Morgunblaðið - 29.03.1994, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. MARZ 1994
-
Um lax og þorsk: Rökleys-
ur í málflutningi fískifræð-
inga á Veiðimálastofnun
eftir Krislján
Þórarinsson
Þrír fiskifræðingar á Veiðimála-
stofnun hafa að undanförnu gert
harða hríð að þeirri grein vísinda-
legrar fiskifræði sem fjallar um
stofna langlífra sjávarfiska. Þeir
hafa komist að því, sem reyndar
er alkunna, að umhverfisskilyrði
hafa umtalsverð áhrif á nýliðun.
Að auki gefa þeir sér þá forsendu,
án þess að styðjast við mæligögn,
að umhverfísskilyrði hafi veruleg
áhrif á náttúrulega dánartölu í
veiðistofnum langlífra físka. Af
þessu draga þeir síðan þá ályktun
að veiðar og stærð hrygningar-
stofns ráði minna en umhverfísskil-
yrði um sveiflur í þessum stofnum
og því sé til lítils að stjórna veiðum
eða að reyna að byggja t.d. ís-
lenska þorskstofninn upp.
Þessi málflutningur fiskifræð-
inga Veiðimálastofnunar byggist á
rökleysum. Þessar rökleysar eru
nokkuð augljósar flestum þeim sem
hafa reynslu af úrvinnslu gagna
um dýrastofna, en ekki er við því
að búast að almennir lesendur sem
hafa haft öðrum hnöppum að
hneppa sjái í gegnum þær í fljótu
bragði. Vegna þessa hefur eðlilega
verið tekið meira mark á málflutn-
ingi fískifræðinga Veiðimálastofn-
unar en efni stóðu til.
Áhrif hrygningarstofns og
seiðafjölda
Það er talsvert flóknara að hugsa
um þorsk en lax. Þetta stafar af
því að stofnsamsetning og aldurs-
dreifing þorsks er flóknari en hjá
laxi. Sumar þær rökleysur sem
ógilda málflutning fískifræðinga
Veiðimálastofnunar um þorsk má
einnig finna í ályktunum þeirra
varðandi lax. Það er því einfaldast
að byrja að skoða þessar rökleysur
í því sem þeir segja um laxinn.
í erindi um niðurstöður þeirra
félaga, sem Þórólfur Antonsson,
fískifræðingur á Veiðimálastofnun
hélt í Líffræðifélaginu rúmri viku
eftir að niðurstöður þeirra birtust
fyrst í Morgunblaðinu, kom fram
að uppgötvanir þeirra félaga ættu
rætur sínar að rekja til þess að
eigendur veiðiréttar í laxveiðiám á
norðausturhorni landsins vildu leita
leiða til að jafna sveiflur í laxa-
gengd og laxveiði. Rannsóknir
þeirra hefðu hins vegar leitt í ljós
að sveiflur stöfuðu aðallega af
breytilegum áhrifum umhverfis-
skilyrða á lax í sjó og fjöldi seiða
skipti þar minna máli.
Þetta má vel vera rétt. En út frá
þessu má ekki álykta, eins og Þór-
ólfur gerir, að seiðafjöldi hafi ekki
veruleg áhrif á laxagengd né að
ekki sé hægt að draga nokkuð úr
sveiflum. Ef þéttleikaháðir þættir
hafa ekki þeim mun sterkari áhrif
í sjónum, þá má fá fleiri laxa í öll-
um árum, bæði góðum og slæmum,
með því að sleppa vönduðum sjó-
gönguseiðum í árnar. Miðað við
sama veiðihlutfall héldist þá nokk-
urn veginn sama sveifla í veiðinni
og þar með hefðu sleppingar ekki
veruleg áhrif á sveifluna, en samt
veiddust fleiri laxar á hverju ári.
Með því að einblína á sveifluna
missir Þórólfur sjónar á aflanum.
