Morgunblaðið - 31.03.1994, Blaðsíða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MARZ 1994
Seltj arnarnesbær
festir kaup á Gróttu
HALLDÓR Blöndal, samgöngu- og landbúnaðarráðherra, hefur
lagt fram frumvarp til laga um að ríkið selji Setjarnarneskaup-
stað Gróttu og þau mannvirki sem ríkið á þar önnur en vitann.
Er þetta gert í til efni af 20 ára kaupstaðarafmæli bæjarins þann
9. apríl næstkomandi. Sigurgeir Sigurðsson, bæjarstjóri, segir
að bæjarstjórnin hafi lengi haft áhuga á að eignast eyjuna. „Grótta
hefur verið tákn Seltjarnarness í gengum aldirnar og við viljum
að hún sé alveg undir okkar stjórn,“ segir hann. Kaupverð hefur
ekki enn verið ákveðið.
Grótta er 3,3 hektarar að stærð
og á henni er eitt íbúðarhús, hlaða
og viti, sem ekki verður seldur.
Hingað til hefur eyjan verið undir
stjórn Vita- og hafnamálastofnun-
ar sem mun halda áfram rekstri
vitans. Fasteignamat þessara
eigna nemur 1,5 milljón króna.
Sigurgeir segist ekki búast við
því að kaupverðið verði hátt.
Grótta verði alltaf friðað útivistar-
svæði og væri þess vegna ekki
verðmæti sem gengi kaupum og
sölum. „Hún er verðmæt fyrir
okkur Seltirninga og höfuðborg-
arbúa til að njóta þess að vera
þar,“ segir hann.
Sigurgeir segir að Seltjarnar-
neskaupstaður muni virða allar
friðunarreglur sem settar hafa
verið en bærinn væri af fara af
stað með samkeppni á deiliskipu-
lagi á útivistarsvæðunum vestan
Nesstofu og yrði Grótta tekin með
því svæði. Hugmyndin væri að
efla svæðið sem útivistarsvæði.
Dreki stígur dans í
uppfærslu á óper-
unni Töfraflautunni
ÞRIGGJA manna dreki spilar stóra rullu í uppsetnmgu Nýja
tónlistarskólans á Töfraflautunni sem nú er sýnd í Tjarnar-
bíói.
Sunna María Magnúsdóttir
hannaði drekann sem búinn er
til úr pappírsmassa og tafti. Hún
segir að drekinn sé á sviðinu í
byijun verksins en hann sé svo
drepinn innan fimm mínútna.
Síðan lifnar hann við og stígur
dans síðar í óperunni. Sunna
María sá einnig um að velja
búningana í sýninguna sem eru
fengnir hjá Þjóðleikhúsinu og
íslensku óperunni.
Uppsetning óperunnar er á
margan hátt óvenjuleg. Óperan
er sungin á þýsku en inn á milli
kemur sögumaður og segir sög-
una á íslensku.
Ragnar Bjömsson skólastjóri
Nýja tónlistarskólans segir sýn-
ingarnar hafa gengið vel hingað
til. Næsta sýning verður þriðju-
daginn 5. apríl en síðasta sýning
föstudaginn 8. apríl. Sýnt er í
Tjarnarbíói og eru miðar seldir
þar.
R-listinn útfærir stefnuyfirlýsingu
„Borgarbúar fá að
leggja í púkkiðu
ÍTARLEGRI útfærsla á hugmyndum R-listans mun líta dagsins ljós
þegar nær dregur kosningum, að
dóttur, borgarstjóraefnis.
Reykjavíkurlistinn hélt fyrir
nokkru fund þar sem stefnuyfirlýs-
ing listans var kynnt, en ítarlegri
útfærsla verður lögð fram þegar
nær dregur og þegar hugur borg-
arbúa sjálfra hefur verið kannaður.
