Morgunblaðið - 31.03.1994, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MARZ 1994
43
Reuter
Sprenging í París
SLÖKKVILIÐSMENN kanna brak bifreiðar eftir sprengingu sem varð í verksmiðju í Courbevoie, einu
af úthverfum Parísar, í gær. Einn fórst og að minnsta kosti 60 manns slösuðust, nokkur hús í grennd-
inni skemmdust. Verksmiðjan gereyðilagðist en í henni voru framleidd hitunar- og loftkælingartæki.
Orsök sprengingarinnar mun hafa verið gasleki.
Umfjöllun fjölmiðla um Whitewater gagnrýnd
Hillary Clinton
varin í auglýs-
ingu vina sinna
Washington. Reuter.
NÆR eitt hundrað stuðningsmenn Hillary Rodham Clinton, forset-
afrúar í Bandaríkjunum, birtu á þriðjudag auglýsingu í The New
York Times þar sem þeir lýsa yfir stuðningi við hana og mælast til
þess að fjölmiðlar velti sér ekki upp úr Whitewater-málinu svokall-
aða. Vikuritið Newsweek hefur ákveðið að kanna sannleiksgildi
greinar sem ritið birti um forsetafrúna og hyggst biðja hana afsökun-
ar ef ástæða þykir til.
Refsiaðgerðir kynnu að
verða óhjákvæmilegar
Tókýó, Hong Kong. Reuter.
WALTER Mondale, sendiherra Bandaríkjanna í Japan, sagði í gær að
Bandaríkjastjórn vildi ekki gripa til refsiaðgerða gegn Japönum en
kynni að neyðast til þess féllust þeir ekki á meiri tilslakanir í deilunni
um opnun markaða.
Mondale sagði að Bandaríkja-
stjórn gæti ekki sætt sig við óbreytt
ástand í viðskiptum ríkjanna. Banda-
ríski markaðurinn væri opinn fyrir
innflutningi frá Japan en japanski
markaðurinn lokaður.
Daginn áður hafði Mickey Kantor,
viðskiptafulltrúi Bandaríkjanna,
hafnað nýjasta tilboði Japansstjórnar
og sagt að það gæfi ekki tilefni til
að hefja samningaviðræður um lausn
deilunnar að nýju.
Yfirlýsing Kantors leiddi til mikill-
ar sölu á dollurum í Tókýó og verð-
lækkun varð á hlutabréfamörkuðum.
Dollarinn hækkaði þó aftur í verði
vegna mikilla kaupa líftryggingar-
fyrirtækja og íhlutunar seðlabanka
Japans.
Mondale sagði að sá hluti tilboðs-
ins sem fjallaði um afnám viðskipta-
hindrana væri of loðinn. Japanir
þyrftu einnig að efna loforð sitt um
að örva efnahag sinn til að stuðla
að auknum innflutningi. Sendiherr-
ann sagði að ekkert í tilboðinu væri
til þess fallið að auka innflutning
Japana.
Margir hafa gagnrýnt banda-
ríska fjölmiðla fyrir að gera of mik-
ið úr Whitewater-málinu og fréttum
um að Hillary Clinton hafi hagnast
um 100.000 dali, jafnvirði rúmra 7
milljóna króna, á spákaupmennsku
á hrávörumarkaðinum fyrir 16
árum. í auglýsingunni í The New
York Times, sem kostaði jafnvirði
þriggja milljóna króna, eru fjölmiðl-
arnir sakaðir um að gera of mikið
úr Whitewater-málinu til að klekkja
á forsetafrúnni á sama tíma og hún
beiti sér fyrir mikilvægum breyting-
um á heilbrigðiskerfinu.
Margir þeirra sem undirrituðu
auglýsinguna eru í Demókrata-
flokknum, en ekki allir. Nokkrir
þeirra segja framtakið ekki af póli-
tískum toga, heldur hafi ætlunin
aðeins verið að skora á fjölmiðlana
að sýna forsetafrúnni sanngirni. Á
meðal þeirra sem undirrituðu aug-
lýsinguna eru leikkonan Joanne
Woodward, óperusöngkonan Mari-
lyn Horne, leikarinn Tony Randall
og Franklyn D. Roosevelt, barna-
barn forsetans fyrrverandi.
