Morgunblaðið - 29.03.1994, Side 26
26
MORGUNBLAÐIÐ VIDSKIPTI/ATVINNVLÍF ÞRIÐJUDAGUR 29. MARZ 1994
VIDSKIPn AIVINNULÍF
Gasvinnsla
Jarðboranir bora eftir
gasi á Bretlandi
Tekjur á verkefninu áætlaðar um 60 milljónir
GENGIÐ hefur verið að tilboði Jarðborana hf. um að bora
fimm holur til vinnslu á kolagasi í Bretlandi á seinni hluta
árs. Tekjur fyrirtækisins af þessu verkefni eru áætlaðar um
60 milljónir króna og eru bundnar vonir við að félagið hafi
opnað sér leið inn á mun stærri markaði en áður. Hver hola
verður 1.200 metra djúp og tekur borun rúman mánuð þann-
ig að verkið í heild mun taka sex mánuði. Auk Jarðborana
sendu þrjú bresk borfyrirtæki inn tilboð í útboði fyrir nokkr-
um vikum.
Samkvæmt upplýsingum Bent
S. Einarssonar, framkvæmda-
stjóra Jarðborana, verður borinn
Azi notaður í þessu verki undir
stjórn 4-5 íslendinga en alls munu
10-12 starfsmenn vinna á vöktum
allan sólarhringinn við boranirnar.
Samstarfsaðilar Jarðborana hf. í
verkinu eru breska ráðgjafar- og
verkfræðifyrirtækið Prodrill og
breska borfýrirtækið Marriott.
Borinn var áður notaður í fersk-
vatnsborunum Jarðborana á Azo-
reyjum en var í nóvember si. flutt-
ur til Bretlands þar sem hann
hefur verið sömuleiðis verið notað-
ur til að bora eftir ferskvatni.
Þetta er fyrsta verkefni Jarð-
borana hf. á sviði olíu- og gasbor-
ana, og mjög mikilvægt fyrir fé-
lagið, því að forsvarsmenn þess
segja að takist vel til hafi það
opnað sér leið inn á mun stærri
markaði en áður. Olíu- og gasbor-
anir séu stærsti hluti borverka í
heiminum og þar sé einkum unnið
á samkeppnisgrundvelli. Jarðhita-
og ferskvatnsboranir eru yfirleitt
smærri í sniðum og oft sé því erf-
itt fyrir erlend borfyrirtæki að ná
slíkum verkefni í samkeppni við
heimaðila.
Það er bandarískt námufyrir-
tæki, Concord, sem annast hefur
leit og vinnslu á metangasi úr
kolalögum í Bretlandi. Kolagas
hefur ekki verið unnið í Bretlandi
hingað til en er nýtt í nokkrum
mæli í Bandaríkjunum. Tilrauna-
boranir eru að hefjast í Bretlandi
og er þess vænst að almenn
vinnsla hefjist innan 2-3 ára.
Öllum vænlegustu kolagas-
svæðum í Brellandi hefur nú verið
úthlutað til vinnslufyrirtækja.
Mörg þeirra eru í eigu bandarískra
fyrirtækja sem hafa þegar tækni-
lega þekkingu og reynslu af slíkri
gasvinnslu. Þrjú fyrirtæki hafa
efnt til útboðs um tilraunaboranir
og tóku Jarðboranir þátt í öllum
útboðunum. Verkefnið fyrir Conc-
ord er stærst þeirra þriggja en
breskt fyrirtæki fékk annað verk-
efnið og beðið er niðurstaðna úr
þriðja útboðinu. Borsvæðið er við
borgina Chester, suðvestur af
Manchester. Að sögn Bents er
reiknað með því að verði árangur
góður muni Concord halda áfram
með tilraunaboranir á öðrum
svæðinum í nágrenninu á næstu
árum.
Skili þessar tilraunaboranir ti-
lætluðum árangri má gera ráð
fyrir að Concor hefji eftir 2-3 ár
uppbyggingu gasvinnslukerfis og
láti þá bora um 50 holur á ári.
Nái önnur gasvinnslufyrirtæki
einnig góðum árangri gæti það
leitt til þess að boraðar yrði nokk-
ur hundruð holur á ári i Bretlandi
um 10-15 ára skeið. Til að vinnsla
borgi sig þrufa holur að gefa af
sér gas í nægilegu magni á tíma-
einingu og af tilskyldum gæðum.
Reynslan af tilraunaborholu Conc-
ords í Skotlandi varð sú að magn
og gæði voru meiri en búist hafði
verið við.
Forsvarsmenn Jarðaborana
segja að þar sem mjög þéttbýlt
sé víða á Bretlandi verði að taka
mikið tillit til umhverfisþátta við
boránir og vinnslu.
Að því er Bjarni Bjarnason seg-
ir hafa Jarðboranir hf. lagt mikla
áherslu á að borinn Azi sé mjög
heppilegt tæki við slíkar aðstæð-
ur, lítill og nýtískulegur sem þurfi
lítið athafnasvæði og lítil sjón-
mengun honum samfara miðað við
notkun eldri og stærri bora.
Þeir Bent S. Einarsson fram-
kvæmdastjóri og Bjarni Bjarnason
tæknistjóri undirbjuggu gerð til-
boðsins af hálfu Jarðborana.
Líftryggingar
hindruð á tæknilegan hátt?
