Morgunblaðið - 29.03.1994, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. MARZ 1994
13
Kvikmynd og fyrirlestur
Jeff Ruoffí
Norræna húsinu
BANDARÍSKI kvikmyndagerðarmaðurinn Jeff Ruoff sýnir heimild-
armynd sína Hacklebarney Tunes: The Music of Greg Brown í Nor-
ræna húsinu, í kvöld, þriðjudagskvöld, kl. 21.
Myndin fjallar um bandaríska
tónlistarmanninn Greg Brown sem
er frá miðvesturríkjum Bandaríkj-
anna og á ættir sínar að rekja til
þjóðlagasöngvara í Appalachia-
fjöllunum. Brown er sonur farandp-
redikara og ólst upp í smábæjum
víðsvegar í miðvesturríkjunum.
í fréttatilkynningu segir: „í
myndinni eru m.a. atriði úr athöfn
í retttrúnaðarkirkju sem Brown
sótti þegar hann var barn. Brown
leikur sjáifur hins vegar fjölbreytta
tónlist. Við fylgjumst með Greg á
veiðum í Iowa, heimsækjum Earl-
ville, 700 manna þorp þar sem
Brown dvaldist hvað lengst í æsku,
og við fylgjumst með Brown á tón-
leikum í Minneapolis og Des Moines
og samleik hans við tónlistarmenn
frá Iowa og Minnesota. Tónlistar-
gagmýnendur setja tónlist Browns
í samhengi við ameríska nútímatón-
list. I Hacklebarney Tunes er könn-
uð menning miðvesturríkja Banda-
ríkjanna, í lífi og starfi listamanns
sem sækir sín áhrif þangað.“
Ruoff mun síðan ræða um sjálf-
stæða bandaríska kvikmyndagerð í
stuttum fyrirlestri sem hann heldur
eftir sýningu myndarinnar. Það er
félag kvikmyndagerðarmanna sem
stendur fyrir sýningunni, aðgangur
er ókeypis og öllum opinn.
(alt) og síðast Sigrún Hjálmtýs-
dóttir (sópran) inn og lýkur kafl-
anum á samsöng þeirra, með
svipuðum hætti og um kórþætt
væri að ræða. Einsöngvararnir
sunu þennan virðulega þátt af
öryggi og einnig Recordare, sem
að byggingu er einnig í kórrit-
hætti, svo og Benedictus, en hann
er rammaður inn með Hósanna-
fúgunni. Þar er vart um meira
að ræða en framsögu stefjanna,
sem verður að telja nokkuð smá-
legt, í samanburði við tveggja
stefa upphafsfúgu (Kyrie) verks-
ins, sem er einstaklega vel gerð
og glæsileg tónsmíð.
Santus (V), Benedictus (VI)
og Agnus Dei (VII) eru alfarið
eftir Siissmayer en lokaþáttinn
vann hann upp úr Innganginum
og Kyrieþættinum. í heild voru
tónleikarnir góðir og kórinn söng
af öryggi, þó á stundum vantaði
hann styrk til að halda í við ágæt-
an leik hljómsveitarinnar. Það
var samt mikill munur á flutn-
ingnum að þessu sinni,'frá því
fyrir nokkrum árum, er Ulrik
Olason var að byija með Söng-
sveitina, bæði er varðar sam-
vinnu kórs og hljómsveitar en
sérstaklega söng kórsins i heild,
og má segja, að Ulrik Ólason
hafi með þessum flutningi á
Requiem Mozarts markað sér
stöðu sem vaxandi kórstjóri og
alls líkiegur til stórra verka í
framtíðinni.
Jónas Árnason rithöfundur t.h. og Bragi Þórðarson útgefandi t.v.
með fyrstu eintök bókarinnar.
Nýjar bækur
140 limrur eftir
Jónas Arnason
Requiem
________Tónlist______________
Jón Ásgeirsson
Söngsveitin Fílharmonía, undir
stjórn Ulriks Ólasonar, ásamt
einsöngvurunum Sigi’únu Hjálm-
týsdóttur, Alinu Dubik, Garðari
Cortes og Guðjóni Óskarssyni, í
samleik við 25 manna hljóm-
sveit, með Szymon Kuran sem
konsertmeistara, flutti Sálumess-
una eftir Mozart sl. sunnudag í
Kristskiiju.
Saga Sálumessunnar hefur
verið rækilega tíunduð en bæði
tilurð hennar og endanleg gerð
hefur verið viðfangsefni rannsak-
enda í tónlistarsagnfræði. Á tím-
um þar sem höfundarréttur er
mikilvægt réttarfarsatriði, hefur
Sússmayr ekki fengið að njóta
réttar síns sem skyldi, því fólk
vill halda í „goðsögnina" um
verkið. Það er t.d. nokkuð ein-
kennilegt að Mozart, sem hafði
samið margar óperur, hefði ekki
ætlað að hafa svo sem eina aríu
í þessu verki. Þá horfa menn
gjarna fram hjá því, að Sússmayr
ritaði bréf til Breitkopf og Hártel
og sagði nákvæmlega frá því
hver hans hlutur var í endanleg-
um frágangi verksins og hafa
flest útgáfufyrirtæki, eins t.d.