„Við munum á næstu vikum halda
sögn Ingibjargar Sólrúnar Gísla-
fundi með íbúum Reykjavíkur og á
grundvelli þeirra funda ætlum við
að útfæra stefnuna. Núna erum við
fyrst og fremst að safna saman
hugmyndum frá borgarbúum sjálf-
um. Þeir fá vissulega að leggja í
púkkið, ef svo má að orði komast.“
Morgunblaðið/Sverrir
Stílverðlaun Þórbergs Þórðarsonar
ÞORSTEINN Gylfason heimspekingur hlaut stílverð- gáfu og frumleik í meðferð íslensks máls og geta
laun Þórbergs Þórðarsonar sem veitt voru í þriðja þau hlotnast hverjum þeim sem vekur athygli fyrir
sinn í gær. Að þeim standa Styrktarsjóður Þórbergs góðan stíl, hvort sem viðkomandi er skáld, bíaðamað-
Þórðarsonar og Margrétar Jónsdóttur, Mál og menn- ur, stjómmálamaður eða fæst við ritstörf af öðrum
ing og menntamálaráðuneytið og nemur féð 200.000 ástæðum, eins og segir í reglum um þau. Mennta-
krónum. Verðlaunin eru veitt fyrir óvenjulega stíl- málaráðherra, Ólafur G. Einarsson, veitti verðlaunin.
Geir H. Haarde um viðskipti við Bandaríkin
Rétt að leita eftír frí-
verslunarsamningi
Vandamálið að hagsmunir Bandaríkjanna eru hverfandi
GEIR H. Haarde, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokks, segist
vera sammála þeim meginniðurstöðum starfshóps embættismanna
fimm ráðuneyta að Island eigi að leita eftir fríverslunarsamningi
við Bandaríkin eða aðildar að Fríverslunarsamningi Norður-
Ameríku, NAFTA. Vandamálið sé hins vegar það að hagsmunir
Bandaríkjanna af slíkum samningi við ísland séu hverfandi.
Ekki nýtt mál
„Ég er sammála því að það eigi
að kanna þennan möguleika til
þrautar. Ég tel hins vegar ólíklegt
að það verði litið á það sem for-
gangsverkefni að taka okkur inn
í NAFTA. Þeir sem þar eru fyrir
líta væntanlega frekar til Suður-
Ameríku sem sækjast eftir því að
koma þama inn. Vandamálið hefur
alltaf verið að hagsmunir Banda-
ríkjamanna af svona samningi við
okkur eru hverfandi þannig að
þeir hafa ekki séð sér hag í að
taka upp viðræður um þetta mál.
Ég tel engu að síður að við eigum
að láta á það reyna, og láta það
jafnframt koma í ljós hvaða hags-
munir geta verið í húfi fyrir okk-
ur, og því fyrr því betra,“ sagði
Geir H. Haarde.
Hann benti á að þetta mál væri
ekki nýtt af nálinni. Það hefði kom-
ið upp á Alþingi oftar en einu sinni
og nokkrum sinnum tekið upp í
viðræðum við Bandaríkjamenn,
meðal annars í opinberri heimsókn
Þorsteins Pálssonar þáverandi for-
sætisráðherra til Bandaríkjanna
árið 1988. „En ég er feginn því
að þetta álit er komið fram og ég
er sammála öllum meginniðurstöð-
um þess,“ sagði Geir.
í skýrslu starfshópsins kemur
fram að nauðsynlegt sé að afstaða
íslands til fríverslunarsamnings
við Bandaríkin liggi fyrir í næsta
mánuði þar sem viðskiptafulltrúi
Bandaríkjanna eigi fyrir 1. maí að
skila tillögum til Bandaríkjaforseta
um það hvaða lönd sé æskilegt að
gera fríverslunarsamninga við.
Geir H. Háarde sagði, að sér væri
ekki fullljóst hvað lægi á bak við
þá dagsetningu í raun og veru, en
engu að síður væru ástæða til að
hraða málinu.
Fingur græddir
á 17 ára stúlku
Hrólfur Sveinsson
Draumur á Laugardagsnótt
í Morgunblaðsgrein 30.3.
kveðst Þórunn Þórsdóttir blaða-
maður hafa eftir mér tiltekin um-
mæii um flutning bundins máls á
leiksviði. í smágrein í sama blaði
29.3. segir Helgi Hálfdanarson,
að sama kona hafi sótt þau sömu
ummæli í grein eftir hann í Mál-
fregnum 1989, og þó ekki komið
þeim nógu vel til skila.
