Morgunblaðið - 29.03.1994, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. MARZ 1994
57
Opus Dei, fúlasta alvara.
Mósaík, lofar góðu.
Allir að spila allt
MÚSÍKTILRAUNUM Tónabæj-
ar, þeim tólftu í röðinni, lauk
síðastliðið föstudagskvöld með
miklum bravúr. Þá kepptu níu
hljómsveitir um grúa verðlauna,
þau helstu hljóðverstíma, sem
gera hljómsveitunum kleift að
koma sér á framfæri og jafnvel
að koma einhverri tónlist frá
sér á plast.
Segja má að helsta eirikenni
þessara Músíktilrauna hafi verið
að ekkert einkenndi þær, þ.e. það
var engin ein tónlistarstefna sem
mest bar á, heldur voru allir að
spila allt, ef svo má segja. Það
mátti og sjá á hljómsveitunum sem
komust í úrslit að þar ægði saman
Seattle-rokki, þungarokki, speed-
rokki, léttpoppi, nýbylgju og
dansfönki. Fyrsta hljómsveit á
svið, FullTime 4WD, lék einmitt
kræsilegt afbrigði af speed-rokki,
en nokkuð spillti að söngvarann
(öskrarann) vantaði á sviðið, en
hann stóð baksviðs. Líklega hefur
hann viljað láta lítið á sér bera,
því hann átti eftir að vera í sviðs-
ljósinu með annarri sveit, Thunder
Love, síðar um kvöldið. Það mátti
reyndar heyra að hann var að
spara röddina, því hann var lengi
í gang og náði sér ekki vel á strik.
Hljómsveitin var þó þétt og sérlega
skemmtilegur afbragðs trommu-
ieikurinn, þó óagaður væri á köfl-
um.
Skipt var um músíkstefnu þegar
næsta sveit, Cyclone, hóf leik sinn,
því sú lék ómengað Seattle-rokk,
og þokkalegt sem slíkt, en full
ófrumlegt. Söngvari sveitarinnar
var mjög góður og hljómsveitin
þétt, þannig að búast má við miklu
af henni á næstu tilraunum, sér-
staklega ef liðsmenn læra að tjá
sig á íslensku.
Enn var skipt um gír þegar
Maus setti í gang, enda fór þar
frumleg nýbylgjusveit og áberandi
besta sveit tilraunanna. Sérstak-
lega var lokalag sveitarinnar af-
bragð og keyrslan í því góð.
Wool (af hveiju ekki ull?) vakti
mikla hrifningu þegar sveitin
komst áfram, en olli vonbrigðum
í þetta sinn. Ekki er gott að segja
hverju um var kenna, en sérlega
var söngvari sveitarinnar tauga-
óstyrkur. Hljómborðsleikarinn lék
aftur á móti við hvern sinn fingur
þegar hann komst í gang í öðru
lagi sveitarinnar. Stór mínus verð-
ur þó alltaf að sveitin skuli ekki
vera það frumleg að hún geti sung-
ið á íslensku.
Síðasta sveit fyrir hlé var furðu-
sveitin Tennessee-Trans. Sú byij-
aði með látum á lagi sem varla
var lag og líkt og undanúrslita-
kvöldið þegar sveitin komst áfram
var hún ekki nema með eitt fram-
bærilegt lag, Hipp-Hopp Halla, og
það þó sungið væri á ýmsum
tungumálum.
Thunder Love var fyrsta sveit
eftir hlé og dró sundur og saman
í háði rokkstæla og klisjur; með
tilheyrandi stælum, gítarhetjuleik
og enskubulli (áberandi aulaleg
málvilla var í viðlagi síðasta lags:
There’s no Bitches in Heaven).
Eina sem spillti fyrir var að söngv-
arinn, líklega þreyttur eftir að
hafa orgað með FullTime 4WD,
var svo falskur á köflum að undir-
ritaður táraðist.
Á eftir þessari grínsveit kom
svo önnur sem upp full var með
klisjur og rokkstæla, en að þessu
sinni var það í fullri alvöru. Opus
Dei vakti athygli á síðustu Músíkt-
ilraunum fyrir kraftmikið en
ófrumlegt rokk. Nú kom sveitin
til leiks hálfu öflugri en áður, búin
að æfa af kappi og hefur tekið
gríðarlegum framförum. Því miður
hafa framfarirnar í lagasmíðum
orðið minni og þó söngvarinn hafi
verið prýðilegur á köflum og gítar-
leikarinn sýnt glimrandi takta, var
tónlistin þreytandi samsuða og
textarnir líka.
