Morgunblaðið - 14.03.1995, Page 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 14. MARZ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
VERIÐ
Fiskaflinn í febrúarmánuði
Þorskafli 10.000 tonn-
um minni en í fyrra
ÞORSKAFLINN af íslandsmiðum
í febrúarmánuði varð aðeins tæp-
lega 16.500 tonn, sem er rúmlega
10.000 tonnum minna en á sama
tíma í fyrra. Togararnir náðu nú
tæpum 5.000 tonnum, sem er
3.200 tonnum minna en í fyrra,
en bátar voru með 9.400 tonn,
nærri 5.000 tonnum minna en í
sama mánuði 1994. Þá eru smá-
bátar aðeins hálfdrættingar nú
miðað við sama tímabil og náðu
aðeins 2.000 tonnum nú. Skýring-
in á litlum þorskafla liggur í afar
erfiðum gæftum og minnkandi
kvóta.
Heildaraflinn í febrúar síðastl-
iðnum varð aðeins 281.105 tonn
samkvæmt bráðabirgðatölum frá
Fiskistofu.
í sama mánuði í fyrra veiddust
378.205 tonn og að venju eru
sveiflumar mestar í loðnuafla. í
febrúar nú fengust aðeins 234.000
Mikil aukning á
úthafsrækjuafla á
fiskveiðiárinu
tonn, en 321.000 í fyrra. Sam-
drátturinn í þorskinum er einnig
mikill, en auk þess fékkst minna
af öllum helztu nytjategundum nú
en í sama mánuði í fyrra og veld-
ur veðrið þar mestu.
240.000 tonnum
minna á land
Sé litið á aflann frá upphafí fisk-
veiðiársins fyrsta spetember, kem-
ur í ljós að heildarafli nú er
626.600 tonn, en hann var á sama
tíma í fyrra 868.300 tonn. í fyrra
veiddust 512.000 tonn af loðnu
þetta tímabil, en aðeins 248.000
tonn nú, enda engin loðnuveiði
allt haustið og fram í febrúar.
Þorskafii nú var 81.000 tonn sem
er 26.000 tonnum minna en í
fyrra. Betur hefur hins vegar
gengið að veiða ýsuna og voru nú
komin 22.600 tonn á land, eða um
3.000 tonnum meira en í fyrra.
Nokkur samndráttur er á ufsaveið-
inni, auking í karfa, síld og úthafs-
rækju, en af henni hafa nú veiðst
nærri 30.000 tonn, 12.000 tonnum
meira en í fyrra.
Mestum þorski var landað í
Grindavík í febrúar, 1.675 tonn-
um, sem er 150 tonnum meira en
í fyrra.
Næst kemur Hafnarfjörður
með 1.429 tonn (1.883 í fyrra),
Sandgerði með 1.382, (2.335),
Reykjavík með 1.230 (876), Rif
með 1.130 (1.268) og Keflavík
með 1.024 (1.593). Nú var aðeins
landað um 260 tonnum af þorski
á Akureyri en 1.003 tonnum í
fyrra.
Furðu-
fískadagar
FURÐUFISKADAGAR standa
nú yfir á Hótel Esju. Þar gefst
matargestum kostur á því að
bragða ýmsar tegundir fiskmet-
is, sem sjaldan eru á borðum,
bæði úr hafinu umhverfis landið
og innfluttar tegundir. Þar er
að finna djúpsteikta loðnu, ígul-
kerahrogn, sverðfisk, vatna-
krabba, beitukóng, langhala,
kolkrabba og ýmislegt fleira.
Það er Ólafur H. Jónsson, mat-
reiðslumaður, sem stendur fyrir
furðufiskadögunum. Hann seg-
ist leita fanga víða, en mikið fái
hann frá Aflakaupabankanum,
Höfn í Hornafirði og víðar, en
innflutta fiskinn fær hann frá
Snæfiski. Ólafur segir, að þeir
hafi verið með fiskihlaðborð í
nokkur ár á Hótel Esju og hafi
það notið mikilla vinsælda. Með
furðufiskadögunum sé verið að
krydda tilveruna svolítið og
vekja áhuga fólks á öllu því
góðgæti, sem úr sjónum sé fáan-
legt. Furðufiskadögunum lýkur
þann 18. þessa mánaðar.
Morgunblaðið/Þorkell
ÓLAFUR H. Jónsson við furðufiskaborðið á Hótel Esju.
Hólmaborg’ SU aflahæst
303.660,215 tonn af loðnu eru kom-
in á Iand á vetrarvertíð 1995 og
er heildarveiðin á loðnuvertíðinni
1994-95 því orðin 514.628,215
tonn. Samkvæmt upplýsingum
Fiskistofu er endanlegur loðnukvóti
837.879 tonn. Eftirstöðvamar eru
því 323.250,785 tonn.
