Morgunblaðið - 25.04.1995, Síða 57
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 25. APRÍL 1995 57
UINIGLINGAR
Hvar eru þau og hvað eru þau að gera?
Algjör steypa
Sirkushópurinn í Arseli
SÍÐUSTU árin hefur verið starfandi sirkus-
hópur í félagsmiðstöðinni Árseli í Árbæn-
um í Reykjavík. Hópurinn sérhæfir sig í hvers-
kyns sirkusatriðum eins og að ganga á stultum,
gleypa eld og ganga á glerbrotum svo eitthvað
sé nefnt. Hjalti Parelíus Sveinsson 16 ára er
einn af trúðunum í hópnum og hann segir okk-
ur frá starfi hans hér.
„Ég kom inn í hópinn í fyrra, ég og vinur
minn fórum bara að ganga á stultum og feng-
um svo að vera með í skrúðgöngunni á sumar-
daginn fyrsta og ég hef verið í sirkushópnum
síðan. Það felst í þessu að að gera ýmis sirkus-
atriði, vera trúðar og fíflast. Ég fór í þennan
hóp af því mér fannst þetta svo gaman, kannski
trúðurinn sem er inni í mér hafi dregið mig
hingað, ég vil helst alltaf vera að fíflast. Við
erum í Árseli flest alla daga og æfum okkur,
svo höldum við fundi og undirbúum okkur eins
mikið og við getum. Félagsskapurinn í hópnum
er mjög góður og svo vekur maður
óneitanlega athygli á stultunum. Ef
maður dettur þá dettur maður bara,
það er ekkert hægt að gera við því.
Ég ætla samt ekki að verða trúður
þegar ég er orðinn stór, heldur stefni
ég á lyfja- eða læknisfræði eða jafn-
vel ljósmyndun,“ sagði þessi vaski
trúður á stultum að lokum.
Stúlka kveikir bál
með hugarorkunni
Hún er hugguleg unglings-
stúlka með fallegt bros og
hluttekningin skín úr augum
hennar en allir forðast hana eins
og heitan eldinn. Þar liggur ein-
mitt hundurinn grafinn Julie
Gilman er aðeins 13 ára og ef
hún starir á einhvern hlut hlýst
venjulega af hið versta bál.
Yfirvöld hafa náð að tengja
34 eldsvoða við hana, ekki það
að hún taki upp eldspýtur og
kveiki í, heldur er hugarorka
Julie svo öflug
að hún kveikir
elda með henni.
Það sem hefur
orðið eldi að bráð
af hennar völd-
um eru nokkrar
byggingar og
nokkrir hundar
og ótrúlegt en
satt þá kveikti
hún í ömmu
sinni.
„Betty amma
brenndist aðeins
en hún hefur náð
sér alveg núna“
segir Julie sorg-
mædd, “ég var
að dást að nýja
náttkjólnum
hennar þegar
hann allt í einu
fuðraði upp. Þetta er sama
gamla sagan, ég horfi á ein-
hvern hlut og hann endar sem
öskuhrúga. Eg vildi að ég réði
við þetta, en ekkert virðist hafa
áhrif á þennan kraft“.
Foreldrar Julie, Brad og
Nancy Gilman, hafa haft sam-
band við marga sérfræðinga í
yfirskilvitlegum hlutum, en eng-
inn þeirra hefur getað hjálpað
þeim með Julie. Nú er svo kom-
ið fyrir henni að hún er útlagi
í hverfinu sem hún býr í í Los
Angeles. Vinir hennar hættu að
heimsækja hana þegar dúkku-
húsið í garðinum varð eldinum
að bráð og nærri lá að allir létu
lífið. Julie sjálf er skelkuð vegna
þessara hæfileika sinna og vildi
ekki koma í viðtal nema í gegn-
um síma. „Ég er hrædd við að
drepa einhvern með þessum
krafti“ segir hún og er vissulega
orðin einmana því allir forðast
hana.
Nancy segir að Julie hafi fyrst
kveikt í þegar hún var þriggja
ára, þá fuðruðu
gardínumar í
herberginu
hennar upp. „Ég
fann reykjarlykt
og hljóp upp“
segir
hún.“Gardín-
urnar skíðlog-
uðu en Julie sat
bara hlæjandi á
gólfínu og var
ekki einu sinni
hrædd".
Gilmanheim-
ilinu hefur verið
breytt í eldvarn-
arbyrgi og þar
inni er ekkert
sem getur
brunnið, eins
hefur Julie lært
að vera með
augun á stöðugri hreyfíngu og
koma þannig í veg fyrir að
kveikja óvart í. Hún hefur ekki
farið í skólann árum saman en
þess í stað kemur hugrakkur
sjálboðaliði heim til hennar og
kennir henni.
Leikkonan fræga Drew Bar-
rymore lék stúlku sem svipað
var ástatt fyrir í Hollywood
mynd, en Julie (minni myndin)
þarf að lifa við þennan ótta.að
kveikja í sínum nánustu, hvern
einasta dag.
Þýtt úr SUN.
Julie Gilman
Ungur samkvæmisdan$ari
Dans er eins og
hver önnur íþrótt
\ HUGI á dansi hefur aukist
mikið síðustu ár og nú er
haldið íslandsmót í samkvæm-
isdönsum og pör fara jafnvel
til útlanda á dansmót. Kári Örn
Óskarsson er 13 ára og hann
æfír samkvæmisdansa fimm
sinnum í viku. Hann býr í Kefla-
vík, en fer nánast á hveijum
degi til Hafnarfjarðar til að
komast á æfingu.
„Sumum fínnst hallærislegt
að æfa dans, en mér finnst það
ekki, þetta er holl og góð hreyf-
ing eins og í öðrum íþróttum.
Ég æfi fimm sinnum í viku einn
og hálfan tíma í senn. Þetta er
voða skemmtilegt og ég og
stelpan sem ég dansa vip stefn-
um að því að ná langt. Á næsta
ári förum við vonandi til Eng-
lands, nánar til tekið Blackpo-
ol, að keppa í dansi. Dansinn
er eina áhugamál mitt fyrir
utan tölvur. Mamma og pabbi
keyra mig á dansæfingar eða
þá að ég tek rútu. Þetta er
ekki rosalega dýrt sport en það
kostar allt sitt.“ Sagði þessi
ungi piltur sem ætlar að dansa
„standarda“ í gegnum lífið.