Morgunblaðið - 12.11.1994, Síða 16

Morgunblaðið - 12.11.1994, Síða 16
16 LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ IMEYTENDUR Rannsókn Rannsóknastofnunar landbúnaðarins á nautahakki í reykvískum matvöruverslunum Kaupmenn og kjötvinnslumenn óánægðir með könnun á hakki Kjötvinnslumenn og talsmenn verslana eru sumir ósáttir við niður- stöður rannsóknar sem Hagkaup lét nýlega gera á nautahakki í reykvískum verslunum. Brynja Tomer og Val- gerður Þ. Jónsdóttir leituðu eftir skoðunum þeirra á málinu. NIÐURSTÖÐUR voru í grófum dráttum þær að nautahakk í Hagkaup og Fjarðarkaupum fékk hæstu einkunn sem þýðir að um- búðir eru rétt merktar, kjötið er vel kælt, með 8-12% fitu, kjötið er 100% magurt og hefur minna en 3% kollogen. Lágt gildi þess bendir til að gott hráefni hafi ver- ið notað í hakk, en hátt gildi bend- ir til að sina- og himnumeira efni sé notað. Viðmælendum blaðsins finnst flestum óeðlilegt að niðurstöður úr rannsókn sem hagsmunaaðili lætur gera, séu notaðar til birting- ar og hefur Morgunblaðið all- traustar heimildir fyrir því að rann- sókn RALA hafi verið viðameiri en sá hluti sem Hagkaup hefur dreift til birtingar og m.a. mun geymsluþol sýnanna hafa verið kannað. Nóatún Hvorki hálsæðar né ruddi Einar Jónsson, frkvstj. Nóatúns- verslana, segir ekkert koma fram í könnunni sem styðji fyllyrðingu Ósk- ars Magnússonar um slæmt nauta- hakk hjá samkeppnisaðilum. Hann bendir á að hvergi komi fram að hálsæðar og ruddi séu í hakki í sum- Guðjón Þorkelsson Harma mistök Guðjón Þorkelsson undirritar greinargerð sem fylgir niður- stöðum rannsóknar RALA. Mistök við frágang ollu því að upplýsingar voru rangar í þremur tilvikum. „Eg harma það,“ segir hann og ástæðu þess að ekki var kvittað fyrir sýnatöku segir hann “þetta var rannsókn fyrir einkafyrirtæki, ekki opinbert eftirlit. Því voru keypt sýni og höfum við kassa- kvittanir því til staðfestingar." Ef „önnur hráefni" mælast í kjöti er efnasamsetning önn- ur en í hökkuðum nauta- skrokki. „Nákvæmar mæling- ar, sem ekki er hægt að gera hér þarf til að skera úr u'm hver þessi efni eru.“ Guðjón segir að sér hafi þótt mest slá- andi að ófullnægjandi merk- ingar voru á mörgum sýnum. um verslunum, eins og Óskar hélt fram á sínum tíma. Honum finnst forkastanlegt að forsvarsmenn markaðsráðandi verslunar láti gera slíka könnun til birtingar. Augljóst sé að þeir ráði hvaða þættir séu kann- aðir með tilliti til eigin hagsmuna og þeir hafi tækifæri til að hafa allt í toppstandi í sinni verslun þegar könnun sé yfirvofandi. Þeirri spum- ingu sé enn ósvarað hvað Hagkaup geri við allt það kýrkjöt sem þeir kaupa af kjötvinnslustöðvum. Einar segir að margt annað megi rannsaka heldur en það sem komi fram í könn- uninn, t.d gerlafjölda Orfl. Varðandi útkomu Nóatúnsverslananna sé hann ekki ósáttur enda hafi þeir hreinan skjöld þar á bæ. Um þátt RALA segist hann ekki vita annað en að sú stofnun hafi þurft að taka um- mæli sín um slæmt nautahakk á markaðnum til baka fyrr á árinu. Tíu - ellefu Trúi öllu upp á Hagkaup Eiríkur Sigurðsson, eigandi 10-11 verslananna, er þokkalega ánægður með útkomu sinna verslana. Segir þó