Morgunblaðið - 31.03.1994, Qupperneq 38
38
MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LIF FIMMTUDAGUR 31. MARZ 1994
PÖNT UNA RSEÐILL
Vaxtahormónar eru
NAFN
KENNITALA
HEIMILISFANG
PÓSTNÚMER STAÐUR
Milljónatugir greiddir
í forfallagjöld hvort sem menn
vilja kaupa ferðatryggingu eða ekki
SUMAR ferðaskrifstofur skyida farþega sína til að greiða forfalla-
gjald eða kaupa forfallatryggingu fyrir hópferðir. Eftir því sem Dag-
legt líf kemst næst er forfallagjald hið sama hjá öllum skrifstofum sem
innheimta það, 1.200 kr. fyrir fullorðna og 600 kr. fyrir börn. Hvergi
könnuðust menn við að verð hefði verið samræmt og sögðu það tilvilj-
un ef allir innheimtu sömu upphæð.
Forfallagjald eða trygging tryggir
bætur ef maður kemst ekki í fyrir-
hugaða ferð vegna dauða, líkams-
meiðinga vegna slyss, veikinda,
þungunar, barnsburðar eða sótt-
kvíar. Einnig ef ættingi hans eða
náinn viðskiptafélagi deyr, veikist
eða hlýtur líkamsmeiðsl af völdum
slyss. Þetta þarf hæfur, starfandi
læknir að votta.
Erfítt er að áætla fjölda þeirra sem
fer í hópferðir. Miðað við að 5. hver
íslendingur fari í slíka ferð eiga um
50 þús. manns í hlut. Ef gert er ráð
fyrir að helmingur sé börn, taka
ferðaskrifstofur við u.þ.b. 45 miiljón
kr. í formi forfallagjalda eða forfaila-
trygginga. ítrekað skal að hér er um
lauslega ágiskun að ræða. Þó ekki
færu nema 20 þús. íslendingar í
hópferðir og helmingur böm, væri
upphæðin eigi að síður um 18 millj.
kr._
í sumum tilfellum hafa ferðaskrif-
stofur milligöngu um sölu á forfalla-
tryggingum fyrir tryggingarfélög,
en í öðrum taka þær á sig áhættuna.
í einhveijum tilfellum munu ferða-
skrifstofur vera baktryggðar vegna
þessa. Sjálfsábyrgð hvers farþega
er 1.200-1.800 kr. eftir ferðaskrif-
stofum, skv. lauslegri athugun Dag-
legs lífs.
Neytendasamtök vilja álit
Samkeppnisstofnunar
Nokkur umfjöllun hefur átt sér
stað um réttmæti þess að ferðaskrif-
stofur skyldi farþega sína til að
tryggja sig gegn forföllum. Fyrir
rúmu ári greindi Morgunblaðið frá
því að Verðlagsstofnun teldi að
ferðaskrifstofur hefðu haft ólöglegt
samráð um upphæð forfallagjalda
og afslátt af þeim, en handhafar
Gullkorta, Farkorta og Atlaskorta fá
oftast 50% afslátt af forfallagjaldi.
Þá kom fram það álit stofnunarinnar
að ekki væri hægt að skylda fólk til
að greiða forfallagjald. Samkeppnis-
ráð úrskurðaði síðar á árinu að ekki
þætti sannað að samráð hefði verið
haft um upphæð forfallagjalds.
Nú hyggjast Neytendasamtökin fá
álit Samkeppnisstofnunar um málið.
Sigríður Arnardóttir lögfr. þeirra
segir það sjálfsagða kröfu hvers og
eins að ákveða hvort forfallatrygging
er keypt eða ekki. „Við leggjum
áherslu á að starfsfólk á ferðaskrif-
stofum kynni fólki tryggingamögu-
leika en þvingi farþega ekki til að
taka tryggingar. Samkeppnislög
gera ráð fyrir að óheimilt sé að að-
hafast nokkuð sem er óhæfilegt
gagnvart hagsmunum neytenda.
Með því að skylda fólk til að kaupa
forfallatryggingu teljum við að ferða-
skrifstofur brjóti gegn 20. grein sam-
keppnislaga. Neytendasamtökin
munu óska eftir áliti Samkeppnis-
stofnunar á því hvort svo er eða
ekki.“
Þær taka forfallagjald
Þær ferðaskrifstofur sem skylda
farþega til að greiða forfallagjald eru
Samvinnuferðir-Landsýn, Urval-
Útsýn, Ferðaskrifstofa Reykjavík-
ur og Alís. Hjá þremur síðastnefndu
kom fram að forfallagjald væri að-
Margir kaupa sumarleyfisferð með löngum fyrirvara og sumir kjósa
forfallatryggingu þess vegna. Spurning er hins vegar hversu réttlátt
er að ferðaskrifstofur skyldi farþega sína til að kaupa slika tryggingn.
eins innheimt þegar um leiguflug
væri að ræða. Hjá Heimsferðum
fengust þær upplýsingar að forfalla-
gjaldi væri sjálflírafa bætt við þegar
ferð væri pöntuð, en mætti fella það
niður ef gerð væri athugasemd.