Bárenreiter, tilgreint í útgáfum
sínum, hvar höfundarskilin eru.
Þess vegna má kynna verkið sem
Requiem eftir Mozart og Siiss-
mayr.
Flutningur verksins var í heild
góður. Hljómsveitin var á köflum
nokkuð sterk, sérstaklega blásar-
arnir, sem líklega er vegna mikill-
ar hljómgunar í kirkjuskipinu.
Hljómsveitin lék af öryggi, nema
upphafshljóminn, í hinum fagra
inngangi verksins en það var ein-
mitt í þeim þætti sérstaklega,
sem blásararnir „skyggðu“ nokk-
uð á inkomu kórsins.
Kyrie-kaflinn var gæsilegur,
hraður og kraftmikill og sama
má segja um Sequens (III) þátt-
inn, er þar hefst í raun vinna
Sússmayrs. í Tuba mirum koma
einsöngvararnir inn en básúnu-
einleikurinn, fyrstu 18 taktarnir,
er eftir Mozart. Guðjón Óskars-
son opnaði þáttinn og er hugsan-
legt að Mozart hafi ætlað bassan-
um allan kaflann, því upphafs-
söngur bassans er nákvæmlega
18 taktar. Innkoma tenórsins,
sem Garðar Cortes söng hefst
þar og síðan koma Alina Dubik
ÚT ER komin ný bók eftir Jónas
Árnason, Jónasarlimrur, með
140 limrum.
I kynningu útgefanda segir:
„Allir landsmenn þekkja leikrit og
söngva Jónasar og vinsældir hans
eru alltaf jafn miklar. Færri vita,
að undanfarið hefur hann fengist
við að yrkja limrur, sem nú eru
komnar út á bók. Limruformið
nýtur vaxandi vinsælda og mörg-
um mun þykja forvitnilegt að
kynnast Jónasi Árnasyni á þessum
nýja vettvangi.“
Útgefandi er Hörpuútgáfan.
Bókin er unnin í prentsmiðjunni
Odda hf. Mynd af höfundi gerði
Erla Sigurðardóttir myndlistar-
kona.
-------♦ ♦ ■♦------
Söngsveitin Filharmónía.
Karlakórinn Stefnir.
Vortónleikar Stefnis
Mosfellsbæ.
KARLAKÓRINN Stefnir heldur nú hina árlegu vortónleika en að
þessu sinni með nýstárlegu sniði en þar kemur til Félag harmoniku-
unnenda í Reykjavík. Það er kunnugt flestum að félag þetta starfar
með miklum krafti um þessar mundir og er m.a. að feta sig inná
nýjar og ótroðnar slóðir, t.d. nú með þátttöku í tónleikum Stefnis.
Nýjar bækur
■ Fjallið eftir Terry Evans
er nýkomið út. Miðillinn Terry
Evans er kunnur fyrir störf sín hér
á landi. Bókin er samin upphaflega
til útgáfu á íslandi. í kynningu
útgefanda segir: „Bókin um Fjallið
er dulúðarfullt ferðalag á vit
leyndra heima. Ferðalag þar sem
lesandanum verður ljóst afl ímynd-
unarinnar, er opnar honum heim
innsæisins.“
Útgefandi er Birtingur.
MtsöltilMá Imrjuin dftti!
í fyrra leituðu þeir í austurveg
eftir efni fyrir harmonikuleik og
fengu t.d. syrpu rússneska með
ýmsum meira og minna þekktum
þjóðlögum en þó í nýstárlegum út-
setningum. Þarna rákust þeir á eina
sneru þeir sér til Karlakórsins
Stefnis í Mosfellsbæ.
Niðurstaðan af þessu varð sú að
málið var kannað og reyndar lítils-
háttar prófað á jólavöku kórsins í
vetur. Þetta varð til þess að reglu-
heppnaðist það vel að þetta hefir
nú verið tekið inná söngská vortón-
leikanna.
Að öðru leyti er söngskráin með
hefðbundnum hætti og söng kórinn
í Árbæjarkirkju á laugardaginn og
í gærkvöldi var sungið í hinu nýja
leikhúsi Leikfélags Mosfellsbæjar
en í kvöld lýkur tónleikum kórsins
í Bústaðakirkju. Á efnisskránni eru
verk eftir Kaldalóns, Karl Ó. Run-
ólfsson og Gunnar Thoroddsen en
kórinn hefir ástundað allmikið að
kynna verk þessa stjórnmálamanns
er hann gerði í stopulum frístund-
um. Þá má nefna tvo óperukóra
eftir Vagner og ýmis önnur erlend
lög. Að þessu sinni syngur Ingi-
björg Marteinsdóttir óperusöng-
kona með kórnuhi en undirleikari
er Sigurður Marteinsson. Þá eru
átta félagar úr félagi þeirra harm-
onikkuunnenda og tveir ungir menn
á slagverk úr Skólahljómsveit Mos-
fellsbæjar. Stjórnandi er sem fyrr
Lárus Sveinsson trompetleikarí.
_______________________J.M.G.
slíka,með_karlakór oe í því tilefni legar æfingar hófust og málið