handvömm hjá RALA að leggja stig vitlaust saman og fá út 14 í stað 15 í sínu tilfelli. „Eg er sann- færður um að Hagkaup birtir ekki niðurstöður ýmissa þátta sem því eru í óhag og tel ég því könnunina ekki hlutlausa. I raun trúi ég öllu upp á Hagkaup. Þeir létu gera könnunina i kjölfar slæmrar útreiðar í verðkönn- un og reyna nú að sýna fram á að þeir hafí ástæðu til að selja sitt nautahakk dýrara en aðrir. Mér kem- ur líka spánskt fyrir sjónir að hakkið hjá mér fær eitt stig fyrir kollagen en Nóatún, sem líka selur hakk frá Kjötumboðinu fær tvö stig.“ Kjötumboðið Góðar niðurstöður „Mér fínnast niðurstöður viðun- andi hvað varðar okkur,“ segir Bjöm Jónsson markaðsstjóri Kjötumboðs- ins, sem selur kjöt m.a. til 10-11-verslana og Nóatúns. „Mistök við samlagningu hjá RALA ollu því að útkoma sýnis frá verslun 10-11 var 14 í stað 15. Ef gæðamál nautakjöts verða tekin fastari tökum finnst mér það gott, en tel æskilegt að slíkar rannsóknir séu gerðar og greiddar af óháðum aði!a.“ Breiðholtskjör Hagkaup hafði forskot „Rannsóknin er alls ekki fullnægj- andi, hún hvorki sannar né afsannar neitt. Hér voru tekin sýni af ná- kvæmlega sama hakkinu, annað var í kjötborði, hitt í pakka frammi í verslun. Samt fær það bæði 2 og 3 stig fyrir fítu,“ segir Þorsteinn Þór- hallson, kjötiðnaðarmaður í Breið- holtskjöri. Hann segir ómögulegt að átta sig á hvort 2 stig þýði slæma útkomu. Breiðholtskjör fékk 2 stig fyrir innihaldslýsingu og segir Þor- steinn að þegar hafi verið gerðar ráðstafanir til að gera bragarbót á henni. Aðspurður hversvegna hita- stig á hakkinu teljist ófullnægjandi í öðru tiivikinu segir hann skýringuna einfalda: „Hakkið var ekki orðið nægilega kalt þegar sýnin voru tekin á mánudagsmorgni. Við vorum nýbú- in að pakka því í stóra pakka og setja fram í verslunina. Framvegis munum við pakka nautahakkinu í smærri pakka til þess að það kælist fyrr. Mér fínnst Hagkaup hafa for- skot fram yfír aðrar verslanir því starfsfólkið hafði tækifæri til að búa í haginn fyrir könnunina." Bónus Könnunin er misvísandi Jón Ásgeir Jóhannesson, fram- kvæmdastjóri Bónus, segir niður- stöður óskiljanlegar af því að Bónus kaupi nautahakk af Kjötvinnslu Hag- kaups og fái í heildarniðurstöðu 11 stig en Hagkaup 15 stig. Þótt Hag- kaup merki hakkið sem „Góður kost- ur“ en Bónus sem „Ferskt kjöt“ hafí framleiðandi áður sannfært sig um að þetta væri sama vara. „Mér er líka spurn hversvegna framleiðandi selur Bónus en ekki Hagkaup vöru með óflullnægjandi merkingum. Við fáum 1 stig fyrir innihaldslýsingu en Hagkaup 3 stig. Okkur er gert óhægt um vik að svara fyrir okkur, t.d. um hitastig en við vitum ekki á hvenær dags það var mælt. Ég tel könnunina misvísandi og er ósáttur við ýmis atriði. Hakk, sem Bónus kaupir frá S.Ö. kjötvör- um, fær eitt stig í liðnum yfir önnur hráefni, sem bendir til að í því séu ýmis aukaefni. Þessi stigagjöf virðist til komin af því að í hakkinu mæld- ist lambakjöt 2%, sem er óverulegt." Til að tryggja neytendum gott nautahakk segir Jón Ásgeir að Bón- us muni framvegis senda reglulega sýni til RALA á eigin kostnað. S.Ö.-kjötvörur Hakkavélin illa hreinsuð Geir Ericson framkvæmdastjóri S.