Morgunblaðið - 31.03.1994, Síða 58

Morgunblaðið - 31.03.1994, Síða 58
58 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MARZ 1994 Tiltekt í Tombstone Kvikmyndir Sæbjöm Valdimarsson Laugarásbíó: Tombstone Leiksljóri George P. Cosmatos. Handrit Kevin Jarre. Kvik- myndatökustjóri William Fra- ker. Aðaileikendur Kurt Russ- ell, Val Kilmer, Sam Elliott, Power Boothe, Biil Paxton, Miehael Biehn, Michaei Rooker, Jason Priestley, Bill Paxton, Joanna Pacula, Charlton Hes- ton. Bandarísk. Hollywood Pict- ures 1993. Eins og nafnið gefur til kynna er Tombstone af vestrakyni og fjallar um þá sögufrægu, marg- kvikmynduðu atburði sem komu þessum námubæ í Arizona á kort- ið á ofanverðri síðustu öld. Þá snerust Wyatt Earp (Kurt Russ- ell), kunnur laganna vörður frá Dodge City, og tveir fræknir bræður hans, Virgil (Sam Elliott) og Morgan (Bill Paxton), gegn hinu illræmda Clanton-gengi, sem hér nefnist „Kúrekarnir". Það var skipað engu síður þekktum nöfn- um frá þessum tíma, drápsglöðum ómennum eins og Curly Bill (Pow- ers Boothe) og Johnny Ringo (Michael Biehn). Þeir Earpbræður setjast í helg- an stein, eða svo er ætlunin, í Tombstone, og hyggjast snúa sér að hættuiitlum viðskiptum. Wyatt þaulsetinn við spilaborðið ásamt vini sínum, Doc Holliday (Val Kilmer), sem orðin er illa þjáður af berklum. En „Kúrekarnir" gefa þeim engin grið, bræður ákveða að taka til hendi og lendir flokkun- um saman í sögufrægum bardaga kenndum við réttina O.K. En þeir atburðir áttu sér síðan blóði drifin eftirmál sem rakin eru hér. Eftirminnilegustu myndirnar um þessa nafntoguðu byssumenn eru tvímælalaust mynd Johns Fords My Darling Clementine (’46), með Henry Fonda í hlut- verki Earps og Victor Mature sem Doc Holliday. Þá er The Gunfight at the O.K. Corral (’57), mynd Johns Sturges, vissulega minnis- stæð enda voru ekki ómerkari leik- arar en Burt Lancaster og Kirk Douglas þá í aðalhlutverkum. Doc (’71), með þeim Stacy Keach og Harry Yulin, var harla óvenjulegur and-vestri. Þannig að hver kynslóð hefur fengið sína útgáfu af óöld- inni. Mynd Cosmatos ber vitaskuld einkenni þessa ofbeldisdýrkandi leikstjóra, minnir um margt á hin- ar hömlulausu drápsmyndir hans, Massacre in Rome og Rambo, auk þess sem hann hefur greinilega kíkt inní smiðju meistara nútíma vestrans, Clints Estwoods. Út- koman er yfirborðsleg, blóði drifin, en engu að síður ágæt afþreying- armynd sem örugglega á eftir að ylja mörgum vestraunnanda hér sem erlendis. Það er keyrsla í mikilúðlegum tökunum undir stjórn snillingsins Williams Fra- kers, nánast aldrei dauður punkt- ur. Það sópar að svartklæddum laganna vörðum með brennandi húskofa eða eldrautt sólarlagið í baksýn. Þrumurnar, drunginn og vatnsveðrið skapa meginstemmn- inguna sem minnir ekki lítið á Hina vægðarlausu. Persónudýpt- inni er hins vegar ekki fyrir að fara, þeir rista ekki dj jpt garparn- ir, alltsaman „týpur“ og leikararn- ir vel við hæfi. Þeir standa sig ágætlega en enginn þó eftirminni- legur annar en Kilmer sem slær um sig með Suðurríkjahreim og Boothe er dágóður skratti sem bullan Curly Bill. Kvenfólkið, hvort sem það kemur mikið eða lítið við sögu, afar óljósar verur sem flökta um í skugga karl- rembnanna. Myndin tekur sig nokkuð hátíðlega og verður fyrir bragðið óþarflega ábúðarmikil á köflum og sjálfsagt þykir einhveij- um nóg um þegar blóðslikju slær á bláan himininn í Arizóna. Niður- staðan er engu að síður góður kostur vestraunnendum og öðrum aðdáendum átakamynda. AUGLYSINGAR UTBOÐ F.h. byggingadeildar borgarverk- fræðings er óskað eftir tilboðum í lóðaframkvæmdir við Austurbæjar- skóla. Helstu magntölur: Jarðvegsskipti 1.500 m3 Malbikun 2.000 m2 Lagnir 200 Lm Beð 2.000 m2 Útboðsgögn verða afhent á skrif- stofu vorri, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn kr. 10.000,- skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 26. apríl 1994 kl. 14.00. bgd 43/4 F.h. byggingadeildar borgarverk- fræðings er óskað eftir tilboðum í gólflökkun í ýmsum fasteignum Reykjavíkurborgar. Helstu magntölur: Gólffletir 2.200 m2. Útboðsgögn verða afhent á skrif- stofu vorri, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn