Morgunblaðið - 29.03.1994, Page 45
45
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. MARZ 1994
Vetrarmót Fáks
Dræm þátttaka á
vetrarmóti Fáks
mikla og glæsilega gæðing og það
sama virðist gilda um Vídalín.
Heiðraðir voru stofnfélagar og
heiðursfélagar og má þar nefna Hös-
kuld á Hofsstöðum sem þarna mætti
.i'flega aldargamall og Gunnar
Bjarnason sem ávallt hefur verið í
sterkum tengslum við FT. Var þeim
ekið nokkra hringi um höllina í hest-
vagni og afhent blóm að endingu. -
Að þessu sinni var boðið upp á
skeiðkeppni með tímatöku og mun
það í fyrsta skipti sem slíkt er gert
á þessum vettvangi. Erling Sigurðs-
son, sá afkastamikli skeiðreiðarmað-
ur, bar þar sigur úr býtum á laugar-
dagskvöldið á hryssunni Brönu frá
Tunguhálsi. Ekki gekk skeiðkeppnin
vandræðalaust fyrir sig á öllum sýn-
ingum en sýnt er að þarna er kominn
möguleiki á spennandi skeiðkeppni í
reiðhöllinni. Mætti einnig athuga
möguleika á radarmælingum skeið-
hesta þar sem sá'sigrar sem mestum
hámarkshraða nær á skeiði. Það
skyldi þó aldrei fara svo að haldið
verði skeiðmót í reiðhöllinni! Athygl-
isvert var að ekki reyndist alltaf sam-
ræmi á milli tíma sem hestamir náðu
og sjónmats á hraðanum og sannast
þar að ekki er allt sem sýnist.
Gamlir gæðingar sem gerðu garð-
inn frægan á níunda áratugnum og
fýrr komu fram. Var óneitanlega
gaman að sjá þá þótt oft hafi þeir
verið betri. Bestir voru Hrímnir sem
áður var getið og virðist engu hafa
tapað nema síður sé. Sókron frá
Sunnuhvoli var einnig í góðu stuði
og Þorri frá Höskuldsstöðum. Þá
sýndu FT-menn fjóra ræktunarhópa
sem voru nokkuð misjafnir að gæð-
um. Af bar hópur Guðmundar
Sveinssonar frá Sauðárkróki þar sem
teflt var fram stóðhestunum Otri,
Létti, Álmi og Galdri sem vakti hvað
mesta athygli. Kynbótahryssur og
stóðhestar voru sýndir eins og tíðk-
ast í reiðhöllinni, hryssurnar býsna
góðar flestar hveijar en stóðhestam-
ir heldur lakari á heildina litið. Best-
ir vom Kolfinnur frá Kvíarhóli, Óríon
frá Litla-Bergi og Kópur frá Mykju-
nesi.
í heildina séð var sýningin á laug-
ardagskvöldið prýðileg, öll dagskráin
gekk snurðulaust fyrir sig, góð til-
þrif sáust í mörgum atriðum og eng-
um sem auga hefur fyrir góðum
hestum og reiðmennsku þurfti að
leiðast. Hitt er svo annað mál hvort
sýningin hafi staðið undir vænting-
um og sýnist sjálfsagt sitt hveijum
í þeim efnum. Er það eins og í upp-
hafi var getið spurning um hvaða
kröfur menn gera. En eitt er víst að
tamningamenn hafa öðlast þama
dýrmæta reynslu sem vafalaust mun
nýtast þeim vel þegar þeir troða aft-
ur upp í Reiðhöllinni hvenær sem það
nú verður.
FÁKSMENN frestuðu móti sínu
sem halda átti á laugardag yfir
á sunnudag vegna sýningu Fé-
lags tamningamanna. Þátttaka
var óvenju léleg, aðeins átta í
karlaflokki og það sem meira er
að aflýsa varð keppni í flokki
atvinnumanna. í kvennaflokki
voru aðeins fjórir keppendur.
Það vom yngri flokkarnir sem
björguðu mótinu með ágætri þátt-
töku. Þessi slaka mæting er ekki
síður umhugsunarverð fyrir þær
sakir að mótið var opið öllum. En
þetta verður vonandi betra á næsta
móti Fáks sem verður firmakeppni
þeirra upp úr miðjum apríl. En úr-
slitin urðu annars sem hér segir:
Börn
1. Davíð Matthíasson, Fáki, á
Vini frá Stokkseyri.
2. Bergþóra Snorradóttir, Fáki,
á Örvari.
3. Þórdís Gunnarsdóttir á Kráku-
stíg frá Dallandi.
4. Magnea Rós Axelsdóttir á
Vafa frá Mosfellsbæ.