Möguleikar á sveflujöfnun
mundu aukast til muna ef hægt
væri að sjá fyrir hvenær seiðum
muni reiða illa af í sjó. í þeim árum
þegar sýnt þætti að seiðum muni
reiða illa af í sjó mætti sleppa
nokkrum fjölda gönguseiða í ána
til að draga úr niðursveiflunni. Það
er kaldhæðnislegt að þeim félögum
skuli hafa yfirsést þessi möguleiki
þar sem það átti að vera aðal fram-
lag laxafræða þeirra til þorskveiðir-
áðgjafar að sjá mætti fyrir um-
hverfis- og stofnsveiflur á íslands-
miðum með nokkrum fyrirvara.
Væntanlega hafa eigendur veiði-
réttar meiri áhuga á að auka laxa-
gengd í lélegum árum en að minnka
laxagengd í góðum árum. Það ættu
því að vera möguleikar á að koma
nokkuð til móts við óskir veiðirétt-
areigenda og er þá aðeins spurning
um kostnaðinn. Það er því öldungis
ótímabært að gefast upp.
Að enn einum möguleika þarf
einnig að huga. Eftir því sem seið-
in verða fleiri aukast líkurnar á að
þau nýti sér fleiri og fjölbreyttari
Kristján Þórarinsson
„Þetta er ekki í fyrsta
skipti sem fiskifræðing-
ar Veiðimálastofnunar
varpa bombu inn í
þorskveiðiumræðuna á
viðkvæmasta tíma.“
búsvæði í sjó. Ef umhverfissveiflur
eru ekki í takt á öllum þessum
mögulegu búsvæðum ættu seiða-
sleppingar að geta jafnað sveiflur
í laxagengd.
Svipuð sjónarmið eiga við um
þorskinn. Sá er þó munurinn að
vegna þess að þorskurinn er lang-
lífur fiskur sem getur hrygnt ár
eftir ár er óþarfi að leggja út í
kostnaðarsamt seiðaeldi. Ráðið sem
dugar er að stilla sókninni í hóf
og tryggja þannig aukinn fjölda
eldri og þyngri fiska og stærri
hrygningarstofn. Með stærri
hrygningarstofni en nú er, og þar
með fleiri seiðum á fleiri og fjöl-
breyttari búsvæðum, mætti að öðru
jöfnu fá fleiri nýliða í flestum árum,
bæði góðum og slæmum, jafnvel
þótt sveiflan í nýliðun héldist nán-
ast óbreytt og stjórnaðist að mestu
af umhverfisskilyrðum.
Ekki má því einblína um of á
sveiflur og missa sjónar á nýliðun,
stofnstærð og afla. Það skiptir
verulegu máli hvort nýliðun þorsks
sveiflast í kringum 120 eða 220
milljónir þriggja ára fiska, hvort
stofnstærðin sveiflast í kringum
600 þúsund tonn eða t.d. eina og
hálfa milljón tonna, og hvort aflinn
sveiflast í kringum 200 þúsund
EURodPTEX
PIPU-
UNION
PQAM
EINANGRUN
í sjálflímandi rúllum,
plötum og hólkum.
Þ. Þ0RGRIMSS0N &C0
ÁRMÚLA 29 - REYKJAVÍK - SÍMI 38640
Þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag
Píta m/buffi <er kr 469, ) nú kr.250,-
Píta m/grænmeti (erkr.38o,-) nú kr. 200,-
tonn eða 350 þúsund tonn. Sveiflan
sjálf og taktur hennar skiptir minna
máli.
Áhrif veiða á þorskstofninn
Áhrif veiða á íslenska þorsk-
stofninn koma meðal annars fram
í því að stofnstærðin sveiflast í
kringum sífellt lægri gildi (sjá 1.
mynd). Einnig eru vísbendingar um
það, að léleg nýliðun undanfarinna
ára (sjá 2. myn) stafi að hluta af
vöntun á hrygningarfíski (sjá 3.
mynd) og þá e.t.v. einkum af fækk-
un á eldri hrygningarfiski (sjá 4.
mynd) sem rekja má til mikillar
sóknar um langt árabil.
