Morgunblaðið - 29.03.1994, Qupperneq 27
Sjávarútvegur
MORGUNBLAÐIÐ
VIDSKIPTI/ATVINNULÍF
ÞRIÐJUDAGUR 29. MARZ 1994
landhelgina bæði á rækju og út-
hafskarfa.
Aðalfundur ÚA verður haldinn
þann 20. apríl nk. Þar verður lagt
til að greiddur verði 10% arður og
hlutafé verði aukið um 10% með
útgáfu jöfnunarhlutabréfa.
Verulegur bati í
afkomu UA
VERULEG umskipti urðu í rekstri Útgerðarfélags Akureyringa hf.
(ÚA) á sl. ári. Nam hagnaður félagsins alls 112 milljónum samanbor-
ið við um 10 milljóna hagnað árið 1992. Batinn í afkomu félagsins
er þó enn meiri en þessar tölur segja til um því inn í veltu ársins
1992 kom 92 milljóna greiðsla úr verðjöfnunarsjóði. „Miðað við
aðstæður þá teljum við þetta viðunandi afkomu. Við höfum þurft
að þola mikla skerðingu á aflaheimildum og afli á úthaldsdag hef-
ur verið að minnka," sagði Gunnar Ragnars, framkvæmdastjóri ÚA.
Hagnaður af reglulegri starfsemi
félagsins var 202 milljónir á árinu
1993. Þar frá dregst gengistap
umfram verðlagsbreytingar og aðr-
ir óreglulegir liðir auk skatta þann-
ig að endanlegur hagnaður varð
112 milljónir. Veltufé frá rekstri
var alls um 475 milljónir samanbor-
ið við um 357 milljónir árið 1992.
Heildareignir í árslok voru 4.020
milljónir og eigið fé þar af 1.833
milljónir. Eiginfjárhlutfall var því
45,6%.
Heildartekjur ÚA voru tæplega
3.679 milljónir en að teknu tilliti
til afla af eigin skipum til vinnslu
var veltan 2.932 milljónir. Veltan
jókst um 20% frá árinu á undan
en framleiðsluverðmætið um 25%.
Misræmi þarna á milli skýrist af
greiðslunni úr Verðjöfnunarsjóði.
Nam heildarframleiðslan til sjós og
lands tæplega 12 þúsund tonnum
á móti 10.300 tonnum .árið áður.
Gunnar sagði að margir sam-
verkandi þættir skýrðu aukið fram-
leiðsluverðmæti á síðasta ári. Fé-
lagið hefði átt kvóta frá árinu áð-
ur, aflað viðbótaraflaheimilda og
meiri þorskur hafi verið unninn en
áður. Hann sagði að félagið hefði
reynt að aðlaga sig að kvótakerfinu
og hagræða í samræmi við það.
Þá hefði félagið fengið 2.400 tonn
af hráefni til vinnslu frá öðrum
aðilum.
Aukin framleiðsla í
neytendapakkningar
ÚA hefur verið að auka fram-
leiðslu á karfa í smásölupakkning-
um fyrir Evrópumarkað. Einnig
hafa verið unnin flök fyrir veitinga-
hús á Bandaríkjamarkaði.
Félagið rekur fimm ísfisktogara
og tvo frystitogara. Afli þeirra á
síðasta ári var um 20.800 tonn eða
um 800 tonnum minni en árið áður
og vegur þar þyngst samdráttur í
afla frystitogaranna. Afkoma
þeirra batnað þó frá árinu áður.
Gunnar segir að frystitogararnir
hafi t.d. veitt mikið af grálúðu sem
hafi hækkað mikið í verði á sl. ári
í Japan. Félagið hefur fest kaup á
frystitogara frá Kanada sem verður
m.a. sendur til veiða fyrir utan
Lopez spáir VW
miklum arði 1995
ÞINN
FYRIR
AÐEINS
59.507 kr.
