Morgunblaðið - 29.03.1994, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. MARZ 1994
41
Hermann Stefánsson
„Tilgangur kvótakerf-
isins er að stjórna um-
gengni um fiskistofn-
ana í hafinu umhverfis
okkur þannig að þeir
verði ekki veiddir upp,
heldur byggðir upp.“
Haldist þau iög sem nú eru í gildi
óbreytt verða allir þeir bátar sem
hafa krókaleyfi komnir með kvóta
1. september næstkomandi. Heild-
arkvóti þessa flokks verður þá á
milli þijú og fjögur þúsund tonn,
miðað við svipaðan heildarkvóta og
nú er og skipt á milli báta eftir afla-
reynslu þriggja undanfarinna ára.
Þessi flokkur veiddi hinsvegar um
21.000 tonn á síðastliðnu fiskveiði-
ári. Það er því augljóst að það verð-
ur ekki mikið sem kemur í hlut
hverrar trillu og rekstrargrundvelli
verður kippt undan flestum þeirra.
Það má hins vega,r ekki gerast, því
slíkt myndi valda verulegri röskun
á atvinnu manna og jafnvel byggða-
röskun.
Bn hvernig stendur á því að þessi
flokkur sprengdi kerfið svona gjör-
samlega utan af sér? Gegndarlaus
fjölgun þessara báta á fyrstu árum
kvótakerfisins er sennilega aðai-
orsökin og einnig það fyrirkomulag
sem verið hefur verið á veiðunum,
þ.e. að láta þessa báta vera að keppa
innbyrðis um framtíðarhlutdeild í
heildarkvótanum. Þetta fyrirkomu-
lag hefur leitt af sér að menn end-
urnýjuðu (og stækkuðu) bátana og
tækin til að vera samkeppnisfærir
auk þess sem bátar voru gerðir út
af meiri liörku en ella, t.d. með því
að vera með tvær áhafnir á bátunum
o.s.frv.
Reyndar er það svo að örfáir bát-
ar hafa verið að veiða svo miklu
meira en flestir hinir og skekkja
heildarmyndina talsvert. Það er mín
skoðun að þegar kvóti verður settur
á þennan flokk báta eigi að vera
eitthvert hámark þannig að bátur
sem skráður er 5,9 tonn geti ekki
fengið meira en t.d. 150 tonn.
Hvað er til ráða?
Þann 1. september nk. verður að
koma kvóti á þessar trillur. Þessi
kvóti má þó ekki verða það lítill að
smábátaútgerð leggist af og verður
því heildarkvótinn að vera miklu
meiri en þau þijú til fjögur þúsund
tonn sem nú er gert ráð fyrir. Þetta
yrðu sennilega að vera hátt í 20
þúsund tonn.
En hvar á að taka þennan kvóta?
Eins og fram kemur framar í grein-
inni vil ég að stoppað verði í götin
í kerfinu, og nefndi ég þar króka-
leyfi og línutvöföldun. Við úthlutun
kvóta er gert ráð fyrir 15 þúsund
tonnum aukalega vegna línutvöföld-
unarinnar. Með því að afnema þessa
tvöföldun mætti nota þennan „auk-
akvóta" til að leiðrétta klúðrið með
krókaleyfin í eitt skipti fyrir öll og
stoppa þannig í bæði götin.
Sú umræða hefur reyndar verið
uppi að þessum aukakvóta eigi að
skipta á milli þeirra sem þegar hafa
nýtt sér tvöföldunina, á grundvelli
aflareynslu. Það er mín skoðun að
þessir aðilar hafi þegar fengið sína
umbun fyrir að stunda þessar veiðar
og ef þeir fengju varanlega aflahlut-
deild út á þessar veiðar er alveg
óvíst að þeir myndu halda línuveið-
um áfram.
Það sem helst hefur verið talið
þessum línuveiðum til tekna er t.d.
að línufiskur sé svo gott hráefni og
einnig það að veiðarfærið línan er
talin vistvæn. Ekki ætla ég að full-
yrða að línufiskur sé lélegt hráefni
og vildi ég reyndar frekar borða
þorsk veiddan á línu en í troll. En
hinsvegar er það umhugsunarefni
að stórir kaupendur eins og t.d.
Marks & Spencer leggja til jafns
fimm daga gamlan trollfisk og
þriggja daga gamlan línufisk í gæða-
stuðlum sínum! Einnig er það stað-
reynd að skv. rannsóknum Hafrann-
sóknastofnunar veiðist að meðaltali
smærri fiskur á línu en bæði í net
og botntroll (Sjávarmál 5. tbl., 1.
árg.).