Um þetta hef ég það eitt að
segja, að Þórunni hlýtur að hafa
dreymt þetta viðtal við mig og
ruglað saman draumnum og grein
Helga, því þá konu hef ég hvorki
heyrt né séð, hvað þá ég hafi nokk-
urn tíma við hana sagt aukatekið
orð. Enda er það föst regla mín
að tala aldrei við blaðamenn. Þar
fer ég einmitt að ráðum frænda
míns og fermingarbróður, Helga
Hálfdanarsonar, sem kallar það
óðs manns æði að sleppa stöku
orði upp í eyrun á blaðamanni, því
enda þótt hann sé látinn sveija
og sárt við leggja að hafa ekkert
eftir manni, sé hann vís til að
svíkja það, og í þokkabót muni
hann ævinlega rangfæra það sem
hann hafí eftir manni, þó ekki sé
fleira við hann sagt en „Góðan
daginn!". Fyrir þessu kveðst Helgi
hafa bitra reynslu og þess vegna
leggja á flótta, ef hann sjái hilla
undir blaðamann.
Ég hef haft vit á að taka fullt
mark á þessum hyggilegu ráðum
Helga vinar míns. Ef mér skyldi
einhvern tíma þykja þörf á að
segja einhverjum eitthvað, þá vil
ég segja það sjálfur, en ekki láta
aðra hafa það eftir mér.
Og þó veit ég ekki nema á mig
rynnu tvær grímur, ef ég ætti
þess kost að hitta Þórunni Þórs-
dóttur í draumi, og þá fremur
mínum draumi en hennar.
LÆKNAR á Borgarspítala græddu tvo fingur á 17 ára stúlku í fyrri-
nótt, en stúlkan fór með hægri höndina í hníf afhausunarvélar í
fiskvinnslufyrirtækinu Nesfiski í Garði á þriðjudag. Hún missti fram-
an af baugfingri og löngutöng, auk þess sem vísifingur skaddaðist.
í gær var talið að aðgerðin hefði heppnast með ágætum.
Slysið varð um kl. 13.50 á þriðju-
dag. Stúlkan var að vinna við vélina
þegar hún lenti með hægri höndina
í hníf hennar. Stúlkan var flutt á
sjúkrahúsið í Keflavík og þaðan á
Borgarspítalann í Reykjavík.
Fingurnir fundust
Samkvæmt upplýsingum lögregl-
unnar í Keflavík var hringt þangað
frá Nesfiski um kl. 17.50 og til-
kynnt að fingurnir, sem stúlkan
missti, hefðu fundist þar og væru
geymdir í ís. Lögreglan sótti fíng-
urna og ók með þá áleiðis til Reykja-
víkur, en lögreglan í Reykjavík tók
við sendingunni á leiðinni og kom
henni á Borgarspítalann.
Læknar á Borgarspítalanum, und-
ir forystu Magnúsar Páls Albertsson-
ar, sérfræðings í aðgerðum af þessu
tagi, unnu í alla fyrrinótt við að
græða finguma á stúlkuna. í gær
var talið, að aðgerðin hefði tekist
vel, en tíminn mun endanlega leiða
í ljós hvemig stúlkunni reiðir af.
----------------------------
■ HJA Jógastöðinni lleiinsljósi
verður í apríl gestakennarinn Daya-
shakti (Sandra Scherer). Hún er
kennari frá Kripalumiðstöðinni í
Massachusetts. Dayashakti' verður
með helgamámskeið, Frá sársauka
til gleði, helgina 22.-24. apríl. 15.
apríl verður kvöldnámskeið sem kall-
ast Öldugangur. Helgina 16. og 17.
apríl verður einstaklingsþjálfun fyrir
þá sem vilja læra að vinna með þá
tækni sem Dayashakti hefur tileinkað
sér.