5. Halldór Sturluson á Blesa.
Unglingar
1. Saga Steinþórsd. á Feng frá
Artúnum.
2. Davíð Jónsson, Fáki, á Hugin
frá Bakka.
3. Gunnhildur Sveinbjarnard.,
Fáki, á Funa frá Hofstaðaseli.
4. Ásgeir Örn Ásgeirsson á Geisla
'frá Reykjavík.
5. Dóra Birna Ævarsdóttir á
Lottu frá Hofi.
Ungmenni
1. Maríanna Gunnarsdóttir, Fáki,
á Garra.
2. Sigurður Matthíasson, Fáki, á
Þyti.
3. Daníel Jónsson, Fáki, á Glóð
frá Möðruvöllum.
4. Sigurbjörg L. Ævarsd. á Boða
frá Efri-Rauðalæk.
5. Unnur Sigurþórsdóttir á Garpi
frá Amarhóli.
Karlaflokkur
1. Leó Amarsson, Fáki, á Dofra
frá Hólakoti.
2. Gísli B.Björnsson, Fáki, á Blæ
frá Garðshópi.
3. Alexander Hrafnkelsson, Fáki,
á Leisti frá Vík.
4. Hrafn Ágústsson á Atlasi frá
Skarði.
5. Agnar Ólafsson, Fáki, á Dag-
fara frá Lýtingsstöðum.
Kvennaflokkur
1. Guðrún Edda Bragadóttir,
Fáki, á Jara frá Steindórsstöðum.
2. Ólöf Guðbrandsdóttir á Kveik
frá Ártúnum.
3. Elísabet Gígja, Fáki, á Baron
úr Borgarfírði.
4. Friðgerður Guðnadóttir á Koli
frá Köldukinn.
150 metra skeið
1. Guðni Jónsson á Funa frá
Sauðárkróki, 15,9 sek.
2. Hörður Hákonarson á Kolfínnu
frá Gufunesi, 16,6 sek.
3. Guðmundur Björgvinsson á
Örvari, 17 sek.
Þegar greint var frá úrslitum frá
móti Harðar í síðustu viku féllu út
úrslit í unglingaflokki en þau urðu
á þessa leið.
1. Garðar Hólm Birgisson á
Baldri frá Ey.
2. Guðmar Þór Pétursson á
Gammi frá Neðra-Ási.
3. Sölvi Sigurðarson á Nunnu frá
Klaustri.
4. Berglind Hólm Birgisdóttir á
Asa frá Köldukinn.
5. Gísli Þrastarson á Freyju frá
Hækingsdal.
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
Það var unga fólkið sem hélt mótinu á floti með sæmilegri þátttöku. Verðlaunahafar í ungmennaflokki
f.v. talið Unnur á Garpi, Sigurbjörg á Boða, Daníel á Glóð, Sigurður á Þyti og sigurvegarinn Maríanna
á Garra.
vanhæfír gjörðir af mannahönd-
um.“ Vaxandi sundmn heimila er
þjóðfélagsböl sem veldur miklum
sársauka og kvöl ekki síst meðal
saklausra barna. Við þessari
ógæfusamlegu þróun verður að
sporna. Ég hef undrast með hve
mikilli léttúð og alvöruleysi þjóðfé-
lagsumræðan fjallar um þessi
mál. Framhjáhald og skilnaðarmál
eru vinsæl gamanmál yfir kaffi-
bollaspjalli og afþreyingartímarit-
I in hafa keppst við að fá til sín í
viðtöl þá sem hafa hvað skrautleg-
astan sambúðarferil, já helst
margar sambúðir, svo viðkomandi
geti komist í hóp afreksfólks. Um
þessi tilefni er jafnvel skrifaðar
heilar bækur. Én það er lítið
minnst á bakhliðina, hveijir sátu
eftir með líf sitt í molum. Nei, þá
er meira spennandi að tala um
nýjast ástir, það ber þó skugga
| á, ef þær reynast ódýrar éftirlík-
ingar.
