Morgunblaðið - 25.04.1995, Síða 2

Morgunblaðið - 25.04.1995, Síða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 25. APRÍL 1995 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Ný ríkissíjórn á Bessastöðum NÝTT ráðuneyti Davíðs Oddssonar tók við á ríkisráðsfundi á Bessastöðum á sunnudag- inn. Forseti íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, situr fyrir enda borðs en henni á hægri hönd er Davíð Oddsson forsætisráðherra, ráðherra Hagstofu Islands og formaður Sjálf- stæðisflokksins, og á vinstri hönd Halldór Ásgrimsson utanríkisráðherra og formaður Framsóknarflokksins. Sætaröð annarra ráðherra fór eftir stafrófsröð en f.v eru Páll Pétursson félagsmálaráðherra, Halldór Blöndal samgönguráðherra, Friðrik Sophusson fjármálaráðherra og Björn Bjarnason menntamálaráðherra. F.h. eru Þorsteinn Páls- son, sjávarútvegsráðherra og dóms- og kirkjumálaráðherra, Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, Guðmundur Bjarnason, landbúnaðarráðherra og umhverfísráðherra og Finnur Ingólfsson iðnaðar- og viðskiptaráðherra. Ríkisstj órnarskipti tveim viknm eftir kosning’ar NÝ n'kisstjóm Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks undir forsæti Davíðs Oddssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, tók við völdum á ríkisráðsfundi á Bessastöðum kl. 14 á sunnudag, en þá vom tvær vikur liðnar frá alþingiskosningunum 8. apríl. Samið við sex félög* farmanna VINNUVEITENDASAMBAND íslands og sex félög farmanna undirrituðu nýjan kjarasamning í fyrrinótt og gildir samningurinn til ársloka 1996. Félögin sem um ræðir em Skipstjórafélag íslands, Stýrimannafélag íslands, Vél- stjórafélag íslands, Félag bryta, Félag matreiðslumanna og Félag íslenskra loftskeytamanna. Að sögn Þórarins V. Þórarins- sonar, framkvæmdastjóra VSÍ, em samningamir hliðstæðir þeim samningum sem VSÍ hefur gert við aðra hópa launþega. Þeir fela í sér nokkra rýmkun á reglum um vaktavinnu og dagvinnutímamörk og hafa í för með sér svipaðan launakostnaðarauka og aðrir samningar sem VSÍ hefur verið að gera. Arangurslaus samningafundur VSÍ og Sjómannafélags Reykjavík- ur var í gær haldinn hjá sáttasemj- ara, en nýlokið er sex daga verk- falli Sjómannaféiagsins. Þórarinn sagði sjómenn hvergi hafa hvikað frá kröfu sinni um 23% hækkun á öllu kaupi fyrir utan ýmsar aðrar kröfur. Annar samningafundur hefur ekki verið boðaður. Fyrir hádegi á sunnudag kom fráfarandi ríkisstjóm Sjálfstæðis- flokks og Alþýðuflokks saman til síns seinasta ríkisráðsfundar með forseta íslands. Á þeim fundi gerði Davíð Oddsson forsætisráðherra og ráðuneyti hans grein fyrir því, að stjórnarathafnir hefðu verið af- greiddar, eins og forseti íslands hefði óskað eftir þegar ríkisstjórn- inni var veitt lausn 18. apríl. Á ríkisráðsfundinum voru end- urstaðfestar milli 130 og 140 af- greiðslur, sem fallist hafði verið á utan ríkisráðsfundar. Samkvæmt upplýsingum Ólafs Davíðssonar, ráðuneytisstjóra í forsætisráðu- neytinu, var þar aðallega um að ræða endurstaðfestingu laga, auk milliríkjasamninga og reglugerða- breytinga. Einnig var ein embættisskipun staðfest í ríkisráði en Björgvin Guð- mundsson, deildarstjóri í utanríkis- ráðuneytinu, hefur verið skipaður sendifulltrúi í utanríkisþjónustunni. Lyklaskipti samdægurs Að loknum fyrri ríkisráðsfundin- um hófst hádegisverður á Bessa- stöðum fyrir alla fráfarandi ráð- herra ríkisstjómarinanr og maka þeirra í boði Vigdísar Finnboga- dóttur, forseta íslands. Boðað var til annars fundar í ríkisráði klukkan tvö eftir hádegi þar sem ráðherrar hinnar nýju rík- isstjómar undirrituðu eiðstaf sinn og forseti íslands gaf út úrskurð um skipun og skiptingu starfa ráð- herra. Strax að loknum ríkisráðsfundi fóru hinir nýju ráðherrar í ráðu- neyti sín þar sem fráfarandi ráð- herrar afhentu þeim lykla að ráðu- neytunum og þeir heilsuðu upp á starfsfólk sem var viðstatt lyklaaf- hendinguna. „Ég er ánægður með þessa nið- urstöðu. Við framsóknarmenn get- um verið fullsæmdir af okkar þátt- töku í þessari ríkisstjóm," sagði Halldór Ásgrímsson utanríkisráð- herra eftir að nýja ríkisstjómin hafði tekið við völdum. Fyrsti