Morgunblaðið - 29.03.1994, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. MARZ 1994
53
MÚRINN
Flóttinn var þess virði
Klukkan 15.50 15. ágúst árið
1961 leit hinn 19 ára gamli
austur-þýski undirforingi í landa-
mæravörslunni, Conrad Schumann,
snöggt í kringum sig, sá sér leik á
borði og stökk yfir gaddavírsgirð-
ingu sem aðskildi frelsið og kúgun-
ina í Berlín. Ljósmyndari náði mynd
af stökkinu og myndin varð ein af
þeim frægari af mörgum frægum.
Schumann þessi segist ekki hafa
skipulagt flótta sinn. Hann hafi
verið tilviljanakenndur.
„Það vorum bara við hermennirn-
ir austan við gaddavírinn. Þetta var
á Brandenborgartorginu og mikill
mannsöfnuður að vestanverðu. Þá
vildi það til, að maður nokkur var
staddur mjög nærri gaddavírnum
og við horfðumst sem snöggvast í
augu. Ég átta mig ekki almennilega
á því hvernig það bar til, en ég virð-
ist hafa gefið manninum merki um
að ég vildi flýja, því hann hraðaði
sér og sótti lögreglumenn. Skömmu
síðar renndi lögreglubíll upp að
gaddavírnum þar sem ég stóð, aft-
urhurðinni var lokið upp og án þess
að hugsa það nánar, þá hljóp ég
af stað, stökk yfir, lenti illa og ofan
á hríðskotabyssuna, en sem betur
fer var ég búinn að laumast til að
tæma hana. Ég var kominn aftur
á fætur í einu vetfangi og stakk
mér inn í lögreglubílinn. Síðan bað
ég um hæli sem pólitískur flótta-
maður og var það auðsótt," segir
Schumann.
Flóttamaðurinn ungi fór huldu
höfði næstu árin. Hann settist að í
smábæ í Bæjaralandi og fékk vinnu
sem vélvirki í bílaverksmiðju. Út-
sendarar Stasi voru alltaf á ferð-
inni, en þeir fundu Schumann aldrei
og er múrinn féll var ekkert. að
fela lengur. Einu sinni síðan hefur
Schumann heimsótt vini og ætt-
Schumann stekkur yfir í frelsið.
ingja í austrinu. Hann segir að það
hafi komið sér skemmtilega á óvart
hversu vel sér hefði verið tekið. „Ég
óttaðist að verða talinn auvirðilegur
liðhlaupi, svikari. En svo kom í ljós
að fólkið dáðist að því að ég skyldi
flýja og flótti minn hefði verið hvat-
inn að því að fleiri flýðu og margir
fengu nýja og aukna von. Þetta var
þess virði, það er ekki spurning,"
segir Schumann.
Conrad Schuman eins og hann
lítur út í dag ...
Sjálfsrækt
Námskeið sem fjallar um bernskuna, kvíða,
sjálfsvirðingu, ást og samskipti, líkamsrœkt, matarœði,
jákvœða hugsun, markmiðasetningu, öndunarcefingar,
slökun, hugleiðslu og lögmál velgengni. Kennslubók,
œfingar og einkatími, 2. til 30. apríl,
Leiðbeinandi er Gunnlaugur Guðmundsson.
Stjörnuspekistöðin, Laugavegi 59, sími 10377.
KVIKMYNDIR
Eldskírn á raf-
knúnum kráartudda
Baldwin-bræðurnir í Hollywood
erú a.m.k. fjórir og allir eru
þeir að reyna fyrir sér í kvikmynd-
um. Frægastur er Alec sem hefur
leikið í nokkrum þekktum kvik-
myndum, t.a.m. „The Hunt for
Red Oktober" með Sean Connery.
Alec er og sambýlismaður
kynbombunnar Kim Basinger og
ekki ófrægari fyrir það. Sá yngsti
þeirra bræðra, Stephen Baldwin,
er nú 27 ára og vonast til þess
að hans tími sé nú kominn, en
hann hefur fengið ágæta dóma í
kvikmyndinni „8 seconds" sem
fjallar um tuddaknapa á hinum
séramerísku „Rodeo-sýningum“.
Myndin fjallar um goðsögn í
bransanum, Lane Frost, sem var
margfaldur meistari í að sitja óða
tudda. Lane leikur Luke Perry, en
Stephen Baldwin fer með hlutverk
besta vinar hans, Tuff Hedeman.
Tuff þessi var einnig tuddaknapi
og Baldwin æfði sig í tvo mánuði
á rafknúnum kráartudda áður en
hann lét sjá sig nálægt alvöru
bola. Kvikmyndatökumennirnir
þurftu ekki langa stund, aðeins
nokkrar sekúndur með Baldwin á
baki. Fór hann tvær ferðir, en sú
fyrri gerði ekkert gagn, því skepn-
an þeytti Baldwin af baki um leið
og henni var sleppt lausri. í seinna
skiptið hékk leikarinn á baki í
fimm sekúndur áður en hann sveif
í fallegum boga í loft upp og small
á jörðina. „Ég var dofinn af
hræðslu fyrir tökuna og dofinn af
sársauka í afturendanum eftir
hana,“ sagði Stephen. En þá fyrst
var hann óttasleginn er hann hitti
fyrir hinn raunverulega Tuff He-
deman við prufusýningu á mynd-
inni. Að henni lokinni hittust þeir
Stephen Baldwin í myndinni „8
Seconds".
og Stephen spurði varfærnislega
hvernig Hedeman hefði fundist
útkoman. Sá gamli svaraði: „Þú
lékst mig eins og fífl! En þetta var
stórkostlegt, því ég er fífl!“
i>f.i________________£__________________i_____
Pá fflpamapteo
Opið alla daga vikunnar
Ný tilboð vikulecpas
■ Herrahúsid: Aliir leður og rúskinsjakkar kr. 6.900
► Barna íþróttagallar frá kr. 1.290
# Lilja tískuverslun páskatilboð:
____Blússur áður kr. 4.990, nú kr. 2.990
♦ Spor hf. Geislaplötutilboð:
JEf þú kaupir 5 geislaplötur á 999 kr. hverja færðu eina fría.
■ X & Z barnajakkar stærðir 128-170 kr. 4.900
► Verkfæri - þau ódýrustu í bænum
t.d. 8" skrúfstykki m/snúning og steðja kr. 4.900
• Flash tískuverslun páskatilboð:
Kjólar áður kr. 4.990, nú kr. 2.990
l ♦ Gallabuxur ný sending svartar/bláar, allar stærðir kr. 2.900
i íslensk gæðavara - tilboð rækjur kr. 500 kg.
► Skór - páskatilboð: Áður kr. 4.990, nú kr. 1.990
• Páskasælgæti á verksmiðjuverði •
Blómalist: PáskalHjur 10 stk. kr. 590
Gjafavörur . Páskaliljur 20 stk. kr. 990
FAXAFEN110 g 882666
SKRIFSTOFAN OPIN MÁN.-FÖS. 08.30-13.00