Hvort iínan sé vistvæn ætla ég
ekki að dæma um, en velti hinsveg-
ar fyrir mér hugtakinu vistvænt. Er
vistvænt veiðarfæri þannig gert að
það hefur góð áhrif á fiskistofnana
í sjónum? Eða er átt við það að veið-
arfærið brotni auðveldlega niður í
náttúrunni? Eða er átt við það að
veiðarfærið skemmi ekki botn og
botnlög? Og hvað af þessu hefur
línan fram yfir önnur veiðarfæri?
Ég minni á að botn þar sem t.d.
dragnót og troll eru notuð er oft
aðeins sandur og leir sem vandséð
er að þessi veiðarfæri geti haft önn-
ur áhrif á en að róta upp sandi sem
sest aftur. Ég minni einnig á það
sem áður var nefnt um stærð þess
fisks sem fæst á línu.
Með þessu er ég ekki að kasta
rýrð á línuveiðar, heldur er tilgangur
minn aðeins að fá menn til að taka
engu sem gefnu í þessum efnum,
heldur athuga málið gaumgæfilega.
Of stór floti?
Einn af þeim frösum sem notaðir
eru í umræðunni um fiskveiðar er
að flotinn sé allt of stór og geti veitt
allt of mikinn fisk. Menn hafa líka
sagt að flotinn sé sá öflugasti í heimi
og geti eytt hvaða fiskistofni sem
er á skömmum tíma. Sennilega er
þetta rétt. En er skýringin á því að
við getum eytt heilu fiskistofnunum
sá að flotinn sé of öflugur? Eða veið-
ir flotinn kannski vitlaust? Auðvitað
væri best að hafa flotann sem öflug-
astan ef hægt væri að nýta hann
betur, þ.e. ekki veiða bara meira og
meira heldur reyna að nota umfram-
afkastagetuna til að „velja“ fiskinn.
Það eru allir sammála um það að
smáfískadráp er slæmt fyrir stofn-
inn, en hvað gera menn í því að
koma í veg'fyrir það? Reglugerðir
um stærð möskva og svæðalokanir
eru helstu vopnin sem beitt er.
Hvað með nýjungar eins og t.d.
smáfiskaskilju sem Norðmenn, vinir
okkar og frændur, hafa verið að
prófa með góðum árangri? Reyndar
hefur verið gerð ein tilraun með slík-
ar skiljur hér við land (haustíð 1992),
en að mínu mati hefur henni ekki
verið fylgt eftir af fullum krafti.
Ráðuneytið hefur t.a.m. engin af-
skipti af þessu, en af reynslu Norð-
manna og reyndar úr tilraun okkar
íslendinga einnig, skilar þessi skilja
verulegum árangri í friðun smáfísks.
Norðmenn hafa ekki lögleitt skiljuna
ennþá, en þeir sem nota þær fá tals-
verðar ívilnanir frá stjórnvöldum
eins og t.d. kvóta og einnig hafa
þarlend stjórnvöld leyft skipum með
skiljuna að fara inn á lokuð svæði.
Höfundur stundar nám í
sjávarútvegsfræðum við
Háskólann á Akureyri.
[_ ATVINNA ÍBOÐI
Tónlistarkennarar
Tónlistarskóla Eskifjarðar og Reyðarfjarðar
vantar píanókennara og tónmenntakennara
til starfa á næsta skólaári.
Umsóknarfrestur er til og með 15. apríl nk.
Nánari upplýsingar veitir skólastjóri
í síma 97-41375.
Stjórn Tónlistarskóla
Reyðarfjarðar og Eskifjarðar.
Enskunám
Er ekki rétt að bæta við enskukunnáttuna?
Skólinn English 2000, School of English, í
Bournemoth býður þig velkominn til náms.
Upplýsingar gefur Páll G. Björnsson,
sími 98-75888, heimasími 98-75889.
íbúð óskast til leigu
Óskum eftir að taka á leigu 4ra-5 herb. íbúð
í góðu hverfi fyrir bandaríska fjölskyldu.
Góðri umgengni heitið og reglusemi.
Æskilegur leigutími tvö ár eða lengur.
Upplýsingar á skrifstofu fasteignasölunnar
Stakfells, sími 687633, eða í heimasíma
33771, Gísli eða Þórhildur.
Digraneskirkja
- útboð flísar
Tilboð óskast í sölu á postulínsflísum til utan-
hússklæðningar ásamt upphengibúnaði.
Magn 380 fm. Stærð 60x60 cm.
Gögn og aðrar upplýsingar fást hjá Verk-
fræðistofu Magnúar Bjarnasonar FRV, Lækj-
arseli 9, sími 670666. Tilboð verða opnuð
12.04/94 á sama stað.
