Morgunblaðið - 29.03.1994, Qupperneq 40
40
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. MARZ 1994
Trjáklippingar
Blóm vikunnar
Umsjón: Ágústa Björnsdóttir
Þáttur nr. 282
Ágæti lesandi.
Þá er einmánuður hafinn, dag-
urinn orðinn lengri en nóttin og
fyrstú krókusarnir farnir að
blómstra undir húsveggnum, þar
sem snjóinn hefur tekið upp. Því
er tímabært að Blóm vikunnar
fari að bæra á sér, en óvenju lang-
ur vetrarsvefn stafar e.t.v. af því
að snjór hefur þakið jörð flesta
daga frá áramótum. En nú eru
líka hundrað hlutir, sem okkur
finnst við þurfa að tala um í einu,
sáning, stofublóm, garðskálap-
löntur, vetrarúðun, klippingar
o.m.fl.
Þegar við fréttum að á næstu
dögum kæmi út rit um tijáklipp-
ingar eftir Stein Kárason garð-
yrkjufræðing fannst okkur tilvalið
að biðja þann um að reifa klipp-
ingar lítils náttar.
Umsj.
Trjáklippingar — Hvers
vegna?
Nauðsynlegt er að laga til vöxt
viðarpiantna í görðum. Með því
að afkvista árlega á markvissan
og ákveðinn hátt næst betri rækt-
unarárangur. Tijáklippingar eru
vandasamt verk og rétt klipping
fæst aðeins með æfingu og hald-
góðri þekkingu á hverri tegund.
Með því að lesa sér vel til og fá
leiðbeiningar hjá fagfólki eða vön-
um aðilum má öðlast góða
reynslu. Tijáklipping sem fram-
kvæmd er á réttan hátt gefur
gróðrinum meira notagildi og
meira yndis má af honum njóta.
Hægt er að hafa áhrif á blóm-
myndun í þá veru að auka blómg-
un, aldin- og beijavöxt. Rangar
aðferðir geta hins vegar leitt til
hins gagnstæða.
Aðalklippingatíminn er að
vetri meðan gróðurinn er í sem
mestri hvíld, enda er hægast að
átta sig á vaxtarlagi tijáa og
runna þegar greinar eru ekki
huldar laufi. Háannatími þeirra
sem fást við tijáklippingar er frá
áramótum fram í maímánuð, eft-
ir tíðarfari og landshlutum. En
það þarf einnig að klippa á öðrum
árstíma en vetri, vorklipping,
sumarklipping og haustklipping
eiga einnig sinn tíma, allt eftir
tegundum, aðstæðum og ástandi
plantna. Allar meiriháttar
klippingar ber að framkvæma
að vetri.
Blæðing: Áhersla skal lögð á
að með klippingu er fengist við
lifandi gróður og öll meðhöndlun
og umgengni á að vera með hlið-
sjón af því. Þegar frumuvefur
plöntu er rofinn með klippingu
myndast opið sár. Út um sárið
verður alltaf eitthvert vökvatap,
annað hvort í formi útgufunnar
eða að næringarvökvinn rennur
úr sárinu. Plöntunni blæðir. Þýð-
ingarmikið er að ljúka klippingu
svokallaðra blæðara tímanlega. í
venjulegu árferði fer blæðingar
úr birki á Reykjavíkursvæðinu að
gæta fyrri hluta aprílmánaðar.
Munað getur einni til tveimur vik-
um á blæðingu úr birki sem vex
í íbúðarhverfum sem hátt liggja
og birkis í hverfum sem neðar
liggja. Helstu blæðarar í görðum
hérlendis eru birki, hlynur og elri.
Einnig vottar fyrir blæðingu úr
rifsi við sérstakar aðstæður.
