Morgunblaðið - 29.03.1994, Síða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. MARZ 1994
t
bouillon
Svlne
kodkraft
0kse
kedkraft
sovs
Alt-i-én teming
-med smag, kulor og jævning.
Flugslysið við N’Dola
eftir Aage Röed
Formáli þýðanda
Dag Hammarskjöld aðalritari
SÞ fórst í flugslysi við N’Dola í
Rhodesíu ásamt fylgdarliði sínu
hinn 17. sept. 1961 þegar hann
var að reyna að koma á friði í
borgarastríðinu í Belgísku Kongó.
Þeir sem muna eftir þessu sorglega
slysi minnast þess einnig að get-
gátur og sögusagnir eru oft á
kreiki um orsakir slyssins.
Nýlega fól sænska utanríkis-
ráðuneytið Aage Röed, sem er fyrr-
verandi flugslysarannsakandi í
Svíþjóð, að fara yfir allar opinber-
ar rannsóknarskýrslur sem til eru
um þennan sorglega atburð, en þar
var um að ræða m.a. eina frá SÞ,
eina sænska og tvær rhodesískar.
Flugvélin kom frá Leopoldville
í Kongó og kom úr austurátt inn
yfir N’Dola í 6.000 feta flughæð
yfir sjávarmáli, en í 1.840 feta hæð
yfir flugvellinum. Flugmennirnir
fengu allar upplýsingar um veður
og lendingarskilyrði. Allt virtist
vera með felldu og flugvélin sást
síðast fara í eðlilegt aðflug vestur
yfir flugvöllinn, þar sem lækka
átti flugið út yfir frumskóginn,
krókbeygja tekin inn á lokastefnu
til lendingar í austurátt, eða í
stefnuna 100° og lent á braut 10.
Aage Röed skrifaði skýrslu um
niðurstöður sínar og var hún birt
'í fagrímariti flugslysarannsak-
enda. Útdráttur úr niðurstöðum
Aage Röed er birtur hér í þýðingu
Skúla Jóns Sigurðssonar hjá flug-
málastjóm, framkvæmdastjóra
flugslysarannsókna, en hann er
gamall vinur Aages Röeds.
Atburðarásin
Flugvélin fórst í aðflugsbeygjunni,
þar sem hún átti aðvera í 650 feta
hæð yfir jörðu. Þar var land skógi
vaxið, engin byggð, engin ljós á
jörðu og landið hæðótt, m.a. náði
lítil hæð upp fyrir sjónlínu milli
flugvallarins og slysstaðarins.
3M
Mottur
Þessi hæð var ekki merkt inn á
aðflugskort flugvallarins.
Af niðurstöðum rannsóknarinn-
ar má álykta að vélinni var flogið
í mjög rólegri lækkun, eða sem
næst í láréttu flugi, þegar hún
rakst fyrst á tijátoppana. Flugvélin
var í beygju í stefnu 120° þegar
hún kom niður. Slysstaðurinn var
um það bil 1,6 sjómílur norðan
framlengdrar miðlínu flugbrautar-
innar, hin rólega vinstri beygja og
stefnan sýna að flugvélin var að
öðru leyti en því sem snertir flug-
hæð, í eðlilegri stöðu og stellingu
til þess að koma inn á aðflugsferil-
inn. Þegar atvikum er raðað saman
fæst mynd af flugvél sem hefur
verið í lækkandi krókbeygju inn
að aðflugsferli, en einhverra hluta
vegna var sléttað úr of lágt.
Engin ummerki voru um undan-
vik eða fráhvarfsviðbrögð. Fyrstu
för eftir loftskrúfumar á tijátopp-
unum sýna að hreyflarnir voru í
gangi. Loftskrúfur sem snúast afl-
lausar beygja tré fremur en höggva
þau. Rannsókn á hreyflunum eftir
slysið sýndi að allir hreyflamir
gengu að líkindum á aðflugsafli
þegar slysið varð. Þetta sýnir að
hreyfilbilun átti ekki þátt í slysinu.