TRYGGINGAMIÐLUN verður aftur leyfileg hér á landi eftir
áratuga bann með gildistöku EES samningsins sem m.a. gerir
að verkum að erlendum tryggingafélögum verður heimilt að
bjóða þjónustu sína á íslandi án þess að starfrækja hér sérstök
útibú. I nýju frumvarpi um vátryggingastarfsemi sem liggur
nú fyrir Alþingi, er hins vegar að finna ákvæði þess efnis að
lög þess ríkis, þar sem skuldbindingin kemst á, gildi um líftrygg-
ingu en engin opinber þýðing er til á íslensku samningalögun-
um. í núgildandi vátryggingalögum er gert ráð fyrir frelsi til
að velja á milli landanna.
Samkvæmt fyrrnefndu ákvæði
í frumvarpinu um vátrygginga-
starfsemi verða erlend líftrygg-
ingafélög sem vilja skrásetja sig
á Islandi og hefja hér viðskipti að
gangast undir ísiensk lög með
samningana. Árni Reynisson er
að undirbúa tryggingamiðlun hér
á landi og hefur því skoðað þessi
mál náið. „Þetta ákvæði í frum-
varpinu mun koma í veg fyrir al-
mennan aðgang að margháttaðri
þjónustu tryggingafélaga á EES
nái það að ganga fram óbreytt.
Hér er verið að koma í veg fyrir
að erlend fyrirtæki á EES geti
sinnt óskum um viðskipti við ís-
lendinga vegna tæknilegra örðug-
leika á að nýta íslensku samninga-
lögin,“ segir Árni. „Þetta jafngild-
ir nánast banni.“
„Það er engin opinber þýðing
til á íslensku samningalögunum.
Erlendu félögin þyrftu að sjá um
slíkt sjálf og bæru þá alla ábyrgð
á textanum. Eins þyrfti að taka
saman alla dóma og annað sem
vitnar um hvernig íslenskir dóm-
stólar hafa skilið hvert orð sem
stendur í þeim. Það má telja aug-
ljóst að þetta freistar erlendra fé-
laga ekki miðað við okkar litla
markað.“
Umrædd grein frumvarpsins
byggir á tilskipun ESB númer
90/619. Þar segir að lög þess rík-
is þar sem skuldbindingin kemst
á skuli gilda að öðru jöfnu. Hins
vegar geti aðilar valið lög annars
lands þar sem lög viðkomandi rík-
is Ieyfa. „Núgildandi lög hér á
landi gera ráð fyrir þessu frelsi,“
segir Árni, „þ.e. að íslendingar
megi velja hvort þeir skrifi undir
íslensk eða erlend lög um líftrygg-
ingasamninga. Nú vilja menn lög-
festa að skylt sé að skrifa undir
samninga með íslenskum texta og
þar segir ráðherra að verið sé að
fara eftir lágmarkskröfu EES.
Þetta er stórmál því það þýðir
ekkert að benda á einhveija skjala-
þýðendur í þessu tilviki. Lög sem
ekki eru til í opinberri þýðingu sem
búið er að staðfesta á Alþingi eru
einskis virði.“
Árni segir að þau fyrirtæki sem
hann starfar með sjái sér engan
veginn fært að eiga viðskipti hér
á landi fari frumvarpið í gegnum
Alþingi með umræddu ákvæði.
„Þau myndu meira að segja hætta
viðskiptum á tug milljóna markaði
eins og í Þýskalandi ef svona lög
yrðu samþykkt þar.“
MAN - BENZ - VOLVO
VÉLADEILD FALKANS • VELADEILD FALKANS • VELADEILD FALKANS • VELADEILD FALKA
SACHS
> FARAR -
8RODDI
SACHS KÚPLINGAR í
90 ARN
Framleiöendur vandaöra vöru- og
fólksflutningabifreiöa nota
SACHS kúplingar og höggdeyfa
sem upprunalega hluta
í bifreiöar sínar.
Það borgar sig aö nota
þaö besta!
Þekking Reynsla Þjónusta*
FÁLKINN
SUÐURLANDSBRAUT 8-108 REYKJAVÍK
SÍMI: 91-81 46 70 • FAX: 91-68 58 84
• VÉLADEILD FÁLKANS • VELADEILD FALKANS • VELADEILD FÁLKANS • VELADEILD FÁLKANS • VÉLADEILD FÁLKANS •
Kvikmyndir um
símalínur
Las Vegas. Reuter.
FYRIRTÆKIÐ Pacific Bell, sem er aðili að samsteypunni Pacific
Telesis, hefur uppi áform um að senda kvikmyndir til kvikmynda-
húsa um ljósþráðssímakerfi til þess að draga úr miklum dreifingar-
kostnaði.
Þessi nýja, stafræna dreifitækni
nefnist „bíó framtíðarinnar" og
mun valda byltingu í kvikmynda-
iðnaðinum að sögn Pacific Bell.
Núverandi aðferðir við dreifingu
kvikmynda eru gersamlega úreltar
að sögn fyrirtækisins.
Michael Fitzpatrick, einn ráða-
manna Pacific Bell, segir að hér
sé um eins byltingarkennda breyt-
ingu að ræða og þegar litmyndir
voru teknar upp í stað
svart/hvítra. Gæði kvikmynda,
sem sendar verða með þessum
móti, verða miklu meiri en þeirra
sem áhorfendur hafa séð til þessa,
sagði hann.
Tilraunir með þessa tækni hefj-
ast á þessu ári, ef nauðsynleg leyfí
fást, og þjónusta með þetta kerfi
getur hafizt á næsta ári að sögn
Pacific Bell. Síðar verður hægt að
auka þjónustuna, til dæmis að
dreifa kapalsjónvarpi, beinum út-
sendingum, myndbandsspólum
eftir pöntun og háskerpusjónvarpi.