Hætta á skaða af völdum blæðing-
ar er meiri ef stíft er handahófs-
kennt þvert á greinar, en ef klippt
er á réttum stað við stofn eða
greinar, þar sem náttúruleg
hæfni plöntunnar til að mynda
sáravef er mest. Klipping þrótt-
mikilla birkilimgerða að vori, þar
sem aðeins árssprotarnir eru
skertir kemur venjulega ekki að
sök, enda þótt örlítið dropi úr
sprotaendum. Blæðara má einnig
klippa lítillega ef þurfa þykir eftir
að plönturnar hafa náð að laufg-
ast, en það er venjulega í júnímán-
uði.
Klipping viðkvæmra tegunda
sem hætt er við kali s.s. gljávíðis
og nokkurra kynbættra rósa-
afbrigða ætti að bíða einna lengst
fram á vorið, eða þar til mesta
frosthætta er liðin hjá. Sé þess
ekki gætt gæti þurft að klippa
að nýju vegna kals af völdum
vorhreta.
Limgerði þarf að klippa einu
sinni til þrisvar sinnum að sumri,
auk vetrarklippingar, til að þvinga
fram þéttan og fallegan vöxt.
Einkum á það við um grófvaxta
tegundir s.s. alaskavíði svo og við
skúlptúrklippingu, það er meðal
annars þegar klippt er í kúluform.
Stytta þarf langar og veikbyggðar
greinar eftir lauffall að hausti svo
þær sligist ekki undan snjóþyngsl-
um eða í vondum veðrum.
Vetrarúðun: Vetrarúðun er
skynsamlegast að framkvæma að
aflokinni klippingu tijáa. Henni
er beint gegn eggjum meindýra,
tijámaðks og blaðlúsa í vetrardv-
ala. Úða verður í þurru, kyrru og
frostlaustu veðri áður en gróður
fer að bæra á sér. Einungis má
úða á lauftré. Barrtré, sígrænar
plöntur og gras sviðna undan efn-
inu. Það vetrarúðunarefni, sem
nú er á boðstólum í verslunum
er selt undir heitinu Sterilite og
er flokkað í hættuflokk C. Hálfan
lítra af efninu þarf í 10 lítra vatns.
Samkvæmt upplýsingum á um-
búðum er ráðlagt að nota allt að
helmingi meiri styrkleika gegn
meindýrum sem hjúpa um sig
varnarvef. Betra er að nota volgt
vatn, um 25°. Það bætir dreifingu
efnisins og eykur á virkni þess.
Vökvinn, jafnt blandaður sem
óblandaður veldur húðertingu.
Klæðist hlífðarfaþnaði og forðist
að úði berist í vit, augu og á húð.
Úði má heldur ekki berast á hús,
bíla eða þvott. Vökvinn þarf að
dreifast jafnt á stofna sem grein-
ar og smjúga vel inn í allar glufur
á berkinum. Ekki má rigna mikið
eða fijósa næstu klukkustundir
eftir úðun. Fullnægjandi árangur
af vetrarúðuninni ætti að nást,
haldist frostlaust og þurrt í sólar-
hring eftir úðun. Að öllu jöfnu er
ekki þörf á notkun sterkra eitur-
efna að sumri ef vetrarúðun hefur
verið beitt.
Steinn Kárason
Fiskveiði-
stjórnun
eftir Hermann
Stefánsson
Staðan í dag
Sjávarútvegsráðherra skipaði
nefnd um mótun sjávarútvegsstefnu
í ágúst 1991. Nefndin var skipuð
átta mönnum, fjórum frá hvorum
stjórnarflokki. Tveir formenn voru
skipaðir, einn frá hvorum flokki, til
að annar flokkurinn væri ekki í for-
svari nefndarinnar frekar en hinn.
Stærsti kosturinn við það að hafa
þennan háttinn á var þó sennilega
sá að nefndin var kölluð Tvíhöfða-
nefndin og er hún einna frægust
fyrir það.
