Morgunblaðið - 31.03.1994, Qupperneq 20
20
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MARZ 1994
LJÓS-
BROT
LIÐINS
TÍMA
Ullarþvottur var
erfiðisvinna eins
og sjá má á þess-
ari mynd sem
Vigfús Sigur-
geirsson tók í
Mývatnssveit ár-
ið 1938. Margar
myndir Vigfúsar
geyma heimild
um vinnubrögð til
sjávar og sveita
sem nú eru löngu
aflögð.
. .
; v ?
Rekja má þróun
byggðar á Akur-
eyri í myndum
Vigfúsar. Fyrir
miðja öldina var
stundaður hey-
skapurþar sem
nú er byggð. Til
vinstri standa
hús Mennta-
skólans á Akur-
eyri og til hægri
við miðja mynd
sést Akureyrar-
kirkja.
Vigfús Sigurgeirsson
Ijósmyndari (1900-
1984).
eftir Guðna Einarsson
Ljósmyndir Vigfúsar Sigurgeirs-
sonar eru merkileg heimild um
liðinn tíma, auk þess sem þær
eru sígild veisla fyrir augað.
Laugardaginn fyrir páska verð-
ur opnuð sýning á ljósmyndum
Vigfúsar í Listasafninu á Akureyri og stendur
hún til 3. maí næstkomandi. Myndirnar eru
einkum frá Akureyri og öðrum stöðum norð-
anlands.
Vigfús nam ljósmyndun hjá Hallgrími Ein-
arssyni ljósmyndara á Akureyri, en hann er
þekktur fyrir útimyndir sínar frá Akureyri
og nágrenni. Að námi loknu opnaði Vigfús
ljósmyndastofu á Akureyri og starfrækti hana
til ársins 1935. Þá hélt hann til Þýskalands
og dvaldi þar á annað ár við frekara nám í
ljósmyndun og kvikmyndatækni. Á Þýska-
landsárunum hélt Vigfús meðal annars sýn-
ingu í Hamborg sem vakti mikla athygli og
var mikið fjallað um „ljósmyndasýninguna frá
landi Eddu“, eins og sagði í fyrirsögnum.
Myndum Vigfúsar var slegið upp í þarlendum
blöðum og fengu mikið rými. Vigfús dvaldist
einnig vestanhafs í tengslum við heimssýning-
una 1940.
Myndasmiður forsetans
Þegar heim kom frá Þýskalandi árið 1936
settist Vigfús að í Reykjavík og opnaði þar
ljósmyndastofu sem enn er starfandi. Sonur
Vigfúsar og lærisveinn, Gunnar Geir, rekur
stofuna í dag. Gunnar hefur unnið margar
myndir föður síns og haldið ljósmyndasýning-
ar um landið. Vigfús var ljósmyndari forseta
íslands allt frá stofnun forsetaembættisins
1944. Á sýningunni nú eru nokkrar myndir
sem Vigfús tók í opinberum heimsóknum
Sveins Björnssonar forseta til Norðurlands,
meðal annars Akureyrar og Húsavíkur. Auk
þess að festa opinberar athafnir, veislur og
móttökur á filmu tók Vigfús margar myndir
af daglegu lífi alþýðunnar, atvinnuvegum og
lífsbaráttu.
Ometanlegar heimildir
Vigfús var ötull ljósmyndari og ferðaðist
víða í þeim erindum. Hann var aldamótamað-
ur, fæddur á þrettándanum árið 1900, og því
á besta aldri þegar þau aldahvörf urðu á Is-
Iandi sem færðu ísland frá miðöldum inn í
nútímann.
Atvinnuljósmyndarinn Vigfús varð aldrei
svo upptekinn af rekstrarlegri hlið ljósmynd-
unar sinnar að hann tapaði næminu fyrir tö-
frum augnabliksins. Hann var sívakandi fyrir
myndefnum og ódeigur við að setja upp þrífót-