Kai Munk, hinn frægi danski
prestur, var þekktur fyrir að tala
um vandamál samfélagsins tæpi-
tungulaust, enda galt hann þess
með lífi sínu. Hann segir í stól-
ræðu sinni annan sunnudag eftir
trinitatis 1941: „Ber að skilja að
hjónaskilnaður í sérhverri mynd
| sé forkastanlegur fyrir oss venju-
lega menn. Vér skulum forðast
allt bull og segja skorinort. Það
getur komið fyrir að sambúðin sé
r svo ófögur að úr; verði afskrpem-
ing. Þá það, gerist það eins og
verk sem er til skammar." Enn-
fremur segir Kai Munk: „Nú veður
óskammfeilnin svo uppi að menn
hælast um að hafa komist yfir
þessa og hina, að það er eins og
sérstök fyndni að vera fráskilin,
þótt þeir séu þær druslur að hafa
hvað eftir annað farið með dýpstu
kenndir sínar og leyndustu reynslu
eins og braskgóss á útsölu, þótt
þeir hafí hlaupist frá helgasta heiti
lífs síns. Það er engin skömm þótt
menn hafi lagt heimili sitt í rúst,
hafí svipt böm sín fótfestu sem
er verra en þótt sprengja hafi fall-
ið á húsið, þótt þessi börn séu sum
orðin eins og rekald í straumi,
þótt kona sé eftirskilin brenni-
merkt sem „aflóga“ á líkama sín-
um og nafni, þótt landið hafi feng-
ið eina upplausnarstöð í viðbót,
menn geta verið hnakkakertir fyr-
ir öllu þessu, já, já, lostinn fékk
að hafa lausan taum, stutt stundar
hneigð var titluð sem háleit tilfínn-
ing.“ Af þessum orðum má sjá, að
í Danmörku eru hjónaskilnaðir
orðnir að vandamáli árið 1941, en
hér eru þeir næsta fátíðir á þeim
árum. Ég minnist þess að á þess-
um tíma virtust hjón hafa á sér
miklu meiri aga en nú. T.d. þótti
það engan veginn viðeigandi að
gift fólk sækti skemmtisamkomur
sitt í hvoru lagi. En nú eru aðrir
siðir í landi hér. Hjón sækja
skemmtanir ein sér við allavega
tækifæri og þykir sjálfsagt. Allt
gott um það að segja, ef siðferðis-
þrek viðkomandi ber það, en því
miður í alltof mörgum tilfellum
reynist þetta þrek ekki vera fyrir
hendi sem þá getur haft ófarnað
í för.
Þegar nýir siðir og hefðir eru
teknir upp, en reynast illa, því
skyldi þá ekki vera hægt að breyta
þeim? Það er eitthvað í uppeldis-
málum þegar unga fólkið okkar
flest veit og allt getur, nema þá
helst að geta lifað lífinu sjálfu.
Við þurfum að horfast í augu
við það að heimilin sundrast í allt-
of miklum mæli og hættan er að
vandamálið vefji upp á sig, því
fleiri og fleiri upplifa upplausn
heimilis síns í æsku og hafa því
miklu verri bakgrunn en ella til
að geta sjálf valdið því að vera í
sambúð.
Höfundur er bóndi að Laxamýrí.
Vorlitirnir eru komnir
Metsölublad á hverjum degi!
Við tökum við ábendingum
og tillögum sem varoa
þjonustu SVR í símsvara
814626
Strætisvaanar Reykjavíkur hf
PYRIT
\ GULLSMIÐJA
\ ÖNNU MARIU
\ Vesturgata 3 simi 20376
Islensk hönnun og handverk
EKKERTINNIGJALD
GLÆSILEGUR SÝNINGARSALUR
Páskatilboð!
Engin útborgun, eftirstöövar til allt að 36 mán.
MMC Lancer GLXI, órg. 1991, sjólfsk., ek. 55
jús. km, hvftur. Skipti mögul. Verö 990.000,-.
Nissan Sunny SGS coupe, árg. 1989, sjálfsk.,
ek. 67 þús. km, hvftur. Skipti mögul. Verð
660.000,-.
Daihatsu Rocky ELII, árg. 1987,5 glra, ek. 96
þús. km, hvftur. Skipti mögul. Verö 850.000,-.
Subaru 1800 st 4x4, órg. *90, 5 gíra, ek. 71
þús.Verö930 þús. Skipti mögul.
Daihatsu Charade TX limited, árg. *92, 3ja
dyra, ek. 55 þús. km. Verð 690 þús. Sklpti
mögul.
Suzuki Swift GL, órg. '91, 3ja dyra, sjálfsk.
ek. 26 þús. km. Verö 720 þús. Skipti mögul.
Nissan Sunny st. 4x4, árg. '91, 5 gíra, ek. 61
þús. km. Verö 1040 þús. Skipti mögul.
BMW 520IA, árg. '90, sjálfsk., ek. 174 þús.
km. Verö 1690 þús. Skipti mögul.
Suzukl Swift 1.3 sedan, árg. '90,5 gíra, ek. 55
þús. km. VerÖ 630 þús. Skipti mögul.
FJðldl góöra bila é skró, góö greiöslukjör.
BÍfASALAN
BILFANG
HÖFÐABAKKA
112 REYKJAVlK
-879333