Morgunblaðið - 14.03.1995, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 14. MARZ 1995 51
BRÉF TIL BLAÐSINS
FRÁ sýningunni umræddu.
Þetta gengur ekki lengur
Rúllu-
stiga-
röfiið
Frá Gísla Árnasyni:
MIÐVIKUDAGINN 8. mars birtist
í Morgunblaðinu „gagnrýni" á
árshátíðarsýningu Flensborgar.
Rýnirinn, Guðbrandur Gíslason,
virðist eiga slæmar minningar frá
Hafnarfirði því að hann fann öllum
bænum eitthvað til foráttu auk
þess að traðka sýninguna í svaðið.
Guðbrandur er líklegast óvitlaus
fyrst honum er leyft að skrifa í
Morgunblaðið en ekki þó nógu vel
að sér til að skilja á nokkum hátt
hver tilgangur sýningarinnar var.
Mænustunga (sýningin og stutt-
myndin) er gerð eftir Spinal Tap,
kvikmynd sem gerð var 1982.
Myndin er ádeila á rokkið í heild
sinni og drepfyndin sem slík,
Spinal Tap ferðast um Bandaríkin
við litlar undirtektir og heillar
helst hvíta millistéttarstráka með
greindarvísitölu í lægri kantinum.
Þeir slá um sig með reyk, spreng-
ingum, fáklæddum stúlkum og
tvíræðum húmor, alveg eins og
bandarískir þungarokkarar hafa
komist upp með í mörg ár. Mynd-
in er gerð í þeim eina tilgangi að
gera grín að heimsku og fáfræði
bandarísku þungarokkaranna.
Mér finnst ótrúlegt að Guð-
brandur skuli hafa haldið að
drengjunum væri alvara með að
syngja „Bitch school“ og „Sadó
drusla“ haldandi um punginn á sér
og flengjandi stúlkurnar um léið.
Ef Guðbrandur hefði ætlað að
skrifa um sýninguna á hlutlausan
hátt hefði hann átt að, kynna sér
verkið að einhveiju leyti (nóg hefði
verið að lesa leikskrána), sitja út
sýninguna og _fá sér kímnigáfu
ejnhverstaðar. í ljósi þess að ég
er afar ósáttur við gagnrýni Guð-
brands utan þess sem hann sagði
um kjölprikin á kaffihúsinu Súfist-
anum þá ráðlegg ég honum vin-
samlegast að fara út á næstu leigu
og leigja myndina Spinal Tap, the
movie. Það ætti að veita honum
smá innsýn í það sem við vorum
að gera.
Að lokum vil ég leiðrétta það
sem misritaðist í inngangi rýninn-
ar vegna áhugaleysis Guðbrands.
Aðalleikarar eru ekki þeir sem
taldir voru upp, þeir voru hljóð-
færaleikarar sem sátu baksviðs
og spiluðu tónlistina sem Guð-
brandur heyrði. Þeir sem Guð-
brandur sá hins vegar voru Ólafur
Már Svavarsson, Guðni Markús-
son, Björn Viktorsson og Kjartan
Orri Ingvason. Stúlkurnar sem
dilluðu sér, Guðbrandi til mikillar
hneykslunar, voru svo Tinna
Bessadóttir, Kolbrún Hrund Sigur-
geirsdóttir og Sara Hlín Guð-
mundsdóttir.
Þorsteinn Bachmann leikstýrði
sýningunni og Arnar Jónasson og
Reynir Lyngdal sáu svo um gerð
stuttmyndarinnar.
Vona ég svo innilega að Guð-
brandur sjái sér fært að taka sér
tíma í sína næstu gagnrýni.
GÍSLI ÁRNASON,
Álfaskeiði 26, Hafnarfirði.