Ö.-kjötvara kveðst ánægður með þær niðurstöður að gott hráefni væri notað í hakk kjötvinnslunnar. Vottur af lambakjöti fannst í sýni frá fyrir- tækinu og segir Geir það stafa af því að hakkavél hafi ekki verið nógu vel þrifin. „Það er vítavert og við erum að vinna að hertu gæðaeftirliti vegna þessa.“ Innihaldslýsingu á sýni S.Ö.-kjötvara var ábótavant að mati RALA. „Á innihaldslýsingu stendur ungnautahakk, 18-20% fita og var innihaldslýsingu á fítu ábóta- vant.“ Geir fínnst að öðruvísi ætti að standa að rannsókn af þessu tagi. „RALA og Hollustuvernd ríkisins ættu að framkvæma rannsóknir vegna gæðaeftirlits á eigin kostnað, en ekki Hagkaups. Þá fyrst yrðu niðurstöður réttar." Garðakaup Vill frekari skýringar Nautahakkið hjá Garðakaup hlaut fæst stig, samtals 9, í könnuninni. Ólafur Torfason kaupir nautahakk frá íslandskjöti. Hann segist sann- færður um að það sé ungnautakjöt og ekkert annað. Hann hefur farið fram á að RALA geri sér nákvæma grein fyrir niðurstöðunum. „Könnunin er ekki hlutlaus og því ekki ábyrg. Ég hef sterkan grun um að gerðar hafi verið gerlarannsóknir, og þeirra ekki getið í niðurstöðum því að að þær séu Hagkaup í óhag. Ef Hagkaup hefði lent í neðsta sæti, en Garðakaup í efsta, hefðu þessar niðurstöður áreiðan- lega ekki komið fyrir sjónir almennings." Ólafur bendir á prentvillu þar sem hitastig í Garðakaup fékk eitt stig en ekki þijú eins og rétt er. íslandskjöt Lyktar af hagsmunum „Ég hefði viljað að RALA gerði rannsókn sína hlutlaust, án þess að Hagkaup kæmi þar nærri. Eg bíð eftir hlutlausri rannsókn af þeirra hálfu, enda treysti ég ekki mönnum sem ekki sjá sóma sinn í að leiðrétta mistök sem þeir gera,“ segir Torfí Torfason hjá Islandskjöti. Kjötvinnsla hans selur Garðakaupum. Torfi segir að prentvilla hjá RALA hafi valdið því að útkoma virtist lakari en hún var í raun. „í greinargerð kom fram að kælingu á kjöti væri ábótavant og við fengum strax mann til að gera við kæli. En hann var í lagi og mistökin hjá RALA.“ Hakk frá íslandskjöti reyndist innihalda „önnur hráefni" sem Torfi segist ekki hafa hugmynd um hver séu, enda hafi hvorki mælst sojapró- tein né önnur kjöttegund í sýni frá honum. „Öll þessi könnun lyktar af því hver greiddi fyrir hana og það hlýtur að teljast í verkahring RALA að segja til um hver þessi „önnur hráefni" eru, því við bætum engu við nautahakk hjá okkur. Mér fínnst illa staðið að þessari rannsókn að mörgu leyti og nefni sem dæmi að þegar heilbrigðisfulltrúar gera rann- sóknir láta þeir kvitta fyrir sýnatöku og gera hitamælingar á staðnum. I þessu tilviki var ekki kvittað fyrir sýnsatöku og hitamæling var gerð úti í bíl en ekki inni í verslun." Varðandi umræðu um beljukjöt, segir Torfí kýrkjöt ekki vera vont þótt það sé ódýrara. „En ég hef bara aldrei fengið kýrkjöt. Ég ætlaði einu sinni að kaupa það, en var sagt hjá sláturhúsinu að stærsti kjötkaupand- inn keypti allt kýrkjöt sem fáanlegt er. Þessi aðili kaupir 6Q- 80 skrokka á viku og í öllum gæðaflokkum, þar af eru 50-70% kýrkjöt." „VIÐ seljum nautgripahakk, en það heiti hefur lengi verið notað yfir kýrkjöt. Varan er vandlega merkt