Hjá öðrum ferðaskrifstofum sem
haft var samband við, Ferðaskrif-
stofu Kjartans Helgasonar, Ratvís,
Ferðaskrifstofu Guðmundar Jónas-
sonar, Ferðabæ og Heimsklúbbi Ing-
ólfs, fengust þau svör að farþegum
væri greint frá möguleikum á trygg-
ingu, en þeim væri í sjálfs vald sett
hvort þeir keyptu forfallatryggingu
eða ekki. Geta má að í frumvarpi til
laga um alferðir er kveðið á um að
þannig eigi starfsfólk á ferðaskrif-
stofum einmitt að koma fram við
farþega áður en samningur um ferð-
ina er gerður.
VII ráða þessu sjálf
Ásta Bjamadóttir er ein þeirra sem
er ósátt við að hún skuli vera þvinguð
til að kaupa slíka tryggingu og segist
ítrekað hafa farið fram á að forfalla-
gjald yrði fellt niður á Portúgalsferð
sem hún keypti fyrir sig og ijölskyldu
sína hjá Úrval-útsýn. „Hefði mér ver-
ið boðin forfallatrygging hefði ég
keypt hana, en ég vil ráða því sjálf
hvort ég kaupi hana eða ekki. Ég hef
kvartað við Neytendasamtökin og er
ánægð með að þau skuli fara fram á
álit Samkeppnisstofnunar. Mér fínnst
brotið á sjálfsákvörðunarrétti mínum
og er ósátt við að ferðaskrifstofur
skuli vera með þessa þykjustu fyrir-
hyggju."
Takmörkuð trygging korthafa
Eurocard og Visa bjóða gullkort-
höfum forfallatryggingu, en hún
gildir aðeins í reglubundnu áætlun-
arflugi. Þá er sjálfsábyrgð um 7.200
kr. Kortafyrirtækin eru baktryggð
hjá Tryggingarmiðstöðinni og sagði
Erlendur Fjeldsteð þar á bæ, að s.l.
ár hefðu 73 manns fengið endur-
greiddan ferðakostnað vegna for-
fallatrygginga í gegnum kortafyrir-
tæki.
Hámarksendurgreiðsla til gull-
korthafa er að hans sögn 46.800
kr., þegar sjálfsábyrgð hefur verið
dregin frá. Farkort-og Atlaskorthaf-
ar fá að hámarki rúmar 37 þús. kr.
í endurgreiðslu, þegar búið er að
draga sjálfsábyrgð frá. Erlendur
sagði að endurgreiðsla væri ekki í
reiðufé, heldur væri upphæðin eign-
færð á kortareikninga. B
vaxandi vandamál innan ESB
nms~
NOTKUN ólöglegra hormóna er álitlegur gróðavegur innan Evrópu-
sambandsins, ekki aðeins fyrir kjötframleiðendur, heldur einnig milli-
liði í kjötframleiðslunni, og virðast stjórnvöld víðast hvar illa í stakk
“búin tii að takast á við vandann, segir m.a. í grein í Tænk, málgagni
danska neytendaráðsins, sem krefst stóraukins eftirlits með efnanotk-
un í kjötframleiðslu og þungra viðurlaga við notkun ólöglegra efna.
Máli sínu til
stuðnings vitn-
ar blaðið m.a. í
umfjöllun fram-
kvæmdastjóm-
ar ESB, sem
kemst að þeirri
niðurstöðu að
lítils árangurs
sé að vænta í
baráttunni
gegn þessum
ólöglegu við-
skiptum. Fyrir
lögbrjótana séu
í húfí gífurlegir
fjárhagslegir
hagsmunir.
Sem dæmi um
auðfenginn
gróða er bent á
að nautakjöts-
framleiðandi
getur hækkað skilaverð til sín um
7-15 þúsund krónur fyrir hvert slát-
urdýr með ólöglegri hormónanotkun.
