Morgunblaðið - 12.11.1994, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 1994 23
AÐSENPAR GREIIMAR
Prófkjör og peningar:
Ræður Mammon
ferðinni?
ÞEGAR prófkjör
voru fyrst tekin upp
hér á landi fyrir u.þ.b.
20 árum var það álit
margra að hér væri
komið gott tæki til að
minnka áhrif „flokks-
eigenda" á framboðs-
lista og að sáma skapi
auka áhrif almennings
á það, hvaða einstakl-
ingar setji okkur lög í
landinu. Ýmsir ann-
markar hafa komið
fram á þessu fyrir-
komulagi og má þar
sérstaklega nefna
hversu líkan bakgrunn
þeir einstaklingar
virðast oft hafa sem veljast saman
á lista. Má í því til stuðnings nefna,
að sjö af þeim sem röðuðust í ell-
efu fyrstu sætin í nýafstöðnu próf-
kjöri sjálfstæðismanna í Reykjavík
eru lögfræðingar og þarf mikið
hugmyndaflug og vilja til að geta
túlkað þann lista sem „þverskurð-
armynd af íbúum Reykjavíkur".
Hver borgar?
Mjög alvarlegur galli á prófkjör-
unum, sem nú er að koma æ betur
í ljós, er kostnaðurinn sem þeim
fylgir fyrir viðkomandi frambjóð-
endur. Hefur hann aukist í sífellu
á milli kosninga og stefnir í algert
óefni ef ekkert verður að gert. í
prófkjörum sjálfstæðismanna í
Reykjavík og á Reykjanesi, sem
nú eru nýafstaðin, kom þetta ber-
lega í ljós. í harðri samkeppni
frambjóðenda var auglýsingaflóðið
inn á heimilin gríðarlegt og kostn-
aður þeirra mikill - svo mikill að
hann skipti mörgúm milljónum hjá
sumum frambjóðenda.
En hver borgar allt þetta?
Jú, þetta er greitt af söfnunarfé
og af frambjóðendum sjálfum. En
hvað gerist nú ef einhver aðili eða
fyrirtæki leggur t.a.m. 2 milljónir
í kosningasjóð einhvers frambjóð-
anda? Er þá ekki hætta á óeðlileg-
um tengslum þar á milli og viðkom-
andi „eigi“ jafnan mögulegan
framtíðar þingmann? Og hvernig
farnast þeim frambjóðendum sem
ekki eiga digra sjóði sjálfir og hafa
mjög takmarkaðan aðgang að
styrktaraðilum? Er ekki staða
þeirra strax í upphafi vonlaus þó
svo að mannkostir þeirra og mál-
efni séu í engu öðrum síðri?
viðkomandi eða renni
t.d. til flokksfélags
hans ef hann býður
sig ekki fram næst.
Tryggjum jafnræði
Með þessu ætti að
skapast viðunandi
fjárhagslegt jafnræði
milli frambjóðenda og
tryggja að stjórnmál
framtíðarinnar verði
ekki eingöngu leik-
völlur hinna efnuðu
og þeirra sem greiðan
aðgang hafa að fjölda
styrktaraðila. Með
þessu mundum við
jafnframt tryggja
það, að enginn utanaðkomandi
aðili geti keypt sér óeðlileg ítök í
þingmönnum okkar. Einnig er á
þennan máta séð til þess að öll
framlög nýtist til þess sem þau
eiga fara, þ.e. til framboðsmála
en ekki í eitthvað annað.
Til að prófkjörin endi
ekki sem skrumskæling
á lýðræðinu, segir
*
Kristmundur As-
mundsson, verður að
setja fastmótaðar reglur
um framkvæmd og
fjármögnun.
Brjóti prófkjörsþátttakendur
reglurnar verði þeir settir út af
viðkomandi framboðslista.
Skora ég á forystu allra stjórn-
málasamtaka sem að framboðs-
málum standa hér á landi að koma
sér saman um þetta mál hið allra
fyrsta og setja um það fastmótað-
ar reglur.
Annars er hætt við því að leik-
reglur lýðræðisins, eins og við höf-
um þekkt þær á tímum lýðveldis-
ins, verið hjóm eitt, þar sem allir
eru til leiksins kallaðir i orði en
einungis þeir efnuðu og „vel
tengdu" á borði.
Höfundur er heimilislæknir í
Grindavík.
Kristmundur
Ásmundsson
Setjum okkur leikreglur
Þrátt fyrir þessa annmarka er
það skoðun min að í grundvallar-
atriðum henti prófkjörsfyrirkomu-
lagið almennt vel. Á þenn hátt
kemur vilji almennings um uppröð-
un framboðslista best fram.
En til að prófkjörin endi ekki
sem skrumskæling á lýðræðinu,
eins og þau virðast vera á góðri
leið með að gera, verður að setja
fram fastmótaðar almennar reglur
um framkvæmd þeirra og fjár-
mögnun.
Þessar reglur þurfa m.a. að taka
mið af eftirfarandi:
• Hámark verði sett á þá fjárhæð
sem hver frambjóðandi má nota
til að kynna sig.
• Hámark verði sett á þær upp-
hæðir sem styrktaraðilar fá að
leggja í kosningasjóð hvers
frambjóðanda. Ekki má nota
milliliði til framlaga (leggja
fram fé í nafni annarra).
• Frambjóðendur haldi einfalt
bókhald um framlög og útgjöld
og geri það opinbert að loknu
prófkjöri.
• Ef ekki nýtast öll fjárframlög
til frambjóðanda verði afgangur
ávaxtaður til seinna prófkjörs
í BLAÐASÖLUNNI
ÁJÁRNBRAUTA-
STÖOINNi,
já * r'"rRUPFLUQVELLI
Ljúft er að láta sig dreyma um nýjan bíl.
LOTTÓ 5/38 gefur þér kost á að láta drauminn rætast!
Lan'dsleikurinn okkar!
sm
wm
ms. 1 - m
1 | V/.
1 ■ ....
t