Morgunblaðið - 14.03.1995, Síða 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 14. MARZ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
Yfirlýsing frá Ingu Jónu Þórðardóttur:
Ósaimindí
borgarsfjóra
SÍÐDEGIS sl. föstudag boðaði
borgarstjórinn í Reykjavík, Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir, til bla,ða-
manriafundar. Tilefnið, var að
hennar sögn að henni hafði borist
í pósti fyrr í vikunni nafnlaus send-
ing sem hafði að geyma þá
„skýrslu“ Ingu Jónu sem fram-
bjóðendur R-listans í borgarstjóm-
arkosningum fyrir ári hefðu gert
kröfu til að yrði lögð fram. Þá
fyrr um daginn hafði Ingibjörg
Sólrún boðað mig til fundar þar
sem hún spurði hvort ég kann-
aðist við plaggið. Ég sagði rétti-
lega að þarna væri komin ein af
þeim greinargerðum sem ég hefði
lagt fyrir þáverandi borgarstjóra,
Markús Örn Antonsson, meðan á
vinnu minni fyrir hann stóð á ár-
inu 1992. Sagðist Ingibjörg Sólrún
ekki vilja greina mér frá því hver
hefði sent henni plaggið en henni
væri kunnugt um það. Hún hefði
ákveðið að leggja þetta fram í
borgarráði næsta þriðjudag og
fjölmiðlum yrði sent plaggið. Hálf-
tíma síðar hófst blaðamannafund-
ur borgarstjóra þar sem hún sagð-
ist ekki hafa hugmynd um hver
hefði sent henni plaggið.
Vinnuplagg í upphafi
verks verður að
„einkavæðingarskýrslu"
Á þeim fundi tilkynnti hún
ranglega að ég hefði „viðurkennt“
að þetta væri skýrslan margum-
rædda og lýsti mér og tveimur
fyrrverandi borgarstjórum Sjálf-
stæðisflokksins sem ósanninda-
mönnum þar sem við hefðum allt-
af neitað að slíkt plagg væri til.
Þessu mótmæli ég harðlega og
hlýt að lýsa vonbrigðum mínum
með að Ingibjörg Sólrún skuli
segja ósatt. í kosningabaráttunni
síðastliðið vor greindi ég ítrekað
frá því að ekki væri um að ræða
neina heildarskýrslu um þá vinnu
sem ég vann fyrir borgarstjóra.
Verkefnið hefði ekki verið þess
eðlis. Slík lokaskýrsla væri ekki
til og ég hefði ekki verið ráðin til
að skrifa slíka skýrslu. Hins vegar
hefði ég á vinnuferlinum sem tók
um ellefu mánuði lagt fram minn-
isblöð og greinargerðir eftir því
sem vinnan þróaðist. Plagg það
sem borgarstjóri lagði
fram á fyrrnefndum
blaðamannafundi var
unnið í maí/ júní 1992
mörgum mánuðum
áður en störfum mín-
um lauk. Þar er að
finna yfirlit yfir all-
marga þætti byggt á
lauslegri athugun og
hugmyndir á fyrsta
stigi málsins kynntar.
Af þessu tilefni er
nauðsynlegt að rifja
upp og líta á nokkrar
frekari staðreyndir:
í febrúar 1992 tók
ég að mér fyrir þáver-
andi borgarstjóra að vinna að at-
hugun á ýmsum þáttum í rekstri
borgarinnar og borgarstofnana
með það að markmiði að kanna
hvar væri hægt að ná fram breyt-
ingum í rekstri til að mæta betur
þörfum tímans, ná meiri hag-
kvæmni eða almennum sparnaði.
Fjölbreyttir möguleikar komu til
greina í því sambandi allt frá út-
boðum, samningum við starfs-
menn um rekstur, sölu eigna, eða
aðrar breytingar á rekstrarformi.
Vinnan fór þannig fram að rætt
var við yfírmenn einstakra stofn-
ana og stjórnendur deilda og for-
menn ráða eftir því sem við átti.
Unnið var úr ýmsum tölulegum
gögnum og bókhaldsgögnum. Á
reglulegum vinnufundum með
borgarstjóra voru lögð fram minn-
isblöð og greinargerðir sem vinnu-
plögg fyrir borgarstjóra. Hug-
myndir, möguleikar og tillögur um
aðgerðir sem þar komu fram voru
ræddar fram og aftur. Sumt var
þess eðlis að það fékk farveg inn-
an borgarkerfisins strax þar sem
embættismenn unnu áfram með
málið. Annað þurfti pólitíska um-
fjöllun og afgreiðslu. Og enn ann-
að gat verið þess eðlis að því væri
hafnað strax á hugmyndastigi og
kom því ekki til frekari úrvinnslu.
