Morgunblaðið - 31.03.1994, Page 45

Morgunblaðið - 31.03.1994, Page 45
44 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MARZ 1994 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MARZ 1994 45 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Ritstjórnarfulltrúi Árvakur h.f., Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Björn Vignir Sigurpálsson. Kringlan 1, 103 Reykjavík. Símar: Skiptiborð 691100. Auglýsingar: 691111. Áskriftir 691122. Áskriftargjald 1400 kr. með vsk. á mánuði innanlands. í lausasölu 125 kr. með vsk. eintakið. Þjáningin og kærleikurinn Amorgun, föstudaginn langa, rifja kristnir menn um víða veröld upp frásagnir guðspjallanna af píslargöngu Krists og krossdauða. Þá hljóma í eyrum meir en nítján hundruð ára hróp múgsins: Gefíð oss Barabbas lausan! Krossfestið Krist! í píslarsögunni er brugðið birtu á mannlegan breyskleika í flestum myndum hans. Læri- sveinar Krists eru þar fulltrúar alls þess, sem fyrir okkur sjálf getur komið í daglegu lífi: höfð- ingjarnir sem dæmdu hann, hermennimir sem pyntuðu hann, lýðurinn sem hrópaði Barabbas, Barabbas; alls staðar eru skírskotanir til þess sem finna má í samtíð okkar. Atburðirnir á Golgata hafa í vissum skilningi endurtekið sig með einhverjum hætti á öllum öldum mannkynssögunnar. Hver kynslóð hefur krossfest boðskap Krists um frið og kær- leika með sínum hætti. Ekki hefur öldin okkar, 20. öldin, öld menntunar, vísinda og þekkingar, af friði eða kær- leika að státa öðrum tímabilum fremur. Tvær heimsstyijaldir með þjáningum og ótímabærum dauða tugmilljóna fólks, ungra og aldinna, tala sínu máli þar um. Enn í dag eru háð staðbund- in stríð og ástunduð hryðjuverk víða í veröldinni. Menn kalla þjáningu yfir héruð og lönd í nafni þjóðernis- og trúarof- stækis, haturs og heiftar. Meira að segja í hjarta menningarálf- unnar Evrópu berast bræður á banaspjót slíks ofstækis annó 1994. Og þótt aðeins sé hálf öld frá „helförinni“, þegar millj- ónir gyðinga létu líf sín á altari kynþáttafordóma, bryddar víða á hliðstæðum fordómum, of- stæki og öfgum á líðandi stundu. í þeim efnum þarf hver þjóð, sem siðmenntuð vill telj- ast, að líta í eigin barm. Píslarganga og krossdauði Krists minna okkur óhjákvæmi- lega á þjáningar milljóna fólks víða um heim á okkar dögum. í þjáningu Krists, sem guð- spjöllin greina frá, felst meðal annars og ekki sízt ákall til þjóðanna, til mín og þín, um hjálp handa þeim sem þjást í dag. I þessu sambandi er hollt að minnast orða hans, sem á kross- inum dó fyrir alla menn: Það sem þér viljið að aðrir menn gjöri yður, það skuluð þér og þeim gjöra. Það sem þér gerið rriínum minnsta bróður, það þS&fíið.-fcér og mér gert. Og bað þarf ekki að leita langt yfir skammt að þjáningunni. En samtíminn speglar jafn- framt og ekkert síður það fagra og jákvæða í veröldinni, sem hvarvetna blasir einnig við, guði sé lof. Þar vegur þyngst kærleiksboðskapur kristninnar, sem alls staðar segir til sín, ekki sízt þegar óvæntir atburð- ir og ytri aðstæður kalla á sam- stöðu eða samhjálp. Kærleikur- inn segir til sín í margs konar fjölþjóðlegu hjálparstarfi á veg- um Sameinuðu þjóðanna, Rauða