Auðvitað vona allir að þorsk-
stofninn braggist sem allra fyrst
og að óhætt verði að auka aflann.
Nú þegar telja sumir sig sjá þess
nokkur merki að þorskstofninn sé
e.t.v. að braggast nokkuð, enda
hafa umhverfisskilyrði verið með
betra móti um þriggja ára skeið
og nóg er af æti handa þorskinum
og einstaklingsvöxtur því góður.
En uppistaðan í þorskafla utan
hrygningartíma er ungur fiskur,
þriggja til fjögurra ára (sjá 5.
mynd) sem aukið gæti þyngd sína
verulega á 1-2 árum við góð ætis-
skilyrði ef honum væri leyft að lifa.
Ótímabær aukning aflaheimilda
mundi leiða til þess að fljótt sækti
í sama farið, eða verra, og gætu
því aflaheimildir þurft að minnka
enn frekar frá því sem nú er. Ekki
er heldur víst að ætisskilyrði hald-
ist góð í mörg ár enn. Þegar um-
hverfisskilyrði versna og æti
minnkar verður þorskstofninn að
vera kominn í betra horf, því að
annars væri okkur nauðugur sá
kostur að draga verulega úr þorsk-
veiðum frá því sem nú er og jafn-
vel að hætta þeim um tíma. Það
þarf því engan að undra að fiski-
fræðingar leggi mikla áherslu á
fiskveiðistjórnun við þessar að-
stæður.
Meinlokan um áhrifaleysi
veiða
Fiskifræðingar Veiðimálastofn-
unar hafa bent á veikt en athyglis-
vert samhengi í sveiflum fiski-
stofna á stóru hafsvæði, svo langt
sem það nær. Sterkast virðist sam-
hengið vera í sveiflum laxastofna.
Hefðu þeir haldið sig við að ræða
það samhengi sem gögnin sýna
hefðu skrif þeirra fengið allt öðru-
vísi umfjöllun hjá kollegum þeirra,
en væntanlega litla athygli hjá
blaðamönnum.
En þeir gengu mun lengra.
Kjarninn í málflutningi þeirra, og
það sem athygli vakti, er sú álykt-
un að umhverfíð skipti svo miklu
máli fyrir afdrif íslenskra þorsk-
stofnsins að hrygningarstofn og
fiskveiðistjórnun hljóti að skipta
minna máli. Þeir hafa að vísu ekki
athugað áhrif hrygningarstofns og
veiða, en samt telja þeir sig þess
umkomna að draga stórar ályktan-
ir um þá hluti í nafni vísindanna.
Á milli línanna liggur, lítt falið, að
þess vegna sé óþarfi að halda aftur
af veiðum og er það að vonum vin-
sæll boðskapur.
Rökleysan í þessum málflutningi
verður best skýrð með dæmi. Hver
ætli yrðu viðbrögð sérfræðinga í
læknisfræði ef einhver kollegi
þeirra tilkynnti í Morgunblaðinu
einn góðan veðurdag að tóbaks-
reykingar hafi ekki slæm áhrif á
heilsufar manna? Hann hefði að
vísu ekki athugað áhrif reykinga á
heilsufar, en hann hefði athugað
áhrif mataræðis á heilsufar og
komist að því að slæmt mataræði
hefur slæm áhrif á heilsufar. Af
þessu hefði hann dregið þá ályktun
Önnur tilboö í gangi yfir
páskana.
Opið helgidagana
nema páskadag.
Afsláttarkort gilda ekki í
sambandi viö tilboð.
Hjartans þakkir til allra, sem glöddu mig með
heimsóknum, gjöfum, blómum og heillaóskum
á 80 ára afmœli mínu 10. mars.
Lifið heil.
Magnús Sigurjónsson,
Hvammi.
\
i
i
i
\
i
i
I
>
I
>
I
>
>
>
>
>
>
>
>
>
l