Garðabær
Útboð
Viðbygging leikskóla
Bæjarsjóður Garðabæjar óskar eftir tilboðum
í viðbyggingu og innréttingar leikskólans
Lundabóls.
Um er að ræða 146 fm hús úr forsteyptum
einingum.
Verkinu skal lokið að fullu 1. október 1994.
Útboðsgögn verða afhent á bæjarskrifstof-
unum í Garðabæ, Sveinatungu við Vífils-
staðaveg, gegn 10.000 kr. skilatryggingu.
Tilboðum skal skila fyrir kl. 11 þann 19. apríl
1994 á skrifstofu bæjarverkfræðings.
Bæjarverkfræðingurinn í Garðabæ.
Slysavarnadeildin Ingólfur
Björgunarsveit Ingólfs
Aðalfundur 1994
Aðalfundur slysavarnadeildarinnar Ingólfs í
Reykjavík og björgunarsveitar Ingólfs verður
haldinn þriðjudaginn 6. apríl 1994 kl. 20.00
í Gróubúð, Grandagarði 1, Reykjavík.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnirnar.
Aðalfundur
Félags matreiðslumanna verður haldinn í
Þarabakka 3 í sal IOGT í dag, þriðjudaginn
29. mars, kl. 14.30.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirtöldum eignum veröur háð á þeim sjálf-
um sem hér segir:
Norðurbraut 2, 780 Höfn, þingl. eigandi Bjarni Garðarsson, gerðar-
beiðendur Lífeyrissjóður Austurlands, Ríkissjóður Arnarhvoli og
sýslumaðurinn á Höfn, 5. apríl 1994 kl. 14.00.
Smárabraut 19, þingl. eigandi Jón Haukur Hauksson, gerðarbeið-
andi Tryggingastofnun ríkisins, 5. apríl 1994 kl. 13.00.
Sýslumaðurinn á Höfn,
28. mars 1994.
SlttCI auglýsingar
□ EDDA 5994032919 III 2 Fr!.
□ HLfN 5994032819 VI 2
□ FJÖLNIR-5994032919 I Pf.
Snæfellsnes
Gisting fyrir hópa og einstakl-
inga. Páskatilboð.
Ferðir á Snæfellsjökul. Sundlaug.
Einnig svefnpokapláss og eldun-
araðstaða.
Gistihúsið Langaholt
á sunnanv. Snæfellsnesi,
s. 93-56789 og 93-56719.
i/
V
ADKFUK
Holtavegi
Fundur í Kyrruviku í kvöld kl.
20.30. Kristin Möller sér um
fundarefnið.
Allar konur velkomnar.
UTIVIST
[Hallveigarstig 1 • simi 614330
Lengri ferðir
um páskana
31. mars-4. apríJ: Sigalda -
Landmannalaugar - Básar.
Skíðagönguferð. örfá sæti laus.
Esjufjöll. Skiðagönguferð.
Fullbókað er í ferðina.
1 -3. apríl: Bðsar við Þórsmörk.
Gönguferðir fyrir alla fjölskylduna.
Sérstök dagskrá fyrir börnin.
Nánari uppl. og miðasala á skrif-
stofu Útivistar.
Útivist.
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 SÍMI 682533
Páskaferðir
Ferðafélagsins:
1) 31/3-4/4 kl. 9.00: Land-
mannalaugar, skíðagönguferð,
fimm eða þrír dagar. Ekið að
Sigöldu og gengið þaðan á skíðum
í Laugar. Jeppar flytja farangur.
2) 31/3-4/4 kl. 9.00: „Lauga-
vegurinn", skíðagönguferð (5
dagar), hefst íLandmannalaug-
um. Gist í sæluhúsum á leiðinni
til Þórsmerkur. Ath.: Aðeins 10
manns komast með!
3) 31/3-4/4 kl. 9.00: Mikiafell
- Sfðujökull - Lakagígar í sam-
vinnu við heimamenn á Klaustri.
Á skíðum að Miklafelli, Síðujökli
og Lakagígum. Gist í skálum og
séð veröur um flutning á far-
angri á milli skála.
4) 31/3-2/4 (3 dagar); Snæ-
fellsnes - Snæfellsjökull. Geng-
ið á Snæfellsjökul, 7-8 klst.
ganga, einnig verða skoðunar-
feröir á láglendi. Gist á Lýsuhóli
í Staðarsveit.
5) 2/4—4/4 kl. 9.00: þórsmörk.
Gist í Skagfjörðsskála/Langadal.
Tilvalin fjölskylduferð. Göngu-
ferðir um Mörkina.
Nánari upplýsingar og farmiða-
sala á skrifst. í Mörkinni 6.
Ferðafélag íslands.