Morgunblaðið - 14.03.1995, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 14.03.1995, Blaðsíða 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 14. MARZ 1995 MORGUNBLAÐIÐ AÐALFUNDUR SJÓVÁ-AUVIENNRA VERÐUR HALDINN 31. MARS 1995 AÐ HÓTEL LOFTLEIÐUM Fundurinn verður í Þingsal 1 og hefst kl. 16.00 síðdegis. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt 17. grein félagssamþykkta. 2. Tillaga um arðgreiðslur. 3. Tillaga um útgáfu jöfnunarhlutabréfa. 4. Tillaga um breytingar á samþykktum s félagsins til samræmis við ákvæði | hlutafélagalaga nr. 2 /1995. | Aðgöngumiðar verða afhentir á skrifstofu félagsins, Kringlunni 5, frá 27. mars til kl. 12.00 á fundardag. SlOVAÖgTALMENNAR Sjóvá-AImennar tryggingar hf. • Kringlunni 5 • Símí 569 2500 4 Morgunverðarfundur (seinni af tveim "stjórnmálafundum") miðvikudaginn 15.mars 1995 kl. 08.00 - 09.30, í Átthagasal Hótels Sögu ISLENSKT ATVINNULÍF OG PÓLITÍSKT UMHVERFI - HVERT STEFNUM VIÐ í SAMKEPPNI ÞJÓÐANNA? SIJÓRNMÁLAFORINGJAR A palli MEP IALSMÖNNUM ATVINNULÍFSINS Forsendur og stefna flokka og framboda í hnotskurn - 5 mínútna ávörp. Fríðrík Sophusson, varaformaður Sjálfstæðisflokksins - Halldór Ásgrímsson, formaður Framsóknarflokksins Krístín Astgeirsdóttir talsmaður Kvennalistans Pallborð - spurningar, svör, snörp sKoðanaskipti Talsmenn atvinnulífsins: Jenný Stefanía Jensdóttir, framkvæmdastjóri Plastos hf. Jón G. Hauksson, ritstjóri Frjálsrar verslunar Ragnar Birgisson, framkvæmdastjórí Opals hf. Fundarstjóri Sverrír V. Bernhöft, framkvæmdastjóri Barrs hf. Fundargjald (morgunverður innifalinn) kr. 1.200.- Fundurinn er opinn, en tilkynna verður þátttöku fyrirfram í síma Verslunarráðsins, 588 6666 (kl. 08 - 16). VERSLUNARRAÐ ISLANDS VIÐSKIPTI Pundið á í vök að veijast London, Tókýó. Reuter. PUNDIÐ hélt áfram að lækka í gær og markið hækkaði enn, en mesta athygli vekur nú að pund bætir ekki stöðu sína gagnvart dollar að sögn sérfræðinga. Staða punds gagnvart jeni hefur aldrei verið eins slæm og sama er að segja um stöðu þess gagnvart marki. í Tókýó er sagt að pundið kunni að lækka meir og fátt geti hjálpað því. Lægst fór pundið í 142.25 jen, en áður hafði það farið lægst í 142.85 jen í New York á föstudag. Pundið seldist á 2.2155 mörk í Tókýó, lægsta verði til þessa, þótt það hækkaði lítið eitt á ný. Fyrra metið var 2.2205 mörk 8. marz. Sterk staða marks styrkti aðra gjaldmiðla, þar á meðal dollar, sem hélt velli í gær. Veikt gagnvart dollar Pundinu tókst með naumindum að halda í horfinu gagnvart dollar. GENGI PUNDSINS ALDREI LÆGRA GAGNVART MARKI FRÁ STRÍÐSLOKUM Mörk hvert pund Það seldist á 1.5815 dollara, sem er lítil sem engin breyting síðan á föstudag. Til þessa hefur uppsveifla gagn- vart dollar vegið upp á móti niður- sveiflu gagnvart marki, en það á ekki lengur við. „Staðan hefur gerbreytzt og nú veldur veikleiki punds gagnvart dollar áhyggjum,“ sagði sérfræðingur í London. Lægst hefur pund farið á 1.03000 dollara í febrúar 1985 og ástandið nú er ekki nálægt því eins slæmt enn sem komið er. Hins vegar er pundið hættulega nálægt mestu lægð, sem það hefur komizt í á viðskiptavísitölu, 84,0 