Morgunblaðið - 25.04.1995, Side 25

Morgunblaðið - 25.04.1995, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. APRÍL 1995 25 LISTIR Landslags- myndir Garðars Jökulssonar GARÐAR Jökulsson opn- aði nýverið málverkasýn- ingu í Café MUanó, Faxa- feni 11, Rvík. Ásýningunni eru 15 landslagsmálverk máluð á síðustu árum. Um er að ræða bæði olíu- og vatnslitamyndir. Þetta er 7. einkasýning Garðars, en hann hefur einnig tekið þátt í samsýn- ingum. Málverkin eru öll til sölu. Sýningin er opin á opn- unartíma Veitingahússins næstu 4-5 vikur. Namsfceið í maí ------——V>------- Sumarkjólar, fatasaumur, 3.-31. maí, miðvikudaga kl. 19.30-22.30. Kennari: Herdís Kristjánsdóttir. Knipl, 4.-31. maí, mánudaga og fimmtudaga kl. 19.30-22.30. Kennari: Anna Sigurðardóttir. Ullarlitun, hönnun op vefnaður, 5.-30. maí, mánud., þriðjud. og fimmtudaga kl. 19.30-22.30. Kennari: Guðrún Kolbeins. Þrykk oq málun; nytjalist í baðmull og silki, laugard. 13. maí og sunudaginn 14. maí kl. 13-17. Kennari: Hrönn Vilhelmsdóttir. Sumarhattar, ymsar útfærslur. sunnudagana 21. og 28. mai kl. 13-17. Kennari: Helga Rún Pálsdóttir. Allar upplýsingar og skráning á skrifstofu Heimilisiðnadarskólans í síma 551-7800. I í Norrænir sjómenn í seinni heims- styrjöldinni SÆNSK-danska kvikmynda- gerðarkonan Maj Wechsel- mann vinnur um þessar mund- ir að gerð heimildarkvikmynd- arinnar „Sjöfolk“ um norræna sjómenn í seinni heimsstyijöld- inni. Mikill fjöldi norrænna sjó- manna lokaðist utan við tund- urduflagirðingar Þjóðverja eða svokallaða „Skageraksparr" 1940 þegar Þjóðvetjar réðust inn í Danmörku og Noreg. Margir þeirra komust aldrei heim, aðrir fyrst í stríðslok eftir að hafa allt stríðið siglt fyrir Bandamenn. Margir Is- lendingar voru meðal áhafna á erlendum skipum í stríðinu og tóku þátt í þessum sigling- um. Maj Wechselmann, sem mun verða við kvikmyndun á Islandi dagana 9.-15. maí í vor, vill komast í samband við íslenska sjómenn sem tóku þátt í siglingum skipalesta í stríðinu (t.d. P.Q. skipalest- anna frá Halifax til Mur- mansk) eða aðila sem aðstoð- uðu eða unnu við skipulagn- ingu siglinga Bandamanna hér á stríðsárunum. Nöfn, heimil- isföng og símanúmer má hringja inn eða skrifa til Morgunblaðsins merkt „Sjö- folk“ (1939-45). Thor, Guðrún o g fleiri á sögukvöldi í Kaffileikhúsinu Miðvikdaginn 26. apríl verður fjórða sögukvöldið í Kaffileikhúsinu í Hlaðvarpan- um. Sögukvöld er samvinnu- verkefni Kaffileikhússins og Rithöfundasambands íslands. Tilgangur þeirra er að fá fólk til að koma saman og segja og hlýða á góðar sögur og rækta um leið þá sagnahefð sem býr með þessari þjóð. Sögumenn og konur fjórða sögukvöldsins verða: Thor Vilhjálmsson rithöfund- ur, Guðrún Ásmundsdóttir leikkona, Lilja Valdimarsdótt- ir hornleikari, Margrét Áka- dóttir leikkona, Sigurður A. Magnússon rithöfundur og Þór Vigfússon skólastjóri. Sögukvöldin verða annað hvert miðvikudagskvöld fram á sumar, það næsta verður miðvikudaginn 10. maí. Boðið er upp á kaffiveitingar á sögu- kvöldum Kaffileikhússins. Það hefst kl. 21. en húsið verður opnað kl. 20. Dagana 24. til 30. apríl bjóðumi við notoða bíla með vaxtalausu láni að hámarki 600.000 kr. til allt að 24 mánaða. JíMÍLa NOTAÐIR BÍLAR SUÐURLANDSBRAUT 12 SÍMI: 568 1200 beínt 581 4060 Opíð laugardag kl. 10-17 og sunnudag kl 13-17. _ __i_ ;; s v U W « t . NOTAÐIR BILAR • NOTAÐIR BILAR • NOTAÐIR BILAR • NOTAÐIR BILAR • NOTAÐIR BÍLAR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.