Morgunblaðið - 31.03.1994, Blaðsíða 70

Morgunblaðið - 31.03.1994, Blaðsíða 70
70 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MARZ 1994 Hjördís Oddgeirs dóttir - Minning Fædd 5. júlí 1932 Dáin 22. mars 1994 Minning Matthildur Krist- jánsdóttir Petersen Fædd 27. júní 1902 Dáin 21. mars 1994 Látin er í Reykjavík Hjördís Odd- geirsdóttir frá Vestmannaeyjum. Eftir langa sjúkdómssögu er hún farin til friðarheima. Þar er hún komin á fund síns herra sem hún sagði gjarnan um: „Ég veit að hann tekur vel á móti mér, hann hefur hughreyst mig í svo mörg ár.“ Og hún brosti í gegnum þjáninguna sem gerðist lífsförunautur hennar þegar á unglingsárum. Menn heyra af sjúkdómum. Langvinnum erfiðum sjúkdómum sem fólk þakkar fyrir að komast hjá. Þeir sem komast hjá þeim, hvað ekki allir gera. Margir þurfa að berjast við veikindi lungann úr lífí sínu með erfiðar byrðar og fáar hvíldarstundir. Og vindinn í fangið. Þannig var ganga Hjördísar. Þegar jafnaldrar hennar, á ung- lingsárum, hófu þátttöku í ævintýr- um lífsins, í galsa og gleðisöng, kom í ljós að lífshljóðfæri hennar réð ekki við tónverkið. Og líf hennar varð þrautaganga. Áratug eftir ára- tug. Hún vonaðist eftir bata eins og allir vona. Líkt og einmana strá á köldum mel vonast eftir vori. En á íslandi verða svo margir vetur allof langir og margt vorið vorar svo seint. Hún kom til okkar Samhjálpar- fólks fyrir um það bil tíu árum. Þá bjó hún með Bóbó, Erlendi Degi Valdimarssyni. Þau gerðu nokkrar tilraunir til þess að standa á eigin fótum, studd hvort af öðru. Saman stofnuðu þau heimili og reyndu að gera fallegt í kringum sig. Til þess völdu þau blóm og myndir. Blóm sem minntu á betri tið í haga og myndir sem tjáðu baráttu mannsins við það óviðráðanlega. Og trúar- tákn. Tákn um Guð sem ritningin segir að sé góður og frelsara sem leysir bönd og huggar. „Hann hefur hughreyst mig svo oft,“ sagði hún gjarnan. Erlendur Dagur var burtkallaður fyrir allmörgum árum og einsemdin knúði aftur dyra hjá Hjördísi. Lífið hélt áfram. Dag eftir dag. Ár eftir ár. Og fátt um gleðigjafa. En hugfróun og hvatningu sótti hún til Drottins drottnanna og staðsetti sig í skjóli við hann. Þar er margt hinna vitrustu manna. Ágústínus kirkjufaðir segir í játningum sínum: „Á venjulegum námsferli var ég kominn að bók eftir Cicero nokkum. Málfar hans dá nálega allir, en innrætið ekki eins. En þessi bók hans er hvatning til heimspeki og heitir Hortensius (Hvatning). Bókin breytti huga mínum. Eg tók að beina bænum mínum til þín sjálfs, Drottinn, og óskir mínar og þrár tóku aðra stefnu. Allar hégómlegar hugðir urðu mér allt í einu einskis verðar. Ég fór að þrá hina eilífu visku af ótrúlegum hjartans hita.“ Ciceró, sem uppi var skömmu fyrir Krists- burð, skrifaði meðal annars bækur sem hétu Hugfró og Hvatning. Nöfn bókanna gefa nokkra mynd af efni þeirra og þá jafnframt skiln- ingi höfundar á þörf mannsins fyrir hugfró og hvatningu. Lífsviðhorf Hjördísar, Cicerós og Ágústínusar vora sömu ættar. Cic- eró varð að leita lausna á aðra vegu en til Jesú. Ágústínus var uppi eftir Krists- burð og gat þegið af Drottins auðg- uðu lindum. Þörfin fyrir hugarfró og hvatningu var ætíð og verður