Eðlileg vinnubrögð
Vinnubrögð af þessu tagi eru
að sjálfsögðu þekkt í stjórnkerf-
inu. Einstakir stjórnendur fá sér
til ráðuneytis utanaðkomandi aðila
til að koma með hugmyndir eða
vinna úr hugmyndum
og setja fram tillögur
til lausnar afmörkuð-
um málum. Slík
vinnuplögg ganga
milli manna á hug-
myndastigi og teljast
ekki opinber píögg.
Borgarstjóri er
framkvæmdastjóri
yfir umfangsmiklum
og flóknum rekstri.
Það er beinlínis skylda
hans að sjá svo ■ um
að sífellt sé leitað leiða
til að tryggja fyllstu
hagkvæmni í rekstri
til að nýta skattfé
borgaranna sem best. Stjórnunar-
hættir og rekstrarfyrirkomulag -
þurfa að taka mið af þessu. Stund-
um er það hlutverk fastra starfs-
manna borgarinnar að vinna að
þessu verkefni en það er jafnframt
bæði eðlilegt og sjálfsagt að leitað
Með fráleitum fullyrð-
ingum o g hreinum
ósannindum, segir
Inga Jóna Þórðar-
dóttir, hefur Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir sett
sig á bekk með þeim
stjómmálamönnum
sem stunda lágkúm-
leg vinnubrögð.
sé til aðila utan borgarkerfisins
til lengri eða skemmri tíma til að
sinna því.
„Hægri höndin“
Ég hygg að Ingibjörg Sólrún
borgarstjóri geri sér mæta vel
grein fyrir þessu. Með hliðsjón af
sinni takmörkuðu stjórnunar-
reynslu ákvað hún strax í byijun
að ráða sér sérstakan aðstoðar-
mann sem skyldi verða hennar
hægri hönd allt kjörtímabilið.
Inga Jóna
Þórðardóttir
Kostnaður vegna þessarar ráðn-
ingar getur numið um_13 milljón-
um á kjörtímabilinu. Ég geng út
frá því að stór þáttur starfs aðstoð-
armannsins sé að undirbúa stefnu-
mörkun borgarstjórans í ýmsum
málum, safna saman hugmyndum
og vinna úr þeim, afhenda borgar-
stjóra vinnuplögg sem breytast
eðli málsins samkvæmt eftir því
sem hugmyndir þróast eða verkum
vindur fram.
Borgarstjóri Ingibjörg Sólrún
hefur haldið því fram að vinna
unnin fyrir borgarstjóra og greidd
af borginni ætti að vera aðgengi-
leg fyrir alla. Lítum nánar á þetta.
Sérstakur aðstoðarmaður borgar-
stjóra — hægri höndin — vinnur
að sjálfsögðu beint fyrir borgar-
stjóra og undirbýr með henni mál.
Okkur sjálfstæðismönnum mundi
aldrei detta í hug að vinnuplögg
og hugmyndir sem ganga milli
þeirra tveggja séu til dreifingar
almennt meðal borgarfulltrúa.
Borgarstjóri hefur gengið langt í
hafa eigin ráðgjafa sér til halds
og traust í stórum málum sem
smáum. Þó að kostnaður vegna
aðstoðarmanns borgarstjóra sé
greiddur af skattfé almennings
veitir það ekki fulltrúum minni-
hlutans aðgang að vinnu aðstoðar-
mannsins. Það er ákvörðun borg-
arstjóra sjálfs (eins og stjórnanda
í öllum fyrirtækjum) hvaða plögg
skuli vera vinnuplögg og hvaða
plögg skuli vera opinber plögg.
Það er algjörlega fráleitt að
halda því fram að það sé misnotk-
un á opinberu fé að greiða fyrir
ráðgjafarvinnu sem unnin er beint
fyrir borgarstjóra eða einstaka
stjórnendur borgarinnar án þess
að slík vinna sé aðgengileg fyrir
aðra.
