Morgunblaðið - 25.04.1995, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 25.04.1995, Blaðsíða 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 25. APRÍL 1995 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Vargas Llosa hlýtur Cervantes-verðlaunin JÓHANN KarJ Spánarkonungur árnar rithöfundinum Mario Vargas Llosa heilla eftir að hafa afhent honum Cervantes-verð- launin í gær. Umrædd verðlaun eru kennd við höfund Don Kí- kóta, Miguel de Cervantes Sa- avedra og eru þau eftirsóttustu í heimi spænskra bókmennta. Athöfnin fór að venju fram í húsakynnum háskólans í Alcala de Henares sem var heimabær Cervantes. Vargas Llosa er fæddur í Perú en fékk spænskan ríkisborgararétt á dögunum. Prívat eilífð IEIKIISI Leikfélag Hveragerðis KLUKKUSTRENGIR eftir Jökul Jakobsson Leikstjóri: Anna Jórunn Stefánsdótt- ir Leikendur: Svala Karlsdóttir, Mar- ia Kristjánsdóttir, Vilborg Þórhalls- dóttir, Stefán Pétursson, Jóhann Sig- 10*08800, Pétur Pétursson, Guðjón Bjömsson Hótel Ljósbrá, Hvera- gerði, 22.04. ALLIR leita að einhveiju eða ein- hveijum til að fylla upp í tómarúmið í sjálfum sér. Fæstum hugkvæmist að hlaða í það með sér sjálfum. í þessu ágætlega samtímalega leikriti Jökuls Jakobssonar gapir þetta tómarúm við áhorfendum um leið og þeir beija sundurleitan hópinn á svið- inu augum. Texti Jökuls, beittur, stundum margræður, stundum háðskur en samt engan hatandi, skil- ar þessu til okkar ekki síst í gegn um gaphúsið á ekkjunni Jórunni, sem glennir það ógurlega þar tii Almætt- ið sér aumur á okkur öllum og gerir hana klumsa. Jórunn sækist eftir því yfirskilvit- lega og má engan tíma missa. Alla- vega dugir henni ekkert minna en kraftaverk. Henni iíst líka vei á endurholdgunarhugmyndina. En fullkomnunartrippið tók Gautama Búdda, samkvæmt nákvæmum út- reikningum talnaglöggs búddista, til- tekna tímaeiningu sem er skilgreind sem talan einn fyrir framan 352 sept- illjónir kílómetra af núllum, og var hvert núll 0.001 kílómetri að lengd (Septilljón er talan einn með 42 núll- um). Hinsvegar eru áhöld um hvort Jórunn hefði eirð í sér til að bíða á rauðu ljósi. Rannveig og orgelstillar- inn trega mjög að hafa ekki brugðið sér saman til Kabúl í Afganistan. Um þessar mundir mun vandfundinn heppilegri staður fyrir vestrænt fólk sem vill flýta sér í endurholdungar- ferlinu. Kristófer vesalingurinn held- ur að sannleikann sé að fínna í bók- um. Menntamaðurinn Haraldur veit betur. Hann hefur spreytt sig á kakt- usarækt en vill fækka þymum og hugar nú að konum. Læla og Eirík- ur, ungmennin tvö, undirstrika svo annað meginþema verksins, þá freu- dísku tilgátu að alls' staðar leynist kynhvötin undir og stjómi gerðum okkar. Klukkustrengir eru því að minnsta kosti tvíhyggjuverk. Það er þægilegt að þurfa ekki að kokgleypa boðskap og þrælgaman að rifja upp tilvistár- bollaleggingar. Þetta er stofuleikhús og þess vegna íhaldssamt. Það veitir áhorfendum aflausn þegar þeir skella upp úr við að þekkja sjálfa sig á sviðinu. Og stofan er hreint afbragð f þess^ ari uppsetningu Leikfélags Hvera- gerðis í hótelinu Ljósbrá. Hreinn horror. Jómnn hefur stúkað af sitt eigið tómarúm með röndóttu bet- rekki (leikritið endurvekur