sem slík, svo enginn ætti að velkjast i vafa um hvað við seljum. Ekki er ágreiningur um hvort menn selja kýrkjöt, heldur um það hvort sam- bærilegar vörur eru bornar saman í verðkönnun. Það var ekki gert í verð- könnun Morgunblaðsins og DV fyrir nokkrum vikum, sem urðu tilefni ummæla minna um að í öðrum versl- unum væri selt beljukjöt. Kjarni málsins er að nauðsynlegt er að setja skýrar reglur um merk- ingar á kjöti og öðrum matvælum, þannig að unnt sé.að gera marktæk- an samanburð." — Rannsóknin er gagnrýnd þar sem Hagkaup,\ sem er markaðsráðandi fyrirtæki, stendur að henni. Fjarðarkaup Rengir ekki niðurstöður Sveinn Sigurbergsson, verslstj. Fjarðarkaupa, segir enga ástæðu til að vefengja niðurstöður enda gerð af hlutlausum og ábyrgum aðilum. Edvard Friðjónsson, deildarstjóri í kjötdeild tekur í sama streng, en furðar sig á að rannsóknin nái einn- ig yfír sérblandað svína-/nautahakk og nauta-/lambahakk hjá Hagkaupi en einungis nautahakk annars stað- ar. Aðspurður hvort honum þætti 2 stig fyrir innihaldslýsingu nægileg sagði hann enga reglugerð til um þetta. Kjötbankinn Prentvilla hjá RALA Kristinn Jóhannesson eigandi Kjötbankans segir mistök hafa átt sér stað við frágang á greinargerð RALA. Vitlaust verð hafi verið skráð á 2. fl. nautahakk, 628 kr. í stað 568 kr. „Mér finnst óeðlilegt að taka sérblandað hakk frá Hagkaup inn í rannsókn á nautahakki. Ég hefði viljað sjá rannsókn þessa gerða af hlutlausum aðila, t.d. Hollustuvernd, sem hefði bæði framkvæmt hana og kynnt niðurstöður. Rannsóknin hefði þá verið traustvekjandi. Forsendur RALA við einkunnagjöf fyrir inni- haldslýsingu eru umdeiianlegar, en í hakk sem við seljum sem úrvals- hakk er eingöngu ungnautakjöt. Það kemur ekki fram í innihaldslýsingu, og lækkaði því einkunn okkar." Kjöt og fiskur Þetta er sama kjötið Ragnar Lárusson umsjónarmaður kjötborðs í Kjöt og físki í Mjódd, segir sams konar nautahakk vera í tilbúnum neytendapakkningum og í lausavigt úr kæliborði. Niðurstöður RALA bentu þó til að fitu- og kollog- enhlutfall væri ekki það sama. “Við hökkum nautakjöt við 12 gráðu hita í vinnslusal. í geymslukæli er hita- stig mun lægrá. Hafi sýni verið tek- ið þegar hakk var nýkomið í kæli- borð er komin skýring á óeðlilega háu hitastigi hakksins. Kæling er lögleg bæði í verslun og vinnslurými og fylgst er með henni reglulega." „Þegar markaðsráðandi dagblöð eins og Morgunblaðið og DV gera verðkannanir þar sem bornar eru saman ólíkar vörur og telja sig leið- beina lesendum sínum með þeim hætti, er nauðsynlegt að bera hönd fyrir höfuð sér. Til þess var fengin Rannsóknastofnun landbúnaðarins, sem hingað til hefur þótt vinna vís- indalega og af samviskusemi." — Sumir telja að þið leynið hluta af niðurstöðum. „Við höfum látið af hendi þau gögn sem við fengum frá RALA og jafnframt vöktum við athygli á því að bak við þau hlytu að vera önnur rannsóknargögn. Blaðamönnum var sérstaklega bent á að nauðsynlegt væri að spyrja frekari spurninga til fyllingar þeim gögnum sem þeir fengu frá okkur.“ Óskar Magnússon, forstjóri Hagkaups: Vantar reg’lur um merkingar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.