Morgunblaðið - 29.03.1994, Síða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. MARZ 1994
Sundlaug Kópavogs
Bamalaugin mikið endurbætt
OPNUÐ hefur verið barnalaug fyrir almenning við Sundlaug Kópa-
vogs. Laugin er sérstaklega ætluð yngstu sundgestunum og litlum
börnum í fylgd með fullorðnum.
Laugin er 16,66x8,10 m að
stærð og var hún byggð fyrir um
25 árum. Á síðasta hausti lauk
miklum endurbótum á lauginni,
sem meðal annars fólst í að hún
var grynnkuð. Er hún nú frá 0,75
m til 0,90 m að dýpt og hitastigið
er 31-33 gráður, sem er nokkrum
gráðum heitara en aðallaugin.
í lauginni eru flotleiktæki af
ýmsum gerðum fyrir gesti að leika
sér með, segir í frétt frá Sundlaug
Kópavogs.
Laugin er opin þriðjudaga frá
kl. 17-21, fimmtudaga frá kl.
18-21, föstudaga frá kl. 16-21,
laugardaga frá kl. 8-17 og sunnu-
daga frá kl. 8-17. Aðgangi að laug
er hætt 30 mínútum fyrir lokun.
Langamýri 25 - Garðabæ
í einkasölu þetta glæsilega og vandaða einbýlishús um
143 fm auk bílskúrs um 35 fm. Húsið er byggt úr timbri
1987 og er stenilklætt að utan. Húsið er skemmtilega
innréttað, innréttingar eru allar vandaðar.
Byggsjlán um 3,5 millj. Verð 14,5 millj.
Árni Grétar Finnsson hrl.,
Stefán Bj. Gunnlaugsson hdl.,
Linnetsstíg 3, 2. hæð, Hafnarf.,
símar 51500 og 51501.
Smáragata 16
Húseignin Smáragata 16 í Reykjavík er til sölu. Húsið er þrjár
hæðir og kjallari talið 556,4 fm ásamt bílskúr 23,6 fm og garð-
skála 5,2 fm.
Allar upplýsingar eru gefnar hjá undirritaðri þar sem liggja
fyrir teikningar af húsinu og upplýsingar um ástand þess.
Hrund Hafsteinsdóttir, hdl.,
Síðumúla 1, R., s. 688444.
1 Kn 91 LARUS Þ' VALDIMARSS0N FRAMKVÆMDASTJÓRI
H IQU“LI0/w KRISTINNSIGURJÓNSSON,HRL.löggilturfasteignasau
Nýjar eignir á fasteignamarkaðinum:
Skammt frá Árbæjarskóla
Steinhús, ein hæð, 165 fm. Vel byggt og vel með farið. Giæsilegar
stofur, furuklæddar. 4 svefnh. m. innb. skápum. Góður bílskúr. Glæsi-
leg lóð 736 fm. Útsýni.
Mikið endurbætt í þríbýlishúsi
Við Barðavog 4 herb. aðalhæð, 90 fm nettó. Góður bílskúr, rúmir 30
fm. Ræktuð falleg lóð. Vinsæll staður.
Góðar íbúðir við Stelkshóla og Jöklasel
2ja herb. á 2. hæð með sólsvölum. Góðir bílskúrargeta fylgt. Langtíma-
lán. Tilboð óskast.
Stór og góð á góðu verði
Mikið endurnýjuð 4ra herb. íb. á 1. hæð, 104,2 fm nettó. Gott herb.
fylgir í kj. með snyrtingu. 40 ára húsnlán kr. 3,3 millj. Tilboð óskast.
Skammt frá Landspítalanum
í tvíbýlishúsi 2ja-3ja herb. samþ. kjíb. Allt sér. Lítið niðurgrafin. Glæsi-
legur trjágarður. Tilboð óskast.
Á söluskrá óskast
3ja-4ra herb. íb. i lyftuhúsi í Heimunum. Skipti möguleg á góðri sérh.
eða vönduðu einbhúsi á einum besta stað borgarinnar.
3ja-4ra herb. íb. í byggingu á höfuðborgarsvæðinu.
Góð húseign með tveimur ibúðum og rúmg. bílskúr.