Feikilegur eldur braust út, þegar
flugvélin hafði ruðst um 400 fet í
gegnum skóginn. Fram að því voru
engin ummerki um eld. Þetta sýn-
ir að eldurinn orsakaðist líklega
af eldsneyti sem flæddi úr elds-
neytisgeymunum sem rifnuðu í
brotferlinu. Engir hlutar úr flug-
vélinni fundust í skóginum áður
en flugvélin flaug á trén. Þetta
sýnir að það er ólíklegt að spreng-
ingar eða aðrar bilanir af tæknileg-
un orsökum hafi orðið og valdið
því að hlutar brotnuðu af flugvél-
inni áður en hún rakst á trén. Hjól-
in voru niðri og I læstri stöðu og
flapar voru í réttri stöðu fyrir að-
flug þegar flugvélin fórst. Sigl-
ingaljósin loguðu og að öllum lík-
indum logaði á blikvitanum. Engin
fjarskipti áttu sér stað milli flug-
vélarinnar og flugturnsins meðan
á lækkandi krókbeygjunni stóð.
Orsakirnar
Það er þekkt að áhafnir hafa
mislesið hæðarmæla og í þessu til-
viki hefur verið giskað á slíkt. Af
atburðarásinni að dæma og frá-
sögn sjónarvotta er það ólíklegt.
Líklegra er að áhöfnin hafi feil-
-Vr, — 5o*.i.xV. Í>J
Sorengingar i fiugvél Hammarskjölds
er hann öreyrti um ákvöröunarstað
Forsíða Morgunblaðsins, þar sem
skýrt er frá flugslysinu við
N’dola.
reiknað hæðina yfir dökkri jörðinni
og notað ljósin á flugvellinum, ljós-
in í bænum eða tunglið sem viðmið-
un, meðan á lækkuninni í krók-
beygjunni stóð. Undirbúningur
lendingarinnar, svo sem að setja
hjól og flapsa niður, getur einnig
hafa truflað og leitt athygli áhafn-
arinnar frá því að halda réttri hæð.
Hálendið á slysstaðnum hefur
einnig aukið hættuna á að flogið
yrði í jörðina. Það hefur verið deilt
um það að reynd flugáhöfn geti
ekki gert mistök eins og þau sem
leiddu til slyssins. Svarið við þessu
er að hundruð þrautreyndra flug-
áhafna hafa flogið gallalausum
flugvélum í jörðina, þó flugmenn-
irnir hafl haft allar þær upplýs-
ingar sem þeir þurftu til þess að
komast hjá slysi. Þetta er alvarlegt
vandamál sem við horfumst enn í
augu við.
Svartholsslys
„Svarthol“ (black hole) er dimmt
land, svo sem skógur án ljósa, sem
liggur að vel upplýstum flugvelli.
Orðir „hol“ gefur ekki til kynna
að það sé lægð, dalur eða fjall
undir flugferlinum. Landið getur
verið algjörlega flatt, en þó er
áhættan enn meiri að flogið sé í
jörðina, ef háar hæðir eru í aðflugs-
geiranum. Vandinn er sá að það
er ómögulegt að dæma hver flug-
hæðin er yfir dimmu yfirborði jarð-
ar. Ljós í fjarska, frá flugvellinum
eða annars staðar frá, geta gefíð
þá tilfinningu að flugvélin fljúgi í
öruggri flughæð. Prófanir hafa
sýnt að flugliðar sem reyna sjónað-
flug yfir dökkt og dimmt land,
jafnvel um heiðskíra nótt, hafa til-
hneigingu til þess að lækka flugið
undir hallageislann. Stór flugvéla-
framleiðandi fékk 12 vel þjálfaðar
flugáhafnir til þess að framkvæma
í flughermi sjónaðflug að flugvelli
yfir „svarthol". Allar voru áhafn-
irnar öruggar um að þær gætu
þetta, en 11 af 12 flugu samt í
jörðina nokkra kílómetra frá flug-
vellinum. Flugslysarannsóknir
hafa sýnt að flugmenn geta verið
svo sannfærðir um að flogið sé í
réttri flughæð að þeir jafnvel kæra
sig kollótta um viðvaranir jarðvar-
ans og fljúga í jörðina.