Heilsufarsleg áhrif
Neytendasamtök innan ESB hafa
á undanförnum árum hert baráttuna
gegn ólöglegri hormónanotkun, eink-
um sökum þess að enn er lítið vitað
um áhrif vaxtahvetjandi efna, s.s.
hormóna, á heilsu manna. Það er
ekki einungis umhyggja fyrir heilsu
fólks sem stuðlað hefur að því að
notkun vaxtahvetjandi efna og horm-
óna hefur verið bönnuð eða takmörk-
uð innan ESB heldur hefur offram-
Sem dæmi um auðfenginn gróða
er bent á að nautakjötsframleið-
andi getur hækkað skilaverð til
sín um 7-15 þúsund kr. fyrir
hvert sláturdýr með ólöglegri
hormónanotkun.
leiðsla á kjöti og
tilraunir til að
skera niður útgjöld
til landbúnaðar
einnig haft sitt að
segja.
Vöruþróun
Úrtaksmælingar
hafa leitt í ljós
minnkandi notkun
hormóna. Skv. nið-
urstöðum belgísku
neytendasamtak-
anna innihéldu 25%
kjötsýna ólöglega
hormóna árið 1989.
Árið 1990 var þetta
hlutfall komið niður
í 20% kjötsýna og
10% árið 1992.
Danska neytenda-
ráðið segir að þessar
niðurstöður gefí ekki tilefni til aukinn-
ar bjartsýni. Staðreyndin sé sú að
„vöruþróun" sé afar ör í „hormóna-
bransanum" og að mælingar séu yfir-
leitt skrefl á eftir henni. Nýjasta af-
urðin „beta agonistar" sé t.a.m. ekki
mælanleg sé inngjöf hætt aðeins
tveimur vikum fyrir slátrun. Þá sé
oft á tíðum erfitt að greina á milli
tilbúinna og náttúrulegra hormóna í
kjöti. „Beta agonistar" flokkist auk
þess ekki undir hormóna heldur sé
það vaxtahvetjandi efni, sem sé afar
hagkvæmt í notkun. Um 135 manns
hafa veikst af völdum þessa efnis á
Spáni. ■
JI
möppu
Kostir þess að fá þér „ Gerðu þaðgoti' möppu
fyrir uppskriftirnar þínar eru fleiri en einn:
• Þú hefur aila bæklinga Tilraunaeldhúss MS
á einum stað
• Mappan er falleg, handhæg og af hentugri stærð
fyrir alla bæklingana
• í möppunni eru grunnupplýsingar um mál,
vog og ýmis góð ráð
• Hún kostar aðeins 490 kr
Já takk!
□ Ég vil fá senda safnmöppu MS í póstkröfu
□ Ég óska eftir því að uppskrijtarbMingar MS
númer___________________ fylgi möppunni.
Utanáskriftin er: Tilraunaeldhús MS, Pósthólf10340, 130 Reykjavík.
Morgunblaðið/Emilia
Erlendu páskaeggin eru í gjafa-
öskjum og þetta Galaxy-egg kost-
ar til dæmis 1.147 krónur.
10% afsláttur
af páskaeggjum í F&A
Verslunin F&A við Fossháls veitir
10% afslátt af öllum páskaeggjum
síðustu daga fyrir páska.
„Þetta eru egg í mörgum stærðum
frá sælgerðisgerðinni Mónu, Cad-
bury, Rouwntee Mackintosh, Tobler-
one, Mars og Suchard svo nefnd séu
dæmi. Eggin eru mismunandi að
stærð og öll erlendu páskaeggin eru
í gjafaöskjum," segir Friðrik G. Frið-
riksson eigandi verslunarinnar.
Páskaegg nr. 8 frá Mónu kostar
til dæmis 805 kr. í F&A, en var rúm-
um 50 krónum dýrara í Bónus í
gær. Mónuegg nr. 4 kostar nú 483
kr., egg frá Mars kostar 376 kr. og
Galaxy-egg eins og sést á myndinni
er á 1.147 krónur.
Ilmskreytingar
í Country Húsinu
VERSLUNIN Country Ilúsið er
farin að flytja inn ilmvörur frá
bandaríska fyrirtækinu Aro-
matique.
Vörur þeirra eru seldar í yfir 5000
verslunum og er sérstakur ilmur fyr-
ir hveija árstíð. Fyrstu tvær ilmlín-
umar eru komnar í verslunina og
auk ilmskreytinga eru til ilmkerti,
'tkfá1 'og úði í sömu línu. ■
TOYOTA 4
RUNNER 1988
SR5 V6 EFI,
5 g, rauður, m/öllu, ný 31" dekk,
álfelgur, ek. 61 þ. km. skoðaður
sölu. UpplOÍ S. 91-32117.