Skrifstofu- og íbúðarhúsnæði í borginni, helst i gamla bænum eða
nágr. Margskonar hagkvæm makaskipti.
• • •
Auglýsum á skírdag.
Opið á skírdag og
iaugardag kl. 10-14.
AIMENNA
FA5TEIGNASALAH
LAllGAVEG118 SÍMAR 21150-21370
51500
Hafnarfjörður
Löngumýri - Gbæ
Glæsil. ca 140 fm timbureinb-
hús auk bílsk. Steni-klætt að
utan. Áhv. ca 3,5 millj. byggsj.
rík. Verð 14,5 millj.
Hjallabraut 33
- þjónustuíbúð
Til sölu góð 2ja herb. ca 70 fm
íb. á 3. hæð. Ekkert áhv. Verð
8,9 millj.
Hjallabraut
- þjónustuíbúð
Góð 2ja herb. þjónustuíb., fyrir
Hafnf. 60 ára og eldri, á 4. hæð
ca 63 fm. Áhv. byggsj. ca 3,2
millj. Verð 7,4 m. Skipti mögul.
Álfaskeið
Góð ca 100 fm 4ra herb. íb. á
1. hæð í þríbýlishúsi.
Klettagata
Til sölu tvær 4ra-5 herb. íb. í
tvíbýlishúsi auk bílskúrs. Geta
selst saman.
Arnarhraun
Góð 5 herb. íb. á 3. hæð í þríb-
húsi ca 136 fm. Sérinng. Áhv.
ca 1,5 millj.
Lindarhvammur
Glæsil. efri sérhæð ásamt risi
ca 140 fm. Mikið endurn.
Æskil. skipti á einbhúsi í Hafn-
arfirði ca 200-300 fm.
Árni Grétar Finnsson hrl.,
Stefán Bj. Gunnlaugss. hdl.,
Linnetsstíg 3, 2. hæð, Hfj.,
símar 51500 og 51501.
J
62 55 30
Selbraut - Seltj.
Fallegt raðhús 178 fm á tveimur hæð-
um með tvöf. 42 fm bílsk. 4 svefn-
herb. Parket. Stórar suðursv. Fráb.
staðsetn. Verð 14,9 millj.
Hjallaland - raðhús
Rúmg. 2ja hæða endaraðhús 198 fm
ásamt 20 fm bilsk. Fallegur suðurgarð-
ur. Mögul. á 2ja herb. Ib. á neðri
hæð. Verð 14,3 millj.
Furubyggð - Mos.
Nýbyggt parhús 170 fm ásamt 28 fm
bllsk. Stórt hol, 4 svefnherb., stofa
og sólstofa. Skipti mögul. Áhv. 4,9
millj. Hagst. verð.
Brattholt — Mos.
Rúmg. raðhús á tveimur hæðum 132
fm. 3 svefnherb. Suðurgarður. Skipti
mögul. Verð 8,7 millj.
Urðarholt - Mos.
Björt falleg 2ja herb. Ib. 70 fm á 2.
hæð ásamt 24 fm bllsk. Áhv. 3 millj.
byggsj. með 4,9% vöxtum. Verð 6,9
millj.
Ugluhólar — 2ja
Falleg rúmg. 2ja herb. (b. 65 fm á 1.
hæð I litlu fjölbhúsi. Parket. Sérver-
önd. Verð 5,3 millj. Laus strax.
Borgartangi - Mos.
Rúmg. 3ja herb. ib. 84 fm, nýstand-
sett, á 1. hæð. Sórinng. Áhv. 4 millj.
Verð 6,2 millj.
Verslunarhúsnæði — Mos.
Til sölu nýbyggt verslhúsn. 128 fm á
1. hæð I miðbæ Mosfellsb. Mögul. að
skipta i tvær einingar.
Sæberg Þórðarson,
löggiltur fasteigna- og skipasaii,
Skúlatúni 6, s. 625530.