Veikindi
Ekki er líklegt að flugmennirnir
hafi orðið vanhæfir vegna skyndi-
legs lasleika, heilbrigðisskýrslur
þeirra benda til þess að þeir hafi
verið stálhraustir. Ef áhöfnin hefði
orðið vanhæf vegna sprengingar,
eitrunar eða vegna gaseitrunar,
meðan flogið var í öruggri hæð,
er ekki mögulegt að flugvélin hefði
haldið áfram tiltölulega brattri
lækkun, sléttað út í nærri lárétt
flug og síðan flogið í jörðina í stöðu
sem sýndi að hún var í rétt flog-
inni beygju í áttina að miðlínu
aðflugsins. Þennan möguleika má
því strika út.
Ekki er líklegt að flugmennirnir
hafi haft rangt aðflugskort fyrir
framan sig. Flugvélin' var í hár-
réttri beygju inn að miðlínu að-
flugsins til N’Dola, þegar hún
lækkaði flugið of mikið og rakst á
trén.
Hryðjuverk
Tilgátan um hryðjuverk hefur
reynst langlíf. Niðurstöður rann-
sókna benda til að það hefði verið
ómögulegt að skipuleggja hermd-
arverk nægilega vel, til þess að
slysið liti út eins og stjórnað flug
í jörðina. Tímasprengja sem sett
hefði verið í flugvélina í Leopold-
ville hefði líklega sprungið á flugi.
Enginn hermdarverkamaður gat
vitað um lengd flugsins og hann
hefði sannarlega ekki látið
sprengjuna springa eftir lendingu
í N’Dola. Gerum þó ráð fyrir að
i
i
i
(:í
i
c,
i
i
i
Rásfastari, mýkri og grípa betur,
Jeppadekk sem endast og endast
RADIAL/TSL
f '
DÚKKULÍSA í
DARRAÐARDANS
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
Bíóborgin/Bíóhöllin:
Pelikanskjalið — The Pelikan
Brief.
Leikstjóri Alan J. Pakula.
Handrit Pakula, byggt á skáld-
sögu Johns Grishams. Tónlist
James Horner. Kvikmynda-
tökustjóri Stephen Goldblatt.
Aðalleikendur Julia Roberts,
Denzel Washington, Sam Shep-
ard, John Heard, James B.
Sikking, Tony Goldwyn, John
Lithgow, Hume Cronyn. Banda-
rísk. Warner Bros 1993.
Spennusagna- og metsöluhöf-
undurinn John Grisham blómstrar
þessa dagana og bækur hans eru
kvikmyndaðar grimmt en með
misjöfnum árangri, skemmst að
minnast Fyrirtækisins, með sínum
kostum og göllum. Örlög Pelikan-
skjalsins eru í svipaða veru.
Aðalpersóna myndarinnar,
laganeminn Derby Shaw (Julia
Roberts) fær ískyggilegar grun-
semdir um hveijir myrtu tvo kunna
hæstaréttardómara, semur um það
yfírlit sem gengur undir nafninu
Pelikanskjalið. Þar ásakar hún
einn ríkasta mann landsins um
aðalhlutdeild að morðunum og
teygjast þá angar þeirra inn fyrir
veggi Hvíta hússins þar sem auð-
jöfurinn var aðalstuðningsmaður
sitjandi forseta (Robert Culp) við
síðustu kosningar.
5Kemur Callahan (Sam Shepard),
-'sambýlismaður hennar, skjalinu í
hendur vini sínum í alríkislögregl-
unni (John Heard) sem kemur því
áleiðis. Of langt, því skyndilega
er líf Shaw í mikilli hættu og
menn tengdir skjalinu týna óð-
fluga tölunni. Shaw heldur í felur
og þar kemur að eini maðurinn
sem hún treystir í þeim hráskinns-
leik sem nú upphefst er rannsókn-
arblaðamaðurinn Gary Grantham
(Denzel Washington).
Pakula hefur litist vel á efnivið-
inn, spennuna og ekki síður spill-
inguna sem seilist alla leið inná
borð Bandaríkjaforseta og rit-