Morgunblaðið - 25.04.1995, Blaðsíða 46
46 ÞRIÐJUDAGUR 25. APRÍL 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
/ Hi 7Ór/\ A€> VFf/b
/FljortflNÚ 06 \
/ BÍÐIÐÍ FLJÓVK NÚj
Grettir
IfllllFr^lll í—/ GÓ&Atr V {ij; Htc jC\] RASINN, iftl'VCryi Y'é'^v vepöLP.' r pSgP'^l: k]SQS@£®Œ87ofr,
piB gf coperííagen //3"— ANPAP' r.Las CA&séP-
Tommi og Jenni
Smáfólk
IM MAKIN6
THI5 VALENTINE
FORMY 5U)EET
BABBOO...
4\not'
YOURSTUPIP
5WEET
BABBOOl!
Ég er að búa til þetta Valentín-
usarkort handa sætakrúttinu
mínu... Ég er ekki þetta
heimska sætakrútt þitt!
Hann er sætakrúttið mitt og ég
er sætakrúttakrúttið hans ... Ég
hef aldrei heyrt um sætakrút-
takrútt!
ÞÚ HEFUR ÞAÐ NÚNA!
BREF
HL BLAÐSINS
Kringlunni 1103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 5691329
Félag hrossa-
bænda 20 ára 1995
Frá Önnu Droplaugu
Erlingsdóttur:
ÉG HÉLT að hrossabændur vissu
eins og aðrir í landinu að greiðslu-
frestur tíðast í flestum viðskiptum.
Þess vegna kemur það eins og skratt-
inn úr sauðarleggnum þegar menn
innan Félags hrossabænda taka sig
saman og rægja sr. Halldór Gunnars-
son, sem í tuttugu ár hefur lagt
mikla vinnu og tíma í markaðsmál
fyrir félagsmenn. Það hefur lengi
verið 3ja mánaða gjaldfrestur á
sjóðagjöldum, þar sem útflytjendur
telja auðveldara að selja með þeim
fresti. Þetta var gert fyrir löngu til
að liðka fyrir sölu.
Þann 15. jan. 1995 skulduðu út-
flytjendur kr. 10.117.736, tæpar 5
millj. innan gjaldfrests, 2 millj. skuld,
sem var samkomulag um gegn
tryggingu, og um 3 millj. í víxilinn-
heimtu. Það er látið að því liggja að
eitthvað sé óhreint í pokahominu,
og auðvitað er allt Halldóri að kenna.
Hann er oft nefndur formaður en
hann er framkvæmdastjóri Félags
hrossabænda. Þetta er bara smá
dæmi, og þeir sem lesa þessa grein
hafa flestir heyrt þann einlita frétta-
flutning í þessari ófrægingarherferð,
sem á vart sinn líkan í langan tíma.
Það er undarlegt að hrossabændur
skuli láta svona aðför viðgangast,
þvf hér er á ferðinni mál sem er
þeim óneitanlega til skammar.
Skýringin er ef til vill sú að flest-
ir hrossabændur eru uppaldir við
gamla pakkhúshugsunarháttinn, þar
sem allir framleiddu mjöl og kjöt,
og þurftu ekkert að hugsa um sölu
eða markaðsmál, einungis að fram-
leiða eins mikið og þeir gátu, burtséð
frá hagkvæmni eða tilgangi, varan
var alltaf fjarlægð. En góðir hálsar,
það gerist ekki með hrossin ykkar,
hvorki reiðhrossin eða Japanshross-
in, sem helst verður að draga með
valdi úr sinuhaugum sumra bænda,
til að fylla upp í útflutningssamn-
inga.
Það er ekki að undra þegar afkom-
endur pakkhússmanna sameinast, að
eitthvað miður gáfulegt komi út úr
því, þeir búast kannski við að óhróð-
urinn verði niðurgreiddur, eða út-
flutningsbætur komi til.
Baldvin í Torfunesi hefur staðið í
fremstu víglínu í sínu glerhúsi og
kastað steinum. Ekki veit ég hvað
hann hafði fyrir stafni áður fyrr en
miðað við dugnað hans í þessum
árásum á séra Halldór Gunnarsson,
hefur hann verið ötull í meira lagi.
Það er von mín að hann finni sér
eitthvað uppbyggilegra að „gelta“
yfir í framtíðinni.
Hrossabændur, látum ekki baldinn
fola leggja félag okkar í rúst. Við
vitum vel hver örlög bíða hrossa sem
enginn vill ríða fyrir sakir kergju og
hrekkja. í flestum tilfellum eru þau
send til Japans og matreidd þar í
smáflisum. Standið saman, bjálkann
burt.
ANNA DROPLAUG ERUNGSDÓTTIR,
hrossabóndi,
N-Hvammi, Mýrdal.
Lifandi myndir
af Olafi og Bjarna
Frá Jónasi Sig-
urgeirssyni:
KVIKMYNDA-
GERÐIN Alvís er
um þessar mund-
ir að gera tvo
heimildarþætti
fyrir sjónvarp um
þá Olaf Thors
forsætisráðherra
og Bjama Bene-
diktsson forsæt-
isráðherra. Stefnt er að því að gera
þessa þætti sem best úr garði og
sýna sem flestar þær kvikmyndir
sem til eru af þessum stjómmála-
foringjum. Þess vegna stendur nú
yfir mikil leit að kvikmyndum í fór-
um einkaaðila, þar sem þeir tveir
koma fyrir, og hafa nokkrar slíkar
þegar komið í
ljós. Þeir sem
kunna að eiga í
fómm sínum slík-
ar myndir eða
vita af þeim, til
dæmis myndir úr
fjölskylduboðum,
myndir frá op-
inberum hátíðum,
Varðarferðum,
ýmsum samkom-
um inni eða úti eða frá 17. júní
o.s.frv., eru vinsamlegast beðnir að
hafa samband við Jónas Sigurgeirs-
son sagnfræðing í síma 650813 eða
síma 694526.
JÓNAS SIGURGEIRSSON
Kirkjuvegi 7,
Hafnarfirði.
Ólafur
Thors
Bjarni
Benediktsson
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt i
Gagnasafni þess. Morgunbíaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan,
hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu
efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari þar að lútandi.