Morgunblaðið - 29.03.1994, Side 16
16
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. MARZ 1994
Sífellt þrengt að sjúkraliðum
þeim niðurstöðum sem komist
verður að.
Trúnaðarmenn Sjúkraliðafélags
Islands á Borgarspítalanum hafa
nú ritað stjórnárformanni Sjúkra-
eftir Sif Knudsen
Fyrir liggur nú frumvarp til laga
um sjúrkaliða sem væntanlega
verður lagt fyrir Alþingi innan tíð-
ar. Aðdragandi að því hefpr verið
bæði langur og strangur og fæðing
frumvarpsins hefur tekið tvö ár.
Nefnd sem heilbrigðisráðherra
skipaði til þess að semja frumvarp-
ið klofnaði því miður. Nefndin
varð sammála um allar greinar
frumvarpsins nema 5. grein þess.
í meirihluta nefndarinnar eru Ingi-
mar Sigurðsson skrifstofustjóri
sem er formaður, Matthías Hall-
dórsson aðstoðarlandlæknir,
Kristín Á. Guðmundsdóttir for-
maður Sjúkraliðafélags íslands og
Gunnar Gunnarsson fram-
kvæmdastjóri Sjúkraliðafélags ís-
lands.
Fimmta greinin sem nefndin
klofnaði um er svohljóðandi:
„Sjúkraliði starfar á lækningasviði
samkvæmt fyrirmælum og undir
handleiðslu og ábyrgð læknis eða
sérfærðings, að svo miklu leyti
sem slík störf eru ekki falin öðrum
með lögum eða reglugerðum."
Minnihlutinn, þær Vilborg Ingólfs-
dóttir fyrrv. formaður Hjúkrunar-
félags Islands, Ásta Möller fyrrv.
formaður félags háskólamennt-
aðra hjúkrunarfræðinga og núver-
andi formaður Félags íslenskra
hjúkrunarfræðinga, mótmælti
þessu og lagði til að fimmta grein-
in yrði þrengd frá því sem hún er
í dag, en hún hljóðar svo: „Sjúkra-
liði starfar á hjúkrunarsviði og
vinnur undir stjóm þess hjúkrun-
arfræðings sem fer með stjóm við-
komandi stofnunar, deildar eða
hjúkrunareiningar og ber ábyrgð
á störfum sínum gagnvart honum.
Þar sem hjúkrunarfræðingur hef-
ur ekki fengist til starfa að undan-
genginni auglýsingu getur sjúkral-
iði borið ábyrgð á störfum sínum
gagnvart þeim sérfræðingi sem
hlotið hefur viðurkenningu heil-
brigðisráðuneytisins. Þó skal slík
skipan ekki standa lengur en eitt
ár í senn og er þá skylt að aug-
lýsa á ný eftir hjúkrunarfræðingi."
Minnihlutinn vildi að seinni hluti
greinarinnar yrði felldur niður frá
þar sem stendur „þar sem hjúkr-
unarfræðingur..." o.s.frv.
Fulltrúar hjúkrunarfræðinga
vilja óbreytta stöðu
Þær Ásta og Vilborg skiluðu
séráliti með frumvarpinu þar sem
fram kemur að þær telja ekki þörf
á því að sjúkraliðar víkki út verk-
svið sitt og fái þar með að vinna
undir stjórn og á ábyrgð annarra
heilbrigðisstétta en hjúkmnar-
fræðinga. Hvers vegna fæ ég ekki
skilið. Því ættum við sjúkraliðar
ekki að geta unnið með læknum,
sjúkraþjálfurum, þroskaþjálfunm,
röntgentæknum og fleiri heilbrigð-
isstéttum?
Ég býst við að það komi fleirum
en mér æði spánskt fyrir sjónir
að nú í lok 20. aldarinnar skuli
vera til stétt á íslandi sem gerir
skýlausa kröfu til þess að ríkja
yfir annarri stétt og vera einráð
um hvað hún má gera og ekki
gera.