STOFNFUNDUR félagsins Sjávar-
nytja verður haldinn á Hótel Sögu
í kvöld, þriðjudagskvöld, 14. marz
klukkan 20.00. Sjávarnytjar er fé-
lagsskapur fólks, sem vill stuðla að
sjálfbærri nýtingu sjávarspendýra
og mun standa fyrir umræðum á
málefnum er varða sjávarspendýr.
„Sjávarnytjar munu hvetja fé-
laga sína til að afla sér fróðleiks
um allt er varðar sjávarspendýr og
koma þeirri vitneskju á framfæri
manna á meðal í þjóðfélaginu,
þannig að umræða um þessi mái
Hólmaborg SU er aflahæsta
loðnuskipið á vertíðinni 1994-95,
hefur veitt 19.502 tonn. Örn KE
hefur komið með 18.949 tonn að
landi og Börkur NK er ekki langt
undan með 18.801 tonn. Þá hefur
Sigurður VE dregið 18.596 tonn
af loðnu úr sjó á vertíðinni. Húna-
verði sem mest á faglegum nót-
um,“ segir meðal annars í frétt um
stofnfundinn.
Efni fundarins verður þannig að
lokinni fundarstningu, að Gísli Vík-
insson fjallar um hvalastofna við
ísland, Erlingur Hauksson ræðir
um selastofna og Þórður Hjartarson
flytur tillögu að stofnun félagsins.
Loks verður kosin stjóm til bráða-
birgða og fjallað um önnur mál.
Fundurinn er öllum opinn og verður
fundargjald 500 krónur. Fundurinn
verður haldinn í þingsal A.
röst RE hefur veitt 17.983 tonn og
Guðmundur VE 17.961 tonn. Aflinn
hjá Höfrungi AK er kominn í
17.946 tonn og Helga II RE stend-
ur honum ekki langt að baki með
17.399 tonn. Þá hefur Háberg GK
landað 16.993 tonnum, Víkingur
AK 16.254 tonnum og Sunnuberg
GK 16.111 tonnum.
Mikil loðna til Seyðisfjarðar
Hraðfrystihús Eskifjarðar er sú
loðnuvinnsla sem tekið hefur á
móti mestum afla á vertíðinni eða ■
tæplega 38.700 tonnum. Ríflega
35.200 tonnum af loðnu hefur ver-
ið landað hjá SR Mjöli á Seyðisfírði
og rösklega 31.700 hjá Vinnslu-
stöðinni í Vestmannaeyjum. Tæp-
lega 31.000 tonn hafa komið á land
hjá Síldarvinnslunni í Neskaupstað
og rúmiega 24.000 tonn hjá ísfélagi
Vestmannaeyja. SR Mjöl á Reyðar-
fírði hefur tekið á móti liðlega
17.800 tonnum af loðnu og Harald-
ur Böðvarsson á Akranesi freklega
12.100 tonnum. Þá hefur Vestdals-
mjöl á Seyðisfírði fengið um 10.700
tonn til vinnslu og Hraðfrystihús
Þórshafnar hátt í 10.400 tonn.
Vilja sjálfbæra nýt-
ingu sjávarspendýra
FRÉTTIR: EVRÓPA
Reuter
LANDBÚNAÐARRÁÐHERRAR ESB á fundinum í Toulouse.
Frá vinstri: Andre Bourgeois frá Belgíu, Georges Morantis frá
Grikklandi, Luis Atienza frá Spáni, Jean Puech frá Frakk-
landi, Wilhelm Moltrer frá Austurríki, Margareta Winberg frá
Sviþjóð, Ivan Yates frá Irlandi og Borchert frá Þýzkalandi.
Svik úr landbúnaðarsjóðum ESB
Gervihnettir notað-
' ir til eftirlits
bandið til að draga verulega úr
útgjöldum vegna komframleiðslu.
Ráðherrarnir heimsóttu fyrir-
tækið í gær en þeir eru nú í þriggja
daga ferð um suðvestur-Frakkland
til að eiga óformlegar viðræður
um landbúnaðarmál.
ESB greiðir fyrirtækinu SPOT
tíu milljónir franka árlega fyrir
að taka myndir af evrópskum
landbúnaðarsvæðum og eru uppi
áform um að fjölga eftirlitssvæð-
unum úr 53 í 70.
Sambandið greiðir fyrir vinnuna
en einstök aðildarríki verða að
panta myndatökurnar hvert fyrir
sig. Frakkar, sem era mjög stoltir
af þessari frönsku tækni, eru þó
ein þeirra ESB-þjóða sem nýtir sér
hana minnst.
