Morgunblaðið - 29.03.1994, Page 42
42
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. MARZ 1994
Vetrarleikamir
í Lillehammer
eftir Bergljótu
Leifsdóttur Mensuali
Undirrituð, eiginmaður hennar,
Enrico, og mágur hennar, Guido,
ákváðu í janúarlok að reyna að kom-
ast í níu daga á Óiympíuleikana í
Lillehammer. Eftir mikla leit tókst
'okkur þremenningunum að fá inni
hjá norskri fjölskyldu í Hamar, sem
er 60 km frá Lillehammer.
Við héldum af stað 19. febrúar
og flugum frá Mílanó í gegnum
Kaupmannahöfn áleiðis til Óslóar.
Flugferðin gekk vel og vorum við
komin til Hamar klukkan 18. Á
meðan við biðum eftir leigubíl, héld-
um við að við myndum deyja úr
kulda. Það var 15 stiga frost. Húsið
sem við bjuggum í var einbýlishús
frá 1954 og var allt gert það upp
fyrir 5 árum. Hjónin voru mjög elsku-
leg, sem einnig mátti segja um alla
Norðmenn, sem við kynntumst. Þau
áttu 2'A árs gamla stelpu mjög fal-
lega, en feimna.
Þann 20. febrúar var ferðinni heit-
ið til Lillehammer. Þar var skíða-
stökkskeppni og fengum við ekki
miða á hana. Við skoðuðum því Vík-
ingabæinn. Það voru mörg tjöld, sem
voru í laginu eins og hús víkinganna
og var þar boðið upp á pylsur, jóla-
glögg og minjagripi. Allir starfsmenn
voru klæddir í föt frá víkingatímabil-
inu. Næst var haldið í leit að miðum
á leikana fyrir þá viku sem við áttum
að vera. Fundum við miða á flest
allar keppnirnar sem við vildum fá.
Við náðum því að vera kvikmynduð
af norska sjónvarpinu í sambandi við
að starfsfólk miðasölunnar var að
Lilleputtehammer
mótmæla svartamarkaðsbraski í
sambandi við miðasölu. Einnig var
mikið af fölsuðum miðum í umferð.
Þann 21. febrúar vorum við einnig
í Lillehammer og fórum við Valhall-
ar, en þar var norskt hlaðborð í há-
deginu. Ferðamenn kvörtuðu mikið
yfir því að reyktur lax sæist ekki á
matseðli veitingastaða á Ólympíu-
leikunum. Þama var hann samt á
boðstóium.
Þann 22. febrúar fórum við til
Röros, sem er fyrir norðan Lilleham-
mer og er nálægt sænsku landamær-
unum. Þetta þorp er í 642 metra hæð
yfír sjávarmáli og er mikill ferða-
mannastaður yfir sumartímann.
Einnig er Röros þekkt fyrir eirnámur
sínar. Hér var mjög kalt og enginn
úti á götu enda flestir að horfa á
skíðagöngu í sjónvarpinu. Við fórum
inn í hannyrðaverslun og var voru
afgreiðslustúlkurnar að horfa á sjón-
varpið og höfðu engan tíma til að
sinna viðskiptavinum og urðum við
mjög ánægð, þegar við sáum þarna
að Itali hafði unnið, en Norðmaður
varð í öðra sæti.
Þann 23. febrúar héldum við til
Haljell, sem er 15 km fyrir norðan
Lillehammer. Nú var komið að stórs-
vigskeppni karla. Við þrjú eram mikl-
ir aðdáendur Albertos Tombas og
blandaði ég mér strax í aðdáenda-
klúbb hans og voram við tvisvar sinn-
um mynduð af CBS-sjónvarpsstöð-
inni og tvisvar sinnum af Telem-
ontecarlo, sem er ítalskt. Tomba
gekk ekki nógu vel. Við náðum því
samt að standa við hlið Albertos
Tombas og Debora Compagnoni og
óska þeim velgengni.
24. febrúar var komið að stórsvig-
skeppni kvenna. Þar vann sú ítalska,
Ferðir um páskana
>
HAPPDRÆTTI
SLYSAVARNAFÉIAGS ÍSLANDS
stórkostlegir vinningar
að verðmœti
milljónir
1 vinningur Sumarhús á TORREVIEJA á Spáni aðverðmætikr. 2.000.000j“
1 vinningur Hnattferð fyrir tvo í fjórar vikur aðverðmætikr 1.000.000?"
3 vinningar Ferð fyrir tvo í þrjár vikur til Brasilíu hveraðverðmæti kr. 500.000?"
6 vinningar Ferð í þrjár vikur til Flórída, þar af vikusigling um Karíbahaf að verðmæti kr 450.000?"
4 vinningar Ferð fyrir fjóra til Flórída/Orlando í tvær vikur hver aðverðmæti kr. 300.000)"
2 5 vinningar Sumarleyflsferð fyrir fjóra til Spánar hveraðverðmætikr. 250.000)"
7 0 vinningar Sumarleyfisferð fyrir tvo til Spánar hver að verðmæti kr. 14:0.000)"
40 vinnii
vinningar Ferð til Ítalíu/Gardavatns fyrir tvo í tvær vikur hver að verðmæti kr.
160.000,-
visa við drögum 8. apríl. Tryggið ykkur miða í síma 627000.
Norsk glíma.