PÓSTUR OG SÍMI
Söludeild Ármúla 27, slmi 91-63 66 80
Söludeild Kringlunni, sími 91-63 66 90
Söludeild í Kirkjustræti, slmi 91-63 66 70
og á póst- og símstöðvum um land allt.
MOTOROLA
■ transtur tengiliður.
Nú gefst þér kostur á
að eignast Motorola Associate
2000 farsíma á góðu verði,
aðeins kr. 59.507* staðgreitt
m.vsk. Hann fæst einnig á
frábærum greiðslukjörum,
afborgunarverðið er kr. 63.611
m.vsk.
Nú er tækifærið að slást í hóp
þeirra þúsunda íslendinga sem
nota Motorola farsímann
daglega í leik og starfi.
Gríptu tækifærið! Tilboðið
stendur aðeins til 8. apríl nk.
Wolfsburg, Þýzkalandi. Reuter.
UMDEILDUR framleiðslustjóri Volkswagen (VW), Jose Ignacio
Lopez de Arriortua, spáir því að fyrirtækið muni skila lítils háttar
hagnaði á þessu ári og eiga mikilli velgengni að fagna á næsta ári.
Hann sagði að spænska dóttur-
fyrirtækið SEAT, sem hefur verið
rekið með halla, mundi koma slétt
út 1995, þótt við töluverða erfið-
leika væri að etja í svipinn.
Lopez spáði miklum umskiptum
á Bandaríkjunum. Hann sagði að
tíu sinnum fleiri bílar yrðu seldir á
þessum mesta bílamarkaði heims
1977 og hélt því fram að örlítil
markaðshlutdeild Volkswagen þar
mundi aukast í um 5%. „Við þurfum
að smíða tegund, sem hentar
Bandaríkjamönnum betur,“ sagði
hann.
Um og eftir 1970 seldi
Volkswagen allt að 600.000 bíla á
ári í Bandaríkjunum, en 1993 seld-
ust aðeins 60.000. Að sögn Lopez
munu helmingi fleiri bílar seljast á
þessu ári og 600.000 árið 1997.
Þótt Volkswagen tapaði 1,94 millj-
örðum marka 1993 er Lopez því
bjartsýnn á framtíðina.
Lopez starfaði áður hjá fyrirtæk-
inu General Motors, sem hefur sak-
að hann um að hafa tekið með sér
leynileg GM-skjöl til Volkswagen.
Um þær ásakanir vildi Lopez aðeins
segja að hann hefði ekkert heyrt
frá bandarískum dómsvöldum og
að hann hefði ekki í hyggju að fara
til Bandaríkjanna.
Hann sagði að blaðaskrif um
GM-málið væru ekki eins neikvæð
og þegar hann hóf störf hjá Volks-
wagen í marz í fyrra. „Nú er hlut-
fallið sjö jákvæðar greinar á móti
hverri einni, sem er neikvæð, og
við höfum komizt að því að sami
maðurinn skrifar alltaf neikvæðu
greinina.“
Lopez neitaði því að hann hefði
talað niðrandi um Þjóðverja í ræðu
í fyrra og sagt þá skorta sköpunar-
gáfu og hugmyndaflug. „Þetta er
fjarstæða," sagði hann. „Þýzkir
verkamenn eru fyrsta flokks ...
Stjórnendurnir eru líka mjög góðir.“
Hann spáði algerri kúvendingu
hjá Volkswagen á næstu tveimur
árum. Síðan fyrirtækið hefði tekið
upp 12 manna „verkstæðis-“eining-
ar í fyrra hefði framleiðni aukizt
um 25%. Um 30.000 verkamenn
starfa í slíkum einingum og 30.000
bætast við á þessu ári.
SEIKOSHA
SpeedJET20O
Bleksprautu
prentari
25.900
ytPPir
w
SKIPHOLTI 17 ■ 105 REYKJAVlK ____
SlMI: 91-627333 - FAX: 91-628622 Cl(_»t_J