Nefndinni var falið að móta heild-
stæða sjávarútvegsstefnu, setja
sjávarútveginum framtíðarmarkmið
og koma með tillögur um hvernig
megi ná þeim markmiðum sem sett
verða þannig að sem víðtækust sátt
takist í þjóðfélaginu um sjávarút-
vegsmálin. Einnig var nefndinni fal-
ið það verkefni að endurskoða lög
um stjórn fiskveiða frá maí 1990.
Ekki ætla ég að rekja tillögur
nefndarinnar hér en þær báru þess
flestöll merki að það voru málamiðl-
anir milli tveggja flokka sem réðu
ferðinni.
Nefndin skilaði drögum að skýrslu
til sjávarútvegsráðherra í apríl 1993
og með hliðsjón af skýrslunni var
svo soðið saman frumvarp að nýjum
lögum um stjórn fiskveiða, og átti
að leggja það fram í upphafi haust-
þings. Það dróst eitthvað fram á
haustmánuði og þegar frumvarpið
var sent hagsmunaaðilum til um-
sagnar kom í ljós að mikil andstaða
var við það og lýstu fulltrúar hags-
munasamtakanna því yfir, hver á
eftir öðrum, að frumvarpið færi aldr-
ei óbreytt í gegnum þingið. Þannig
var málið komið í alvarlegan hnút
sem enn hefur ekki verið höggvið
á, hvað þá að hann hafi verið leyst-
ur! Það verður reyndar að teljast
býsna eðlilegt þar sem ekkert sam-
ráð var haft við þessa aðila við
mótun sjávarútvegsstefnunnar.
Nú er svo einnig komið að flokks-
stjórn Alþýðuflokksins, sem á aðild
að frumvarpinu, hefur samþykkt
ályktun sem gengur þvert á margt
sem var í frumvarpinu, en fyrir jól
höfðu stjórnarflokkarnir komist að
samkomulagi um þessi mál.
Kratarnir vilja nú kvótakerfið burt,
en bæði var það niðurstaða Tví-
höfðanefndarinnar að rétt væri að
viðhalda aflamarkskerfinu í öllum
aðalatriðum og einnig var það rauði
þráðurinn í frumvarpinu. Og nú síð-
ast lýsti einn af ráðherrum þeirra
því yfir að við skyldum auka þorskk-
vótann í 220 - 230 þúsund tonn, eða
um 30 - 40%! Annaðhvort hefur
maðurinn dottið í hálkunni eða er
þegar farin að huga að atkvæðum
sínum á Vestijörðum.
Tilgangur kvótakerfísins er að
stjórna umgengni um fiskistofnana
í hafinu umhverfis okkur þannig að
þeir verði ekki veiddir upp, heldur
byggðir upp. Og þrátt fyrir þennan
hávaða í flokkstjórn Alþýðuflokks
eru flestir þeir sem velta fyrir sér
þessum málum sammála um það að
kvótakerfið sé besta lausnin í stjórn
fiskveiða hér við land. Menn er einn-
ig flestir sammála um að kerfið sé
ekki gallalaust, þó svo sitt sýnist
hveijum um það hveijir helstu gall-
arnir séu.
Að mínu mati eru það „götin“ í
kerfinu sem eru helstu gallarnir;
þ.e. línutvöföldun og krókaleyfi.
Þetta hvorutveggja ber að afnema
sem fyrst.
Páskamót Hjálpræðis-
hersins á Löngumýri
PÁSKAMÓT Hjálpræðishersins verður haldið á Löngumýri í Skaga-
firði og verða aðalkennarar og ræðumenn kapteinhjónin Anna Marie
og Harold Reinholdtsen frá Noregi, en þau veittu forstöðu starfi Hjálp-
ræðishersins á Akureyri árin 1977-1982 og í Reykjavík árin 1984-1990.
