Morgunblaðið - 15.10.1994, Page 17

Morgunblaðið - 15.10.1994, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. OKTÓBER 1994 17 NEYTENDUR Ný gerð af húsgagnaáklæði frá spænskum framleiðanda Morgunblaðið/Þorkell TIL AÐ sanna mál sitt hellti Ingi Þór Jakobsson kaffi niður í sófa með Vinci-áklæði. Kaffið perlar ofan á og þótt því sé nuddað í efnið hverfur bletturinn á svipstundu með þvi að strjúka svæð- ið lauslega með eldhúspappír. setjast ekki í teflonáklæði FYRIR allmörgum árum þóttu teflonsteikarpönnur bylting á markaðnum. Teflonið hindraði að matarleifar settust á pönnuna og ekki þurfti lengur átök við að skrúbba óhreinindin burt. Fyrir 5 árum hóf spænskt fyrir- tæki framleiðslu á húsgagna- áklæðinu Vinci, sem hefur að mörgu leyti sömu eiginleika, enda teflonblanda í efninu. Hús- gagnaverslunin Exó byrjaði að flylja áklæðið inn fyrir tveimur og hálfu ári, selja í metravís og nota jafnframt sem áklæði á hús- gögn sem þar eru framleidd. Til að kanna gæðin hefur Ingi Þór Jakobsson innanhússarki- tekt og einn eigandi verslunar- innar margprófað að hella niður kaffi, tekk-, matarolíu, bláberja- sultu og ýmsu öðru á áklæðið. Hann segist enn ekki hafa fundið neitt, sem festist í efninu; óhrein- indin seljist einfaldlega ofan á og þótt þeim sé nuddað í sé hægð- arleikur að strjúka þau burt, án þess að blettur myndist. Ástæð- una segir hann þá að í fram- leiðslu sé teflonið ekki aðeins borið á ysta Iagið heldur sé það líka í vefnaðinum. Slitsterkt og Ijósþolið Vinci er 64% bómull og 36% pólíesterblanda. Ingi Þór segir efnið afar slitsterkt og ljósþolið. Sem dæmi bendir hann á að snún- ingsþol áklæða á heimilishús- gögn séu mæld þannig að hlutur í vissri þyngd sé látinn snúast í ákveðinn tíma á efninu. Efnin séu yfirleitt með þol á bilinu 25-30 þús. snúningar, en Vinci mælist 40 þús. Varðandi ljósþol séu efni jafnan mæld á skala frá 1-8, oft- ast séu þau á bilinu 3-5, en Vinci sé 6-7. Ingi Þór telur að Vinci eigi eftir að keppa við leður á mark- aðnum og hafi raunar ýmsa kosti fram yfir, t.d. þurfi Vinci ekkert viðhald, efnið andi og því ætti enginn að svitna í því, auk þess sé Vinci ódýrara en leður, lm x 140m kosti 4.800 kr. en sambæri- leg stærð í leðri frá 6-11 þúsund. Klassísk tónlist á geisladiski fyrir 690 krónur í JAPIS geta unnend- ur klassískrar tónlist- ar keypt geisladisk frá útgáfufyrirtækinu Naxos á 690 kr. Að sögn Ásmundar Jóns- sonar, deildarstjóra tónlistardeildar, eru diskarnir sambærileg- ir að gæðum og þeir sem yfirleitt kosta 1.899 kr. Japis fékk umboð fyrir Naxos árið 1991 og síðan hefur eftirspurnin aukist jafnt og þétt. Naxos hefur gefið út u.þ.b. 1.000 titla, aðallega tónlist frá klassíska og barokk- tímabilinu. Sl. tvö ár hafa líka verið gefin út verk frá endur- reisnartímabilinu, gregorísk trúartónlist og óperur eftir Mozart, Puccini, Verdi o.fl. Ásmundur segir að á nokkrum árum hafi Naxos náð 15% af heims- markaði í sölu klassískrar tónlistar. Höfuðstöðvar fyrirtækisins eru í Hong Kong, þar sem þýski eigand- inn, Klaus Heyman, býr ásamt kín- verskri eiginkonu sinni. Evrópu- dreifing og framleiðsla fyrir evr- ópskan markað er í Þýskalandi, en fyrirtækið hefur líka bækistöðvar í Bandaríkjunum, Japan og Bret- landi. Aðspurður segir hvers vegna geisla- diskar Naxos væru svona ódýrir, sagði Ásmundur, að draumur Klaus Hey- man hafi alla tíð verið að auka veg klassískrar tónlistar. Um það leyti sem hann stofnaði fyrir- tækið voru landa- mæri Austur-Evrópu að opnast. Heymann náði hagstæðum samningum við góða en lítt þekkta tónlist- armenn þaðan, enda hafði hann ekki efni á að borga heims- frægum stórstjörnum fyrir flutninginn. Margir þessara tón- listarmanna eru mjög þekktir núna en Heymann tekst enn að halda verði geisladiskanna í lág- marki vegna þess að hann kapp- kostar að hafa yfirbyggingu fyrir- tækisins í lágmarki. Þeir sem kaupa geisladisk frá Naxos fá bækling á ensku í kaup- bæti. í honum eru hagnýtar leið- beiningar um hvernig best sé að koma sér upp heilstæðu safni klassískrar tónlistar. Ásmundur segir að Japis hafi í hyggju að þýða bæklinginn innan tíðar á íslensku. Gerðu vin þinn glaðan 2 Big Mac® á verði eins McDonaid's VEITINGASTOFA FJOLSKYLDUNNAR - SUÐURLANDSBRAUT 56

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.