Frá Gerði Pálsdóttur:
ÁSTÆÐAN fyrir því að ég skrifa
þetta bréf er kennaraverkfallið sem
staðið hefur hátt í mánuð. Það er
ótrúlegt hvað hægt er að ganga
langt í því að láta verkfall bitna á
þeim sem síst skyldi. Hvers eigum
við nemendur að gjalda? Á að láta
okkur bíða í margar vikur ennþá
eftir því að menn setjist niður
ákveðnir í að semja og með því
binda enda á óvissuna?
Ríkisstjórninni vil ég benda á að
í framhaldsskólum landsins eru
þúsundir nemenda sem eru 18 ára
og eldri og þar af leiðandi með
kosningarétt. Þar eru dýrmæt at-
kvæði sem ég er viss um að sumir
flokkar hafa ekki efni á að missa
í kosningunum í vor. Ég vona alla
vega að nemendur hafí vit á því
að styðja ekki ríkisstjórn sem hefur
engan samningsvilja.
Lyfjaeftirlit ríkisins vill taka fram
eftirfarandi:
í MARKAÐSSETNINGU á megr-
unarplástri sem seldur er í gegnum
Sjónvarpsmarkaðinn hefur því verið
haldið fram að plásturinn sé sam-
þykktur af Lyfjaeftirliti ríkisins.
Þetta er rangt og hefur lyfjaeftirlit-
ið krafíst þess að seljendur vörunnar
hætti dreifingu á bæklingi og öðru
efni þar sem þessu er haldið fram.
Heilbrigðisyfirvöld hafa ekki lagt
mat á gæði eða gagnsemi plásturs-
ins og er því villandi að halda því
fram að Lyfjaeftirljt ríkisins hafi
samþykkt vöruna. í huga margra
samsvarar þessi fullyrðing því að
Þessa dagana er mikið talað um
menntun og gæði hennar. Lögð er
áhersla á að fólk fari í framhalds-
skólanám. Með því að lama skóla-
starf í margar vikur skapast hætta
á að nemendur gefist upp á biðinni
og óvissunni og reyni að útvega sér
vinnu. Oft vill það síðan verða svo
að þeir sem hætta fara ekkert í
skóla aftur og þá er jafnvel nokk-
urra anna vinna fyrir bí. Þeim seink-
ar sem halda áfram og það þýðir
að skólarnir verða yfirfullir. Það
tekur langan tíma að laga röskun-
ina sem langt verkfall veldur í
skólastarfinu.
Ég er viss um að ég tala fyrir
hönd margra nemenda, einkum
þeirra sem ætluðu sér að ljúka námi
í vor. Þetta gengur ekki lengur.
Vinsamlegast semjið sem fyrst!
GERÐUR PÁLSDÓTTIR,
nemandi í HM
árangur af notkun vörunnar sé
tryggður, sem komið hefur fram í
fjölda fyrirspurna sem lyfjaeftirlitið
hefur fengið undanfarnar vikur.
Hið rétta er að innflytjendur
plástursins óskuðu heimildar frá
Lyfjaeftirliti ríkisins til innflutnings
og sölu vörunnar. Að lokinni um-
fjöllun um málið varð niðurstaðan
eftirfarandi:
Plásturinn inniheldur ekki lyf né
heldur efni sem geta talist skaðleg
við venjulega notkun og telst því
vera almenn verslunarvara. Lyfja-
eftirlitið gerir því ekki athugasemd-
ir við innflutning og vöru vörunnar.
GUÐRÚN S. EYJÓLFSDÓTTIR.
Yfirlýsing frá Lyfja-
eftirliti ríkisins
The World Championship in Handball for Men, 1995
dí*n'
iceland
1995
Jknattleik, 1995
FRÍMERKI GEFIN ÚT
14. MARS 1995
STAMPS ISSUED 14 MARCH 1995
FRÍMERKJASALAN - POSTPHIL
P.O. BOX 8445
128 REYKJAVlK
SÍMI 5506051/52/53
FAX 5506059
PÓSTUR OG SÍMI