Fráleitar fullyrðingar
Borgarstjóri hefur haldið því
fram að margumrædd greinargerð
mín hafi verið leyniplagg sem
sjálfstæðismenn hafi viljað stinga
undir stól. Slíkt er algjör firra.
Greinargerðin var vinnuplagg og
því ekki til almennrar dreifíngar
— það hefur ekki neitt með inni-
hald þess að gera. Enda má nú
öllum þeim sem lesið hafa plaggið
vera ljóst.að þar er efnislega ekk-
ert að fela. Ingibjörgu Sólrúnu til
upprifjunar lagði fyrrverandi
borgarstjóri, Markús Orn, fram
minnisblað sem dreift var í borgar-
ráði í apríl á síðasta ári í fram-
haldi af umræðum í borgarstjórn.
Þar gerði hann grein fyrir um-
ræddri vinnu og tíundaði í ítarlegu
máli framvindu hennar og nið-
urstöður. Þetta var einum og hálf-
um mánuði fyrir kosningar og því
fráleitt að tala um að menn hafi
verið að fela eitthvað.
Ótrúleg
lágkúra
ÖRVÆNTINGAR-
FULLAR tilraunir
vinstri flokkanna í
R-listanum til að forð-
ast fylgishrun í kom-
andi alþingiskosning-
um, hafa snúist yfir í
ógeðfelldar árásir og
ásakanir um ósann-
sögli sjálfstæðis-
manna í borgarstjóm
Reykjavíkur.
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir og Sigrún
Magnúsdóttir hafa
lagst svo lágt að boða
til blaðamannafundar
til að veifa greinargerð frá því í ráðgjafínn hóf störf og 8 mánuð-
Árni Sigfússon
in fyrir Markús Örn
Antonsson, þáverandi
borgarstjóra.
Þær einar fullyrða
að hér sé komin
„einkavæðingar-
skýrsla sjálfstæðis-
manna“, sem þær hafi
krafíst að yrði lögð
fram opinberlega fyrir
kosningar, en sjálf-
stæðismenn sagt að
væri ekki til. Fjölmiði-
ar sem fengið hafa
þessa greinargerð sjá
að hún er tekin saman
3 mánuðum eftir að
maí 1992, sem þær segjast hafa
fengið nafnlaust í pósti og er hluti
af vinnu sem sérstaklega var unn-
um áður en þeim lauk. Hún er
byggð á „lauslegri athugun á
rekstri borgarinnar“ eins og þar
Þau gögn sem fulltrúar
Kvennalistans og Fram-
sóknarflokksins í R-list-
anum veifuðu á blaða-
mannafundinum, segir
Ami Sigfússon, eru
hluti þeirrar vinnu, sem
Markús Öm Antonsson
gerði grein fyrir með
minnisblaði til mín í
fyrra og ég lagði síðan
fram í borgarráði.
segir orðrétt. Þessar staðreyndir
sýna enn frekar hversu fráleitt er
að hér sé um að ræða heildar-
skýrslu hvað þá stefnumótun af
hálfu sjálfstæðismanna.
Þessi greinargerð hefur aldrei
verið iögð fram eða tekin til um-
fjöllunar í borgarstjórnarflokki
sjálfstæðismanna.
í síðustu borgarstjórnarkosn-
ingum var margsinnis ítrekað
bæði af þáverandi borgarstjóra og
þeim aðila sem vann verkið fyrir
hann að engin lokaskýrsla hefði
verið unnin, heldur var framvinda
þessarar athugunar byggð á grein-
argerðum og minnisblöðum og
fjölmörgum fundum. Þau gögn
sem fulltrúar Kvennalistans og
Framsóknarflokksins í R-listanum
veifuðu á blaðamannafundinum er
hluti þeirrar vinnu, sem Markús
Örn Antonsson gerði grein fyrir
með minnisblaði til mín 8. apríl
1994 og ég lagði síðan fram í
borgarráði 12. apríl.
Af framkomu Ingibjargar S.
Gísladóttur og Sigrúnar Magnús-
dóttur í þessu máli bendir margt
til að það hafi verið sviðsett vegna
komandi kosninga og sumir fjöl-
miðlar hafa bitið á agnið. Sigrún
Magnúsdóttir hefur margoft gefíð
í skyn að hún hefði eintak af
„einkavæðingarskýrslu sjálf-
stæðismanna“ undir höndum.