Á páskadag verður haldin sam-
koma í Sauðárkrókskirkju kl. 17. Þar
munu mótsgestir flytja söng, tónlist
og vitnisburði og er samkoman öllum
opin. Stjómandi samkomunnar verð-
ur yfirforingi Hjálpræðishersins á
íslandi, majór Daníel Óskársson, en
kapteinarnir Anne Marie og Harold
munu syngja og tala.
Annan í Páskum og þriðjudaginn
6. apríl munu þau hjónin Anne og
Harold syngja og tala í Hersalnum
á Akureyri að Hvannavöllum 10.
skólar/námskeið
■ Barnfóstru-
námskeið 1994
1. 16., 17., 21. og 22. mars.
fi. 6., 7., 11. og 12. aprfl.
3. 13., 14., 18. og 19. apríl.
4. 27., 28. apríl og 2. og 3. maí.
5. 4., 5., 9. og 10. maí.
6. 25., 26., 30. og 31. maí.
7. L, 2., 6. og 7. júní.
8. 8., 9., 13. og 14. júní.
Kennsluefni:
^ Umönnun barna og skyndihjálp.
Upplýsingar/skráning:
Sími 688188 kl. 8-16.
- Erlend tungumál.
- Starfsmenntun, s.s. bókfærsla, ferða-
þjónusta, tölvubókhald, siglingafræði,
vélavarðarnám.
- Auk þess teikning, sálarfræði o.m.fl.
Sendum ókeypis kynningarefni.
Hringdu!
Hlemmi 5,
pósthólf 5144, 125 Reykjavík,
síml 91-629750.
fullorðinsíræðslan
Hábergl 7
í. 71155
■ 50% afsláttur til 1. aprfl!
■ Grunn- og framhaldsskóla-
prófáfangar, námsaðstoð
Fullorðinsnámskeiðin „Byrjun frá byrjun"
í ensku, norðurlandamálum, þýsku. íslensk
og ensk stafsetning, ísl. f. nýbúa. Sam-
ræmd próf og framhald: Námskeið/auka-
tímar.
ýmislegt ■ Sparaðu tíma og ferðakostnað - Nám á framhaldsskólastigi. starfsmenntun myndmennt
■ Námskeið hjá
Stjórnunarfélagi
fslands:
Þrjú mikilvæg árangursstoðtæki
5. april kl. 15.00-19.00.
Árangursrík sala
6. april kl. 13.00-17.00.
Leiðin til árgangurs (Phoenix)
6., 7. og 8. apríl kl. 12.00-18.00.
Hvernig skal standa að ráðningum
og uppsögnum?
7. aprfl kl. 13.00-17.00.
Stjórnun sölufyrirtækis
11. aprfl kl. 13.00-17.00.
Þekking - þjálfun - þátttaka
(námskeið f. konur)
12. apríl kl. 13.00-17.30.
Nánari upplýsingar
í síma 621066.
■ Málun - myndlist
Vornámskeið fyrir byrjendur að hefjast.
Undirstöðuatriði fyrir vatnslitun og olíu-
málun.
Upplýsingar og innritun
í síma 611525 eftir kl. 13.00.
Rúna Gísladóttir.
MYNDUSTA-
OG HANDÍÐASKÓLI
ÍSLANDS
auglýsir inntöku nýrra nemenda fyrir
skólaárið 1994-95.
Umsóknarfrestur í fomám er til 20. apríl
og í sérdeildir 10. maí nk.
Upplýsingar og umsóknargögn
fást á skrifstofu skólans, Skip-
holti 1, Reykjavík, si'mi 19821.
handavinna
■ Ódýr saumanámskeið
Nú er rétti tíminn til að sauma sumarföt-
in. Mest 4 nemendur í hóp.
Faglærður kennari.
Upplýsingar í síma 17356.
tónlist
■ Söngsmiðjan auglýsir
Nú geta allir lært að syngja.
Ný námskeið að byrja eftir páska.
Upplýsingar og skráning
í síma 612455.
Höfóar til
.fólksíöllum
starfsgreinum!