Frakkar eru mesta landbúnað-
arþjóð Evrópu en létu á síðasta
ári einungis hafa eftirlit með fimm
svæðum. ítalir, sem löngum hafa
haft orð á sér fyrir svik úr sjóðum
ESB, fylgdust hins vegar með tíu
svæðum. Á þessu ári fjölgar þó
frönsku svæðunum í sjö, sem haft
er eftirlit með.
Toulose. Reuter.
FRANSKT gervihnattafyrirtæki
sýndi evrópskum landbúnaðarráð-
herrum fram á það í gær hvernig
fylgst er með svindli í Iandbúnað-
arkerfínu í gegnum gervihnetti.
Árlega er talið að milljarðar króna
fari í súginn vegna svika í kringum
niðurgreiðslur úr sameiginlegum
landbúnaðarsjóðum ESB.
„Kosturinn við gervihnetti er
að þegar menn á jörðu niðri hafa
eftirlit með hlutum tekur tíma að
safna saman sýnishornum og
greina þau. Við getum gert þetta
allt á augabragði með tölvu-
vinnslu," sagði Jean-Claude Rive-
rau, sölustjóri fyrirtækisins SPOT
Image í Toulouse.
Myndir bornar saman við
upplýsingar frá bændum
Hann nefndi sem dæmi að hægt
væri að bera saman gervihnatta-
myndir við þær upplýsingar, sem
bændur gæfu sjálfur um landnýt-
ingu, en ESB greiðir nú sérstaka
umbun til þeirra bænda, er hætta
ræktun á 12-15% af landi sínu, en
með slíkum aðgerðum vonast sam-
Verðsamráð í skipa-
flutningum bannað
• KAREL van Miert, sem fer
með samkeppnismál í fram-
kvæmdastjórninni, hefur varað
skipafélög við þvi að fastar, sam-
ræmdar verðskrár verði ekki
lengur liðnar í greininni. Miert
sagði á ráðstefnu að þau fyrir-
tæki sem hefðu verðsamráð gætu
átt yfir höfði sér sektir er næmu
allt að 10% af veltu síðastliðins
árs.
• DEILAN um forstjórastöðuna
hjá Alþjóðaviðskiptastofnuninni
(WTO) gæti leitt til þess að sam-
tökin verði að starfa án yfir-
manns í einhvern tíma. Breska
blaðið The Times greindi frá því
í gær að upplýsingar um víðtæk-
an alþjóðlegan stuðning við
frambjóðanda Evrópusambands-
ins, ítalann Renato Ruggiero,
verði gerðar opinberar í dag.
• BLAÐIÐ Financial Times ger-
ir aukna spennu milli ESB og
Bandarikjanna að umtalsefni í
gær. Segir blaðið viðskiptadeilur
og deilur vegna aðstoðarinnar
við Mexíkó, ágreining um forstjó-
rastöðuna hjá WTO og frelsi í
flugi ógna samvinnu þessara
ríkja. Þá sé uppi ágreiningur um
stækkun NATO og ESB óttast
að í framtíðinni muni Banda-
ríkjastjórn reyna að hunsa fram-
kvæmdasfjórnina við gerð við-
skiptasamninga og snúa sér beint
að einstaka aðildarríkjum.
• FIMMTÁN utanríkisráðherr-
ar ESB munu í júnímánuði hitt-
ast á fundi í ítölsku borginni
Messina til að hefja undirbún-
ingsviðræður vegna ríkjaráð-
stefnunnar er hefst á næsta ári."
• EVRÓPSKIR súkkulaðifram-
leiðendur hafa átt í hörðum úti-
stöðum undanfarið. Deila þeir
um hvort að vörur, sem innihalda
jurtafeiti auk kakós, geti flokk-
ast sem súkkulaði.
í Þýskalandi er hafin herferð
gegn því að reglum verði breytt
á þannig veg að aukin notkun
jurtafeiti verði heimiluð. Óttast
Þjóðverjar að slíkt myndi hafa í
för með sér versnandi gæði súkk-
ulaðis.
• WERNER, forstjóri Mercedes-
Benz, segir í samtali við þýska
viðskiptablaðið Handelsblatt að
hann telji ekki að Suður-Kóreu-
menn eigi að geta flutt inn bif-
reiðar tollfijálst til Evrópusam-
bandsins, líkt og greint hafi ver-
ið frá í tímaritinu Spiegel. Sagð-
ist Weraer vera þeirrar skoðunar
að Suður-Kóreumenn ættu að
greiða 11% toll rétt eins og Jap-
anir.