krossins, Hjálparstofn- unar kirkjunnar, Hjálpræðis- hersins og fjölmargra annarra samtaka. Fegurð og jákvæðni, sem varða eiga veg okkar, koma og skýrt fram í árangri og afrekum á sviði vísinda og lista, þar sem mannshugurinn rís hvað hæst. Það á meðal annars við um afrek og árangur í læknisfræði. Það á við um vaxandi áhuga á verndun um- hverfis okkar og lífríkisins, sem víða eiga undir högg að sækja. Það á einnig við um bókmennt- ir, hljómlist og myndlist, þegar þessar listgreinar rísa hæst í fegurð og snilld. Engin hátíð rís hærra í hug- um kristinna manna en hátíð upprisunnar, páskahátíðin. Það fer vel á því að halda hátíð til minningar um upprisu Jesú Krists, sigurhátíð lífsins yfir dauðanum, þegar vorið er í þann mund að vekja gróðurrík- ið í umhverfi okkar til nýs lífs af vetrarsvefni. Vorið, þetta árvissa kraftaverk í ríki náttúr- unnar, er táknrænt fyrir fagn- aðarboðskap páskanna, fyrir- heitin í kristinni kenningu, sig- ur lífsins yfir ógnaröflum um- hverfisins. Á páskum og öðrum kirkju- hátíðum er kjörið tækifæri til að hlúa að því fagra og já- kvæða í hugarheimi okkar. For- sendan fyrir jákvæðum áhrifum á umhverfi okkar er að hlúa að jákvæðum viðhorfum í eigin sinni. Það er hægt að gera með ýmsum hætti, meðal annars með því sækja helgar tíðir í kirkjum landsins; leyfa kær- leikssól páskanna að verma hugi okkar og vekja það góða, sem í öllum mönnum býr, til nýs lífs og þróttar. Það er hægt að gera með því að við leggjum okkar af mörkum, hvert og eitt, til að lina þjáningar fólks, sem stendur höllum fæti í lífsbarátt- unni. Morgunblaðið óskar lesend- um sínum og landsmönnum öll- um gleðilegrar og slysalausrar páskahátíðar. Stuðningnr við Rússa í krafti styrks o g festu Borís Jeltsín, forseti Rússlands, er að mati Richards Nixons, fyrrum Bandaríkjaforseta, enn pólitískur þungavigtarmaður þótt ofurmennis- ímyndin sé tekin að fölna. Nixon telur að Bandaríkjastjórn beri áfram að styðja Jeltsín samhliða því sem aukin áhersla verði lögð á nýja kynslóð leiðtoga sem tekin er að ryðja sér til rúms I rússneskum stjórn- málum. eftir Richard Nixon Þeir sem eru þeirrar hyggju að Rússland geti ekki lengur talist risa- veldi vegna þeirra erfiðleika sem þar er við að glíma líta fram hjá einni óþægilegri en jafnframt óumdeilan- legri staðreynd:Rússland getur eitt ríkja heims tortímt Bandaríkjunum. Þess vegna mun Rússland áfram verða efst á forgangslista Bandaríkj- anna hvað utanríkismál varðar. Það Rússland sem bar fyrir augu mér í síðustu ferð minni hefur tekið miklum breytingum frá því ég var þar eystra fyrir réttu ári. Svartsýni er nú einkennandi í stað þeirrar bjartsýni sem þá ríkti. í mörgum tii- fellum hefur uggvænleg viðhorfs- breyting átt sér stað; afstaðan til Bandaríkjanna er ekki jafn jákvæð og áður. Borís Jeltsín er enn pólitísk- ur þungavigtarmaður en hann er ekki lengur ofurmenni. Á árum áður þegar Rússland var einræðisríki og hluti af Sovétríkjun- um var traust samband við leiðtoga kommúnistaflokksins það eina sem þörf var á. Þetta á ekki lengur við. Frá Rússlandi er ekki einvörðungu slæmar fréttir að færa. Gagnstætt því sem haldjð hefur verið fram í sumum