með mannkyni þótt háreysti heims- ins hvíni stöðugt hærra. Hjördís leitaði í smiðju þess meistara sem einn kunni að elska eins og elska ber og hugga eins og hugga ber. Hún tilbað hann og ákallaði „af ótrúlegum hjartans hita“. „Hann hefir hughreyst mig svo oft,“ sagði hún. Nú era leiðarlok Hjördísar Odd- geirsdóttir hér megin tilvera. Nú binda hömlur líkamans hana ekki lengur. Ný tónverk taka við. Ný ljóð í munni. Hún verður kvödd frá Fossvogskapellu þriðjudaginn 5. apríl næstkomandi. Guð blessi minningu hennar. Ásta Jónsdóttir, Óli Ágústsson. Við kveðjum með söknuði í dag merka konu, sem næstum náði því að lifa alla 20. öldina. Hennar að- alsmerki var hjálpsemi og rétt- lætiskennd. Hún var sjálfstæðis- kona af gamla skólanum, en ein- hver mesta samhjálparkona sem ég hef kynnst um ævina, ætíð reiðubúin að hjálpa öðrum, ef þess gerðist þörf. Ég kveð^ þig með söknuði, Matta fóstra. Ég hélt þú yrðir alltaf til staðar, þegar ég þyrfti á þér að halda. Sú staðreynd að á örlagastundum í lífi mínu komst þú oft við sögu. Það hófst með því að þið Ludvig fóstruðu mig vöggubam langt fram eftir fyrsta ári lífs míns, þegar foreldrar mínir þurftu að búa erlendis, og bý ég örugglega enn að ást og umönnun ykkar. Næst liggja leiðir mikið saman, þegar ég 19 ára gömul flyt að norðan til Reykjavíkur og bý þar í rúm tvö ár á leið út í lífið. Þá átti ég athvarf hjá þér, Matta mín, í kjölfar systra minna. Þitt heimili varð mitt. Ég fékk að nota fötin þín á stúdentaböllin. Ég minnist dásamlegs guls samkvæmiskjóls, sá var síður með blóm í barmi - honum gleymi ég aldrei. Hjá þér grét ég síðan, þegr ég stóð ferðbú- in út í heim til náms í ferð án fyrir- heits, og þú huggaðir mig. Löngu síðar á krossgötum í líf- inu stóðstu eins og klettur við hlið mér, þegar ég þroskuð kona í kreppu, bað þig um stuðning. - Þú pakkaðir með okkur búslóð- inni, þvoðir skápa og annað. Þú sast til borðs með okkur og borðað- ir kjötsúpu í boði gamla heimilisins og fluttir okkur síðan á nýja heimil- ið út við sjóinn. Síðan hefur þú fyllt skarð á heimilinu ár hvert á aðfangadagskvöld, nú síðast 24. desember 1993, í það skipti með þessum orðum: „Ég held ég verði að koma því ætli þetta sé ekki síð- asta aðfangadagskvöldið, sem þessi sonur þinn verður með okk- ur.“ Þú varst ekkert að fást um sjálfa þig. Við vildum svo gjaman koma til þín með jólin, en þér var ekki haggað, vildir ekki breyta út af venju þótt þróttlítil værir. - Bömunum mínum varst þú mikil- væg kona. Þú varst þeim önnur amma og barnabörnunum lang- amma. Fyrir einu og hálfu ári varstu skírnarvottur þriðja bama- barnsins, nöfnu systur þinnar hei- tinna, Elsu. Ýmislegt skemtilegt kemur upp í hugann frá árunum við sjóin. Elsti sonur minn dáðist að sauma- skap þínum, þegar þú gerðir við Levi’s-gallabuxur með gulum tvinna alveg eins og út úr verslun, þegar honum lá á og var að fara í ferðalag. Annar sonur þvoði þvottinn sinn hjá þér, þegar móðir hans var erlendis í marga mánuði við nám, og hann naut auðvitað sömu umhyggju hjá þér og móður hans forðum. Sá þriðji sauð jólas- teikina í lánspotti frá þér um síð- ustu jól fyrir sig og sína fjöl- skyldu. Þú hafðir þann sið í heiðri að leysa