kr. 5.000,- skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 12. apríl 1994 kl. 14.00. bgd 44/4 F.h. Hitaveitu Reykjavíkur er óskað eftir tilboðum í verkið „Borgarvegur, stofnlögn“. Verkið felst í að leggja tvöfalda stofn- lögn fyrir hitaveitu á um 800 m löng- um kafla meðfram fyrirhuguðum Borgarvegi í Borgarholti. Stofnlögnin er 0300 og 0350 mm stálpípur í plastkápu. Einnig skal steypa tvo brunna á lögnina, sjóða pípulögn í þeim og fullgera þá að öðru leyti. Verkinu skal lokið að fullu 1. október 1994. Útboðsgögn verða afhent á skrif- stofu vorri, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn kr. 15.000,- skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 19. apríl 1994 kl. 14.00. INNKAUPASTOFNUN \ REYKJAVÍKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3 • Sími 2 58 00 »> Eftirfarandi útboð eru til sölu eða afhend- ingar á skrifstofu Ríkiskaupa, Borgartúni 7, Reykjavík: 1. Útboð 4095-4 sfá/p/öfurv/Vegagerð- ar ríkisins. Opnun 11.4. 1994 kl. 14.00. 2. Útboð 4091-4 einnota skó- og dýnu- hlifar. Opnun 12.4. 1994 kl. 14.00. 3. Útboð 4099-4 bygging nýs þaks á heimavist v/Bændaskólans Hvanneyri. Opnun 13.4. 1994 kl. 11.00. Gögn seld á kr. 6.225,- m/vsk. 4. Forval 10021 öryggisgler v/nýrrar fangelsisbyggingar á Litla Hrauni. Umbeðnum upplýsingum skal skila 14. apríl nk. kl. 11.00. 5. Útboð 4093-4 ióðir og bíiastæði v/Stjórnarráðsbyggingu við Arnarhól. Opnun 18.4. 1994 kl. 11.00. Gögn seld á kr. 6.225,- m/vsk. 6. Útboð 10001 einnota plasthanskar. Opnun 23.4. 1994 kl. 14.00. 7. Útboð 4098-4 hitalagnir v/Kennara- háskóla íslands. Opnun 20.4. 1994 kl. 11.00. Gögn seld á kr. 1.245,- m/vsk. 8. Forval 10020 þjóðminjasafnið frá- gangur utanhúss. Skila skal umbeðnum upplýsingum eigi síðar en 22.04. 1944. 9. Útboð 4102-4 spilbúnaður fyrir Orkustofnun. Opnun 26.4. 1994 kl. 11.00. 10. Útboð 10018 sorphirða v/þjóðhátíð- ar 17. júní á Þingvöllum. Opnun 28.4. 1994 kl. 11.00. 11. Útboð 10017 fánastangir v/þjóðhá- tíðar 17. júní á Þingvöllum. Opnun 28.4. 1994 kl. 14.00. 12. Útboð 10016 salernisaðstaða v/þjóðhátíðar 17. júní á Þingvöllum. Opnun 29.4. 1994 kl. 11.00. 13. Útboð 4089-4 fö/vurfyrir Þjóðarbók- hlöðu. Opnun 4.5. 1994 kl. 11.00. Gögn seld á kr. 3.000,- m/vsk. 14. Útboð 4097-4 gólfteppi fyrir Þjóðar- bókhlöðu. Opnun 17.5. 1994 kl. 11.00. Gögn seld á kr. 6.225,- m/vsk. Gögn seld á kr. 1.000,- m/vsk., nema annað sé tekið fram. ® RÍKISKAUP Ú t b o b s k í / a árangril BORGARTÚNI 7, 105 REYKJAVÍK SÍMI 91-26844, BRÉFASÍMI 9 1-626739 Múrviðgerðir - málun Óskað er tilboða í múrviðgerðir og málun hússins Engihjalla 1 í Kópavogi. Helstu magntölur eru: Veggfletirog loft: 2.180 m2 Gluggakarmarog póstar: 3.450 m Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Hann- arrs í Síðumúla 1 frá og með þriðjudeginum 5. apríl og kosta kr. 5.000. Tilboð verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 12. apríl 1994 kl. 11.00. Harmarr hf., Síðumúla 1, 108 Reykjavík, sími 687317, fax 687320. ÚT B 0 Ð (nr. 10020) Þjóðminjasafnið Frágangur utanhúss Forval Framkvæmdasýslan, f.h. mennta- málaráðuneytisins, mun á næstunni bjóða út múrviðgerðir, sprunguvið- gerðir, endursteypu og endurstein- ingu Þjóðminjasafnsins að utan. í forvali verða valdir allt að fimm verktakar til að taka þátt í lokuðu útboði í verkið. Forvalsgögn verða afhent frá og með miðvikudeginum 6. apríl 1994 hjá Ríkiskaupum, Borgartúni 7, 150 Reykjavík. Skila skal umbeðnum upplýsingum á sama stað eigi síðar en 22. apríl 1994. ® RÍKISKAUP Ú t b o b s k i Ia ár a n griI BORGARTÚNI 7. 105 REYKJAVÍK SÍMI 91-26844, BRÉFASÍMI 91-626739 Laxveiðiá til leigu Tilboð óskast í laxveiðisvæðið í Hafralónsá frá og með 1995. Gera má tilboð í hluta af veiði- tímanum, sem er frá 21. júní til 20. sept. Tilboð í innsigluðu bréfi berist til hreppstjóra Þórshafnarhrepps, Syðra Lóni, fyrir 30. júní 1994. Stjórn veiðifélagsins opnar tilboðin kl. 13.00 sunnudaginn 3. júlí. Réttur áskilinn til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Upplýsingar gefa Marinó í síma 96-81257 og Sigurður í síma 96-81269.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.