fréttum vestrænna fjölmiðla þýðir brotthvarf nokkurra þekktra umbótasinna úr ríkisstjórn Rúss- lands ekki að horfið hafi verið frá umbótastefnunni. Viktor Tsjerno- myrdin forsætisráðherra mun áfram vinna að umbótum í nafni markaðs- hagkerfis í Rússlandi. Þótt áætlun þessi verði ekki framkvæmd með sama hraða og áður, fullyrða ráða- menn að umbætur verði umfangs- meiri en áður var stefnt að og ekki verði látið nægja að einblína á að koma böndum á peningamagn í umferð. Á stjórnmálasviðinu verður ekki annað sagt en að upplausnarástand ríki. Um Jeltsín forseta leikur ekki lengur dulúðarhjúpur þess sem ætlað er að uppfylla sögulegt hlutverk líkt og við átti er hann tók að sér að bera sovét-kommúnismann til graf- ar. Vera kann að Jeltsín sé nú um stundir að verða ljóst að sagan reyn- ist honum andsnúin. í gegnum tíðina hafa byltingar- leiðtogar ekki reynst heppilegustu mennirnir til að byggja upp þjóðríki. Hins vegar er ekki tímabært að af- skrifa Jeltsín þótt hann haldi sig oft fjarri Moskvu og hann gerist sífellt einkennilegri í hegðun og framkomu. Jeltsín er fyrsti maðurinn í sögu Rússlands sem kjörinn er forseti í fijálsum kosningum. Hann er enn vinsælasti stjórnmálamaður Rúss- lands og besta trygging sem völ er á fyrir frelsi og lýðræði þar til kjör- tímabil hans rennur út árið 1996. Bandaríkjamenn eiga að sýna honum vírðingu og leita eftir nánu sam- starfi við hann. En stjórnvöldum í Bandaríkjunum væri einnig hollt að veita eftirtekt kynslóð nýrra leiðtogá sem er að ryðja sér til rúms í rússneskum stjórnmálum. Ég hitti marga þeirra - menn á borð við Grígoríj Javlinskíj, ungan og sannfærandi hagfræðing, Sergei Sakhrai, ráð- herra þjóðarbrota sem er hneigður mjög til sundurgreinandi hugsunar og Alexander Shokhin, efnahagsráð- herra. Allir eru þessir menn ýmist tæplega eða rúmlega fertugir að aldri. Þeir eru að sönnu ekki tilbúnir til að taka við leiðtogahlutverkinu en allir hljóta þeir síðar að koma til greina í forsetaembættið. Nú er al- mennt litið svo á að forsætisráðherr- ann, sem er 55 ára, sé líklegasti eftirmaður Jeltsíns. Leiðtogar stjórnarandstöðunnar - ég hitti þá alla - Gennadíj Tsjúg- anov, leiðtoga kommúnista, formann Frjálslynda lýðræðisflokksins, Vlad- ímír Zhírínovskíj og Alexander Rútskoj, fyrrum varaforseta - allir sögðu þessir menn að ekki kæmi til greina að hverfa á ný til Sovét-tíma- bilsins. Og allir fullvissuðu þeir mig um að þeir myndu frelsta þess að ná pólitískum markmiðum sínum í samræmi við leikreglur lýðræðis og stjórnarskrár. Tsjúganov er harðlínukommúnisti og sannfærandi sem slíkur en þegar ég spurði hann hvort afturhvarf rúss- nesku þjóðarinnar til kommúnisma væri hugsanlegt svaraði hannn: „Nei, við getum ekki tvívegis farið yfir sama fljótið." Eftir 75 ára guðleysi í Rússlandi er trúin á Guð enn lifandi en kom- múnisminn dauður. Þótt Jeltsín hafi tekið því illa að ég skyldi eiga fund með Rútskoj ætti hann að gera sér ljóst að stuðn- ingur við Rútskoj mun verða til þess að kljúfa þá fylkingu sem myndast hefur að baki Zhírínovskíj og þar með draga úr þeirri hættu sem af honum stafar. Zhírínovskíj er lýðskrumari sem svífst einskis. En