Það kæmi því ekki á óvart að
Sigrún Magnúsdóttir sé sá nafn-
lausi aðili sem hafi sent borgar-
stjóra greinargerðina, nema borg-
arstjóri hafi sent sjálfri sér hana
Þar var m.a. fjallað um hug-
myndir um að stofna hlutafélag
um malbikunarstöðina og undir-
búning að breytingum á rekstri
Skýrsluvéla ríkisins og Reykjavík-
urborgar. Þá lá til dæmis fyrir
skýrsla um framtíðarskipan þess
reksturs. Ingibjörg Sólrún hafði
ekki setið sem borgarstjóri í nema
þrjá mánuði þegar hún fól fulltrú-
um borgarinnar í stjórn SKÝRR
að hefja undirbúning að því að
breyta rekstrinum í hlutafélag og
hélt því með afgerandi hætti inn
á einkavæðingarbraut sem hún
svo sjálf skilgreinir.
Úlfaldi úr mýflugu
Ætlar borgarstjóri í alvöru að
halda því fram að vinna að stefnu-
mörkun á vegum borgarstjóra-
embættisins sé misnotkun á al-
mannafé eins og Ingibjörg Sólrún
hefur látið í veðri vaka? Hún hefur
á sínum valdaferli gengið lengra
en nokkur annar borgarstjóri í
þessum efnum með því að ráða
sér umræddan aðstoðarmann.
Núverandi borgarstjóri hefur einn-
ig falið ýmsum aðilum utan borg-
arkerfisins hugmynda- og skipu-
lagsvinnu. Þannig fól borgarstjóri
Hagvangi fyrir mörgum mánuðum
að vinna að ákveðnum hugmynd-
um um breytingar á stjórnsýslu
borgarinnar án þess að það væri
samþykkt sérstaklega í borgar-
ráði. Borgarstjóri hefur að sjálf-
sögðu átt marga fundi með þeim
ráðgjöfum án þess að vinnuplögg-
um væri dreift til minnihlutans.
Við það er hreint ekkert að at-
huga. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
gagnrýnir hins vegar harkalega
vinnuaðferðir fyrrverandi borgar-
stjóra þótt þær séu sama eðlis.
Sjá ekki allir að hér er verið að
gera úlfalda úr mýflugu?
Óheilindi
borgarstjóra
Borgarstjórinn er nú í pólitísk-
um tilgangi að reyna gera vinnu-
brögð tortryggileg sem hún veit
mæta vel að eru eðlileg og hver
stjórnandi verður að hafa vald og
möguleika á að nýta. Með afar
ósmekklegum hætti hefur hún tek-
ið sér fyrir hendur að ákveða að
vinnugögn annars borgarstjóra
skuli gerð opinber. Er vandalaust
að ímynda sér til hvers slík vinnu-
brögð gætu leitt í framtíðinni.
Með framgöngu sinni í þessu
máli, fráleitum fullyrðingum og
hreinum ósannindum hefur Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir sett sig á
bekk með þeim stjórnmálamönn-
um sem ástunda lágkúruleg vinnu-
brögð. Það þykir mér miður.
Höfundur er borgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins.
til að skapa tilefni til blaðamanna-
fundar svo unnt væri að segja að
þar væri komin „einkavæðingar-
skýrslan".
I málamyndaviðræðum Ingi-
bjargar við Ingu Jónu Þórðardótt-
ur, hálftíma áður en blaðamanna-
fundurinn hófst, sagðist hún vel
vita frá hveijum greinargerðin
væri komin en myndi að sjálfsögðu
ekki upplýsa fyrir Ingu Jónu hver
það væri. Við fjölmiðla hálftíma
síðar segist hún hafa fengið
„einkavæðingarskýrslu“ senda
nafnlaust í pósti og ekki vita um
sendandann. Jafnframt velti hún
vöngum með nokkrum fjölmiðla-
mönnum um hugsanlegar ástæður
sendingarinnar og taldi að þær
kynnu m.a. að vera „innanfiokksá-
tök“ í Sjálfstæðisflokknum. Þessi
málflutningur Ingibjargar og
framkoma undirstrika í raun hví-
líkt sjónarspil R-listinn hefur sett
á svið nú rétt fyrir alþingiskosn-
ingar.
Þessi hegðun er með eindæmum
og algjörlega ósamboðin embætti
borgarstjórans í Reykjavík.
Höfundur er oddviti
sjálfstæðismanna í borgarstjórn.