Morgunblaðið - 31.03.1994, Blaðsíða 54
54
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MARZ 1994
W
F
ATVINNU l / YSINGAR
MSTSKNIVAL
Vegna ört vaxandi verkefna óskum við eftir
að ráða í eftirtalin störf:
Markaðsfulltrúa netkerfi
Tölvudeild
Við leitum að viðskiptafræðingi, tölvunar-
fræðingi, verk- og/eða tæknifræðingi eða
einstaklingi með sambærilega menntun.
Þekking eða reynsla á nútíma tölvuvæðingu
er nauðsynleg.
Viðkomandi þarf að geta starfað sjálfstætt
og í samvinnu með öðrum við að bjóða lausn-
ir til viskiptavina okkar.
Um er að ræða vinnu við markaðsfærslu á
Novell-netstýrikerfum og sölu á heildartölvu-
lausnum fyrir fyrirtæki og stofnanir.
Við óskum eftir:
Duglegum og framsýnum einstaklingi,
sem hefur
- áhuga á markaðsfærslu á netstýrikerfum,
- gott vald á tölvunotkun,
- góða framkomu,
- fljótur að tileinka sér nýjungar.
Markaðsfulltrúa CONCORDE
viðskiptahugbúnaðar
Tölvudeild
Við leitum að viðskiptafræðingi, hagfræð-
ingi, rekstrarfræðingi eða einstaklingi með
sambærilega menntun. Reynsla af bókhaldi
og rekstri fyrirtækja nauðsynleg.
Viðkomandi þarf að geta unnið sjálfstætt og
í samvinnu með öðrum við að bjóða nútíma
lausnir í upplýsingakerfum fyrirtækja.
Um er að ræða vinnu við markaðsfærslu á
CONCORDE upplýsingakerfum og sölu á
heildarlausnum í tölvuvæðingu fyrir fyrirtæki
og stofnanir.
Við óskum eftir:
Duglegum og framsýnum einstaklingi,
sem hefur
- áhuga á markaðsfærslu á hugbúnaði,
- gott vald á tölvunotkun,
- góða framkomu,
- fljótur að tileinka sér nýjungar.
Hugbúnaðarmanns
netþjónustu
Þjónustudeild
Við leitum að tölvunarfræðingi, kerfisfræð-
ingi, verk- og/eða tæknifræðingi eða ein-
staklingi með sambærilega menntun.
Æskilegt er að viðkomandi hafi góða starfs-
reynslu á Novell-netuppsetningum.
Við óskum eftir:
Duglegum og framsýnum einstaklingi,
sem hefur
- áhuga á netstýrikerfum,
- góða frámkomu,
- fljótur að tileinka sér nýjungar.
Tæknival hf. er 11 ára gamalt fyrirtæki með
64 starfsmenn og veltan á síðasta ári var
750 milljónir króna. Fyrirtækið býður við-
skiptavinum sínum heildarlausnir í iðnaði,
sjávarútvegi og verslunarrekstri.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
á skrifstofunni frá kl. 9-15.
Fyrirspurnum verður einungis svarað hjá
Ráðningarþjónustu Lögþings.
Farið verður með allar umsóknir sem
trúnaðarmál.
Umsóknarfrestur er til og með 12. apríl.
RÁÐNINGARÞJÓNUSTA
LÖOMiMdB
Guðný Harðardóttir
Skipholti 50c, 2. hæð, 105 Reykjavík
Sími 91-628488
Sauðárkróki
Óskum eftir að ráða röntgentækni til sumar-
afleysingastarfa í tvo mánuði í sumar,
á tímabilinu júni ti! ágúst.
Um er að ræða 100% starf.
Einnig óskum við eftir hjúkrunarfræðingum
eða 3. árs hjúkrunarnemum til starfa í júlí
og ágúst.
Allar nánari upplýsingar veitir hjúkrunrfor-
stjóri á staðnum og í síma 95-35270.
ffl
Leikskólar Reykjavíkurborgar
Leikskólastjórar
Stöður leikskólastjóra við leikskólana Kletta-
borg v/Dyrhamra og Garðaborg v/Bústaða-
veg eru lausar til umsóknar.
Umsóknarfrestur er til 10. apríl nk.
Fóstrumenntun áskilin.
Nánari upplýsingar gefa Bergur Felixson,
framkvæmdastjóri, og Margrét Vallý Jóhanns-
dóttir, deildarstjóri, í síma 27277.
Dagvist barna,
Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími 27277.
IÞROTTA- OG
TÓMSTUNDARAD
Vesturbæjarlaug
Forstöðumaður
Starf forstöðumanns við Vesturbæjarlaug er
laust til umsóknar.