eftir að hafa rætt ítarlega við hann um afstöðu hans til Bandaríkjanna, andúð hans á gyðingum og sjónarmið hans á vett- vangi rússneskra utanríkismála er ég sammála mati Leoníds Kravtsjúks forseta Úkraínu:Vladímír Zhír- ínovskíj verður ekki kjörinn forseti Rússlands. Zhírínovskíj hefur ekki til að bera þá sannfæringu og þann persónu- ljóma sem leiðtogi stórveldis þarfn- ast. Þegar ég spurði hann nánar um nokkrar hróplegar fullyrðingar sem frá honum hafa borist - aðKaliforn- ía verði einn góðan veðurdag hluti af Mexico, að Miami verði síðar sjálf- stætt lýðveldi blökkumanna og París arabísk borg - svaraði hann með því að vísa til kannana um persónu- vinsældir sínar. Einn af nánustu aðstoðarmönnum Zhírínovskíjs sem var viðstaddur fund okkar sagði mér síðar að Zhír- ínovskíj hefði vitandi vits tekið að sér hið öfgafulla hlutverk fiflsins helga í rússneskum stjórnmálum. Öldum saman voru fíflin, Júrodívíjel, táknmyndir andstöðunnar en sluppu við að sæta kúgunum einmitt vegna vanmáttar síns. Þótt Rúsar hafi ævinlega verið veikir fyrir málflutn- ingi fíflanna helgu hafa þeir aldrei gert þau að leiðtogum sínum og sú mun einnig verða raunin er Zhír- ínovskíj fer fram í forsetakosningum. Sú breyting sem mestum ugg veldur í Rússlandi frá því í kosning- unum í desember varðar utanríkis- mál. Málflutningur Andrei Kozyrevs, utanríkisráðherra Rússlands, hefur tekið algjörum stakkaskiptum. Áður en gengið var til kosninga var ástæða til að ætla að stuðningur hans og jákvætt viðhorf í garð Bandaríkjanna myndu frekar verða til þess að skaða hann. Áður lagði hann jafnan áherslu á sammannleg gildi og gagnkvæma hagsmuni Rúss- lands og Bandaríkjanna. Nú er hann tekinn að ræða um hlutverk Rúss- lands sem risaveldis og nauðsyn þess að ráðamenn í Moskvu marki sér sjálfstæða stefnu. Á því er enginn vafi að hagsmunamat ræður þessum umskiptum í málflutningi rússneska utanríkisráðherrans. Hann hefur lagt mat á niðurstöður kosninganna og brugðist við þeim líkt og stjórn- málamanni sæmir. Mestu skiptir að ráðamenn í Bandaríkjunum komi fram af fullri hreinskilni við stjórnvöld í Rússlandi þegar sjónarmið ríkjanna fara ekki saman. Bæði ríkin eru risaveldi og hagsmunaárekstrar eru óhjákvæmi- legir. Alvarlegustu mistökin felast því í því að ætla að drekkja ágrein- ingnum með því að skála í vodka eða kampavíni á „þægilegum" leið- togafundum. Æðsta form stjórnvis- kunnar felst ekki í að breiða yfir ágreining með blaðri. Hástig stjórn- spekinnar er fólgið í því að leita leiða til að vera ósammála án þess að Richard Nix- on, fyrrum forseti Bandaríkj- anna. skaða samskipti og langtíma grund- vallarhagsmuni. Vesturlönd hafa nú boðið ríkjun- um í Mið- og Austur-Evrópu tii Sam- starfs um frið á vettvangi Atlants- hafsbandalagsins (NATO). Ríki Vesturlanda geta ekki fengið Rúss- um ákvörðunarvald um framtíð NATO. Bandalagið er of mikilvægt Bandaríkjunum og Evrópu til þess að því verði fórnað vegna andstöðu Rússa. Hins vegar er eðlilegt að Rússum verði veittar tryggingar í þá veru að stækkun bandalagsins til austurs, með aðild Ungverjalands, Póllands, Tékkneska lýðveldisins og Slóvakíu, muni fara fram í