En við hvað eru hjúkrunarfræð-
ingar hræddir? Þegar þeir eru
spurðir beint út eru svör gjarnan
á þann veg að þeir treysti ekki
t.d. læknum til að vinna með okk-
ur sjúkraliðum þar sem læknar
hafi ekkert vit á hjúkrun!!! En
M A X I
Handhægar • sterkar • fjölbreyttar
Raðskúffur
sem varðveita smáhlutina
0DEX1ON SINDRI
-sterkur í verki
BORGARTÚNI31- SÍMI62 72 22
mergurinn málsins er einmitt sá
að sjúkraliðar vilja fá að vinna á
fleiri sviðum en hjúkrunarsviðinu
einu og vilja ekki lengur sæta því
að vera lögbundnir af því að vinna
aðeins undir yfirstjóm einnar heil-
brigðisstétttar — hjúkrunarfræð-
inga. Sjúkraliðar vilja að starf
þeirra geti þróast í takt við breytt-
ar forsendur og viðhorf í heilbrigð-
ismálum. Þeir vilja fá svigrúm til
að 'þróa nám sitt og námsmögu-
leika til að geta mætt nýjum kröf-
um. Á vegum Sjúkraliðafélagsins
er einmitt nú þegar starfandi
nefnd sem vinnur að menntunar-
málum sjúkraliða.
Nú þegar starfa sjúkraliðar víða
í heilbrigðiskerfinu á öðrum svið-
um en hjúkrunarsviði, en í þeim
tilfellum að enginn hjúkrunar-
fræðingur er á staðnum til að
uppfylla lagakröfuna um yfirstjórn
yfir verkum sjúkraliðanna, verður
að kalla störfin einhveijum öðrum
nöfnum en sjúkraliðastörf, t.d.
aðstoðarstörf eða eitthvað í þeim
dúr, bara af því að yfirmaður er
læknir, tannlæknir, eða þroska-
þjálfi. Getur þetta kaliast eðlilegt?
Sjúkraliðum ýtt út?
Það er sífellt verið að þrengja
að sjúkraliðum. Bæði eru stöður
sjúkraliða víða um landið mannað-
ar ófaglærðu fólki en auk þess
hefur stöðugildum sjúkraliða á
stórum sjúkrahúsum í landinu ver-
ið að fækka töluvert að undan-
fömu. Sem dæmi má nefna Borg-
arspítalann, en þar fækkaði stöðu-
gildum sjúkraliða á árunum 1989-
1992 um 13. Á sama tíma fjölg-
aði stöðugildum hjúkrunarfræð-
inga um 45,6.
VERSLUN, PÖNTUNARÞJÓNUSTA OG MYNDBANDAVINNSLA
Kvikmyndir:
Lawnmower man Dir. cut,
Abyss Dir. cut, Aliens Dir cut,
Under Siege, Unforgiven,
Spartacus Dir. Cut, Akira Sp. Ed.
Bambi, Beauty and the Beast o. fl.
Tónlis tarmy nd bönd:
Alice in Chains: Live,
Brian May: Live,
Skid Row: Roadkill,
Brian Adams: So Far So Good,
Pantera: Vulgar video o. fl.
Laserdiskar:
Last Action Hero (PAL-CLV),
Beauty and the Beast (NTSC-CAV),
Chaplin (PAL-CLV), laws (NTSC-CLV),
Dances With Wolfes (PAL-CLV),
Dr. Strangelove (NTSC-CAV) o. fl.
Fræðsluefni:
World at War, Patton, Rommel,
Waffen SS, Tank, Stalingrad,
Search For Titanic/Bismark,
Stephen King's world of horror,
From Star Wars to Jedi o. fl.
WIDESCREEN
SURROUND
2001, HVERFISGÖTU 61B (Frakkastígsmegin), SIMI 612220
Sif Knudsen
„Það er nú einu sinni
stofnana Reykjavíkurborgar, Árna
Sigfússyni, bréf þar sem óskað er
eftir hlutlausu mati á mönnunar-
þætti þessarar sjúklingaflokkunar
sem tekin hefur verið upp á Borg-
arspítalanum.
