Morgunblaðið - 12.11.1994, Síða 50
50 LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
MEDIA
PRÍR LITIR: HVÍTUR
Fjögur
brúðkaup
og jarðarfór
Sýnd kl. 5.05, og 7.
Sýningum fer fækkandi.
Sýnd Kl. 6.30 og 9.10.
TROIS COULEURS
★ ★★★ E.l
Morgunpós
KRZYSZTOF KIESLOWSKI
Fyndið og sérstakt snill-
darverk frá leikstjóranum
sem kann allt.
★ ★★★. ó. H. T. Rástvö
Sýnd kl 5 og 7.
;*★ A.t. MBl
«’★ 0.».T. Rás2
M&Æ „Mátulega ógeðsleg
HBT hrollvekja og á skjön við
8SPfcj| huggulega skólann i
WðmaiTskri kvikmyndagerð"
rnr ■» * * Egill Helgason
‘Ip&^zÍMorgunpósturinn.
B.i. 16 ára. Sýnd kl. 4.50
og 9.10.
Stærsta sprenging sem fest hefur verið á filmu!
Kolklikkaður sprengjusérfræðingur heldur Boston í
helgreipum. Fyrrum lærisveinn hans er sá eini sem
getur stoppað hann...
Aðalhlutverk: JEFF BRIDGES, TOMMY LEE JONES OG
FOREST WHITAKER. LEIKSTJÓRI STEPHEN HOPKINS.
Bönnuð innan 14 ára.
Sýnd kl. 4.50, 6.55, 9 og 11.15.
Tom
Hanks «
Forrest
Gump
140 mín.
Geislaplatan frábæra fæst í öllum hljómplötuverslunum.
| MUNIÐ BÍÓMAGASÍNIÐ - ALLTAF í SJONVARPINU KL. 19:55 UM HELGAR |
MÆTURVÖRÐURinini
FERÐIN AÐ NVÐJU JARÐAR
Kvikmynd eftir Þór Elis Pálsson Kvikmynd eftir Ásgrim Sverrisson
Hvað bíður á svörtum sandinum?
Vafasöm fortíð, óviss framtíð og stund þíns fegursta
frama.
Tvær spennandi og skemmtilegar nýjar íslenskar myndir.
TVÆR MYNDIR - EIN BÍÓFERÐ
Miðaverð kr. 600.
Sýndar kl. 7, 9 og 11.
ZBIGNIEW ZAMA-
CHOWSKI
JULIE DELPY
Háskólabíó
STÆRSTA BIOIÐ.
ALLIR SALIR ERU
FYRSTA FLOKKS.
HÁSKOLABÍÓ
SÍMI 22140
AÐALHLUTVERK
JÓHANNAJÓNAS OG
JAKOB ÞÓR EINARSSON
\ f /
Nýjar hljómplötur
Sex ár á ferðinni
Undanfarin sex ár hefurtrúbadúrinn Siggi
Bjöms flakkað um heiminn og leikið á ótelj-
andi krám og knæpum. Slíkri iðju fylgir að
vera sífellt að spila lög eftir aðra, en á breið-
skífu sem Siggi sendi frá sér í vikunni, kveð-
ur við nýjan tón, því þar á hann öll lög sjálfur.
SIGGI Bjöms tók þá ákvörðun fyrir
sex árum að leggja land undir fót
og reyna fyrir sér með spilamennsku
úti í löndum; að reyna að komast
af sem kráaspilari og þvælast þannig
stað úr stað. Heldur teygðist úr árinu
hans Sigga, því nú er hann búinn
að vera sex ár á ferðinni og segist
eins geta verið á flakki sex ár í við-
bót.