„Ekki held ég að það
sé hægt að hugsa sér
betri undirbúning held-
ur en hjá frændum vor-
um Norðmönnum og
var þá sérstaklega
skemmtileg stemmn-
ingin sem þeir mynd-
uðu með þjóðlegum
uppákomum fyrir
keppni og á milli um-
ferða.“
Deborah Compagnoni, og tileinkaði
verðlaunin Ulrike Mayer, sem dó í
keppni fyrr á þessu ári. Við fengum
að fara þar sem ljósmyndarar voru-
ásamt fleiri ítölum til að fagna sigri
Deboru. Eftir keppnina fórum við á
ítalska matstaðinn, Casa Modena,
en hann var 10 mínútna gang frá
skíðasvæðinu, en þar fengu Italir
ókeypis að borða.
25. febrúar sáum við í Lilleham-
mer stökkkeppni og unnu Norðmenn
gull- og silfurverðlaun.
26. febrúar komu tilvonandi brúð-
hjón til Lillehammer frá Bergen að
gifta sig að víkingasið og var brúð-
kaupsveislan haldin í Valhöll.
I dag, 27. var komið að stóra deg-
inum. Síðasta tækifæri Tomba til að
komast á verðlaunapall. Þetta var
kaldasti dagurinn og höfðum við
fengið miða I stúku. Eftir fyrri um-
ferð virtust litlar líkur til þess að
Tomba kæmist á verðlaunapall, en
hann var í 12. sæti. Við töldum, að
við hefðum séð síðustu keppni á hans
ferli, en sem betur fer höfðum við
rangt fyrir okkur. Hann náði í silfur-
verðiaun og munaði einungis 15 sek-
úndubrotum að hann næði í gullverð-
laun. Gleði okkar var mikil og ekki
hægt að hugsa sér betri enda á ótrú-
lega vel heppnaðri ferð, þrátt fyrir
að það hefði verið betra að hann
kæmi heim með gullverðlaun.
Ekki held ég að það sé hægt að
hugsa sér betri undirbúning heldur
en hjá frændum vorum Norðmönnum
og var þá sérstaklega skemmtileg
stemmningin sem þeir mynduðu með
þjóðlegum uppákomum fyrir keppni
og á milli umferða. Lillehammer hef-
ur sótt um að halda Vetrarólympíu-
leikana árið 2010, en þeir hafa aldr-
ei verið haldnir tvisvar sinnum á
. sama stað.
Daginn eftir héldum við til Ósló
og dvöldum þar eina nótt. Þann 1.
mars var ferð minni heitið til Is-
lands, en bræðurnir héldu til Flór-
ens. Flugvél Flugleiða var full af
Bandaríkjamönnum, en það var áber-
andi mikið af þeim á þessum leikum.
Höfundur er frcttaritari
Morgunblaðsins í Flórens.
Ferðafélag Islands
Ferðafélag íslands efnir til þriggja
dag ferðar á Snæfellsnes um pásk-
ana. Einnig verða farnar skíða-
gönguferðir í Landmannalaugar og
er hægt að velja um þriggja til fimm
daga ferðir. Samhliða Landmanna-
laugaferðinni verður aukaferð sem
ekki hefur verið í boði áður en það
er skíðaganga um hinn fræga
„Laugaveg" óbyggðanna. Þetta er
fímm daga ferð og verður gist fyrstu
nótt í Landmannalaugum en hinar í
Álftavatni, Emstum og Þórsmörk.
Aðeins 10 manns komast með í þá
Skjótvirkur stíflueyðir
Eyðir stíflum
fljótt
• Tuskur
• Feiti
• Lífræn efni
• Hár
• Dömubindi
• Sótthreinsar
einnig lagnir
One Shot fer
fljótt að stíflunni
af því að það er
tvisvar sinnum
þyngra en vatn.
Útsölustaðir:
Shell- og Esso
-stöðvar
og helstu byggingavöru-
verslanir.
Dreifing: Hringás hf.,
sími 677878-fax 677022
ferð.
Þá verður einnig í boði fimm daga
ferð austur á Síðumannaafrétt í sam-
vinnu við heimamenn á Klaustri og
einnig er boðið upp á 6 daga skíða-
gönguferð um Kjalveg. Farið verður
á milli sæluhúsa á Kili en ferðinni
lýkur í Haukadal.
Loks verður þriggja daga Þórs-
merkurferð með brottför laugardags-
morguninn 2. apríl kl. 9. Nánari
uppl. um lengri ferðirnar er að fá á
skrifstofunni Mörkinni 6.
Dagsferðir um bænadaga og
páska: 31. mars (skírdag) kl. 13 er
skíðaganga á Bláfjallasvæðinu, 1.
apríl kl. 13 Hvalnes - Stafnes - Bá-
sendar. 2. apríl er páskaganga fjöl-
skyldunnar. Létt gönguferð í ná-
grenni Reykjavíkur. 4. apríl (annan
í páskum) kl. 13 Hellisheiði - Innsti-
dalur, skíðaganga. 4. apríl kl. 13
Staðarborg - Kálfatjörn.
Útivist
Hjá Útivist verður dagsferð á skír-
dag kl. 10.30. Gengið verður gamla
þjóðleiðin sem lá frá Selvogi í Þor-
lákshöfn. Föstudaginn langa 1. apríl
kl. 10.30 verður dagsferð: Söguferð
í Reykholt í Borgarfirði. Farið verður
á söguslóðir Snorra Sturlusonar.
Brottför í allar dagsferðir er frá
BSÍ, bensínsölu, frítt fyrir börn 15
ára og yngri í fylgd með fullorðnum.
Miðar seldir við rútu.