Menntun sjúkraliða hefur þró-
ast jafnt og þétt frá upphafi, allt
frá því þegar nám þeirra fór ein-
vörðungu fram inni á sjúkrahúsun-
um. Nú er þetta orðið þriggja ára
nám í framhaldsskóla. Sömuleiðis
hefur menntun hjúkrunarfræðinga
þróast frá því að vera nám í
Hjúkrunarskóla íslands til þess að
vera nú háskólanám og það orðin
vísindi og að hjúkra sjúku fólki.
Hjúkrunarkonan varð hjúkrunar-
fræðingur.
Sjúkraliðar eiga nú í dag mögu-
leika á að bæta við menntun sína
með því að sækja heillar annar
námskeið á ýmsum greinum sem
nýtast á sérsviðum, svo sem í
barnahjúkrun, geðhjúkrun og í
heilsugæslu.
þannig að þótt hjúkrun-
arfræðingar leggi sig
fram við að halda
sjúkraliðum inni í
þröngum afmörkuðum
bás þá munu þeir ekki
verða lokaðir inni held-
ur leita fram til nýrra
farvega í takt við al-
menna þróun í heil-
brigðisgeiranum. “
Blindgatan opnuð
Hlutleysi í þágu eins aðila
Munur á launum hjúkrunar-
fræðinga og sjúkraliða er veruleg-
ur og á Borgarspítalanum eru laun
þeirra fyrrnefndu um 50% hærri.
Það hlýtur því að teljast nokkuð
einkennileg framkvæmd yfirlýstr-
ar aðhalds- og sparnaðarstefnu í
rekstri spítalans að fækka sjúkra-
liðum en fjölga hjúkrunarfræðing-
um margfalt í þeirra stað.
Hjúkrunarstjórnir sjúkrahús-
anna hafa það hins vegar alger-
lega í sínum höndum og eru ein-
ráðar um hvernig stöðugildi á
hjúkrunarsviði skiptast milli hjúkr-
unarfræðinga og sjúkraliða og það
vill svo til að hjúkrunarstjómimar
em einungis skipaðar hjúkrunar-
fræðingum.
Lítum nú aðeins nánar á þessa
könnun. Hverjir undirbjuggu
könnunina? Hjúkrunarfræðingar.
Hveijir framkvæmdu könnunina?
Hjúkrunarfræðingar. Hveijir unnu
úr könnuninni? Hjúkrunarfræð-
ingar. Hveijir nota könnunina
núna? Hjúkmnarfræðingar. Er
hægt að kalla þessa framgöngu
alla hlutlausa? Nei.
En það er ekki allt upptalið
enn: Nú hefur verið tekin upp svo-
kölluð sjúklingaflokkun, en með
henni á að mæla mönnunarþörf
hverrar spítaladeildar frá degi til
dags. Hver skyldi nú framkvæma
þetta verk? Hjúkmnarfræðingar
auðvitað og fá sjúkraliðar hvergi
nærri að koma en skulu samt lúta
Það er nú einu sinni þannig að
þótt hjúkmnarfræðingar leggi sig
fram við að halda sjúkraliðum inni
í þröngum afmörkuðum bás þá
munu þeir ekki verða lokaðir inni
heldur leita fram til nýrra farvega
í takt við almenna þróun í heil-
brigðisgeiranum. Ég vil því hvetja
alþingismenn til að samþykkja
lagafrumvarpið um sjúkraliða eins
og það kemur frá meirihluta
nefndarinnar.