tíma orðs- ins) sem minnir á fangelsisrimla. Teppið á gólfinu er lambadrallugult, lappirnar á stólunum úr renndum viði, kertið í stjakanum bleikt, ramm- ar utan um biblíumyndir á veggjum gylltir, klukkustrengimir bróderaðir (auðvitað gerist ekkert þegar kippt er í þá: okkar klukka er þögnuð) og ekki má gleyma sófaplussinu sem aldrei verður rykhreinsað svo vel sé, hvorki í þessari tilvera né þeirri næstu. Þetta er stofa þar sem (h)eldri konur átta sig á því að lífið er til einskis; stofa þar sem náttúralausir kallar eigra um gólf og taka snúss. Ekki er ástæða til að nefna einn leik- ara í sýningunni öðrum fremur. Þeir standa sig allir vel og Anna Jórann Stefánsdóttir leikstjóri hefur auð- heyrilega hjálpað þeim til að sýna virðingu sína fyrir textanum með því að tryggja að hann heyrist glögg- lega. Mikla hæfileika þarf til að skil- greina persónu á sviði, aga og reynslu atvinnumannsins til að láta hana lifna svo að þagnir lýsi hugará- standi og handarhreyfing hundrað orðum. Klukkustrengjum hæfir betur meiri hraði, einkum eftir hlé, en var á framsýningu. Inn- og útkomur á sviði verða að bera í sér tilgang, sjálf- sagða einbeitni og fleyta þar með framvindunni áfram. Búningamir vora í tímanum og hárgreiðslan líka. Þessi sýning er ánægjuleg. Umfram allt er ánægjulegt að verða þess var, I Hveragerði og ann- ars staðar, að leikhúsfólk sinnir nú oftar en áður sjálfsagðri og gleði- legi'i skyldu sinni við Jökul Jakobsson og áhorfendur með því að sviðsetja verk hans. Jökull var nefnilega þann- ig leikskáld að hverri kynslóð er hollt að skyggnast inn í hugarheim- inn sem hann skóp og lét okkur eft- ir til að halda lifandi. Guðbrandur Gíslason Skagfirskur alþýðusöngnr TÓNLIST Langholtskirkja SKAGFIRSKA SÖNGSVEITIN Flutt voru íslensk og erlend kórlög. Einsöngvarar Arni Eiríksson, Guðmundur Gíslason, Guðmundur Sigurðsson og Svanhildur Sveinbjörnsdóttir. Píanóleikari Vilhelmína Ólafsdóttir. Stjómandi Björgvin Þ. Valdimarsson. Fimmtudaginn 20. apríl 1995. TÓNLEIKAR Skagfirsku söng- sveitarinnar vora að mestu leyti til- einkaðir alþýðutónlist og hófust á því að sumri var fagnað með gamal- kunnu lagi eftir Ibsen, Þú vorgyðjan svífur, Hver á sér fegra ættarland, eftir Emil Thoroddsen og Yfír voru ættarlandi, eftir Sigfús Einarsson, komu næst og voru þéssi lög fallega sungin og vel mótuð af hendi stjórn- andans. Næstu fímm lög á efnis- skránni era ákaflega lítilfjörlegar tónsmíðar, nema þá helst eitt lag eftir söngstjórann, Höfðingi smiðj- unnar, við kvæði eftir Davíð Stefáns- son. Þrátt fyrir að lagið sé nokkuð laust í formi, brá fyrir „dramatík" en einsöng í laginu framdi ungur bassasöngvari, Asgeir Eiríksson, en hann stundar söngnám hjá Snæ- björgu Snæbjamardóttur og verður fróðlegt að fylgjast með söngferli þessa efnilega söngvara. Erlendu lögin á efnisskránni voru Lofsöngur eftir Beethoven, Sanctus Sá einn er TÓNLIST Gcrðarsafn EINSÖNGSTÓNLEIKAR Alina Dubik messosópran og Úlrik Ólason, píanóleikari, fluttu söngverk eftir Strauss, Chopin, Tsjajkovskí, Sigvalda Kaldalóns, Sigfús Halldórs- son, Saint-Saens, Verdi og Donizetti. Laugardaginn 22. aprfl 1995. ALINA Dubik hefur í nokkur ár búið og starfað