fólk út með gjöfum auk andlegrar næringar, svo erfitt var að fara úr heimsókn hjá þér öðra- vísi en með smágjöf í hendi. „Sælla er að gefa en þiggja“ voru þín kjör- orð. Ung kona vannst þú á gömlu talsímastöðinni. - Síðan komstu aftur miðaldra ekkja. Ungu konun- um á stöðinni leist ekkert á ráðn- ingu þessarar fullorðnu konu, en komust fljótt að raun um kunnáttu þína og reynslu, og áður en varði varstu orðin þeim væn. íslrindskostur Erfidrykkjur Verð trá 750 kr. á mann 6 I 48 49 v. ERFIDRYKKJUR p F R f \ in sími 620200 Erfidrykkjur Glæsileg kaffi- hlaðborð íallegir salirogmjög g()ð þjómista. llpplýsingar ísíma22322 FLUGUEIDIR llTIL LIÍTLEIIIK t Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, JÓIMEY JÓNSDÓTTIR, Hringbraut 104, Keflavík, lést á dvalarheimilinu Garðvangi að morgni 29. mars. Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. t Móðir okkar, tengdamóðir, fósturmóðir og amma, ÚRSÚLA ÞORKELSDÓTTIR frá Laxárnesi, lést mánudaginn 28. mars sl. Jarðarförin fer fram frá Lágafellskirkju laugardaginn 2. apríl kl. 13.30. Ólafur Ingvarsson, Artha Eymundsdóttir, Auður H. Ingvarsdóttir, Þrúður Ingvarsdóttir, Hreinn Eyjólfsson, Halldór Kjartansson, Kristín Valdimarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ELÍN STEPHENSEN, Egilsstöðum, verður jarðsungin frá Egilsstaðakirkju laugardaginn 2. apríl kl. 15.00. Jón Pétursson, Hulda Matthfasdóttir, Margrét Pétursdóttir, Jónas Gunnlaugsson, Áslaug Pétursdóttir, Viðar Sigurgeirsson, barnabörn og barnabarnabörn. ' .............L. .... t Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, ÞORBJÖRG JÓNSDÓTTIR, Háaleitisbraut 105, sem lést í Vífílsstaðaspítala 28. mars, verður jarðsungin frá Fossvogskapellu miðvikudaginn 6. apríl kl. 15.00. Óskar Sörlason, Guðný Garðarsdóttir, Ólafur Sæmundsson, Pátur Steingrfmsson, Sigrún Guðmundsdóttir, Örn Steingrfmsson, Sigrfður Guðmundsdóttir, Kristin Pétursdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, RÓSA MARÍA HINRIKSDÓTTIR, Álfaskeiði 78, Hafnarfirði, andaðist í St. Jósefsspítala 18. mars. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Kristján Hólm Hauksson, Kristfn Hauksdóttir, Páll Á. Eggertsson, Haukur Hólm Hauksson, Helga Helgadóttir og barnabörn. t Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, EGILL KARLSSON, Jaðri, Eskifirði, sem lést föstudaginn 25. mars, verður jarðsunginn frá Eskifjarðar- kirkju laugardaginn 2. apríl kl. 14.00. Fyrir hönd aðstandenda, Arnheiður Halldórsdóttir. t Elskuleg systir okkar, HJÖRDÍS ODDGEIRSDÓTTIR frá Vestmannaeyjum, sem lést á hjúkrunarheimilinu Eir þriðjudaginn 22. mars, verður jarðsungin frá Fossvogskapellu þriðjudaginn 5. apríl kl. 10.30. Guðbjörg Oddgeirsdóttir, Ólafur Oddgeirsson, Lilja Oddgeirsdóttir. t Eiginmaður minn, bróðir okkar og vinur, HARALDURPÁLLÞÓRÐARSON, Staðarbakka 34, Reykjavfk, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 6. apríl kl. 10.30. Blóm vinsamlega afþökkuð, en þeim, sem vilja minnast hans, er bent ó líknarstofnanir. Ingibjörg S. Kristjánsdóttir, Kóri Þórðarson, Þóra Þórðardóttir, Þórunn Þórðardóttir, Sigurþór, Kristrún og fjölskyldur þeirra.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.