Þrátt fyrir þennan ágreining
milli sjúkraliða og hjúkrunar-
stjórnenda þá ríkir almennt góður
andi milli almennra hjúkrunar-
fræðinga og sjúkraliða sem starfa
hlið við hlið á sjúkrahúsum lands-
ins. Sjúkraliðar hvorki geta né vilja
leggja undir sig störf hjúkrunar-
fræðinga. Sjúkraliðar vilja fyrst
og fremst halda áfram að vinna
þau störf sem þeir hafa gegnt
hingað til. En aðstæður hafa
breyst á þeim 28 ámm sem liðin
eru síðan sjúkraliðastéttin varð til
og sjúkraliðar vilja eiga kost á að
víkka sjóndeildarhringinn og bæta
við menntun sína eins og aðrar
heilbrigðisstéttir og fá að njóta
hennar í bættri starfsaðstöðu og
aukinni íjölbreytni.
Höfundur situr í stíórn
SjúkraJiðafélags Islands.
Þegar stjórn og trúnaðar-
mannaráð Sjúkraliðafélags ís-
lands hafa spurst fyrir um hvemig
á þessari þróun standi er ætíð vís-
að til svokallaðrar IKO-könnunar,
eða tíðnimælinga sem gerð var
meðal annars á Borgarspítalanum
árið 1985, en í þessari könnun
átti að mæla óvirknitíma starfs-
fólks spítlans. Útkoman var
sjúkraliðum vægt sagt mjög í óhag
og niðurstöður sögðu að óvirkir
tímar sjúkraliða væru 29,1%.
Óvirkir tímar hjúkrunarfræðinga
voru hins vegar sagðir ekki nema
14,3%. Eðlilegt telst að óvirkur
tími sé um 18%.
Helgi Hálfdanarson
Tamið frelsi
í Morgunblaðinu 26.3. birtist
grein eftir blaðamann, þar sem
sagt er frá flutningi Leikfélags
Reykjavíkur á þremur grískum
harmleikjum. Fyrirsögnin er HIÐ
TAMDA FRELSI. Þar stendur
m.a. feitletrað í upphafi: „Að til-
einka sér braginn gersamlega og
gleyma honum svo, það er kúnst-
in. ... efnið ætti að taka á hon-
um hæfílegt mark og án þess að
brjóta hann niður ætti leikarinn
að njóta sín. Hið tamda frelsi...
er undirstaða allrar listar.“
Mér þykir augljóst, að þessi
ummæli ásamt sjálfri fyrirsögn
greinarinnar hafí blaðamaður
tekið upp úr greinarkomi, sem
undirritaður hripaði hér um árið
og birti í riti íslenskrar málnefnd-
ar, Málfregnum (3.2.1989), und-
ir fyrirsögninni Lítið eitt um
flutning bundins máls á leikritum
Shakespeares.
Ekki hef ég neitt við það að
athuga, að það sem hér um ræð-
ir er sótt I prentaða grein; og
engin ástæða finnst mér til að
geta þess, né hvar hana er að
finna. En eins og til hagar, hefði
ég fremur kosið, að betur væri
til skila haldið því sem þarna er
mergurinn málsins. En þar segir
„Ef til vill er það ráðlegast um
allan flutning á stakhendu að
byrja á því að fara með hana svo
nærri bragnum sem komizt verð-
ur, lesa hana jamba fyrir jamba
og línu fyrir línu án alls tillits til
gerðar og merkingar orðanna,
en láta síðan smám saman á það
reyna hvað bragformið þolir mik-
ið undanlát fyrir eðlilegum flutn-
ingi setninganna. Þá er von til
þess að flytjandinn geti fyrr en
varir leyft sér að gleyma bragn-
um án þess að ganga af honum
dauðum. Og þá hefur hann öðl-
azt það tamda frelsi sem er for-
senda listrænnar túlkunar.“
Það hugtak, sem hér er kallað
„tamið frelsi", hef ég ekki ann-
ars staðar séð eða heyrt nefnt
svo. Og víst mætti sem bezt
bæta því við, að það sé forsenda
„allrar listar“, því að í raun og
veru er tamið frelsi forsenda allr-
ar mennmgar.
Þessari athugasemd beini ég
í allri vinsemd til blaðamannsins,
sem ég vona að misvirði ekki við
mig slettirekuskap um hégóm-
lega smámuni.
i
(
i
\í
i