áföngum og ekki verða til þess að ógna hagsmunum Rússlands. Telji Rússar tiyggingar þessar óviðunandi munum við neyð- ast til að vera sammála um að vera ósammála. Ekki má fá Rússum neit- unarvald í þessu efni. Rússnesk stjórnvöld eiga lög- mætra hagsmuna að gæta á þessu svæði, einkum hvað varðar vernd þeirra 25 milljóna Rússa sem búa í ríkjum þeim sem áðut' heyrðu Sovét- ríkjunum til en eru nú skyndilega útlendingar í eigin landi. Fullyrðingar í þá veru að Rússland sé á ný að verða heimsvaldasinnað risaveldi eru ýkjur einar. Þótt Rússar hafi tilhneigingar í átt til yfirburða- og yfirráðahyggju eru flestir þeirra tregir til að leggja út í ný ævintýri utan landamæra föðurlandsins. Flestir hafa efasemdir um ágæti þess að veita fyrrum lýðveldum Sov- étríkjanna tryggingar á efnahags- sviðinu. Það sama á við um leiðtoga Rússlands. Sjálfstæði ríkja þeirra sem áður heyrðu Sovétríkjunum til er sérlega mikilvægt. Algörlega nauðsynlegt er að sjálfstæði Úkraínu verði tryggt. Bardagarnir í Bosníu yrðu eingöngu bornir saman við lautarferð í sunnu- dagsskóla brytust út átök milli Úkra- ínu og Rússlands. Gera þarf Rússum ljóst að sérhver viðleitni til að draga úr stöðugleika í Úkraínu mun hafa skelfilegar af- leiðingar fyrir samskipti Rússlands og Bandaríkjanna. Stöðugleiki í Úkraínu þjónar ör- yggishagsmunum Bandaríkjanna. Stuðningur við umbótahugmyndir þær sem eru á kreiki í Kíev á að njóta forgangs í Bandaríkjunum i nafni þjóðaröryggis. Engan þann hitti ég á ferð minni sem sá ástæðu til að bera lof á að- stoð þá sem Bandaríkin hafa veitt eystra. Vandinn er ekki í því fólginn hversu miklum íjarupphæðum verja ber í þessu skyni heldur er hann stjórnunarlegs eðlis. Gripdeildir og spilling í röðum þeirra sem aðstoðar- innar eiga að njóta hafa valdið mikl- um vonbrigðum. Hið sania á við um þá óhæfu embættismenn sem haft hafa umsjón með aðstoð þessari. Bill Clinton Bandaríkjaforseti ætti að fyrirskipa endurmat á öllum þeim hjálparáætlunum sem nú er verið að framkvæma í Rússlandi og öðrum fyrrum lýðveldum Sovétríkjanna. Umbætur og frelsi eru óijúfanlega tengd hugtök. Nái umbætur fram að ganga í Rússlandi skapast mikil- vægt fordæmi. Ef ekki tekst að koma á umbótum mun það verða vatn á myllu einræðisherra og annarra þeirra sem eiga sér drauma um óskorað vald. Það gengur krafta- verki næst að enn sé ástæða til að binda vonir við byltinguna hina síð- ari í Rússlandi. Umbótasinnunum kann að mistakast ætlunarverk sitt jafnvel þótt þeir njóti aðstoðar okk- ar. Án hennar mun þeim örugglega ekki takast að koma á þeim umskipt- um sem að er stefnt. Báðum flokkum á Bandaríkjaþingi ber að styðja viðleitni Bills Clintons til að koma frelsisöflunum í Rúss- landi til hjálpar. Festa og ákveðni þarf á hinn bóg- inn að einkenna stuðning þennan og mikilvægt er að menn sjái ekki fram- ferði Rússa í hillingum og leggi hags- muni Bandaríkjanna ekki fyrir róða. Höfundur er fyrrum forseti Bandaríkj- anna og var nýverið á ferð í Moskvu. Var það tíunda ferð hans til Sovétríkj- anna og síðar Rússlands á undanförnum 35 árum. Grein þessa skrifaði hann fyr- ir bandaríska dagblaðið The New York Times, sem veitti