hér á landi og tekið m.a. þátt í óperaflutningi, er hún söng eina af „dömunum" í Töfra- flautu Mozarts. Ágætur söngur hennar í þessu kvennatríói var það eina sem flestir þekktu til hennar sem söngvara, þar til á tónleikunum sl. laugardag, í Gerðarsafni, að hún „slær í gegn“ með frábæram söng sínum. Rödd hennar er ein stór, jöfn og djúphljómandi tónsúla allt tón- sviðið. Túlkun hennar er nokkuð yfír- veguð en ákaflega hlý, sem kom mjög vel fram í sex ljóðum eftir Strauss. Má vera að varfæmin hafí verið meira áberandi fyrir þá sök að undirleikarinn Úlrik Ólason var stundum nokkuð þunghentur og hef- ur auðheyrilega litla reynslu í þeirri vandasömu tónmótun, sem einkennir píanóundirleikinn hjá Strauss. Þessa gætti nokkuð í lögum eins og All- eftir J.A. Hiller, Þér vil ég syngja, eftir Handel, Locus iste, eftir Brackner og Agnus Dei, eftir Bizet, með Guðmund Gíslason sem ein- söngvara. Locus iste var best sungið af kórnum og Guðmundur Gíslason skilaði sínu vel í lagi Bizet, þó helst til með of miklum þrótti. Þetta lag er í eðli sínu „lýrísk" og viðkvæm bæn, sem „bel canto“ söngmáti á einkar vel við. Á eftir, Sjá dagar koma, lagi Sig- urðar Þórðarsonar, sem var ágætlega sungið af kórnum, kom lagið Á leið til Mandalay, frægur slagari, sung- inn við þýðingu, sem er aldeilis hræðilegur leirburður. Einsöngvari var hinn efnilegi bassasöngvari, Ás- geir Eiríksson, sem átti nokkuð erf- itt á köflum með að halda í við sterk- an söng kórsins. Tónleikunum lauk með Kaldalónssyrpu og þar sungu Guðmundur Gíslason og nafni hans Sigurðsson einsöng af smekkvísi og síðata lagið, sem var Ave María, söng svo raddþjálfari kórsins, Svan- hildur Sveinbjörnsdóttir, ágætlega. Tónleikamir í heild voru fallega framfærðir og hljómur kórsins í heild mjög góður, þó merkja mætti á stundum, að sópraninn ætti til í hárri tónstöðu, að liggja neðarlega í tónin- um. Bestu lög kórsins vora Hver á sér fegra föðurland, Locus iste, Sjá dagar koma og Kaldalónssyrpan, þar sem söngstjórinn Björgvin Þ. Valdi- marsson náði að móta söng kórsins mjög fallega og naut góðrar aðstoðar undirleikarans, Vilhelmínu Ólafs- dóttur. Jón Ásgeirsson þekkir þrá erseelen, Zueignung og sérstaklega í Stándchen en einnig hvað varðar mótun í tónblæ í snilldarverkunum Morgen og Die Nacht. I þremur fallegum lögum eftir Chopin var samleikurinn góður sér- staklega í lagi sem heitir Meyjarósk en Alina söng Chopin lögin einstak- lega fallega. Sá einn er þekkir þrá, eftir Tsjajkovskí, var frábærlega vel sungið, svo að tók til hjartans og sama má segja um íslensku lögin Erlu, eftir Sigvalda Kaldalóns, og Vögguljóð, eftir Sigfús Halldórsson. Það var svo í óperaaríunum, þar sem rödd hennar blómstraði, bæði í hljóm og túlkun. Aríurnar vora Mon coeur, úr Samson og Dalila eftir Saint- Saéns, Re dell'abisco úr Grímudans- leiknum eftir Verdi og Oh, mio Fern- ando, úr La Favorita eftir Donizetti, allt stórkostleg tónverk, sem Alina Dubik söng af glæsibrag. Alina Dubik er afburða góð söng- kona, er svo sannarlega á erindi við samleik hljómsveitar og væntanlega verður ekki langt að bíða þess, að henni bjóðist tækifæri til að sýna hvers hún er megnug. Þrátt fyrir að Úlrik