MENNING/LISTIR
Tónlist
Parsifal í Óperu-
klúbbnum
Óperan Parsifal eftir Richard Wagn-
er verður sýnd í Óperuklúbbnum á
föstudaginn langa kl. 14. Þessi síðasta
ópera tónskáldsins var frumsýnd í
Bayreuth árið 1882. Hér verður sýnd
uppfærsla Wolfgangs Wagners, sonar-
sonar tónskáldsins og stjórnanda
Wagnerhátíðarinnar í Bayeruth. Svið-
setningin er í .einskonar „Neu-Bay-
reuth“-stfl, en svo nefndist frægur leik-
stjórnarstíll þeirra Wagner-bræðra á
fyrstu árum hátíðarinnar eftir stríð.
í aðalhlutverkum eru Bernd Weikl
(Amfortas), Matti Salminen (Titurel),
Hans Sotin (Gurnemanz), Siegfried
Jerusalem (Parsiftal), Leif Roar
(Klingsor) og Eva Randova (Kundry).
Hljómsveitarstjóri er Horst Stein.
Sýnt verður af mynddiskum með
enskum skjátextum. Sýningin fer fram
á Vesturgötu 36b og er aðgangur
ókeypis og öllum heimill.
Postulínssýning verður opnuð
í Gallerí íspan á skírdag.
Postulínssýning
í Gallerí Ispan
Nemendur Kolbrúnar Karlsdóttur
sýna handmálað postulín í Gallerí
íspan, Smiðjuvegi 7. Sýningin verður
opnuð á skírdag kl. 13. Opnunartími
gallerísins er frá kl. 13-20, en lokað
verður á föstudaginn langa og páska-
dag.
Tvær sýningar
í Hafnarborg
Henrik Vagn Jensen opnaði yfirlits-
sýningu á verkum sínum í Hafnarborg,
menningar- og listastofnun Hafnar-
fjarðar, laugardaginn 26. mars sl.
Henrik hefur fengist við flest svið
myndlistarinnar, svo sem teikningu,
málverk og skúlptúr. Hann hefur oft
sótt Island heim, fyrsta sýning hans
hér á landi var í kjallaranum hjá Vil-
hjálmi frá Skálholti 1960. Henrik hef-
ur haldið fjölda einkasýninga og tekið
þátt í samsýningum í Danmörku og
víðar.
Á sýningunni í Hafnarborg eru
handunnin grafíkverk, en sumar að-
ferðirnar við gerð þeirra hefur hann
þróað sjálfur og lýsir þeim í bók sinni J
„Eget tiyk“ sem er til sölu á sýning-
unni. Auk þess sýnir hann landslags-
myndir og portrett sem hann hefur
unnið hér á landi.
„Hugleiðing á föstu“ er yfirskrift
sýningar Ásdísar Sigurþórsdóttur í
Sverrissal í Hafnarborg, en Ásdís opn-
aði einnig sína sýningu laugardaginn
26. mars. Á sýningunni eru málverk
unnin með akrýl á pappír, tré og striga.
Myndefnið eru krossar og tengist yfir-
skrift sýningarinnar.
Ásdís hefur haldið nokkrar einka-
sýningar og tekið þátt í ýmsum sam-
sýningum.
Sýningarnar standa til 11. apríl og
er opið frá kl. 12-18. Lokað þriðjudaga
og föstudaginn langa.
Sýning Gunnars S.
Magnússonar
framlengd
Sýning Gunnars S. Magnússonar í
Sýningarsalnum á Hverfisgötu 6,
Reykjavík, hefur verið framlengd um
viku. Á sýningunni er flöldi verka, flest
ný, en einnig eldri verk. Hann hefur
haldið fjölda einkasýninga og tekið
þátt í samsýningum. Verk eftir hann
eru meðal annars í eigu Listasafns
íslands.
Sýningin er opin alla daga kl. 14-19
nema lokað á föstudaginn langa. Sýn-
ingunni lýkur 4. apríl.
Lj ósmy ndasýning
í Kaffi 17
Egill Egilsson opnaði föstudaginn
26. mars Ijósmyndasýningu í Kaffi 17.
Egill er sjálfmenntaður ljósmyndari og
hefur unnið „freelance" fyrir tímarita-
blöð. Þetta er hans 4. sýning en hún
samanstendur af 10 ljósmyndum.
Sýningin er opin á verslunartíma
og stendur til 24. apríl.
DAGBÓK
KIRKJUSTARF
ÁSKIRKJA: Opið hús fyrir alla ald-
urshópa í dag kl. 14-17.