Forstöðumaður annast daglegan rekstur
laugarinnar svo sem starfsmannahald, fjár-
mál, innkaup o.fl.
Æskilegt er að umsækjendur hafi menntun
á sviði stjórnunar eða tæknikunnáttu og
hafi reynslu af stjórnunarstörfum.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi borgar-
starfsmanna.
Nánari uplýsingar um starfið veitir Snorri
Jóelsson, starfsmannastjóri, í síma 622215.
Umsóknarfrestur er til 14. apríl nk.
Umsóknum skal skilað til starfsmannastjóra
íþrótta- og tómstundaráðs, Fríkirkjuvegi 11,
á eyðublöðum sem þar fást.
„Au pair“
- Suður-Frakkland
Rösk stúlka með bílpróf óskast sem
„au pair“ til Suður-Frakklands.
Upplýsingar gefur Aðalheiður í síma 620692.
VINNUEFTIRLIT RÍKISINS
Administration of occupational safety and health
Bíldshöföa 16 • Pósthólf 12220 ■ 132 Reykjavík
Deildarverk-
fræðingur
(Efnaverkfræðingur)
Laus er til umsóknar staða deildarverkfræð-
ings (efnaverkfræðings) við Vinnueftirlit ríkis-
ins. Starfið er m.a. fólgið í því að fjalla um
öryggisþætti vegna geymslu, flutnings og
notkunar eiturefna og hættulegra efna á
vinnustöðum og áætlanir um ný iðnfyrirtæki
á sviði stóriðju og efnaiðnaðar m.t.t. öryggis
og hollustuhátta á vinnustöðum.
Gert er ráð fyrir að viðkomandi fái sérstaka
starfsþjálfun á vegum stofnunarinnar.
Laun skv. kjarasamningi ríkisstarfsmanna.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Víðir
Kristjánsson, deildarstjóri, í síma 91 -672500.
Umsóknir, með upplýsingum um menntun
og fyrri störf, skilist til Vinnueftirlits ríkisins,
Bíldshöfða 16, Reykjavík, fyrir 23. apríl nk.
Fiskvinnsla
Verkstjóri
Óskum að ráða verkstjóra til starfa hjá
traustu fiskvinnslu- og útgerðarfyrirtæki á
Norðurlandi.
Við leitum að kraftmiklum, drífandi stjórn-
anda, sem er sjálfstæður og getur axlað
ábyrgð og byggt upp traust. Þekking á fisk-
vinnslu nauðsynleg. Reynsla af verkstjórn
æskileg. Framtíðarstarf fyrir duglegan og
metnaðargjarnan mann.
Nánari upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson.
Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til
Ráðningarþjónustu Hagvangs hfmerktar:
„Verkstjóri 098“, fyrir 9. apríl nk.
Hagvangur Y if
Skeifunni 19 Reykjavík | Sími 813666 Róðningarþjónusta Rekstrarróðgjöf Skoðanakannanir
Eitt ár sem au pair
í Bandaríkjunum
er ógleymanleg
reynsla.
Síðastliðin 4 ár hafa á fimmta hundrað
íslensk ungmenni íarið sem au pair á
okkar vegum til Bandaríkjanna.
Og ekki að ástæðulausu þar sem
engin önnur samtök bjóða eins góða,
örugga og ódýra þjónustu.
Allarferðirfríar, ekki aðeins til og
frá Bandaríkjunum heldur einnig
innan þeirra. Auk þess greiðir gistifjöl-
skyldan fyrir námskeið.
Ef þú ert á aldrinum 18-25 ára og
langar til Bandaríkjanna sem au pair
hafðu þá samband eða líttu inn og við
veitum þér allar nánari upplýsingar.
Við erum að bóka í brottfarir í maí,
júní, júlí og ágúst.
AuPAIR
VISTASKIPT & NÁM :
PÓRSGATA 26 101 REYKJAVÍK SÍMI91-62 23 62 FAX91-629662
SAMSTARFSFYRÍRTÆKIAUPAIR HOMESTAY USA SEM TILHEYRIR SAMTÖKUNUM
WORLD LEARNING INC. STOFNUDARIÐ 1932
UNDIR NAFNINU THE U.S EXPERIMENTININTERNATIONAL LIVING
ÞAU ERU EIN AF ELSTU SAMTÖKUM A SVIDIALÞJÓDA MENNINGARSAMSKIPTA
IHEIMINUM SEM EKKIERU REKINIHAGNADARSKYNI
OG STARFA MED LEYFI BANDAfílSKRA STJÓRNVALDA.