris nam rúmlega
10,7 milljörðum króna í árslok
1993. Hrein eign sjóðsins til
greiðslu lífeyris á núvirði, miðað
við 3,5% ávöxtunarkröfu, er tæp-
lega 12,4 milljarðar króna, sem
er 397 milljónum króna umfram
það sem sjóðurinn þarf að eiga til
að geta staðið við skuldbindingar
sínar, miðað við mat tryggingasér-
fræðings.
Raunávöxtun sjóðsins var 7,2% á
árinu 1993 og 6,8% að teknu tilliti
til rekstrarkostnaðar. Rekstrarkostn-
aður að frádregnum rekstrartekjum
og endurgreiddum útlögðum kostn-
aði nam 41 milijón króna árið 1993
og lækkaði um 9,5 milljónir frá árinu
á undan, eða um 18,8%. Rekstrar-
kostnaður var 0,4% sem hlutfall af
hreinni eign í árslok og er stefnt að
því að á næsta ári fari rekstrarkostn-
aður ekki yfir 0,3% af heildareignum
sjóðsins.
73% af eignum til greiðslu
ellilífeyris
Á aðalfundi var kynnt trygginga-
fræðileg úttekt Péturs Blöndals,
tryggingasérfræðings, á sjóðnum og
deildum hans. Niðurstaða úttektar-
innar er að áunnin réttindi og elli-,
maka- og örorkulífeyrisgreiðslur
verða óbreyttar hjá þeim sem greiddu
til Lífeyrissjóðs byggingarmanna,
sem og réttindi sem áunnin eru eftir
1. júní 1992. Áunnin réttindi þeirra
sem greiddu til Lífeyrissjóðs málm-
og skipasmiða verða aukin um 25%
svo elli-, maka- og örorkulífeyrir
þeirra einstaklinga sem notið hafa
greiðslna frá sjóðnum. Eftir að deild-
unum hefur verið steypt saman í einn
sjóð og hann reiknaður út, á Samein-
aði lífeyrissjóðurinn að fullu fyrir
skuldbindingum sínum miðað við
3,5% vexti umfram breytingu á láns-
kjaravísitölu. Miðað við úttektina er
mögulegt að hækka líffeyri um 2%
en slíkt er talið óráðlegt vegna
óvissuþáttar útreikninganna. í reglu-
gerð sjóðsins er gert ráð fyrir að 73%
af eignum hans verið varið til
greiðslu ellilífeyris, 15% til greiðslu
örorkulífeyris og 12% til greiðsiu fjöl-
skyldulífeyris, en framvegis verði lit-
ið á maka- og barnalífeyri sem eina
heild, þ.e. fjölskyldulífeyri. Barnalí-
feyrir hækkar jafnframt talvert, eða
úr 5.150 á mánuði í kr. 10.250.
Lýst eft-
ir manni
Lögreglan í Reykjavík lýsir eftir
63 ára gömlum manni, Guðjóni
Jónssyni, Kleppsvegi 40. Ekkert
hefur spurst til Guðjóns frá hádegi
þriðjudaginn 22. mars sl. en þá fór
hann að heiman frá sér.
Guðjón er 174 cm á hæð, þétt-
vaxinn og gráhærður. Hann var
klæddur grárri rúmlega mittissíðri
úlpu, gráum buxum og í gráum
skóm.
Þeir sem geta gefið upplýsingar
um Guðjón láti lögregluna í Reykja-
vík vita.
Morgunblaðið/Jón Stefánsson
Ók á fólk á gangstétt
TVEIR menn urðu fyrir bíl á Hverfisgötu á móts við Þjóðleikhúsið
um miðjan dag, laugardag. Ökumaður bíls á leið upp Hverfisgötu leit,
að sögn lögreglu, snöggvast af götunni, missti við það vald á bílnum
sem við það tók stefnuna upp á gangstétt. Tveir vegfarendur sem
fyrir urðu hlutu ekki alvarleg meiðsli, að sögn lögreglu, en flytja varð
bílinn á brott með krana.
Guðjón Jónsson
Sagaði hlaup
af byssu
og stal svo
MAÐUR sem braust inn í
geymslu og stal þaðan hagla-
byssu og skotum, sagaði hluta
hlaupsins af byssunni á staðnum
áður en hann fór á brott með
þýfið.
Auk byssunnar hafði maðurinn á
brott með sér 20 haglaskot og fleira
en alls var brotist inn í 13 geymsl-
urí húsinu.
Hann var farinn af staðnum þeg-
ar þjófnaðurinn uppgötvaðist en
byssuhiaupið lá eftir.
Málið er til rannsóknar hjá RLR.
Sjáðu meira. Borgaðu minna.
Fljúgðu með SAS!
SAS Flugkort í Skandinavíu og Eystrasaltslöndunum*
MÉÍ
*Alta
jj f"h *Troms0
rt-Æ *Bardufoss
• Evenes
• Kiruna
• Bod0
Luleá i
Skeliefteá*
Trondheim Ume/*
0Ostersund
Sundsvall*
Kirkenes
V
• Bérgen
OslóA Vásterás
Kárlstad# •
Örebr°* • Norrköping
elsinki
Stokkliol
Stavanger
g
ábo
Jönköping
Vaxjö* •Kahnar
MalmöKristianstad
UUttgk
Kaliningrad
• Vilnius
Þú getur slegiö margar flugur í einu höggi næst
þegar þú flýgur meö SAS til Skandinavíu.
SAS Flugkortið gerir þér kleift aö feröast til fjölda
staða í Skandinavíu, til framandi og spennandi
slóöa í Eystrasaltslöndunum og til Pétursborgar
og Kaliningrad. Þetta er þægilegur ferðamáti og
býöur upp á ótal skemmtilega möguleika.
Hafðu samband við söluskrifstofu SAS eöa
ferðaskrifstofuna þína.
SAS Flugkortið gildir:
• Meö SAS milli Danmerkur, Noregs og
Svíþjóðar.
• Meö SAS innanlandsfiugi í Noregl og Svíþjóö.
• Meö SAS frá Skandinavíu til Helsinki, Rigu,
Vilnius, Tallinn, Pétursborgar og Kaliningrad.
Sumaráætlun SAS á íslandi
Brottfarar- og komudagar: Þriöjudagar, föstudagar
og sunnudagar.
*SAS Flugkortin eru eingöngu fýrir farþega sem feröast til og
frá Skandinavíu með SAS.
SAS Fiugkort gildir í 3 mánuði.
Danskur flugvaiiarskattur er 740 kr., norskur 600 kr.,
sænskur 130 kr. og litháískur 510 kr.
SAS Flugkort i Skandinavíu
Fjöldi miöa Fullorðnir Börn
1 5.800 4.400
2 11.600 8.700
3 16.700 12.600
4 21.700 16.300
5 26.100 19.500
6 30.400 22.800
SAS Flugkort til Eystrasalts
Fjöldi miöa
2
3
4
Fullorðnir
15.200
21.000
26.800
Börn
11.600
15.900
20.300
M/S4S
SAS á íslandi - valfrelsi í flugi!
Laugavegi 172 Sími 62 22 11