Mósaík, sem skipuð var lang
yngstu þátttakendunum að þessu
sinni, komst í úrslit á persónutöfr-
um, því sveitin var óstöðug í und-
anúrslitunum. Þegar á hólminn
kom í úrslitunum voru Móasíkliðar
þó tvíefldir og miklu þéttari og
betri en hið fyrra skiptið. Vitan-
lega á sveitin nokkuð í land að
vera fullmótuð rokk- eða popp-
sveit, en neistinn er til staðar og
gaman verður að heyra í sveitinni
að ári.
Lokasveit þessara Músíktil-
rauna var Man úr Mosfellsbæ, sem
stakk nokkuð í stúf við það sem
á undan var komið, þó fjölbreytnin
hafí verið rnikil. Ekki er gott að
lýsa tónlist sveitarinnar; kannski
má kalla hana eins konar kúrekap-
Maus, öruggir sigurvegarar.
Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir
Wool, annað sæti þrátt fyrir allt.
FullTime 4WD, speed-rokk í þriðja sæti.
Man, eftirtektarvert kúrekapönk.
Tennessee-Trans, eitt lag ekki nóg.
Thunder Love, allt í plati.
Cyclone, góður söngur.
önk með rokkkeim, en hljómsveitin
var skemmtilega öðruvísi.
Úrslit tilraunanna urðu að Maus
sigraði nokkuð örugglega, Wool
varð í öðru sæti og FullTime 4WD
í þriðja sæti. Man var svo valin
efnilegasta hljómsveitin. Besti
bassaleikari var valinn Egill
„Snake“ Tómasson úr Thunder
Love, besti trommuleikari Daníel
Þorsteinsson úr Maus, besti söngv-
ari Kristófer Jensson úr Cyclone
og besti gítarleikari Birgir Örn
Steinarsson úr Maus.
Þessar tólftu Músíktilraunir
voru líklega þær best heppnuðu
hingað til, en á lokakvöldinu var
þó leiðinlegu blettur sem var ótrú-
legt tillitsleysi og frekja mynda-
tökumanna Sjónvarpsins sem
spilltu mjög fyrir hljómsveitum,
sem þurftu á stundum að standa
í pústrum til að fá að hreyfa sig
á sviðinu, og áheyrendum, sem sáu
langtímum ekkert annað á sviðinu
er óhrjálega afturenda mynda-
tökumannanna. Skammarlegt og
slæmur vitnisburður upptöku-
stjóra.
Ekki verður umfjöllun um þess-
ar Músíktilraunir lokið án þess að
lofa starfsfólk Tónabæjar og að-
standendur alla fyrir einkar vel
heppnaðar tilraunir; reyndar lygi-
legt hve allt gekk snurðulaust og
ástæða til að hlakka til næstu til-
rauna að ári.
Árni Matthíasson
ÞESSAR stúlkur héldu hlutaveltu til styrktar hjálparsjóði Rauða
kross íslands og varð ágóðinn 1.144 krónur. Þær heita Sara Ósk
Víðisdóttir og Silja Pálmarsdóttir.
ÞESSAR stúlkur héldu hlutaveltu til styrktar Áhugafélagi v/telpn-
anna í Tyrklandi og varð ágóðinn 1.661 króna. Þær heita Kristín,
Heiða Ósk, María Björk, Heiða Lind, Harpa Dís og Margrét Ýr.
Brids_________
Umsjón Arnór G. Ragnarsson
Vesturlandsmót í tvímenningi
Vesturlandsmót í tvímenningi verð-
ur haldið ! Grundarfirði 9. apríl nk.
Spilaður verður barometer og er áætlað
að keppninni ljúki um kvöldið en
keppnin hefst kl. 10. Skráning er hjá
Guðna Hallgrímssyni ! síma 93-86788
eða hjá Eggert .áigurðssyni { símí.
93-81361. Skráningu lýkur 6. apríl.
Opið páskamót lyá Bridsfélagi
Útnesinga
Opið bridsmót verður haldið í félags-
heimilinu Klifi í Ólafsvík á skírdag (31.
marz). Mótið stendur í einn dag og
verður spilaður barometer tvímenning-
ur. Fjöldi þátttakenda verður tak-
markaður en heildaiverðlaun eru hátt
í 200 þúsund kr. Þátttaka tilkynnist í
síðasta lagi .29. marz í síma 93-66720
"* i símifi 93-66659 (Erla Laxdal).