Morgunblaðinu birt- ingarrétt. Lagafrumvarp fjármálaráðherra Trygginga- gjald lækk- að á ferða- þjónustu Tryggingagjald hækki almennt um 0,1% Fjármálaráðherra hefur lagl fram frumvarp á Alþingi um að tryggingagjald á fyrirtæki hækki almennt úr 2,85% í 2,95% frá og með 1. maí. Jafnframt lækki tryggingagjald á ferða- þjónustu úr 6,35% í 2,95%. Gjaldflokkar tryggingagjalds eru nú tveir, 6,35% og 2,85%, og var öll ferðaþjónusta í hærri flokknum. Til stóð um síðustu áramót að leggja 14% virðisaukaskatt á fólks- flutninga og starfsemi ferðaþjón- ustu en lækka jafnframt trygging- argjald sem þessar greinar greiða í ríkissjóð úr 6,35% í 2,85%. Þegar fallið var frá því að leggja virðis- aukaskattinn á var jafnframt fallið frá því að lækka tryggingagjaldið. Hins vegar var tekinn upp virðis- aukaskattur á hótelgistingu og tryggingajald á þeirri atvinnustarf- semi lækkað á móti. Nú leggur fjármálaráðherra til að þetta gjald verði lækkað á veit- ingarekstri og útleigu bifreiða þar sem æskilegt þyki að sama trygg- ingagjald taki til starfsemi sem sé jafntengd og gisting og veitinga- sala. Stefnt á einn gjaldflokk Lækkunin lækkar kostnað þess- ara greina og þar með skatttekjui ríkissjóðs um 80 milljónir króna á ári. Til að mæta þessu tekjutapi ei gert ráð fyrir að hækka trygginga- gjald í lægri gjaldflokki um 0,1%, í 2,95%. I greinargerð með frum- varpinu segir að þetta sé skref í þá átt að sami gjaldflokkur verði fyrir allar atvinnugreinar, eins og stefnt hafi verið að þegar trygg- ingagjald var fyrst lögtekið. kommúnisma sem hann þekkti af eigin raun frá Rúmeníu. I blaða- greinum og ræðum var hann óþreytandi við að lýsa afstöðu sinni. Ionesco sem fæddist árið 1912 í Slatina í Rúmeniu var rúmenskur í föðurætt, en móðirin frönsk. í bemsku bjó hann í Frakklandi, en 1925-38 var hann i Rúmeníu þar sem hann gekk í skóla og nam í j háskóla. Eftir það lá leiðin til Frakklands. Eftir eigin höfði Sjálfur lagði Ionesco áherslu á að hver og einn ætti að túlka verk sín eftir eigin höfði. Fyrstu leikrit hans eru viljandi andleikrit, leikur að orðum og hugmyndum. Þannig , er Sköllótta söngkonan skrifuð til ' að storka hugmyndum fólks um leikrit. Stólarnir og fleiri verk eru fáránleg að efni. Allt getur gerst, ekkert er óhugsanlegt. í Stóiunum er Ionesco þó farinn að laga sig eftir leikrænum kröfum í vaxandi mæli. Breytti leiki’itun Sumir hafa kallað Ionesco mest- an absúrdistanna í leikritun. Slíkt er vitanlega umdeilanlegt. Hinu verður ekki neitað að hann ásamt Beckett (einkum honum) breytti leikritun sem nú er í nokkurri lægð eftir sífelldar tilraunir og mörg merki um stöðnun. Leikritaskáldið Ionesco látið „Ekki verða nashyrningnr“ Bókmenntir Jóhann Hjálmarsson Við lát Eugene Ionesco kemur sjötti áratugurinn í hugann þegar svo margt var að gerast. Absúrd- stefna í leikritun náði þá hámarki sínu, ekki síst með þeim Ionesco og Samuel Beckett, en vitanlega voru þeir ekki sprottnir úr engu. Áður höfðu verið gerðar markverð- ar tilraunir í því skyni að reyna á þanþol leikritunar. Alfred Jarry sarndi Bubba. Og meðal annarra var Arthur Adamov framarlega í flokki. Nashyrningur (1959) Ionescos fór