BÚSTAÐAKIRKJA: Starf 11-12
ára krakka í dag. Húsið opnar kl.
16.30.
DÓMKIRKJAN: Mömmumorgunn
í safnaðarheimilinu Lækjargötu 14a,
kl. 10-12.
FRIÐRIKSKAPELLA: Guðsþjón-
usta kl. 20.30. Prestur sr. Frank
M. Halldórsson. Organisti Tómas
Grétar Ólason. Kaffi í gamla félags-
heimili Vals að guðsþjónustu lokinni.
GRENSÁSKIRKJA: Kyrrðai-stund
kl. 12. Við upphaf stundarinnar 10
mín. flautuleikur. Altarisganga, fyrir-
bænir, samvera. Bænarefnum má
koma til prestanna í s. 32950. Opið
hús kl. 14. Sr. Halldór S. Gröndal
verður með biblíulestur. Síðdegiskaffí.
HALLGRÍMSKIRKJA: Fyrirbæna-
guðsþjónusta kl. 10.30. Beðið fyrir
sjúkum. Opið hús fyrir aldraða á
morgun, miðvikudag, kl. 14.30. Bíl-
ferð fyrir þá sem óska í s. 10745.
HÁTEIGSKIRKJA: Kirkjukvöld kl.
20.30. Efni: Hallgrímur Pétursson
og Passíusálmarnir. Ræðumaður
Margrét Eggertsdóttir cand.mag.
Lesari Þorleifur Hauksson
cand.mag. Þuríður Baxter og Þór-
unn Guðmundsdóttir syngja ásamt
kór kirkjunnar.
LANGHOLTSKIRKJA: Vinafund-
ur kl. 14-15.30 í safnaðarheimili.
Leiðsögn í lestri ritninganna. Leið-
beinandi Flóki Kristinsson. Aftan-
söngur í dag kl. 18.
NESKIRKJA: Mömmumorgunn í
safnaðarheimilinu kl. 10-12.
SELTJARNARNESKIRKJA: For-
eldramorgunn kl. 10-12. Starf fyrir
10-12 ára í dag kl. 17.30.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Starf
10-12 ára barna (TTT) í dag kl.
16.30. Bænaguðsþjónusta með alt-
arisgöngu kl. 18.30. Fyrirbænum
má koma til sóknarprests í viðtals-
tíma. í kvöld kl. 20.30 fjölskyldu-
samvera fyrir börn sem fermast eiga
17. apríl.
KÁRSNESSÓKN: Samvera æsku-
lýðsfélagsins í kvöld kl. 20-22 í safn-
aðarheimilinu Borgum.
FELLA- og Hólakirkja: Foreldra-
morgunn ( fyrramálið kl. 10.
HJALLAKIRKJA: Mömmumorgn-
ar á miðvikudögum frá kl. 10-12.
KEFLAVÍKURKIRKJA: Foreldra-
morgnar kl. 10-12 og umræða um
safnaðareflingu kl. 18-19.30 í
Kirkjulundi á miðvikudögum. Kyrrð-
ar- og bænastundir eru í kirkjunni
á fimmtudögum kl. 17.30.
LANDAKIRKJA, Vestmannaeyj-
um: Mömmumorgunn kl. 10. Kyrrð-
arstund á hádegi kl. 12.10. TTT-
fundur kl. 17.30.
SKIPIIM
REYKJAVÍKURHÖFN: í fyrradag
komu Þerney og Ásbjörn. Faxi
RE og Svanur RE lönduðu loðnu.
Þá fór Vigri á veiðar. í gær kom
Kyndill og fór samdægurs. Ásbjörn
fór á veiðar. Þá voru væntanlegir
Hvassafell, Laxfoss, Reykjafoss
og Úranus er kemur að utan fyrir
hádegi. Þá kemur Jakob Kosan í
dag með gas.
HAFNARFJARÐARHÖFN: í
fyrradag kom Rússinn Kaptain Rog-
asin til löndunar. í gær kom Hof-
sjökull af strönd til lestunar. Togar-
arnir Bersi, Óskar Halldórsson og
Alberl; Ólason komu til löndunar.