Ann McDaniel, yfirmaður frétta-
ritara Newsweek, sagði að verið
væri að athuga sannleiksgildi grein-
ar um forsetafrúna sem birt var í
nýjasta hefti ritsins. Þar er haft
eftir Marvin Chirelstein, lögfræð-
ingi Clinton-hjónanna, í óbeinni
ræðu að Hillary Clinton hafi „feng-
ið skjótfenginn gróða með kunn-
ingjasamningum í nautgripavið-
skiptum". Chirelstein neitar því að
hafa notað þessi orð og segist ekk-
ert vita um viðskipti hennar á hrá-
vörumarkaðinum. Hann segir einn-
ig að blaðamaðurinn hafi haft rangt
eftir honum um fjárhæð þá sem
Clinton-hjónin töpuðu á fjárfestingu
sinni í Whitewater-fyrirtækinu í
Arkansas.
Ann McDaniel viðurkenndi að
Chirelstein hefði ekki notað orðin
„skjótfenginn gróði í kunningja-
samningum“ en annað væri rétt
haft eftir lögfræðingnum. Hún
sagði að misskilningur hefði átt sér
stað milli blaðamannsins og Chirel-
steins og að málið yrði athugað.
Ef ástæða þætti til yrði birt afsök-
unarbeiðni í Newsweek, annaðhvort
til Hillary Clinton eða Chirelsteins.
kleift að eignast þá píslarvotta og
áróðursstöðu sem þeir þarfnast til
að geta lifað af og valdið vandræð-
um.
Burðarásar lýðræðis
Sé hugað að því sem jákvætt er
má minna á að í S-Afríku er margt
sem er nauðsynlegt til að treysta
lýðræðið í framtíðinni. Þar eru há-
skólar á heimsmælikvarða, sam-
göngu- og fjarskiptakerfi er með
ágætum, kirkja og æðri dómstólar
njóta virðingar, þing sem að vísu
ber merki kynþáttamismununar en
á sér gamlar hefðir, öflugt efnahag
og viðskiptalíf, háþróaðir fjölmiðlar
og velþjálfað embættiskerfi þótt það
hafi reyndar verið ein af undirstöð-
um kynþáttamisréttisins.
F'yrir skömmu var höfundur þess-
arar greinar í Úkraínu og andstætt
því sem hér var lýst kom hann ekki
auga á neitt af þessu tagi sem gæti
treyst grundvöl! lýðræðis í burðarl-
iðnum. Úkraínumenn eru ein af
stærstu þjóðum Evrópu en í öllu
embættismannaliðinu voru um
10.000 manns. í hernum var ein
milljón manna sem staðfesti að
stjórnunaraðferðin hafði árum sam-
an einfaldlega verið þvingun. Auk
þess eru frjáls félagasamtök sárafá,
þau sem starfa eru venjulega komin
á legg fyrir tilstuðlan bandaríska
auðkýfingsins George Soros. í
S-Afríku er hins vegar aragrúi slíkra
samtaka, sum fást við lestrar-
kennslu, önnur útvega húsnæði eða
vinnu, sinna mannréttindum, efla
fyrirtækjarekstur svartra og fjöl-
margt annað.
Stofnanir með rætur í vestrænni
menningu eru nægilega sterkar í
S-Afríku til að verða burðarásar lýð-
ræðis í allra næstu framtlð. Vandinn
verður meiri síðar. Lífskjaramunur
hefur farið vaxandi og þetta hefur
ekki eingöngu endurspeglað mun
kynþáttanna því að meðal svertingja
er einnig mikill munur innbyrðis.