ríkisstjómarfundur ríkis- stjórnar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks verður í dag. ■ Ný ríkisstjórn/8/10/11/12 Eldur í ein- býlishúsi TALSVERÐAR skemmdir urðu á einbýlishúsinu númer 33 við Miðvang í Hafnarfírði í gær vegna elds sem kviknaði í hús- inu. Eldur var mestur í stofu hússins þar sem talið er að kviknað hafi í út frá skreytingu með lifandi ljósi. Eldskemmdir urðu ekki miklar en reykur fór um alla íbúðina og urðu skemmdir vegna hans. Allt tiltækt lið slökkviliðsins í Hafnarfirði var kallað út upp úr klukkan hálf þrjú og gekk slökkvistarf greiðlega. Slökkvi- starfí og reykræstingu var að 4 fullu lokið um klukkan fjögur. Húsið var mannlaust þegar eldurinn kviknaði en tveir reyk- kafarar voru sendir inn til að f ganga úr skugga um það. Eldsupptök eru í rannsókn hjá Rannsóknarlögreglu ríkis- ins. Nýir aðilar í rekstur •• Ommu Lú NOKKRIR nýir aðilar hafa komið inn I rekstrarfélag Ömmu Lú, Bar hf., og tveir af fyrri eigendum rekstrarfélags- ins hafa gengið úr því. Jón Þorsteinsson, einn eig- enda Bars hf., vildi ekki skýra frá því að svo stöddu hveijir hinir nýju aðilar að rekstrarfé- laginu væru. Hann sagði að allur rekstur skemmtistaðarins yrði óbreyttur frá því sem verið hefur, og ef eitthvað væri þá yrði hann öflugri en áður. Mannabein rak á land MANNABEIN fundust rekin á land í Straumsvík í fyrrakvöld. Samkvæmt upplýsingum frá Rannsóknarlögreglu ríkisins verða beinin rannsökuð og reynt að fá úr því skorið úr hveijum þau gætu verið. Enn er of snemmt að fullyrða nokk- uð um kyn eða aldur manneskj- unnar. Blaðafulltrúi Flugleiða um verkfallsboðun Flugfreyjufélagsins Verkfall ógnar FLUGFREYJUFÉLAGIÐ hefur boðað til vinnustöðvunar dagana 2.,. 3., 4. og 5. maí. Viðræður flugfreyja og viðsemjenda þeirra sigldu í strand aðfaranótt laugardags, en nýr fundur hefur verið boðaður kl. 17 í dag. Einar Sigurðsson, blaðafulltrúi Flugleiða, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að verkfallið myndi valda gífurlegum skaða, því það væri boðað á þeim tíma þegar þúsundir útlendinga flykktust til landsins vegna Heimsmeistara- keppninnar í handbolta. Flugfreyjufélagið sendi frá sér fréttatilkynn- ingu í gær, þar sem segir að á síðasta samn- ingafundi hafi félagið talið að leið hefði fund- ist til lausnar á deilunni, en kl. 3 um nóttina hafí slitnað upp úr viðræðum. Félagsmenn lögðu niður vinnu í þijá daga í mars, en nú hefur félagið boðað fjögurra daga verkfall í næstu viku. Erla Hatlemark, formaður Flugfreyjufélags íslands, vildi í gær ekki gefa upp hver ásteyt- ingarsteinninn hefði verið. „Móralskt séð er ekki hægt að ræða það á þessari stundu,“ sagði hún. Víðtækari afleiðingar nú Einar Sigurðsson, blaðafulltrúi Flugleiða, sagði í gær að verkfallsboðunin kæmi á óvart. „Verkfall á þessum tíma myndi setja í uppnám allan undirbúning og þá miklu landkynningu, sem hlýst af HM ’95 á íslandi. Þriggja daga verkfall flugfreyja í mars olli tugmilljóna tjóni fyrir Flugleiðir, en afleiðingar verkfalls í byijun maí yrðu miklu víðtækari. Við munum að sjálf- sögðu reyna að halda úti flugi eins og unnt er, en tjónið verður samt mjög mikið.“ Einar sagði að samningaviðræður hefðu verið komnar á það stig, að Flugfreyjufélagið og Flugleiðir hefðu komið sér niður á leið, sem virtist fær til lausnar deilunni. „Viðræðurnar HM’95 strönduðu hins vegar á kröfum flugfreyja um hækkanir umfram það sem samdist um á al- mennum vinnumarkaði. Kröfur þeirra eru utan þess ramma, sem settur hefur verið og við lít- um ekki svo á að flugfreyjur séu illa haldnar af launum sínum.“ Úrslitatilraun til samninga Einar sagði að samningafundurinn i dag yrði úrslitatilraun til að koma í veg fyrir verk- fallið í næstu viku. „Boðun verkfalls ein sér veldur skaða. Það sáum við fyrir síðasta verk- fall, þegar verulega dró úr bókunum. Fjög- urra daga verkfall myndi hins vegar hafa gíf- urleg áhrif á alla ferðaþjónustu og rýra mjög orðspor íslendinga innan ferðaþjónustunnar og sem þjóðar, sem getur tekið að sér að halda alþjóðlega stórviðburði á borð við HM ’95.“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.