stigum. Vísitalan lækkaði í 84,9 stig í gær. Sérfræðingar í London segja að aukinnar óvissu gæti vegna veikr- ar stöðu efnahagsmála og óljósrar stöðu í stjórnmálum í Bretlandi. Þeirri skoðun vex fýlgi að draga muni úr efnahagsbata og að ekki þurfi að hækka vexti á ný. Spáð2,5% verð- bólgu á árinu Verðbólguspá Seðlabankans til janúar 1996 5,0% 0,0 —-1-1-1-1-1-1.t-1-1-1-1- J FMAMJ JÁSONDJ VERÐBOLGAN verður 2,52% frá upphafi til loka þessa árs, sam- kvæmt nýrri verðbólguspá Seðla- bankans. Bankinn hefur endurmet- ið verðlagshorfur á árinu í fram- haldi af nýgerðum kjarasamningum og mælingu vísitölu neysluverðs í marsmánuði. Einnig hefur verið lagt fyrsta mat á verðlagshorfur á árinu 1996. Gert er ráð fyrir áframhaldandi lágri verðbólgu á næstu tveimur árum. Þannig er því spáð að vísi- tala neysluverðs hækki um 2,3% frá ársmeðaltali 1994 til meðaltals 1995. Þá er gert ráð fyrir 2,9% hækkun frá 1995 til 1996. Þetta er minni verðbólga en spáð er í OECD-ríkjum á þessu ári og svipuð og spáð er á því næsta, að því er segir í frétt frá Seðlabankanum. Spá bankans byggist á þeirri for- sendu að nýgerðir Iqarasamningar milli ASÍ og VSÍ verði fyrirmynd annarra kjarasamninga í landinu, en þeir eru taldir fela í sér 3,6% meðalhækkun launa í upphafi samn- ingstímans, 3,1% 1. janúar á næsta ári og 0,15% í desember eða sam- tals um 7% hækkun á samningstím- anum. Auk þess er talið að launa- kostnaður aukist um 0,3% vegna sérkjarasamninga. Aðrar fosendur eru þær að gengi haldist stöðugt og framleiðni aukist um 1% 1996 og 1,5% 1996 og að launaskrið verði 1% hvort ár. Verðbólguspáin og of- angreindar forsendur fela í sér að raungengi á mælikvarða verðlags haldist tiltölulega stöðugt á þessu og á næsta ári en hækki um 2,5% á mælikvarða launa. Hvernig væri að fríska upp á málakunnáttuna fyrir sumarleyfið? Málaskólinn Mímir býður upp á stutt markviss málanámskeið í: Ensku, þýsku og spænsku fyrir byrjendur og lengra komna. Einnig er boðið upp á viðskiptaensku. Kennt er með aðferðum hraðnámstækni (Accelerated Learning Technique). Kennt tvisvar í viku í fjórar vikur. Verð aðeins kr. 9.900. Kennsla hefst mánudaginn 3. apríl. Notfærið ykkur þetta einstaka tækifæri til þess að bæta tjáskipti ykkar á erlendri grund og njóta sumarfrísins enn betur. Úrvals kennarar- úrvals kennsluaðferðir - hagkvæmt verð Málaskólinn Mímir er í eigu Stjórnunarfélags íslands. Nánárí upplýsingar í síma 10004. Hilda Torres, spænska Barry Green, enska Reiner Santuar, þýska Sæplast greiðir 10% arð AÐALFUNDUR Sæplasts hf. á Dalvík sem haldinn var á fimmtu- dag, samþykkti að greiða hluthöf- um 10% arð vegna ársins 1994. Jafnframt var samþykkt að auka hlutafé félagsins um 10% með út- gáfu jöfnunarhlutabréfa. 1 stjórn félagsins voru kjörnir þeir Matthías Jakobssson, Valdimar Snorrason, Jón Gunnarsson, Pétur H. Blöndal og Baldvin Valdimars- son. Varamenn eru Hallgrímur Hreinsson og Björgólfur Jóhanns- son. Hagnaður félagsins á sl. ári nam liðlega 10 milljónum og velta 361 milljón. Á þessu ári er gert ráð fyrir 15% veltuaukningu og að hagnaður verði 10-15% af veltu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.