Hættir ekki í bráð
Siggi segir að fjölskyldan hafi
ekki staðið í veginum fyrir því að
hann færi á flakk, því hún var eng-
in, en fyrir tveimur árum eða svo fór
hann að búa með konu í Danmörku
og hefur gert út þaðan. „Það hefur
breytt ansi mikiu,“ segir hann og
segir að eftir það hafi hann hætt að
mestu að fara í lengri ferðir. „Áður
en ég fór að búa þá bara fór ég; ég
var ekki að fara frá neinu og það
skipti engu máli hvenær ég fór eða
hvenær ég kom. Nú er allt breytt
og ef ég er lengi í burtu finn ég
fyrir því.“ Siggi segist þó ekki ætla
að hætta þessu flakki í bráð, hann
eigi frekar eftir að skipuleggja ferð-
imar öðmvísi og reyna að fara styttri
ferðir í hvert sinn. „Með þessari plötu
er ég líka að breyta til. Ég hef ekki
tekið mér frí síðan ég byrjaði í þessu,
hef alltaf haft nóg að gera. Ég er
kominn mikið á sömu rútuna og leik
mikið til sama prógrammið og spinn
út frá því eftir stemmningunni, en
þegar ég er farinn að gefa út mitt
eigið efni þá kannski næ ég að færa
mig til á sviðinu og halda frekar
tónleika, en þessi plata er þannig að
ég get notað hana á pöbbum líka,
því ég ætla ekki að sleppa þeim. Það
getur vel verið að ég eigi eftir að
hætta í þessu einhvemtímann, en það
verður ekkert í bráð, ég hef nóg að
gera næsta árið.“
„Þegar ég var að byija var ég svo
stressaður yfír því að þetta myndi
ekki ganga og bókaði mig og bókaði
eins og vitlaus maður, til að hafa
nóg að gera. Það má segja að því
tempó hafi ég haldið síðan," segir
Siggi og bætir við að það sé ein af
ástæðunum fyrir því að hann settist
að ytra; þar séu fleiri staðir að spila
á svo Iengra líði á milii þess að hann
leiki á einhveijum pöbbnum; frá
Danmörku sé lítið mál að ráða sig
til að spila hvar sem er í Evrópu, en
frá íslandi væri það illmögulegt.
Lítið spilað eigin lög
Siggi segir að hann hafí lítið gert
af því að spila eigin lög á pöbbum,
enda sé fólk þar sjaldnast komið til
að hlusta. „Ef ég hef möguleika á
því þá geri ég það nú samt,“ segir
TRÚBADÚRINN Siggi Björns.
hann og bætir við að þegar menn
úti biðji um eitthvað íslenskt lag, þá
eigi hann til að leika eitt af sínum
eigin lögum, „þeir hafa vitanlega
ekki hugmynd um það hvað ég er
að spila“, segir hann og hlær. Það
er allt öðruvísi að spila mín eigin
lög, því ég er svo vanur að fá við-
brögð við lögum sem ég er að spila
og allir þekkja og þar er því erfitt
að átta sig á því að vera að spila lög
sem fólk er að heyra í fyrsta skipti.“
Hann segist hafa fengið Tryggva
Húbner til að útsetja lögin fyrir sig,
og þeir hafi ákveðið að hafa lögin
sem einföldust, bassi, trommur gítar,
til að auðvelda honum að flytja þau
á tónleikum í kringum landið.
„Helgamar er ég í pöbbaspila-
mennskunni, en í miðri viku hef ég
spilað þessi lög af plötunni, til að
mynda í félagsmiðstöðvum, en ég er
bara svo óvanur að spila fyrir fólk
sem situr bara og þegir og horfír á
mig,“ segir Siggi og hlær. „Ég hef
því reynt að bijóta þetta form upp,
að fá það til að tala við mig, segja
álit sitt á lögunum eða spjalla um
eitthvað annað og jafnvel að biðja
um lög.“
Heimskur og
heimskari
►UM NOKKURT skeið vildi
enginn koma nálægt gerð
myndarinnar „Dumb Dumber“
eða Heimskur og heimskari,
sem fjallar um tvo fábjána sem
ferðast um Bandaríkin og leita
að draumastúlkunni. Astæðan
var titill handritsins. „Yið áttum
í miklum erfiðleikum með að fá
leikara til að lesa handritið yf-
ir,“ segir leikstjórinn og annar
handritshöfunda Peter Far-
relly. „Umboðsmenn þeirra
sögðu bara: „Ég vil ekki að
skjólstæðingur minn leiki í kvik-
mynd með þessu heiti.“ Það var
ekki fyrr en nýja stjarnan í
Hollywood, Jim Carrey, gerði
samning um að leika í myndinni
að áhugi kviknaði og á endanum
voru Jeff Daniels og Lauren
Holly valin til að leika við hlið
Carreys í myndinni.
Sveitakenn-
arinn í
bíósal MÍR
GÖMUL sovésk kvikmynd,
Sveitakennarinn eða „Sélskaja
útsítelnitsa, eins og hún heitir
á frummálinu, verður sýnd
sunnudaginn 13. nóvember í
bíósal MIR, Vatnsstíg 10.
í myndinni segir frá kennslu-
konu sem ræðast að loknu
kennaranámi í Pétursborg
skömmu eftir byltingu til starfa
á afskekktu þorpi í Síberíu og
vinnur þar fram eftir síðari
heimsstyijöldina.
Kvikmyndin var gerð árið
1947 en 2 árum síðar hlaut
leikstjórinn aðalverðlaunin á
alþjóðlegri kvikmyndahátíð í
París fyrir leikstjórn í Sveita-
kennaranum.
Aðgangur að kvikmyndasýn-
ingunni er ókeypis og öllum
heimill.
CARREY og Daniels virka sannfærandi í hlutverkum sínum.