Morgunblaðið - 31.03.1994, Side 1
112 SIÐURB/C
STOFNAÐ 1913
75.tbl. 82. árg. FIMMTUDAGUR 31. MARZ 1994 Prentsmiðja Morgunblaðsins
Morgunblaðið/RAX
Sigurvegararnir á Ítalíu reyna að setja niður deilurnar
Vaxandi likur tald-
ar á stj ómamiyndmi
Reuter
*
Kreppa í Ihaldsflokknum?
JOHN Major forsætisráðherra Bretlands lét eins og ekkert hefði í skorist
í gær, en í röðum íhaldsmanna er deilt um forystu Majors eftir stefnu-
breytingu hans í deilu um atkvæðavægi innan Evrópusambandsins.
Sjá „Andrúmsloftið í íhaldsflokknum minnir..." á bls. 42.
Róm. Rcutor.
AUKNAR líkur þóttu á því í gær, að Silvio Berlusconi, sigurvegara
kosninganna á Ítalíu um síðustu helgi, tækist að sætta leiðtoga sam-
starfsflokkanna í Frelsisbandalaginu og mynda sterka sljórn. Hefur
Umberto Bossi, leiðtogi Norðursambandsins, dregið úr gagnrýni sinni
á nýfasista og Berlusconi hefur boðist til að selja allt fjölmiðlaveldi
sitt verði það talið nauðsynlegt til að hann geti gegnt embætti forsætis-
ráðherra.
„Það er farið að kveða við nýjan
og betri tón og ég er viss um, að
sigurvegarar kosninganna muni ná
saman um stjórn," sagði talsmaður
Áfram Ítalía, flokks Berlusconis, í
gær, en þá hafði Berlusconi brugð-
ist við gagnrýni Bossis, leiðtoga
Norðursambandsins, með því að lýsa
yfir, að hann væri reiðubúinn að
selja fyrirtæki sín til að forðast
hagsmunaárekstur. Bossi hefur
einnig látið af árásum sínum á ný-
Samið um vopnahlé í Kra.jina-héraði í Króatíu
Tímamótimum fagnað
Zagreb. Reuter.
SAMNINGAMENN Bandaríkjanna, Rússlands, Sameinuðu þjóðanna og
Evrópusambandsins, fögnuðu í gær samningi Króata og Serba urn
vopnahlé í Krajina-héraði í Króatíu. Þeir sögðu samninginn marka tíma-
mót og geta greitt fyrir samkomulagi um pólitíska framtíð héraðsins.
Vítalíj Tsjúrkín, sérlegur erindreki
rússnesku stjórnarinnar í fyrrverandi
lýðveldum Júgóslavíu, kvaðst líta á
samninginn sem fyrsta skrefið í þá
átt að koma samskiptum Króata og
Serba í Króatíu í eðlilegt horf. Samn-
ingurinn var undirritaður í sendiráði
Rússlands í Zagreb.
Tsjúrkín sagði að samningamenn
Serba og Króata hefðu lofað að reyna
að leysa pólitísk og efnahagsleg
deilumál sín í héraðjnu í næstu lotu
friðarviðræðnanna sem á að hefjast
eftir tvær vikur.
Peter Galbraith, sendiherra
Bandaríkjanna í Króatíu, sagði að
samningurinn sýndi að náið samstarf
ríkja heims í friðarumleitunum í fyrr-
verandi lýðveldum Júgóslavíu væri
farið að skila miklum árangri.
Sjá „Samkomulag um ...“
ábls.42.
fasista og í gær kvaðst hann telja,
að flokkarnir þrír, sem stóðu að
Frelsisbandalaginu, kæmu sér sam-
an.
Gianfranco Fini, leiðtogi nýfas-
ista, telur Berlusconi sjálfkjörinn
forsætisráðherra en Luigi Scalfaro,
forseti Ítalíu, mun ekki skipa í emb-
ættið fyrr en 15. apríl þegar þing
kemur saman.
Mino Martinazzoli, leiðtogi
Þjóðarflokksins, sem stofnaður var
á rústum Kristilega demókrata-
flokksins, sagði af sér í gær vegna
kosningaúrslitanna, en flokkurinn
fékk aðeins 33 menn kjörna á þing.
Þá virðist vera lagt æ harðar að
Achille Occhetto, leiðtoga Lýðræðis-
flokks vinstrimanna, kommúnista-
flokksins fynverandi, að segja af
sér, en honum er kennt um ósigur
kosningabandalags vinstrimanna.
Fjölmiðlar í Evrópu eru sammála
um, að Berlusconi hafi unnið mikið
afrek með kosningasigrinum, en
efast er um, að honum takist að
koma saman styrkri stjórn og auka
stöðugleikann á Ítalíu. Siiddeutsche
Zeitung telur, að hann standi of
nærri gamla kerfinu til að geta tal-
ist trúverðugur sem umbótamaður
og Liberation í Frakklandi segir, að
í fyrsta sinn frá stríðslokum séu Jík-
ur á að fasistar setjist í stjórn í
Evrópuríki. í mörgum blöðum kem-
ur fram, að kosningarnar um síð-
ustu helgi hafi ekki læknað sjúk-
dóminn, sem ítalir hafi þjáðst af svo
lengi, agaleysið, sem geri eðlilega
landsstjórn næstum ómöguiega.
Leyft að
dansa á
páskum
Ósló. Reutor.
NORSK stjórnvöld ætla að
breyta verulega gildandi lög-
um uin helgi páskanna og
meðal annars verður bann við
dansleikjahaldi afnumið.
Samkvæmt núgildandi lögum,
sem ent frá 1965 og byggjast
að mestu á lögum frá 1735, eru
dansleikir, bingó og kvikmynda-
sýningar, sirkus- og kabarett-
sýningar og popptónleikahald og
dorgveiðikeppni bönnúð á pásk-
um, jólum og öðrum stórhátíð-
um. Ole Herman Fisknes, deild-
arstjóri í kirkjumálaráðuneytinu,
segir, að frumvarp um breyting-
ar á þessum lögum verði lagt
fyrir Stórþingið á næstunni.