Morgunblaðið - 29.03.1994, Side 62
62
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. MARZ 1994
Heslihneíwr
hgk kaðai~
)QSnnetulganuir
Vveslihnetur
HesUhnetur fcÆ
flögur f
kókosmjöl
gMorrmrusmur
með hýöi
möndliu-
afhyddar
i - v •
■T7WtJW» 1 *. V '• -* J!
av la laj, ~ír \ . -
■> -1 Vvt s >«*
tnöwflwr
hakJcaoar
I * > \ á
döðlur
i GleÖilega
I páska!
VELJUM ÍSLENSKT!
Innanskólakeppni Dans-
skóla Auðar Haralds
Gunnar Már Sverrisson og Anna Björk Jónasdóttir, sigurvegarar frá
deginum áður í flokki 19 ára og eldri.
___________Pans_______________
Jóhann Gunnar Arnarson
Það var á þeim fallega degi,
sunnudeginum 20. mars, að Dar}s-
skóli Auðar Haralds hélt sína árlegu
innanskólakeppni. Að þessu sinni
var hún haldin á Hótel Sögu, nánar
tiltekið í Súlnasal.
Nokkuð mörg pör voru jnætt til
keppninnar, í þetta skiptið, og
sérstalega langar mig þá að nefna
pör frá Selfossi sem þarna kepptu.
Þau stóðu sig með stakri prýði, eins
og reyndar allir keppendurnir.
Nú sem endranær var keppt í
fjórum greinum í innanskólakeppn-
inni; gömlum dönsum, suður-amer-
ískum dönsum, standard dönsum
og í „vaggi og veltu“. Allar eru
þessar greinar dansins mjög ólíkar
og getur því verið gaman að þeirri
tilbreytingu sem keppni sem þessi
bíður upp á.
Yngstu keppendurnir riðu á vaðið
og dönsuðu afbrigði af enska dans-
inum skottís, sem kallað er stiginn
skottís, en hann nota einmitt ís-
lenskir danskennarar mjög mikið,
því þarna er á ferðinni mjög
skemmtilegur og stílhreinn dans.
Eldri hópamir fylgdu svo fljótt í
kjölfarið, hver á eftir öðmm, fyrst
í gömlu dönsunum og svo koll af
kolli.
Þau pör sem fengu flest stig úr
samanlögðum öllum dönsunum, í
hveijum aldursflokki, fengu glæsi-
lega verðlaunagripi og parið sem
varð efst þeirra á meðal, fékk skóla-
bikarinn, en það voru Sigrún Ýr og
Haraldur Skúlason sem unnu hann
að þessu sinni.
Keppnin gekk mjög hratt og vel
fyrir sig og létt var yfir öllum. Það
kom mér dálítið á óvart þegar ég
heyrði af því að halda ætti þessa
keppni á sunnudeginum 20. mars,
daginn eftir stóra og mikla Islands-
meistarakeppni í dansi, því e.t.v.
er fólk þreytt eftir erfiðan dag
o.s.frv. En þrátt fyrir allt og allt
vom allir í Súlnasalnum í sólskins-
skapi og skemmtu sér hið besta.
Að innanskólakeppninni lokinni
var haldin önnur keppni, sem kölluð
er liðakeppni. Hún gengur á þann
hátt fyrir sig að þeir dansskólar sem
taka þátt, senda þrjú pör til keppn-
innar, eitt í hveijum aldursflokki,
en í þessu tilviki, sem endranær,
vom aldursflokkamir þrír. Dans-
skólamir sem tóku þátt í þessari
Sigrún Ýr og Haraldur eru svo
sannarlega glæsilegt par sem á
framtiðina fyrir sér. Þau unnu
skólabikarinn að þessu sinni.
keppni voru einnig þrír; Dansskóli
Jóns Péturs og Köm, Nýji dansskól-
inn í Hafnarfírði og loks gestgjafinn
Dansskóli Auðar Haralds. Þetta er
á meðal mest spennandi dan-
skeppna sem ég hef séð og var
baráttan mjög hörð og þá sérstak-
lega í elsta flokkinum og hafa dóm-
aramir vafalaust verið í miklum
vafa hver 1. sætið myndi hreppa.
Áhorfendur studdu mjög dyggilega
við bakið á þessum pörum og e.t.v.
helst til mikið, því er þetta spurn-
ingin um hinn vandrataða meðalveg
og að kunna sér hófs.
Eftir harða keppni og jafna var
það lið Dansskóla Jóns Péturs og
Köru sem fór með sigur úr bítum
og verður það að teljast sann-
gjarnt, því þau sýndu fádæma góð-
an dans.
Starfsmenn keppninnar skiluðu
sínu vel, um útreikninga sáu Björg
Birgisdóttir og Hólmfríður Þor-
valdsdóttir og dómarar voru Vilborg
Víðisdóttir, Anna Svala og Jóhann
G. Arnarsson.
Það verður oft skemmtilegt að
blanda saman tveimur keppnum,
eins og gert var síðastliðinn sunnu-
dag, stemmningin verður allt öðru-
vísi og loftir rafmagnaðra. Reyndar
var öll keppnin skemmtileg á að
horfa og stóðu allir keppendur sig
vel, að vanda. Keppendur og gestir
tíndust svo smátt og smátt til síns
heima eftir vel heppnaðan dag, sem
sunnudagssteikin hefur sjálfsagt
sett sinn punkt yfir.
-----♦ ♦ ♦-----
Hreyfimynda-
félagið sýnir
söngleikinn
Tommy
HREYFIMYNDAFÉLAGIÐ sýnir
kvikmyndina Tommy eftir leik-
stjórann Ken Russell í kvöld,
þriðjudaginn 29. mars, kl. 9 og
fimmtudaginn 31. mars kl. 7.
Myndin er byggð á tónverki
hljómsveitarinnar The Who.
Tommy er magnum opus Peter
Townshend en hann samdi þessa
fyrstu óperu rokkhljómsveitar árið
1969. Árið 1975 var ráðist í að
kvikmynda söngleikinn um dreng-
inn Tommy (leikinn af Roger Daltr-
ey söngvari The Who) sem missir
sjón, heyrn og mál eftir dauða föð-
ur síns. Farið er með hann til lækn-
is (Jack Nicholson) en ekkert dugar
þar til hann kynnist kúluspili og
nær slíkri leikni í því með iyktar-
skynið eitt að vopni að hann sigrar
kónginn, The Pinball Wizard (Elton
John). Á vegi hans verða undarleg
frík, sýrudrottningin (Tina Turner),
predikarinn (Eric Clapton) og „per-
vertinn" Ernie frændi sem tromm-
arinn Keith Moon heitinn leikur.
Fylgstu meb á þribjudögum!
Á þri&judögum er gefib út sérstakt Íþróttablaí) þar sem fjallaö et um allt þaö helsta sem
gerst hefur í íþróttaheiminum innanlands og utan. Úrslit era birt úr fjölmörgum greinum
íþrótta, t.d. öllum deildum í knattspyrnu, hand- og körfuknattleik, einnig eru fréttir af
golfi, júdó, blaki, karate, frjálsum íþróttum og kappakstri svo eitthvaö sé nefnt. Viötöl era
tekin við íþróttafólk, umsagnir um leiki og lífleg umfjöllun um allt sem tengist íþróttum.