sigurför um heiminn og var talinn dæmigerður fyrir absúrda leikritun, það háð og grimmd sem ríkti á sviðinu í slíkum verkum. Sannleikurinn er aftur á móti sá að það eru til ymsar gerðir af' ab- súrdum leikritum. Það er bil á milli Becketts og Ionescos. Sá fyrr- nefndi stendur nær trúðleiknum að mörgu leyti og hann er oftar gamansamur en háðskur. Ionesco var í fyrstu illa tekið og er Sköllótta söngkonan (1950) til vitnis um það. Hann vekur fyrst verulega athygli með Stólunum (1952). Þegar Konungur deyr (1962) er leikinn er þegar tekið að halla undan fæti, aðrir leikrita- höfundar orðnir meira áberandi. Til er íslensk þýðing Karls Guð- mundssonar á Konungur deyr, en úr sýningum varð ekki hér á landi. Vonleysi og dauðageigur Fáránleiki alls og tilgangsleysi telst setja svip á verk Ionescos og það með hve hijúfum og óvægnum hætti hann lýsir mannlífinu. Menn þykjast finna í verkunum vonleysi og dauðageig. Því má ekki gleyma að í sjálfum orðunum býr kraftur og líf, hljóm- ur þeirra er skáldskapur sem oft sækir næringu í drauma, speglar hið óskilvitlega, reynir að segja hið ósegjanlega eins og í ljóði. Ionesco var alla tíð aðdáandi og talsmaður ljóðlistar, enda orti hann í fyrstu. Nashyrningurinn er leikrit sem túlka má með ýmsum hætti. Þeir sem gagnrýnt hafa höfundinn fyrir vonleysi og „lífsfyrirlitningu“, jafn- vel skoðanaleysi, ættu að hyggja að því að táknsagan er aldrei langt undan og ekki þarf aðeins að skýra verkið sem ádeilu á nasisma heldur getur það einnig skilist sem krufn- ing kommúnisma og múgseijunar yfirleitt. í leikdómi sem Ásgeir Hjartar- son skrifaði um sýningu Þjóðleik- hússins 1961 segirhann lífsskoðun Nashyrningarnir í Þjóðleikhúsinu 1961. Lárus Pálsson í hlutverki Bérengers og Herdís Þorvaldsdóttir, Daisy. Leikstjóri var Benedikt Árnason, þýðandi Ernn Geirdal. Eugene Ionesco Ionescos framar öllu „fyrirlitningu á heiminum, lífinu, manninum" og fellir eftirfarandi dóm þrátt fyrir að honum sé snilld og dirfska Io- nescos ljós: „Þó að Ionesco skopist jafnan óþyrmilega að geivilífi smá- borgarans er stefna hans skilgetið afkvæmi borgaralegs þjóðfélags og ber dauðann í brjósti sér.“ Síðasti maðuriim Það sem gerist i Nashyrningnum er að íbúar lítils fransks bæjar breyt- ast í nashyrninga. Einn þijóskast við og vill ekki verða nashyrningur. Það er veikgeðja maður að nafni Bérenger. í augum hans eru nashyrningarnir við- bjóðslegir þótt ást- vinu hans, Daisy, þyki þeir fallegir. Lokaræða Béren- gers og um leið loka- orð leikritsins eru hvatning til allra' að láta ekki breyta sér, veita viðnám. Baulið í nashyrningunum heillar, en Bérenger getur ekki breyst úr manni í dýr. Um- kringdur nashyrn- ingum hrópar hann: „Gegn þeim öll- um, ég skal veija mig gegn öllum, ég skal veija mig! Ég er síðasti maður- inn, ég skal vera það þangað til yfir lýkur! Ég gefst ekki upp!“ (Þýðing Jóns Oskars.) Leikrænir kosti Nashyrningsins eins og annarra verka Ionescos liggja í augum uppi, en ekki er ástæða til að forsmá boðskapinn. Múgsálin, múgæsingin er geig- vænleg hætta, ekki síður nú en áður. Ionesco varaði injög við

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.