Ólason hafí ekki mikla reynslu í undirleik og hans sérgrein sé orgel- leikur, er hefur áhrif á píanóáslátt- inn, stóð hann sig vel að mörgu leyti, t.d. í erfíðum verkum eins aríu Dal- ilu og í Stándchen. Jón Ásgeirsson Ameríkumaður í París KVIKMYNDIR Rcgnboginn PARÍSARTÍSKAN „PRET-A-PORTER“ ★ ★ Leikstjóri: Robert Altman. Aðalhlut- verk: Sophia Loren, Marcello Mastroianni, Julia Roberts, Tim Robbins, Kim Basinger, Stephen Rea, Lauren Bacall, Anouk Aimee, Lili Taylor, Sally Kellerman, Tracy Ullman, Linda Hunt, Rubert Eve- rett, Forest Whitaker, Lyle Lovett. Miramax Films. 1994. ÓMÖGULEGT er annað en að bera nýjustu mynd Robert Alt- mans, Parísartískan eða „Pret-a- porter“ í Regnboganum, saman við tvær síðustu myndir leikstjórans, Leikmanninn og Klippt og skorið, og það verður að segjast eins og er að hún kemur heldur illa út í þeim samanburði. Altman byggir tískumyndina sína upp á mjög svip- aðan hátt og hinar tvær enda meist- ari hins margflókna frásagnarstíls þar sem f|'öldanum öllum af sögum og persónum er splæst saman í eina víðfeðma heildarmynd. En einhvern veginn gengur formið ekki upp í París. Þótt margt skondið megi finna innan um og saman við eru sögurnar hans ekki nógu spennandi eða fyndnar til að halda upp rúm- lega tveggja tíma mynd. Parísartískan er farsi og meint sem háðsádeila á tískuheiminn sér- staklega, fólkið, fötin og frægðina, en um leið almennt á yfirborðs- og sýndarmennsku og hvar er betra sögusvið fyrir það en tískuhúsin I París? Eins og í Leikmanninum hefur Altman fengið hóp frægra kvikmyndaleikara og þátttakenda I tískubransanum til liðs við sig og kvikmyndað á raunverulegum tískusýningum, sem vill svo til að era skemmtilegustu atriði myndar- innar (Björk bregður fyrir eitt and- artak að sýna föt frá að líkindum Gaultier). Á meðal leikara í áberandi hlut- verkum eru Tim Robbins (ómiss- andi hjá Altman) og Julia Roberts, sem þekkjast ekki en deila hótelher- bergi alla myndina; Marcello Mastroianni og Sophia Loren eru fomt kærastupar, sem hittist aftur eftir mannsaldur; Tracy Ullman, Linda Hunt og Sally Kellerman leika ritstjóra tískutímarita á hött- unum eftir skemmtilega ómerkileg- um írskum tískuljósmyndara, sem Stephen Rea leikur; Kim Basinger er gersamlega heilalaus tískufrétta- maður sem gapir upp í frægðina; Lauren Bacall selur kúrekastígvél; Forrest Whitaker er hommi sem kallar Lagerfeld þjóf (þar með varð myndin ekki sýningarhæf í Þýska- landi); Anouk Aimee er ein fárra tískuhönnuða sem ekki er skrípa- mynd; Richard E. Grant er einkar ýkt skrípamynd af tískuhönnuði og svona mætti lengi telja. Nema myndin verður aldrei sér- lega innblásin af skemmtilegheitum og fyndni þrátt fyrir allt þetta lið. Skopið verður í flestum tilvikum annaðhvort of yfirgengilegt eða andlaust til að virka jafnvel fyrir farsa eins og þennan og nægir að nefna söguna af Robbins og Ro- berts, sem gera lítið annað en að veltast um í rúminu. í fyrri myndum hans tveimur kom gamansemin af sjálfu sér, hér er hún þvinguð. Það er ekki annað að sjá en Altman hafí orðið fórnarlamb tískunnar í París, eins og svo margir aðrir. Arnaldur Indriðason
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.