Kosningarnar 1999
Það ætti ekki að vera erfitt að
spá um úrslit kosninganna í lok apríl;
ANC undir forystu Mandela ætti að
vinna nokkuð öruggan sigur. Kosn-
ingarnar sem raunverulega skipta
máli verða þær næstu á eftir sem
líklega verða haldnar 1999. Þegar
sá tími rennur upp verður annað-
hvort búið að fullnægja kröfum fjöld-
ans með viðunandi hætti svo að
hann verði sáttur — eða hann verður
í uppreisnarhug.
Verði síðari niðurstaðan ofan á
munu áróðursseggir vinstrisinnaðra
menntamanna sópa til sín fylgi al-
þýðufólks. Afleiðingin gæti orðið
fjöldaflótti hvítra úr landi, beitt yrði
öfgakenndum sósialískum aðferðum
við efnahagsstjórn sem myndu
leggja í rúst viðkvæman gróður
frjáls einkaframtaks í landinu. Fá-
tækt myndi auka enn straum at-
vinnulausra til stórborganna. Þegar
eru milljónir blátækra manna í fá-
tækrahverfum borganna sem flykkst
hafa þangað frá heimalöndum svert-
ingja sem stjórn hvítra reyndi að
láta líta út fyrir að væru sjálfstæð
og hálf-sjálfstæð svertingjaríki.
Þessi sýndarmennska hrundi fyrr í
mánuðinum þegar bráðabirgða-
nefnd, er deilir nú tímabundið völd-
um með ríkisstjórninni i Pretoriu,
nam sjálfstæði landanna úr gildi.
Framtíð S-Afríku byggist því á
kapphlaupi við tímann. Takist að
metta alla munna, útvega bláfátæk-
um húsnæði og rafmagn, finna störf
°g tryggja menntun mun framtíðin
verða tryggð. Umheimurinn getur
átt ríkan þátt í því hvernig til tekst
með því að leggja fram sinn skerf.
Við þetta bætist að eftir margra ára
þurrka hefur náttúran séð landinu
fyrir ótæpilegu regni, ávísun á ríku-
lega uppskeru — margbreytilegri
þjóð 40 milljóna manna gæti því
tekist að lifa saman í friði.
(Höfundur er fyrrverandi rit-
stjóri The Cape Times í Höfða-
borg).
Land stórbrotinnar
náttúrufegurðar
og vestur-íslenskra
vina og ættingja.
Beint leiguflug með Flugleiðum
til Winnipeg.
Verð l’rá
46.830 kr.
l liigMilLuskall.il iiinilaldii.
Brottför frá íslandi 29. júní
Brottför frá Winnipeg 15. júlí
^Gisting í öllum verð- og
gæðaflokkum.
^Flug og bíil í Kanada.
Hertz bílar af öllum stærðum
og gerðum á hagstæðum kjörum.
X ÚRVAL ÚTSÝN
F trjgging fyrir gæðum
Uigmúla 4: slmi 699 300, I Hafnarfiröi: slmi 65 23 66,
I Kijhn it. siml 11353, iið Riíöbúslorg d Akurevrl: sirni 2 50 00
■ og bjd umboðsmðnnum um laml alll.
- iYfaniloba - Ted Kristjánsson
\Iuseuni - Scagrams Wliiskey
DisliUen - Ilecla lslaml...
Iwgilegar dagleiðir í ógleymanlegri
ferð um íslendingaslóðir. Jafnframt
gefst góður tími til að njóta lífsins í
borgum og á baðströnd, hvíla sig.
spila golf og versla enda nokkrir
dagar til ráðstöfunar að eigin vild.
\ ei ú írá
ÍÍÓ.030kr.
IJuiiMillurskiillar iiinilulilii .
Verð m.v. tvo í herbergi.^
5.000 kr. afslállur lii ílnals-fólks.
Innlfalið í vcrði: Akstur til og frá flugvelli,
gisting í 16 nætur, rútuferð með ísl.
leiðsögn, 3 móttökur, aðgangur að söl'num,
grillvelsla, bálsferð með kvöldveröl og dansl.
QA!l%ASi®